Dagskrá

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagskrá - 24.08.1897, Qupperneq 6

Dagskrá - 24.08.1897, Qupperneq 6
i86 eins og hann væri fjaðurmagnaður. Hann var kurteis og siðprúður í allri framgöngu, en talaði varla orð frá munni. Það var ekki laust við að svo liti út, sem hann væri hálf einurðarlaus. Hann skrifaði sig ekki lengur Olsen heldur Ohlsen. »Hvað ætli Pjetur hafi menntast mikið í Hamborg?« spurðu gárungarnir. »Hann byrjaði á stafrofinu«, sögðu aðrir. Pjetur hafði líka ætlað að kalla sig Pedro, en sökum þess, hve mikið gys var gjört að honum fyrir »h«-ið, hætti hann við það, og skrifaði sið P. Ohlsen. Hann var dugandi maður og jók verslun föður síns. Þegar hann var 22. ára, gekk hann að eiga búðar- meyna með rauðu hendurnar. Faðir hans var orðinn ekkill, og hann varð að taka við húsinu, en það var skynsamara að kvænast, en að halda ráðskonu, það þurfti þó ekkert að borga konunni. Að ári liðnu eignaðist P. Ohlscn son, var hann vatni ausinn og nefndur Pedro. Þegar Olsen var orðinn afi, fannst honum það hljóta að vera, að hann væri orðinn gamall. Hann afhenti syni sínum verslunina, en sat optast sjálfur á bekk fyrir utan búðardyrnar, og reykti þurkað munntóbak í birkipípu. Þegar hann einhverju sinni hafði setið þarna stundarkorn, tók honum að leið- ast, óskaði hann hann þá, að fá sem fyrst að sofna fyrir fullt og allt; enda hlotnaðist honum það nokkru síðar. Þess er áður getið að Olsen gamla var tvennt vel gefið; hann var hygginn í verslunarsökum, og hafði töluverða sönghæfilegleika Það var alveg eins og gamli maðurinn hefði skipt því á milli sonar síns og sonarsonar, og hefði arfleitt þá sinn að hvoru. Pjetur hafði fengið verslunarkænnsk- una, en litli Pedro sönghæfileikana. Honum gekk il!a að læra að lesa, en fór snemma að syngja. Hann blístr- aði svo vel og viðkvæmt á flautu, að menn hlutu að sannfærast um það, að hann hefði góðar og göfugar tilfinningar. En föður hans geðjaðist miður að því, hann hjelt að »strákurinn« mundi sökkva sjer niður í söng og vanrækja störf sín. Þegar honum varð eitt- hvað á, þá var hann ekki barinn og hrakyrtur eins og faðir hans þegar hann var ungur, heldur var hann klip- inn. Ef hann ekki sat eða stóð eins og föður hans líkaði, þá ldeip hann hann. Móðir hans taldi á honum bláu blettina á kvöldin þegar hún háttaði hanu, og kyssti á þá, en hún þorði ekki að finna að þessu við mann sinn, því þá kleip hann hana líka. í hvert skipti, sem gat kom á treyjuna hans Pedros litla, sem var sniðinn upp úr gamalli ferðaúlpu af föður hans, hljóp Ohlsen upp á nef sjer; ef skólabækurnar hans urðu óhreinar, var sama máli að gegna, og móðir Pedros varð fyrir öllum ákúrunum. Hún v.eitti honnm því stöðugar á- minningar og setti ofan í við hann fyrir cngar sakir. Þetta gramdist Pedro; hann varð reiður við föður sinn, og- honum leiddist nöldrið í móður sinni. Þegar hann var að leika sjer með fjelögum sínum, fóru þeir sjaldnast illa með hann; ef þeir tóku óþyrmilega í hann, fór hann að gráta; hann varð þá hræddur um að fötin sín mundu rifna og þá vissi hann á hverju hann átti von. Leik- bræður hans skoðuðu hann því eins og annan aumingja sem ekki væri gustuk að bekkjast til við, en hann fór algjörlega á mis við allar virðingar hjá þeim. Hann fór einförum og var utan við alJt, enginn tók þátt í kjörum hans, og hann var ekki samrýmdur neinum. Svona var það í skólanum; hann sá það brátt, að þetta var af því, að skólabræður hans þóttust allir vera æðri honum að virðingu og klæðaburði, en hann sá það líka að fátækustu börnin í þorpinu voru öðruvísi Hann var heldur betur búinn en þau, og þess vegna töldu þau hann jafnvel meira en jafningja sinn; hann fór því smám- saman að verða þeim samrýmdari. Einkum var það ein stúlka, sterkbyggð og hávaxin, sem honum geðj- aðist best að; hún mátti sín rnest af öllum krökkunum og var eins og nokkurs konar drottning yfir þeim, en hún var svo undur góð við Pedro litla, og því var hann óvanur. Hún hafði hrafnsvart hár, sern hún greiddi aldrei öðruvísi en með fingrunum; augun voru dökkblá og djúp, og ennið lágt. Hún var starfsöm og afkasta- mikil við allt sem hún gjörði og kvað langmest að henni allra krakkanna. Á sutnrin var hún berfætt og með bera handleggi og dökkmórauð í andliti af sólar- hita; á vetrurn var hún ekki meira klædd, en aðrir á sumrin. Það var táp í henni. Faðir hennar var fiski- og hafnsögumaður. Hún reri með föður sínum og and- æfði bátnum á meðan hann dró. Þegar hann varð að fara í hafnsöguferðir, þá reri hún ein og fiskaöi. Hún vakti mjög eptirtekt manna; það var eins og allir sem höfðu sjeð hana, vildu fyrir hvern rnun sjá hana aptur. Hún hjet Gunnlaug, en var aldrei nefnd annað en fiski- mærin, og þótti henni heiður að því nafni. Alltafþeg- ar börnin Ijeku sjer, hjálpað; hún þeim sem miður höfðu. Pedro varð alltaf undit- við hvern sem hann átti, hún þurfti því opt að hjálpa honum og þess vegna urðu þau brátt samrýmd. Hann liafði næði til að blístra á flautuna sína í bátnum hennar, en það var honum strang- lega bannað heirna, því faðir hans hjelt að það drægi huga hans frá skólanámi og daglegum störfum. Hún reri opt með hann út á fjörðinn á kvöldin þegar sóiin var að síga í æginn og allt var svo unaðslegt í sumar- kyrðinni. Hún sagði honum ótal margar sögur um marmennla og töfra þeirra; um skipbrot og lífshættur; um ókunn lönd, svarta menn o. fl. Frá þessu höfðu sjómennirnir sagt henni. (Framh.)

x

Dagskrá

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.