Dagskrá - 19.07.1897, Side 4
miðlun og tillögur í því skyni að sneiða hjá synjunar-
ástæðum stjórnarinnar, halda nú gorgeirslullar hróka-
ræður um það »að enginn taki neitt tillit til þess, þó
stjórnin segi, að hún geti ekki gengið að þessu eða
hinu«. — Sömu mennirnirsem »doceruðu« með miklum
spekingssvip á dögunum að þingið mundi ekki geta
tekið neitt endurskoðunarfrv. til meðferðar að þessu
sinni ef Valtýs — eða rjettara sagt Rumpsfrv. væri fellt
strax — fullyrða nú með jafnrriikilli andagipt að efri-
dcild geti komið samhijóða frumvarpi inn, þó þetta, sem
nú er í stjórnarmálsnefndinni verði fellt í neðri deild o.
s. frv. o. s, frv.
Það er, í einu orðiaðsegja, haldið reglulegt þorska-
jubilæum hjer í staðnumþessa dagana, og hver kepp-
ist við annan um að véra fremri í hinu politiska axar-
skaptasmíði.
Þinginu óg þjóðinni er einmitt þessa sömu minn-
ingardaga allrar truflunar og fávisku borið frumvarp, sem
Danir sjálfir hafa sarnið í því skyni að taka frá Islend-
ingum heimild þá til sjálfræðis, er þeir hafa samkvæmt
sögulegum rjetti — og sem Danir hafa ginnt auðtrúa og
grunnhygginn íslenskan þingmann til þess að gjöra að
sínu eigin málefni. —: Og þetta er á vitund allra. — En
i demantsafmæli stórflónskunnar er eins og búast er
við fullt hjer af stjórnmálagörpum, sem sverjast viljugir
undir merki mótstöðumanna sinna, með dýrðlegum lof-
söngvum yfir sínum eigin hyggindum og góðvild þeirra
sem hafa lagt rottugi'ldruna fyrir þá.
Ógurlegft vatnsflóð var nýlega í Ungverjalandi.
Jfestan skaða gjörði ákafur vöxtur í á einni sem rennur
í »Pruth«; yfir hana liggur járnbraut, og höfðu menn
ekki veitt því eptirtekt að vatnið hafði grafið undan
brúarstöplinum. KI..12V2 um nóttina aðfaranótt mánudags
fór járnbrautarlest sem gengur á milliLemburg og Ezer-
nowits yfir brúna með fullri ferð. Voru það allmargir
vagnar í lest, bæði flutningsvagnar og farþega. Þegar
komið var út á miðja brúna, heyrðust voðalegir brestir;
brúarstöplarnir hrundu og járnbrautin fjell í ána. Fórst
þar fjöldi manna og vita menn ógjörla hve margir; 30 lík
hata fundist en talið er að drukknað hafi margfallt
fleiri.
Þar drukknaði læknir einn frá Austurríki, Seidler
að nafni. Hann var að koma úr brúðkaupi sínu ásamt
með konu sinni en hún bjargaðist. Bærinn Kolomed
eyðilagðist að mestu; þar fórust mörg hundruð manna
og 100 hús hrundu til grunna, og sama er að frjetta
allstaðar meðfram Dóná. Bærinn Kilia í Bessarabíu er
alveg eyðilagður og áin er þar nálega stífluð af líkum
manna og dýra.
Aiarmikil vatnsfióð hafa einnig verið á Frakklandi,
einkum í kringum árnar Aldeur og Sers; fjöldi fólks
hefur drukknað, menn hafa misst eignir sínar og snúið
sjer til stjórnarinnar með fjárbænir, hópum saman.
Einkennileg líkkista. Frægur skipasmiður
í Liverpool hefur nýlega smíðað líkkistu handa sjóliðs-
foringja einum sem er enn á lífi. Hún er í lögun eins
og björgunarbátur, í henni er þilfar og að öllu er hún
vel úr garði gjörð. Hún er sjö feta löng og byggð
úr dýrum víðartegundum. Henni fylgir stýri og tvær
árar. Skipasmiðurinn hefur fengist við starf sitt í 40
ár; kveðst hann hafa smíðað marga fleytu einkennilega
en þessa kveður hann skrítnasta allra. Sjóliðsforinginn
rjeði sjálfur laginu á kistunni.
Bravól -wm
A. »Mig langar til að ríða eitthvað í sumarþang-
að, sem jeg hef ekki komið áður, það er ekkert gaman
að vera að skjökkta hjerna um nærsveitirnar; jeg er orð-
inn leiður á því!«
B. »Við skulum koma upp í Borgarnes með
Reykjavíkinni
og ríða svo fram í
ðurtshelli,
þangað hef jeg aldrei komið, en það kvað vera ákaf-
lega skemmtilegt*.
A. »Já, það er óskaráð, en hvar fáum við hesta?
Jeg þekki engan þar upp frá, og jeg vil hafa góðan
hest, en ekki eins og móbykkjurnar hjerna«.
B. »Það eru óvíða skemmtilegri hestar á landinu
en í Borgarfirðinum og jeg þekki mann, sem getur út-
vegað þá mjög ódýra«.
A. »Bravo! Við skulum undir eins korna tilhans
og panta hjá honum hesta og fara svo næst til Borg-
arness með Reykjavíkinni, það er svo inndælt að ferð-
ast með henni«.
B. »Maðurinn er uppi í Borgarfirði, hann heitir
Jóhann Björnsson í Bakkakoti, það er ekki annað en
skrifa honum«.
Tvö e$a jþFjú lierbergl, í miðjum bæn-
um, ásamt eldhúsi og dálitlu geymsluplássi, óskast til
leigu fyrir 1. október. Ritstj. vísar á.
Abyrgðarmaður: Einar Bersediktsson.
Prentsmiðja Dagskrár.