Dagskrá - 01.11.1897, Blaðsíða 2
31»
Svar til Gísla Þorbjarnarsonar
»Þóttust menn og voru ekki,
vildu glíma og gátu ekki«.
Búfræðingurinn Gísli Þorbjarnarson hefur
samið langa klausu í 77. tölubl. „Dagskrár"
þ. á. út af nokkrum setningum i einum gr.
stúfnum í »Búnaðarbálk«, í 43. tölubl. Islands
þ. á. En með því að mjer þykja athuga-
semdir höf. á litlum rökum byggðar og með
öllu óþarfar, þá vil jeg biðja Dagskrá að
flytja búfr. kveðju mína ásamt fáeinum at-
hugasemdum.
Meiri partur greinar höf. kemur alls ekki
við efnið. En þar sem hann kemst að efn-
inu og reynir að hrekja fyrnefndar setningar,
þá ferst honum það ekki fimlegar en svo,
að hann fellur alltaf á sjálfs síns bragði, svo
ónotalega, að jeg vona til þess, að hann
fari varlegar næst, þótt hann kynni að fá
glímuskjálfta, er hann les „Búnaðarbálk" í
íslandi.
Höf. segir meðal annars: „Hvað snertir
álit hinna gömlu og hyggnu búmanna höf.
um það, að ekki ætti að slá tún síðar en 17
vikur af sumri, þá er jeg þess fullviss — af
eigin sjón — að sú sögn er tæpl. þess verð
að vera sögð i leiðbeiningarformi ísl. bænd-
um í lok nítjándu aldar, því það má fullyrða
að engin hætta væri á ferðum þótt tún væru
f síðasta sinni á ári slegin mikið síðar, en
þá þurfa þau auðvitað að vera í góðri rœkt
o. s. frv.
Hvernig hefur búfr. sjeð með eigin sjón
að þetta sje rangt hjá mjer?
Höf. heldur víst að túnin á íslandi sjeu
slegin opt á ári hverju, þar sem hann tcemst
svo að orði: — í „síðasta sinni á ári". Jeg
skal fræða búfr. á því að túnin á Islandi eru
vanalega slegin aðeins 1 sinni á ári, nema
nýjar sljettur sem á flestum stöðum á landinu
munu vera tvíslegnar. Austurvöllur í Reykja-
vík hefur fyrrum verið slegin 3 á sumri, en
það eru hreinar undantekningar, enda er
meira skjól á Austurvelli, en á nokkrum
öðrum túnum, og jarðvegur frjófsamur. Höf.
segir að túnin verði þá auðvitað að vera í
góðri ræktun og áframhaldandi góðri hirð-
ingu ef megi slá þau miklu seinna en þa 17
vikur eru af sumri eins og jeg hefi til tekið.
Nú, hvað er þá ofhermt hjá mjer þessu við-
víkjandi, búfr. góður? Eða álítur búfr. að tún-
in almennt sjeu í góðri rækt og góð hirðing
á þeim? En álíti búfr. eins og jeg og fl. aðrir
munu álíta, að aðeins tiltölulega fá tún á
öllu landinu sjeu í góðri rækt, þá veit jeg ekki
hvaðerað falla ásjálfs síns bragði ef það ekki
er þessi krítik höfundarins.
Enn fremur segir höf. að jörðin þurfi ekki
grasið (hána) sjer til skjóls fyrir kuldum og
næðingum að vetrinum, því áburðurinn sem
borinn sje á að haustinu — dreifður og
smátt mulinn — gjöri meira gagn og færir
því, sem sje, til sönnunar dæmi úr Reykja-
vík að haustáburður á flatlend tún með
djúpum jarðvegi, hafi gefist þar betur en
vor áburður.
Það má skilja það á orðum búfr. að
það sje ekki almennt að breiða úr túnáburði
á haustin, þar sem hann tilfærir dæmi úr
Rvík í þá átt, sem hafi gefist vel. Enda
er það með öllu rjett, að það er langt frá
því að vera almennt. En þó segir búfr. að
áburður breiddut á tún skýli betur rótinni
en háin, og því þurfi hennar ekki með. Það
er æfinlega rjett að gera við því sem er.
Væri það almennt á landi voru að fara
þannig með áburðinn þar sem því verður
viðkomið, þá væri það sök sjer þótt búfr. færi
þessum fákænsku orðum um þetta, en þegar
þetta er nú ekki tilfellið, þá kemur fram
meira en lítil ósamkvæmni hjá höf. og fellur
hann þar í annað sinr. illa á sjálf síns bragði.
En þótt það væri nú aldrei nema siður,
að bera á túnin á haustin og dreifa úr áburð-
inum, þá skal jeg fullvissa höfundinn um
það, að háin hefur þó eigi að síður afarmikla
þýðingu, sem skýli fyrir rótina o. s. frv.
En það er hægt að sjá það á því sem höf.
skrifar, að hann hefur ekki minnstu þekkingu á
því, sem hann skrifar um; hann veit ekki
hvaða þýðingu grasið á jörðinni hefur fyrir
frjófsemi jarðvegsins, og má þó ekki minna
ætlast til af búfræðingi, þar sem næstum
því hver og einn óbúfróður almúgamaður skil-
ur þetta rjett að segja af sjálfu sjer.
Svo segir og höf. að hann þekki ekki
þá venju að beita kúm út á haustin á fallið
gras á engjum í vondum veðrum, en hest-
um sje lofað að skafa túnin. Það getur vel
verið að höf hafi aldrei sjeð slíkt, viti það
alls ekki fremur en hvað túnin á ísl. eru
opt slegin á ári hverju. Því þótt hann hafi
ferðast vítt og dreift um Suðuramtið, í júní
og júlí á sumrum og ekki orðið var við þetta
eins og hann segir, þá getur það þó eigi
að síður hafa átt sjer stað í september,
þegar búfr. var komin heim til sín. Annars
legg jeg það undir dóm lesenda þessa blaðs,
hvor okkar Gísla segir sannara í þessu efni.
Að síðustu segir höf. að kýrnar skemmi
túnin alt að því eins mikið og hestarnir.
Þetta er ekki rjett hjá búfr. Hestarnir spora
túnin mest í þýðum á veturnar þegar jörð
er gljúp, þegar klaki er að fara úr jörðu.
þá eru kýrnar inni í fjósum sínum. Þótt
kýr bíti á túnum á haustin, þá sakar það
þau lítið; þær ganga aldrei of nærri rótinni
en það gera hestarnir; þeir rótnaga þau.
Enda borga kýrnar veruna sína á túnun-
um á haustin vanalega með því, að gefa meiri
mjólk. Þeim er líka um.þann tíma, þegar
þær nálgast burð, túnveran í alla staði hollari
en engjaveran. Veit ekki búfræð. þetta?
Það sem höf. talar um að jeg hafi farið
hörðum orðum um fátæka einyrkja í landinu,
þá getur víst engin lesið það út úr gr. minni
nema Gísli Þorbjarnarson. Og allt það sem
hann segir þar um, — er út í hött talað og
grein minni óviðkomandi.
5.
„Hjálmar“.
Hjer með leyfi jeg mjer að senda yður,
háttvirti herra ritstjóri, nokkrar athugasemdir
viðvíkjandi skipinu »Hjálmar«, sem Eimskipa-
útgerðin hefur fengið til að fara seinustu
ferðina í ár samkvæmt áætluninui.
Það hafa farið hjer ýmsar flugufregnir
um þetta skip, sem nauðsynlegt er að leið-
rjetta. Farþegi einn, sem farið hefur með
skipinu hefur borið það út, að »Hjálmar«
hafi verið 16 daga á leiðinni frá Kaupmanna-
höfn til Seyðisfjarðar, sem dæmi þess, hve
ferðlítið skipið sje. En sannleikurinn er sá
að skipið var aðeins 10 og hálfan sólarhring
einmitt þessa ferð frá Kaupmannahöfn til
Eskifjarðar og hafði þá komið við bæði á
Shetlandseyjum og á Færeyjum og fengið
slæmt veður á móti, talsvert af leiðinni. Ept-
ir komu þess til Eskifjarðar fór það fram og
aptur með Austurlandinu á 6 hafnir, áður
en það kom til Seyðisfjarðar, og þar sem
skipið hefur þótt koma seint til Seyðisfjarð-
ar, er það strandferðum þess á Austurland-
inu að kenna, en engin ástæða er til að
lasta skipið fyrir að hafa verið lengi á leið-
inni milli landa. — Hinum umgetna farþega
og öðrum, sem þekkja« „Hjálmar" ber sam-
an um, að Hjálmar sje sterkt og þægilegt
farþegaskip. Skipið er af nýjustu gerð og
talið í fyrsta flokki í alla staði.
Þegar samningar voru gerðir í vor um
að láta „Vestu“ tara 2 ferðir í haust milli
íslands og Frakklands og ákveðið var að
skipta um skip, þannig, að aukaskipið færi
þessa seinustu ferð samkvæmt áætluninni,
hafði jeg í höndum samning við Tulinius
um.aðhannútvegaðieimskipið »Constantín« fyr-
ir aukaskip bæði í sumar og í haust, en skip
þetta fer 11 mílur á sjöttungi sólarhrings
og hefur rúm fyrir 28 farþega á fyrsta far-
rými og 24 til 40 á öðru farrými, og var
leigan fyrir skipið helmingi minni en fyrir
„Vestu“. —- Þessar ráðstafanir voru gerðar
bæði til þess að spara eimskipaútgerðinni
þann mikla tekjuhalla, sem búast mátti við
af haustferðunum samkvæmt fyrri árs reynslu,
svo og til að safna reynslu um notkun á
smærri aukaskipum. Eins og sjá má af
lögunum og umræðunum um eimskipaútgerð-
ina á alþingi, var ætlast til, að útgerðin leigði
minni aukaskip til þess að afla sjer reynslu
fyrir komandi ára skipaferðum um það,
hvernig smærri skip mundu gefast, og sú
hefur líka reyndin á orðið fyrir útgerðina að
smærri skipin hafa verið hagfelldari og svara
betur kostnaði en stóru skipin, enda er nú
gert ráð fyrir, að tvö minni aukaskip verði
næsta ár í förum kringum landið.
Þegar til kom, gat Tulinius ekki upp-
fyllt skuldbindingar sínar og staðið í skilum
með tilliti til „Constantin“. Hann sendi þá
fyrst annað skip „Jyden“, en bjóst við að'
geta fengið „Constantin" í síðustu ferðina.
Til þess að reyna að færa þetta í lag varð'
jeg í haust að sigla til Kaupmannhafnar, en
þegar jeg kom þangað var öll von úti um
að fá „Constantin" eða „Jyden". Hraðskeyti
og brjef voru send í allar átir til að fá ann-
að skip, en það varð ekki auðið að fá neitt
skip til Islandsferða annað en „Hjálmar".
Tveir kaupmenn hjer i bænum, sem einnig
leituðu fyrir sjer til að fá eimskip á leigu
hafa ekki heldur fengið skip, en orsökin er
sú, að fragt á skipum hefur stigið óvenjulega
mikið, og geta því skipseigendur haft mjög
mikinn arð af skipum sínum heima við án
þess að þurfa að senda þau í haustferðir til
Islands.
Það var því nauðugur einn kostur a&
taka „Hjálmar" og fá um 1000 kr. afslátt á
leigunni, eða þá algerlega að svíkjast um að
fara seinustu ferðina á áætluninni.
Eins og áður getið, er „Hjálmar" 1
fyrsta flokki á eimskipaskránni „Bureau
Veritas", jen í þeim flokki eru aðeins þau
skip, sem talin eru ugglaus til allra ferða_
Hvað ferð þess snertir, hefur eigandinn gefið
mjer þannig lagðar skriflegar lýsingar á
skipinu, að ekki gatkomið til mála, að hafna
slíku tilboði. Auk þess hefur skipið nægileg-
an seglútbúnað til að bjarga sjer, ef eitthvað
skyldi brotna í maskínunni. Skipstjóri er mjög
vel kunnugur hjer við land og vanur Is-
landsferðum, var áður stýrimaður á eimskipum
„A. Asgeirsson", og hefur í ár flutt farm.
og farþega til íslands á „Hjálmar".
Það er því engin ástæða til að vera
hræddur um skipið. Hitt er eðlilegt, að
menn sjeu óánægðir með, að það skuli ekki
koma á tilteknum tima og vilji vita ástæðu
fyrir ;því, hversvegna það sje ekki komið.
En meðan frjettaþráðurinn er ekki kominn
hingað til lands, verða tilgátur einarað nægja í
þvi efni, og virðast þa tvær ástæður liggja
mjög nærri, önnur sú, að skipið hafi ekki
farið á rjettum tíma frá Kaupmannahöfn, en.
hin, að það hafi leitað sjer skjóls fyrir ofsa-
veðri því, sem nú um nokkurn tíma hefur
gengið hjer og fyrir sunnan land, og þó
helst á Færeyjum, en þá mun naumast verða
búist við, að skipið geti komið hingað fyr
en 2—3 dögum eptir að þessu ofsaveðri.
slotar.
Það hefur opt komið fyrir að póstskip-
in tefjist eða leita sjer skjóls dögum saman
í óveðrum, þannig hefur það tvisvar borið
við þegar jeg hef verið með „Lauru", að
hún tiefur snúið aptur við Reykjanes. I ann-
að skipti var jeg 6 daga á leiðinni frá Reykja-
vík að Reykjar.esi, en það var ekki með
V,