Dagskrá

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagskrá - 04.02.1897, Qupperneq 2

Dagskrá - 04.02.1897, Qupperneq 2
214 ir er, og það væri þó enginn ómögulegleiki að koma þessu til leiðar, ef hyggilega er að farið. Ef þessi framfarasnauði bær nokkurntíma kemst svo langt að gera út öflugan þilskipastói, þá væri gjörlegt að hugsa um að koma sjer upp skipakví, og hún væri þá líka ómissandi, bæði til að greiða fyrir útgerð skipanna og sem vetrarhæli fyrir þau. Jeg hef hjer tekið Reykjavík til dæmis. — En allir hljóta að sjá, að sá útvegur sem getur borgað sig vel hjer, muni einnig geta borgað sig annarsstaðar við jafn- góðar fiskistöðvar. Hið helsta sem Reykjavík hefur fram yfir aðra staði landsins í þessu, er það, að hjer er meira um atvinnulaust fólk heldur.en annarstaðar. — En þrátt fyrir það má Rvík heita að standa langt á baki ýmsra annara kauptúna í sjávarútvegi, og munu flestir fljótt. fallast á að reynslan hafi sýnt að þilsldp geta j þrifist, ekki síður, annarstaðar úti um strendur landsins. Og sje þá reikningsdæmið hjer að framan rjett, — sem eng- inn getur vefengt — sjest glögglega hve feiknamikili arður bíður í sjónum kring um Island eptir því að vjer vökn- j um af dvala, og setjum haffær fiskiskip undir sjómenn vora í stað opnu bátanna, sem eru svo hættumiklir, stopulir til sjósókna og fengsmáir. (Meira). Svar til þingmanns Vestur-Skaptfeliinga. í »ísafold« 23. þ. m. stendur grein um stjórnar- skrármálið eptir Guðlaug sýslum. Guðmundsson (þm. V,- Skaptfellinga) þar sem hann vill verja tillögur sínar um stjórnarfyrirkomulag á sjermálum íslands (Sbr. »ísafold« 63, tölubl.). »Dagskrá« hefur áður sýnt fram á (í 24-25. tölubl.) að »stjónarraðsfundir« þeir er höf. hafði viljað lata halda hjer á landi væru ósameinanlegir með afskiptum ríkis- ráðsins af þessum sjermálum, sem höf. gerði þó ráð fyrir að hjeldust, og ráðgjafaábyrgð sú gagnvart alþingi er hann gerði ráð fyrir, væri jafnómöguleg, úr því að rt'kis- ráðið skyldi enn sem fyrr ráða úrslitum þeirra sjermála er bera skal upp fyrir konung. »Dagskrá« hafði, eins og hennar er venja til, skrifað hógværlega og með kurteisi gegn höf., en aðeins sýnt fram á það með rökuiii, sem hvorki höf. nje aðrir geta hrakið, að tillaga hans var í alla staði óaðgengileg, og að hann sjálfur virtist annaðhvort misskilja það hrapar- lega sem í tillögunni var falið, eða ekki vilja skilja það. Síðasta grein hans er skrifuð á sama hátt og hinar fyrri, með undarlega óglöggri efnisskipun og öllu þann- ig fyrir kornið að sem minnst snerti við kjarnanum í þeim atriðum er hann ræðir um. Það fyrsta sem fyrir höf. liggur er spurningin um það, hvort »innlendur landsdómur geti dæmt 'óll 'ónnur pólitisk mál (en stjórnarskrárbrot)« eins og hann hefur haldið fram í »ísafold« áður, meðan þó ríkisráðið væri látið greiða úrslita-atkvæði um öll helstu sjermál ís- lands. Þessu svarar höf. nú í síðustu grein sinni, — ekki með því að sýna fram á að þingið geti komið fram á- byrgd gegn ríkisráðinu, sem allir vita og að er ómögu legt, heldur með því að vefja inn í þetta öðrum, alveg óviðkomandi misskilningi sínum á stöðu hins íslenska ráðgjafa, er hann lætur bera sjermálin fyrir konung —. í ríkisráðinu. Þeir sem spyrja höf. á þessa leið: Hvað verður | úr ráðgjafaábyrgðinni eptir nýju stjórnarskránni yðar úr því að ríkisráðið allt í heild sinni á að bera mál vor fyrir konung alveg eptir sem áður? — fá það svar höf: »Þetta horfir öðruvísi við, en þið haldið. — Sá ís- lenskur ráðgjafi sem yrði ofurliða borinn í ríkisráðinu og rjeði til annars en þess sem kongur fjellist á yrði að að víkja — eptir reglum þingbundinnar stjórnar — og hinn nýji ráðgjafi sem kongur tæki sjer yrði sömuleiðis að víkja ef þingið hjeldi því máli enn til streitu, er /yrri ráðgjafinn hjelt fram o. s. frv.« Svona »horfir það við«. Þm. skaptfellinga virðist nú fyrst og fremst blanda hjer saman ráðgjafaábyrgð og ráðgjafaskiptum, og er það næsta kynlegt, að löglærð- ur maður, sem fengist hefur við þingmál skuli ekki kunna, eða ekki látast kunna, að gjöra greinarmun á því tvennu. Þó það væri rjett sem höf. heldur fratn að hinir íslensku ráðgjafar mundu verða að víkja útaf pólitisku mistrausti eða ósamlyndi við konung eða alþing, þá væri alls ekki þar með opnaður vegur til þess að koma fram á hend- ur þeim eiginlegri ábyrgð fyrir ólöglegar eða óhyggileg- ar stjórnarathafnir. — Ráðgjafaskiptin, sem höf. gjörir ráð fyrir, mundu vera sannkölluð hefndargjöf fyrir alþing, og mundu verða hættulegra vopn í hönduin rikisráðsins til pess að lama sókn alpingis gegn Danastjórn, heldur en hið ábyrgðarlausa neitunarvald þess er nú, því ráð- gjafaskipti þau, sem höf. fyrst nefnir, mundu einmitt koma fram ef einhver svokallaður ráðgjafi úr hinu íslenska »stjórnarráði« hefði áunnið sjer traust alþingis og hjeldi málum þess einbeitt fram í ríkisráðinu, og svo koll af kolli. — Þannig væri það ef höf. hefði skilið rjett stöðu »ís- lenska ráðgjafans« í ríkisráðinu. En nú er ekki einusinni því að heilsa. Öll þessi ráðagjörð höf. um ráðherraskipti út af lag- asynjunum er algerlega gripin úr lausu lopti. Hinn íslenski ráðherra mundi bera tillögu sína fratn sem meðlimur ríkisráðsins, alveg eins og nú á sjer stað. - Ef meiri hluti ríkisráðsins rjeði konungi fra að fall- ast á tillöguna, mundi Islandsráðgjafinrt þó ekki vtkja frá, eins og höf. gjörir ráð fyrir, fremur heldur en hver annar ráðherra sem er i minni hluta mcð tillögu sína í ríkisráðinu. — Þetto er augljóst mál og þarflaust að orðlengja unr það, enda rnunu vist ekki fá da-tni þess að Islandsráðgjafi hafi v^ið ofttrliði boritrn í ríkisráð-

x

Dagskrá

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.