Dagskrá - 12.11.1898, Blaðsíða 1
Dagskrá kemur út á hverj-
um laugardegi, kostar 3,75
(erlendis 5 kr.), gjalddagi 1.
október.
©
Afgreiðsla og skrifstofa er
Tjarnargötu I, opin hvern
virkan dag kl. 11 —12 og
4—5 síðd.
III. M 17.
Reykjavík, laugardaginn 12. nóvember.
1898.
Til minnis.
Bœjarstjórnai-fundir i. og 3. Fmtd. í mán.,
kl. 5 síðd.
Bdtœkranefndar-íímáÍT 2. og 4. Fmtd. í mán.,
kl. 5 síðd.
Forngripasafntd opið Mvkd. og Ld. kl. 11—
12 árdegis.
Landsbankinn opinn dagl. kl. 11 árdegis til
2 síðdegis. — Banlcastjóri við kl. n1/.—
172. — Annar gæzlustjóri við kl. 12—1.
Landsbókasafnid: Lestrarsalur 'opinn dagl. kl.
12—2 síðd. á Mánud. Mvkd. og Ld. til kl.
3 síðd. — Útlán sömu daga.
Náttúrugriþasafnið (í Glasgow) opið á sunnu-
dögum kl. 2—3 síðd.
Söfnunarsjódurinn opinn í barnaskólanum
gamla kl. 5—6 slðdegis 1, Mánud. í hv.
mánuði.
Ókeyþis lœkningi. sjúkrahúsinu á þriðjud. og
föstud. kl. 11—1
Ókeypis tannhekning hjá tannlækni V.Bern-
höft. — Hótel Alexandra 1. og3- mánud. í
hverjum mánuði.
Fastir fundir í Good-Templarhúsinu.
■»HUm Mánud. kl, 8 síðd.
»Verdandn Þriðjud. - —
nBifrösh Miðv.d. - —
»Emingin«. Fimtudag - —
Barnastúkan Sunnud. kl. Tjj slðd.
JDavid 0stlund Sunnud. kl. 6V4 síðd.
Bindindisfélag ísl. kvenna; 1. föstudag
hvers mánaðar kl. 8V2 síðd.
Barnagudsþjónusta hvern s.dag kl. 10 árd.
Fastir fundir í Framfarafélagshúsinu.
Fundir Framfarafélagsms á hverjum sunnu-
degi. kl. 4 slðd.
Hér með votta ég mitt innilegasta
hjartans þakklæti öllum þeim, er sýndu
mér hluttekningu og hjálp á meðan kona
mín sál. lá og við fráfall hennar, en
sérstaklega þakka ég ljósmóður Þór-
unni A. Björnsdóttur, sem með aðdáan-
legri nákvæmni stundaði hina látnu á
meðan hún þurtti við, og trésmið Er-
lindi Árnásyni og konu hans fyrir alla
aðstoð þeirra. Enn fremur meðlimum
Good-Templarstúkunnar „Einingin" nr.
14 fyrir hluttekning þeirra og hjálp við
jarðarförina.
Rvík, 10. nóv. 1898.
Sigurður Jónsson
(bókbindari.)
Tvö herbergi
á bezta stað í bænum eru til leigu
fyrir einhleypa, helzt skólapilta eða
stúdenta.
Ritstjóri vísar á.
BS O
<1 o
■33
tó <
* o
< ‘z §
K S &
Í & S #
QO
ÖD
◄
& 5
M 'H S 2 N
0 £ % v ■<
* ® -rt H
O
rt
>
cö
>>
0
CC
4
I
4
W
J A W
X
C3
:0
w
CZÍ
h—,
o
w
Pá
H
c/)
a
ÍJS
-h w S
oo
c/j
c/)
O
C
05
£
C
0
C5
£
O
Þh
p -I S
O & < W
. b/3 ^ íd
S ac < tó
* H $ .<;
ÍJ O < N
Í S? w -
-h bfl <-
” 0 =2
C P
bJD ö
o
«0
cö
c
0
jo'
To
c/)
cd
©
•H
Ö>
Cð
tí
©
T3
C
X
6
o
LO
a
p
[bJD
0
A
VÍ5
rt
& H §
ro rK P-i
'o — S tr
« S s 3 I
* • ’O
3 & CD
OÆ "T*
O
M
Utlönd.
Frakkland. Dreyfusmálið er þar
altaf efst á dagskrá. Það er nú talið
víst, að málið verði endurskoðað. Tvær
bækur hafa nýlega verið gefnar út því
viðvíkjandi. Annað eru bréf Dreyfus-
til konu hans, og hafa ættingjar hans
gefið þau út. Bókin heitir: „Bréf frá sak-
lausum manni“. Hin bókin heitir: „Sann-
anirnar", og hefir Georg Brandes skrif-
að ritdóm um bók þessa; fer hann
afarhörðum orðum um herstjórnar-
ráðaneytið, Esterhazy, franska þingið 1
og yfirvöldin. Segir að höfð hafi ver-
ið í frammi svik, lýgi, undirferli, fals
og öll þau djöfullegustu brögð, ernöfn-
um verði nefnd.
Nýlega átti að selja öll húsgögn
Zola til lúkningar málskostnaði, þrátt
fyrir það þótt boðist væri tilað borga
hann fyrir hann. Málskostnaðurinn var
30,000 frankar. Fyrst var boðið upp
skrifborð og í það boðnir rúmir 30,000
frankar. Hafði það gjórt vinur Zola, til
þess að koma í veg fyrir, að öll hús-
gögn hans yrðu seld. Sagt er að Zola
riti nú bækur í ákafa, en ætli ekki
heim að hverfa fyr en einhver enda-
lykt hafi orðið á Dreýfusmálinu.
Esterhazy er flúinn til Englands;
honum þótti sér ekki vært á Frakklandi
lengur. Sagt er að hann ætli að geía
út bók um Dreyfusmálið, einungis til
þess að vinna sér fé, því hann er í óg-
urlegum fjárkröggum. Búist er við að
þar verði svo berlega sagt frá sví-
virðu þeirri, er hefir átt sér stað við
mál þetta frá upphafi, að bókin verði
gjörð upptæk jafnskjótt sem hún kem-
ur út, en bóksali einn hefir boðið Est-
erhazy 100,000 franka fyrir fyrsta ein-
takið.
Hertoginn af Orleans tær óþökk
mikla fyrir afskitti sín af Dreyfusmál-
inu, er það haft í heitingum, að hann
skuli tekinn fastur, ef hann dirfist að
stíga fæti sínum yfir landamærin.
Verkfall mikið hefir verið í París
að undanförnu. Verkamenn hættuvinnu
svo tugum þúsunda skifti; krefjast þeir
styttri vinnutíma og hærri launa; en
lítið hafa þeir áunnið og eru flestir
teknir til starfa aftur.
Danmörk. Þar ber tatt til tíðinda
um þessar mundir. Sorgarblær á öllu
eftir lát drotningar,—
Töluvert uppþot varð nýlega á
meðal verkalýðsins. Voru það bakara-
sveinar, sem kröfðust 8 klukkustunda
vinnu og hærrí launa. — Fengu þeir
kröfum sínum fullnægt að því, er tím-
ann snerti, en kaupið fengu þeir ekki
hækkað.
Frakkar og Englendlngar eiga nú
í brösum saman út af löndum í Af-
ríku, er hvorirtveggja vilja eiga. Þyk-
ir vanséð hvorir muni bera hærra hlut.
Georg Saxton, bróðir Mak. Kyn-
leys forseta Bandaríkjanna var nýlega
skotinn til bana í borg einni í Ohio.
Halda menn að það hafi gjört kvenn-
maður.
Stórveldin hafa skipað Tyrkjasold-
áni að taka burt allan her sinn af Krít
áður en mánuður sé liðinn, og er talið
víst, að hann þori ekki annað en hlýða
skipun þessari, þótt honum auðvitað
þyki það hart.
Nefnd sú, er kosinn var til þess
að gjöra friðarsamningana, lætur ekk-
ert berast út af fundum sínum og
eru menn því ófróðir um hvað þar fer
fram.
Þýzkalandskeisara var nýiega sýnt
banatilræði. Hann er nú á ferð suður
á Egyptalandi.
Smávegis úr lærðaskólanum.
11.
I síðasta blaði Dagskrár var talað
um dýrar kennslubækur í lærðaskólan-
um, en eitt atriði var ekki tekið þar
fram, sem gjarna hefði mátt minnast í
sambandi við það atriði, þetta er skóla-
uppbóðið. Það hefir um langan tíma
verið siður, að skólastjóri leyfði nem-
enduin að halda uppboð í 2—3 daga
á haustin eflir að skóli var settur,
þar sem þeir seldu og keyptu allar
þær bækur, er þeir máttu án vera eða
þurftu að eignast, Þetta var mjög vel
til fallið og einkarhentugt fyrir alla
skólapilta. Þá þurftu þeir ekki að
hugsa um bókakaup fyr en á haustin,
nema ef þeir vildu fá sér nýjar bækur.
Nú hefir skólastjóri svift pilta þessum
réttindum, eða réttara sagt hlunnindum
Þeir fá ekki lengur að selja bækur sín-
ar þannig, og er það mjög óþægilegt.
Af hvaða ástæðum þessu hefir verið
breytt, er ekki hægt að vita, en víst er
það, að piltar eru alment mjög ó-
ánægðir yfir því og það er, frá mínu
sjónarmiði, breyting til ills en ekki
góðs. Þess skal getið að piltum mun
hafa verið gefinn kostur á að halda upp-
boð á bókum sínum á vorin að afloknu
prófi, en það liggur í augum uppi, að sá
tími er að mörgu leyti óhentugri en að
haustinu. Þá eru sumir farnir af stað
heimleiðis og hinir, sem eftir eru, hafa
nóg að hugsa að búa sig til heimferð-
ar, því flesta mun fýsa að komast sem
fyrst til vina og kunningja eftir vetrar-
dvölina hér. Margir eru þeir einnig,
sem verda að fara jafnskjótt sem þeir
losna til pess að vinna sér inn fé. Þe.r
mega engum degi glata hér syðra. Þeir
verða að nota hve rja stund, sem þeir
eru lausir við skólann, og það er ekki
rétt gjört að svifta þá þeim þægindum,
sem þeir hafa haft og geta haft án
þess að nokkur bíði af því tjón eða ó-
þægindi. Skólauppboðið ætti að verða
leyft aftur; það var vanhugsað að banna
það, en engin skömm er að því að hafa
yfirsést, ef menn kannast við það og
breyta jafnskjótt stefnu sinni þegar
reynslan hefir sýnt að hún var röng,
og f þessu atriði held ég óefað að hún
hafi fyllilega gjört það.
í næsta blaði verður minnst á
skólahátíðina,
S. J. J.
Athugasemdir verða, ef til vill,
gjörðar síðar við „Horfurnar", sem enda
f þessu blaði. Þar eru nokkur atriði,
sem ritstjóri er ekki samþykkur.