Dagskrá

Eksemplar

Dagskrá - 10.08.1897, Side 4

Dagskrá - 10.08.1897, Side 4
mikilli lipurð að halda, það er fyrsta og helsta skilyrðið fyrir því að allt fari í lagi, og þar til er konan betur fallin; hún er mildari og hefur gleggra auga fyrir því, hvað mönnum falli í geð; hún tekur meira tiliit til vilja þegna sinna, hún stjórnar með lagi en ekki hörku; hún er stjórnvitrari. Þetta gildir ekki einungis um konuna sem æðsta stjórnanda, heldur einnig í öllum embættum; hún leysir þau flest betur af hendi; hún hefur meiri áhrif, hún getur betur sett sig inn í tilfinningar annara og sjeð hvers við þarf í þann og þann svipinn. Þetta er mjög eðlilegt. Vjer vitum það öll að móðurinni er eiginlegra og hægra að vekja góðar tilfinningar hjá börnunum, en föðurnum; hún er lægnari á að komast eptir upplagi þeirra og haga sjer eptir því. Alveg sama máli er að gegna með hið fyrtalda; þjóðin er rjett eins og barn, sem verður að leiðbeina, sem verður að laða og leiða með góðu, en það gengur karlmönnum optast illa, þeir grípa til valds og hörku. Menn eru yflr höfuð langt um auðsveipari við konur en karla; þeir gjöra síður á hluta þeirra; það er eins og þeir ósjálfrátt beri einhverja frekari virðingu fyrir þeim, og þess eru nálega engin dæmi þar sem kona hefur ráðið ríkjum, að henni hafi verið gjörð atför, en slíkt er alltítt meðal karlmanna; margir konungar geta aldrei verið eitt einasta augnablik óhræddir um líf sitt. Það er fullkomlega ljóst að í Ameríku bafa konur haft miklu meiri áhrif sem prestar heldur en karlmenn; þær tala með meiri andagipt; það er hlustað á þær með meira athygli; þær hafa betra lag á að slá á þá strengi sem viðkvæmir eru; þær eru sann- færðari um sannleik kenninga sinna; þær eru trúarsterk- ari, í stuttu máli, þær eru betri prestar en karlmenn. Þar sem kvennprestar eru í Ameríku er a!lt af full kirkja, hvernig sem viðrar; þar er trúarlífið heitara, þar er siðferðið betra«. Margt er það fleira sem ensku blöðin segja konum til hróss; á það auðvitað flest að vera stýlað til Viktoríu drottningar og er því ef til vill ekki eins mikil sönnun fyrir því að rithöfundarnir hafi þessa föstu sannfæringu almennt, en dæmin sýna samt að þetta er eigi fjarstæða. í versluninni í Tjarnargötu 1 fiíst svínshöfuð, tær og feiti. Ennfremur matar- feiti og pilsur. Allt frá Melchiors verkstofu í Rand- ers, sem er viðurkennd hin besta í Danmörku. Verðið eptir gæðum mjÖS' Mtyt. Tapast hefur hliðartaska með ýmsu smávegis frá Rauðará inn að bæ Arna pósts. Finnandi skili á afgreiðslustofu Dagskrár. Regnkápa tapaðist »þjóðminningardagitm«.!S. 140 Verslun GUNNARS EINARSSONAR í Tjarnargötu 1. er opin allan daglnn frá ki. 8 f. m. til kl. 8. e. m. þar fást mjög vandaðar og góðar vörur svo sem ýmis-konar vín, kaffi, sikur, chocolade, niður- soðnar- og kryddvörur, brauð, ostur ofl. ofl. Allar vörur ódýrar. kC cö íO' oo cd co bJD O cö -+-» co CD -Q í Kaupmannahöfn, selja vörur sínar til kaupmanna á Islandi rneð verksmiðjuverði en Gros -f- Fragt. — Þekkt- ir, áreiðanlegir kaupendur geta fengið 3. mánaða gjaldfrest. Hinar helstu vörutegundir þeirra eru: allskonar litir til heimalitunar, allskonar blek, lakk af öllum tegundum þar á meðal skóaralakk, hektograffar, gumi- og fiskilím, sápur, buris og margt fl. þess konar. — Um verð á vörunum og nákvæmavóru- upptalning, geta menn fengið að vita með því, að snúa sjer brjeflega til mín eða sjálfrar verk- smiðjunnar P. Rönning & Gjerlöff Kaupmanna- höfn K. Sýnishorn af vörunum geta menn fengið að sjá, hjá B. H. Bjarnason. Eini umboðsmaður verksmiðjunnar á Islandi. Þessi holli og góðfrægi matarbitter fæst í Reykja- vík, aðeins í verslun B. H. Bjarnason. Huröarhúnar 2 tegundir Og Hurðarlamir nýkomið til Th. Tliorsteinssons (Liverpool.) Kjöt af vænum dilkum, veturgömlu fje og sauð- um fæst þessa viku alla í Kirkjustræti 10. Ábyrgðarmaður: Einar Benediktsson. P r e n t s m i ð j a Dagskrár.

x

Dagskrá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.