Dagskrá - 21.09.1897, Qupperneq 4
268
þau; hún gekk áfram á undan þeim og þau á eptir inn
í herbergi Pedros. Herbergið var lágt og lítið og ein-
kennilegan þef lagði fyrir þegar inn kom, svo Petru lá
við að kafna; hún var svo illa undir það búin að mæta
nokkru misjöfnu, því hún hafði hvorki neytt svefns nje
matar meira en sólarhring. í miðju lopti herbergisins
hjekk lítið fuglabúr og var í því kanarífugl; það var
svo lágt undir loptið að menn urðu að gæta þess að
ganga fyrir utan búrið til þess að reka sig ekki í það.
Inni voru nokkrir stólar stórir og klunnalegir, eitt borð
sömuleiðis stórt og óliðlegt, tveir skápar, sem náðu neð-
an frá gólfi upp í lopt; allt þetta þrengdi svo herberg-
ið að þar var nálega ekkert rúm.
A borðinu var nótnabók og ofan á henni lá hljóð-
færi. Pedro Ohlsen var á ferð og flugi um allt herbergið
að taka tilíþví; veik rödd heyrðist úr herberginu hinum
meginn. »Hver er þetta? — hver er inni?« tautaði liann
fyrir munni sjer og gekk enn þá harðara um herbergið.
»Það er — hurrl hum--------það er— hum« Því næst fór
hann inn í herbergið þaðan sem röddin heyrðist.
Gunnlaug sat úti við gluggann; studdi sínum ölnboga
á hvort knje og sinni hönd undir hvora kinn. Hún
horfði stöðugt niður á sandinn á gólfinu. Hún mælti
ekki orð af vörum, en andvarpaði við og við mæðilega.
Petra stóð frammi við dyrnar og krosslagði hendurnar
á brjósti sjer. Hún var náföl og töluvert veik. Göm-
ul klukka var á þilinu, sem gekk hægt og seint; það
var eins og hún væri að draga tímann sem lengst þeim
til kvalar, sem inni voru. — Loksins sagði Gunnlaug,
eins og til þess að sýna lit á því að gjöra grein fyrir
komu sinni í þetta hús. »Jeg hef þekkt þenna man
áður«. (Frh.)
FRIBRiK EGCERTSSON,
skraddari,
(Glasgow)
hefur nú með »Jyden« fengið sýnishorn af
alis konar vetrarfataefnum.
Allt sjerlega fallegt og ódýrt.
Alit valið eptir nýjusíu tísku.
Komiö og skoðið—=
áður en þið gerið kaup annarsstaðar.
V e r s I u n
nýkomið:
Reykt Fedsild i Olie. Fiskabúðingur.
Marineret Brisling.
Sardeller.
Anchovis.
Leverposteg.
Súpujurtir.
Fiskaboilur.
— do. —- í hv. sauce.
Skilpadde.
Bayerske Pölser.
Knækbönner.
Skinkeextrafin, 8-9®stk. Slikasparges.
Spegepðise. Rússn. grænar baunir.
Reykt síðuflesk. Champignons.
Lageröl.
Pilsner.
Sodavatn.
Misprentað í síðasta bl. »Dagskrár«, i. síð. 2. d-4. línu
a.'o. 1897, les: 1 895, og á 1. síð. 2. d. 19. 1. a. o. petta, les:
þessu.
Miðdegismat,
enn fremur alit
Fæði
selur
hússtjórnarskólinn.
Iðnaðarmannahúsíð. Inngangur á norðurhlíð,
Hólmfríður Gíslaóóttir
(kennslukona skólans).
Síldarnet gamalt óskast til kaups. Sig. Júi.
Jóhannesson vísar á kaupanda.
Lífsábyrgðarfjelagsins .,Star“
er á Skólavörðustíg 11;
opin hvern virkan dag kl. 12 á h. d. til 2 e. h. d.
°g 5—7 e- m
Ó. R. G. T.
F U N D U R í Good-TernpiarsíúKunni
„HLÍN“, Nr. 33,
er haldinn á hverjum mánudegi, ki. 8 e. h,,
í Good-Templarhúsinu.
Þar er allt af eitthvert skemmtilegt efni á dagskrá.
Nýir meðiimir veikomnirl
Abyrgðarmaður: Einar Benediktsson.