Dagskrá - 03.06.1899, Blaðsíða 1
DAGSKRA.
III. Ko. 47.
Reykjavík, laugardaginn 3. júni,
1899.
Hn rreVrd ^emur ut á hverjum
L/Clt^OXVi CL iallgíárdegi, árg. kostar
3,75 (erleniiis 5 kr.j, gjalddagi 1. okt.
A.fgreiðsla og skrifstofa pr í Lfelcjargötu
4, opin hvern virkan dag kl. 11—12 og
4—5 siðd.
Reikningsskil og innheirrUu
„Dagskrár" annasí séra Jón
Bjarnason, hngholtsstræti 16,
Reykjavík,
SaeRur. "^l
Veguránn tirKriste. Eftir E. G.
White, 169 bls. Innb. í skrautb. Verð:
1,50.
Endurkoma Jesú Kristts. Eftir
JamesWhite. 31 bls. Heft. Verð : 0,15.
HviSdardagur drottins og lielgi-
hald hans fyr qg nú. Eftir David
0stlund. 47 bls. í kápu. Verð: 0,25.
„Verði Ijóe“ og hvíldardagur-
inn. Eftir David 0stlund. 88 bls. í
kápu. Verð: 0,25.
Þessar bækur fást hjá þessum útsölu-
mönnum:
Akureyri: Hr. Eriðbjörn Steinsson. Hr.
Guðmundur Guðmundsson (Odd-
eyri).
Blönduós: Hr. Böðvar .Jðnsson (Tjörn,
V atnsnesi).
Dýrafjörður: Hr. Einar Magnússon
(Hvammi).
Djúpivogur: Hr. Haraldur Briem.
Eyrarbakka: Hr. Guðmundur Guð-
mundsson.
Fáskrúðsfjörður: Hr. E. E. Wíem.
Húsavík: Hr. Jón Armaun Jakobsson,
kaupm.
Haukatunga i Kolbeinsstaðarhrepp: Hr.
Vilhjálmur Teodórsson'.
ísafjörður: Hr. Þorvaldur Jnnsson hér-
aðslæknir. Hr. Sæmundur Guð-
mundsson ljðsmyndari.
Ólafsvík: Hr. Einar Markússon.
Reykjavík: Hr. Sigfús Eymundsson.
Sauðárkrókur: Hr. Kristján Blöndal.
Hr. _Jðh. Jóhannesson.
Selfoss í Arnessýslu: Hr. Símon Jóns-
son.
Seyðisfjörður: Hi’. Lárus Tómasson.
Stöðvarfjörður: Hr. Þorsteinn Þ. Mýr-
mann.
Tálknafjörður: Hr. Gísli Kristján Jó-
hannesson (Sveinseyri).
Vestmannaeyjar: Hr. Kolbeinn Arna-
son.
Vopnafjörður:, Hr. Jón Jónsson lækn.
Þjótanda í Arnessýslu: Hr. Einar
Brynjólfsson.
Aðalútsölumaður:
David Bstiumi, Revkjavík.
OTLÖND.
—o—
England og Transvaal. Nýlendu-
ráðgjaíi Breta sendi tíýlega skipun
um það til' stjórnarinnar í Trans-
vaal að uppfylla allar þær skyldur,
er á henni hvildu til þess að halda
þar á friði og reglu. Þar hefir
reyndar altaf verið einkar friðsam-
legt, en útlendingar er þangað flytja,
hafa ekki atkvæðisrétt. Þetta
ásamt því að Krilger forseti hefir
verið stirður að taka öllum breyt-
ingum frá hendi Englendinga, hefir
gert Chanberlain gramt í geði og
vill hann helzt færa þeim Trans-
vaalsbúum stríð á hendur; en það
hefði óhjákvæmilega þann enda að
Englendingar næðu landinu alger-
lega undir sín yfirráð.
Jafnaðarmenn á Hollandi vilja
ekki samþykkja friðarsamkomuna,
og Segir van Kolo, að það sé fyr-
ij þá orsök að hún sé boðuð af
Rússakeisará, sama manni, Sem
láti ofsækja þúsundir þeirra manna,
sem berjast fyrir velferð þjóðar
sinnar; fjöldi þeirra væri drepinn
eða rekinn í útlegð; hún væri boð-
uð af sama manni, sem altaf væri
að auka herafla sinn, sama. manni,
sem nýlega hefði sýnt það og
sannað að hann væri grimmúðug-
ur harðstjóri, þar sem hann hefði
synjað Finnum um sanngjamar
og sjálfsagðar kröfur. Hann sagði
enn fremur að þess konar friðar-
eða sáttatilraunir ættu að vera
leynilegar; af stórum samkomum
væri einskis að vænta í þá átt.
Freycinet hermálaráðgjafi Frakka
hefir sagt af sór. 1
Filippseyjar. Ameríkumenn hafa
hertekið San Fernando og rekið
eyjarskeggja á flótta, en þeir kveikt
í bæjunum San Tómás og San
Fernando. Aquinaldo segir, að
hvorki sig né eyjarskeggja varði
nokkuð um „friðarsamninga þá,
sem Ameríkumenn tali um.
TiS miimsss.
Bæjarstjórnar-fundir 1. ög 3. Emtd. í
mán., kl. 5 síðd.
Eátækrauefndar-fundir 2. og4. Emtd. í
mán. kl. 5 síðd.
Eorngripasafnið Mkd. og Ld. kl. 11—12
árd.
Holdsvoilcra-spítalinn. Heimsðkuartími
til sjúklinga dagl. kl. %—S1/.,.
Landsbankinn kl. 11 árd. til 2 síðd. —
Bankastjóri viðst. kl. lli/2—li/2 síðcl.
Annar gnenlustj. vidstaddur kl. 12—1.
Landsbókasafnið. Lestrarsalur, opinn
dagl. 12—2; á Mán d., Mvkd. og Ld.
t.il kl. 8 síðd., og þá útlán.
Náttúrugripasafnið (Glasgow) op. kl.
2—-8 á Sunnudögum.
Reykjavíkur-spítali. Ókeypis lækning-
ar Þriðjad. og Föstud. kl. 11—1.
Söfnunarsjóðurinn (íbárnaskól.) oþ. kl.
5—-6 síðd. 1. Mánd. í liv. mán.
Augnlækningar ókeypis 1. og 8. Föstud.
í liv. mán. á spítalanum kl. 11—1.
Tannlælcningar ökeypis 1. og 3. Mánacl.
í hv. mán. kl. 11—1., Hafnarstr. 16
(V. Bernhöft).
A fundi í Kristjaníu var því
skýrt og skorinort lýst yfir nýlega,
þar sem friðarsamningar Rússa-
keisara voru til umræðu, að rétt-
læti og frelsi væri hinn sanni frið-
ur þar sem það hvortfcveggja
væri jafn groiniiega fytir borð borið
og Rússar sjálfir friðarpostularnir
gerðu gagnvart Finnum, þá væri
einskis friðar að vænta. Rússa-
keisari sjalfur heíði sýnt það og
sánnað með þessum síðustu til-
tektum sínum að hann væri jafn-
vel fjandmaður þess friðar, sem á
réttlæti bygðist, en -annar friður
væi’i ekkl og gæti aldrei ordið
I æskilegur. Það er annars svo að
i sjá sern lítið sé alment gert úr
þessu friðarmasi Rússakeisara;
hann hefir sjálfur gjörsamlega slökt
þann trúarneista, sem lifði í brjóst
um sumra m^nna í þá átt, að
honum kynni að vera alvara.
Verkamenn í Belgíu hafa gert
verkfall í svo stórum stíl, að til
vandræða horfir. Margar verk-
smiðjur verða alveg að hætta.
Yinnuveítendur hafa slakað svo til
að þeir bjóða 10°/0 launahækkun,
en hinir heimta 15% og vilja engri
miðlun taka.
1losebery lávarður, sem Glad-
stone gerði að eftirmanni sínum,
hólt nýlega mikla ræðu í frjáls-
lynda félaginu í City og var þá
horfinn ftó heimastjómar-frumvarpi
Gladstones. Ilann vill, að frjáls-
lyndi flokkurinn taki upp aftur
stefnuna frá 1885. (Heimastjórnar-
frumvarp Gladstones var lagt fram
1886.) Hann fólst fujlkomlega á
„imperíalistisku" stefnuna á Eng-
landi, þ. e. þá pólitík, sem stefnir
að stöðugri útfærslu Bretaveldis
og binda nýlendurnar æ fastar við
aðal-landið. Enn fremur andmælti
Rosebery kröftuglega þeim sósíal-
istisku tilhneigingum, sem komið
hafa fram hjá frelsisfiokknum upp
á síðkastið. Hann víll reisa við
gamla Vigga-flokkinn og harin seg-
ir, að England hafi aldrei verið
frjálslyndara, en nú, en frelsisflokk-
urinn er ekki í meiri hluta, af því
að hann fylgir fram áformum, sem
gömlu frelsismennirnir fengust ekki
við.
Rosebery hefir þannig sett sig
greinilega á móti sir Henry Campell-
Bannermann, sem er að nafninu
foringi frjálslynda flokksins og
sem hólt því fram í neðri mál-
stofunni 17. febr., að skuldbind
ingar írjálslynda flokksins gagn-
vart heima-stjórninni væru enn í
gildi. í öðru lagi hefir Rosebery
boðið sættir „uníónistum", sem
skildu við frjálslynda ílokkinn 1886
og sitja nú að völdum með íhalds-
flokknum; er tíðrætt um; hverju
Chamberlain muni svara. ■ Sjálf-
sagt mun frjálslyndi flokkurinn
klofna enn á ný eftir ræðu Rose-
berys.
Dreyfusmynda-bók. Nýlega er
komin út bók, er svo nefnist. Þann-
ig er mál með vexti, að flest háð-
blöð í heiminum hafa flutt myndir
af Dreyfus á ýmsu stigi máls hans;
haia þær allar verið í þá áttina,
að gera gys að fjandmönnum lians.
í-„Lustige Blátter“ er mynd af
Dreyfus, þar sem hann er kominn
heim frá Djöflaeyjunni sýknaður
og sigrihrósandi. Þar sést „Figaro“
og er að hvetja rakaraknif í vak-
arastofu herforingjanna frakknesku,
en Rochefort er að tína lýs af
Esterhazy; eru þær myndir báðar
sem apakettir. Þar er mynd af
Zola, er hann sem riddari, er ekki
kann að hræðast, og kastar blek-
byttu í hausinn á djöflum eins og
Lúther forðum. önnur blöð níða
Zola niður fyrir allar hellur. í
„Figaro" í Wien er mynd af hon-
um þar, sem hann er látinn vera
biksvartur engill, og í Paris eru
svínin látin gráta, þegar harsn
verður að flýja.
Ekki er en fallin dómur í máli
Dreyfns, en talið víst að haun
verði sýknaður. Hann er nú
orðinn rólegur til skapsmunanna
aftur og hefir von um lausn.
Verkfall voðalegt í Noregi. Skip-
in liggja á höfnum án þess að
nokkur fáist til að skipa úr landi
eða í og horfir til stór vandræða.
Annars er svo að sjá, sem verka-
lýðurinn sé nú álvarlega farinn að
hefjast handa og ætli að láta til
skarar skríða, ekki einungis í Nor-
egi, heldur í öllum hinun mentaða
heimi.
Torvaldur Thoroddsen er sá landi
vor, er mesta eftirtekt hefir vakið
á þjóð vorri erlendis nú urn nokk-
ur ár, og er hann orðinn stór-
frægur um alla Evrópu. Blöð og
timarit ílytja af honum myndir
og um hann greinar, en íslend-
ingar þegja sjálfir. Þeir eru pvo
sem ekki að halda því á lofti, þótt
einhver bróðir þeirra vinni sér og
þjóð sinni fiægð og virðing í aug-
um erlendra þjóða.
Hungur voðalegt austantil á
Rússlandi. Á meðan hægt var
að hjálpa þorðu blöðin ekki annað
en að tala í hálfum hljóðum um
þetta mál, af ótta við stjórniua.
Nú keyrir svo fram úr hófi að
þau þykjast ekki geta þagað lengur.
í Kasanfylki liggur fjöldi fólks í
170 þorpura, en læknar ekki nægir.
Fólkið vantar bæði föt og fæði og
getur ekki unuið, og nokkrir dánir
úr hungri. Sumstaðar hefir sult-
urinn sorfið svo að, að menn hafa
brotist inn í forðabúr og tekið
þaðan vistir.
Páftnn orðinn næstum albata.
Fellibylur voðalegur eyddi nýlega
400 liúsum og deyddi 70 manns,
en særði 1200 í Missourifylki i
Ameríku.
Frá Andróe.
—o—
Bréfið í flöskunni, sein fanst hjá
Hellu á Melrakkasléttu, hefir verið
sent til Sviarikis, að því er sagt