Dagskrá

Eksemplar

Dagskrá - 13.01.1897, Side 1

Dagskrá - 13.01.1897, Side 1
Ve ð árg. (minnst 104 arkir) 3 kr., borgist fyrir janúarlok; erlendis 5 kr., borgist fyrirfram. Uppsögn skrifleg bnndin við 1. juli komi til utgefanda fyrir októberlok. DAGSKRÁ. I, 46-47. Sundrung kraptanna. Þeir sem veitt hafa athygli helstu viðburðum í póli- tík íslendinga síðan 1881, munu hafa orðið þess varir, að meginsetningarnar í hinni nýju stjórnarskrá, sem ver- ið er að berjast fyrir, festa sig í sannfæring manna, eptir hvern »apturkipp« sem verður í endurskoðuninni á þingi. Þetta er mjög eðlilegt. Menn hafa átt svo erfitt með það í fyrstu, að átta sig á hinum einstöku atriðum í þessum lagabálki, sem þarf að lesast orð fyrir orð og þó allur í heild, með þekkingu bæði á sögu Islendinga og gildandi rjetti, til þess að hann verði skilinn. A fyrri tímabilum hinnar pólitísku sögu vorrar gátu menn miklu fremur fylgt tilfinning sinni einni, og svo að segja meðfæddri sannfæring um það að Islendingar væru frjáls þjóð að rjettum lögum. En nú er öðru máli að gegna. Nú er baráttan fyrir frelsi voru háð eins og málaferli með vísindalegri þýðing á lögum þeim sem málsaðilar styðjast við, og fyrir milligöngu kjör- inna manna, en ekki blátt áfram með einföldurn yfir- íýsingum eða kröfum um frelsi frá fólksmergðinni sjálfri. Þetta hafa óvinir endurskoðunarmálsins notað sjer til þess að sá fræi sundrungarinnar út meðal almennings, og hafa þeir getað komið því til leiðar, að vakin hefur verið deila um rjettmæti ýmsra meginákvarðana í end- urskoðunarfrumvörpunum. En lengra hafa þeir heldur ekki komist; því þegar almenningur hafði lesið þessi vafa-atriði niður í kjölinn, varð niðurstaðan að ekkert væri í sjálfu sjer að finna að því ákvæði, sem ræða var um í það og það skiptið. En svo kom það næsta. Menn hafa sent út hverja fluguna á eptir annari, koll af kolli, í því skyni að »sundra kröptunum«, og optast hefur veiðst eitthvert smáhrafl á agnið. En í hvert sinn sem þræta hefur risið opinberlega út af einhverju sjerstöku ákvæði stjórnarskrárfrumvarpsins hefur fylgi unnist með málinu, hjá þjóðinni sjálfri. En eptir því sem optar er hjakkað í þetta sama far, að vekja orsakalausar efasemdir um málið ntan þings, eptir því vex óþolinmæðin gegn hinum leiðitömu ginningarmönnum óvina vorra. — Það er keminn sá tími 1897. að menn þykjast ekki hafa ráð til þess að bíða ár- um saman með stjórnarbótakröfurnar eptir því að l’jetur eða Páll læri lög og landssögu, til þess að skilja t. a. m. hvað orðið »stjórn« þýðir, (sbr. Miðlunarfrv.«). Al- vörugefnir og málsmetandi fylgismenn hinnar frjálslyndu stefnu á alþingi, munu ekki þykjast þurfa að hlýða á öllu fleiri prófessora-fyrirlestra hinna og þessara neðstu- bekkinga í vorum pólitiska barnaskóla, til þess að vita hvað þeir eiga nú að gjöra í endursköðunarmálinu. Þetta mál hefur sem sje eptir hinn síðasta aptur- urkipp unnið svo mikla festu, að því mun ekki verða haggað úr sporum fyr en Danas'tjórn gjörir sjálf tilboð, sem athugunarvert sje. Menn hafa lært á seinasta hringlinu, betur en nokkru öðru, að ekkert vinnst með því að leggja árarnar upp og að það er engin mótbára gegn hinni fyrri stefnu, að benda á aðra leið enn ólíklegri til arangurs. En þrátt fyrir þetta allt, mun þó ekki verða skort- ur á þeim mönnum sem enn vilja dreifa kröptunum með því að tefla enn einhverju atriði í endurskoðunar- frumvarpi síðustu þinga, undir »athugun» þeirra, sem alltaf kunna að finnast hjer nógu ófróðir um algengustu grund- vallarsetningar stjórnlaga, og nógu framhleypnir til þess að fara að fetta fingur út í lagafrumvarp þetta, sem nú þegar fyrir löngu hefur í öllutn aðalatriðum unnið fylgi allra bestu, hyggnustu tnanna hjer á landi. Og ekki þarf að efast um að þeir sem vilja skó- inn niður af stjórnarbaráttu Islendinga inuni styðja þessa nýju »flugnahöfðingja«; enda er þeim síst láandi. Það er eðlilegt og mannlegt að styðja óvini sína að því verki sem er þeim til eyðileggingar. Hitt væri furðanlegra ef nokkur hinna þjóðkjörnu forvígismanna þessa máls, gerðist nú enn einu sinnu þjónn andstæð- inga sinna. Mótstöðumenn vorir vilja »sundra kröptum« al- þingis á næsta sumri. En þeim getur ekki tekist að eyðileggja endurskoðunarmálið. Það mál er nú komið yfir hinar erfiðustu þrautir, og mun verða leitt til lykta á komandi þingum. Hin þroskaða, fasta endurskoðunarbarátta byrjar á næsta þingi. Menn geta ekki lengur efast um að það er sú leið Reykjavík, miðvikudaginn 13. janúar.

x

Dagskrá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.