Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 22.06.1897, Blaðsíða 1

Dagskrá - 22.06.1897, Blaðsíða 1
Verð árg. (minnst 104 arkir) 3 kr., borgist fyrir jaftiiarlok; erlendis 5 kr., borgist fyrirfram. Uppsögn skrifleg bundin við 1. júlí komi til litgefanda fyrir októberlok. DAGSKRÁ. 1,97. Reykjavík, þriðjudaginn 22. júní. 1897. Þingmálafundirnir. Á tveim þingmálafundum Vestmannaeyinga 8. þ. m. | og Borgfirðinga 17. þ. m. hafaþingmenn hlutaðeigandi j kjördæma (dr. V. Guðmundsson Og lektor Þórh. Bjarn- arson) fengið þau svör er þeir hafa óskað hjá kjósend- um sínum í stjórnarskrármálinu. Á Akranesi er svo sagt, að fundarmennn hefðu verið á móti því að halda málinn áfram »í frumvarps- formi« — og lítur því svo út, sem þeir hafi verið á hinni sömu skoðun og þm. þeirra, að hægt sje að halda málinu áfram á einhvern annan hátt — á hvern er ekki gott að vita. Líklega fræðir síra Þórhallur landsmenn á því á næsta þingi — um leið og hann gjörir grein fyrir atkvæði sínu, sem enginn flokkur kvað treysta hvoru megin falli. Sömuleiðis hefur dr. Valtýr verið mjög heppinn í Eyjunum. —- Nokkrir kjósendur hans vildu vera því mjög fylgjandi að sjerstaki ráðgjafinn hans, sem á þó að sitja í ríkisráðinuf!) verði settur upp til stjórnarbót- ar fyrir landið — og það látið nægja. Dr. Valtýr er ekki alveg ókunnur, sem frömuður nýrra grundvallar- laga síðan hann hreifði hinu opinbera launungarmáli sínu í fyrra. — Menn vænta sjer því góðrar skemmt- unar af þessu nýja tiltæki hans, er hann kvað sjálfur í- mynda sjer að hann gjöri í samvinnu við ráðherra þann í Höfn er hefur íslandsmál á höndum. Um samgöngumálið eða rjettara sagt um »Vestu«- útgerðina, er menn ætla að muni verða mesta áhugamál þingsins næst stjórnarskrármálinu, fóru kjósendur dr. Valtýs einnig fremur vinsamlegum orðum. Eins bg kunnugt er var hann einn mjög ákafur fylgismaður þessa fyrittækis, og hafði hann til sýnis allavega lita, fallega téikningu af eimskipsskrokki, uppi á þingsalnum — sem j ætla má að hafi ráðið miklu hjá nokkrum fulltrúum, um úrslit útgerðarmálsins, því fremur sem það var á orði að hin smekklega teikning hafi verið gjör af einhverjum fínum mannvirkjafræðingi eptir undirlagi Valtýs og fyrir- sögn. Teikning þessi var mjög vinsæl hjá nokkrum »sam- göngumönnum«, er vildu gjarna hlynna að stofnun lands- skipsins af öðrum ástæðum, — enda virðist það vera forlög þessa vors politiska brallara að vera »tekinn til j inntektar« af öðrum sem hafa meira vit en hann, en því miður ekki eins einlægan vilja. Dýralíf. Kisi. Hann átti ekkert sjerstakt nafn til aðgreiningar frá öðrum köttum. Hann var bara kallaður Kisi, líklega af því að hann var fyrirmynd annara katta að fimleik, mjúku skinni og hárálit. Hann var ættaður sunnan af Nesjum, þar sem blá- gráa kattakynið er til, og var seldur þaðan ásamt þrem systkinum, þegar hann var kornungur kettlingur, til eins af verslunarstöðunum sunnanlands. Systkin hans voru seld aptur með nokkrum hagn- aði innanlands á fjarlægar stöðvar, og þau dreifðu síðan blönduðu kattakyni hvert út yfir sitt umdæmi, — en fyrir Kisa þeim, sem hjer er sagt frá, lágu önnur forlög. Þegar hann var nýkominn heiman að, gekk hann eitt sinn laust eptir morgunverð út fyrir dyrnar á nýja heimilinu sínu til að gá til veðurs. Sólin skein hátt á loptinu og breiddi svo mikinn yl og birtu út í ystu af- kima jarðarhvelsins, að Kisi varð gagntekinn af sæld og fögnuði yfir því að vera til í svona inndælum heimi. Með frábærlega ljettum og fimum fótaburði trítlaði hann fyrst út fyrir götustjettina til þess að sjá enn betur upp í sólina, sem hafði komið upp að húsabaki. Svo teygði hann sig upp og rjetti úr öllum fótum, rak út úr sjer tunguna og hringvafði skottið á sjer. Þetta gjörði hann einum tvisvar sinnum. Þá sá hann hefilspón lypt- ast upp af götunni af morgunandvaranum — og eins og ör væri skotið af boga var Kisi í einu stökki búinn að hremma spóninn og læsa framfótaklónum í gegn um hann. — Hann beið eptir því að herfangið kvikaði, en þegar hann fann að það lá rótlaust undir hramminum, flcygði hann spæninum frá sjer, horfði aptur upp í loptið og ljet sólarhitann streyma um feldinn á sjer, sem glitr- aði í geislunum, svo mjúkur og hreinn eins og dýrasta silki. Kisi lygndi augunum og fór að mala —- irr-arr-irr- arr . . . Hann settist á endann og lagði eyrun aptur af

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.