Dagskrá - 03.06.1899, Blaðsíða 3
Í87
óbeinlínis að minsta kosti, og
prestar vóru til þess að halda að
honum víninu; með öðrum orð-
um, þeir hjálpuðu til þess að
myrða hann. Halda menn að
þetta og þyj'líkt sé syndlaust og
saklaust? Nei, á meðan mann-
legum tijfinningum er eins háttað
og þeim er og verður altaf, á með-
an er það bindindi en ekki lwf-
semi, sem verður að prédika.
„Ég hika ekki við að segja við
drykkjumann, að fyrir hann er ekki
hófsemi heldur bindindið vegurinn
til þess að breyta eftir Krists dæmi1;
segir presturinn, en jafnframt held
ur hann því fram að hófsemi sé
til þess fyrir aðra. Eftir því er
það að breyta eftir dæmi Krists
að vera rólegur ef manni sjálfum
er borgið, hvað sem öðrum líður.
Drykkjumennirnir eiga að vera í
bindindi, en hófsmennirnir ekki;
hver á að gæta sín sjálfur, enginn
að gæta bróður síns. Það er al-
veg ný kenning að þetta sé að
breyta eftir dæmi Krists og sizt
sæmandi presti að halda henni
fram.
Aðflutningsbann telur presturinn
ónýtt vegna þess að farið yrði í
kringum lögin. fetta er gömuí
upptugga, sem hefir verið svo marg-
hrakin og tætt í sundur, að nú
er ekki heil brú í henni. Sam-
kvæmt. henni hefði það ekki þýð-
ingu að gefa út nokkur^ lög' ef
mögulegt væri að þau yrðu brotin.
Nú má brjóta öll lög og því ætti
að hætta við alla löggjöf! „Það
er bezt að láta þá (o; bindindis-
mennina) æða og hlaupasigþreytta"
segir presturinn. Iíann er hróð-
ugur yflr því að eitthvert stærsta
mannúðarfélagið í heiminum verði
að berjast með minni árangri en
samsvari fyrirhöfninni. Dálag-
legt af presti! Presturinn vill venja
menn á að álíta það vanvirðu að
verða drukkinn en ekki að því að
drekka lítið.
Það er einmitt sama og bindindis-
menn vilja; þeir halda því aldrei
fram að vínnautn sé Ijót eða synd-
samleg í sjálfu sér, heldur verður
að hafa tillit til þess, hvernig
mennirnii' eru og haga sér eftir
því, og, af því að hófdrykkan leiðir
ómótmælanlega til ofdrykkju, þá
er það Jjótt og syndsamlegt að
drekka vín.
Presturinn talar um æsingu trú-
arpostula, rifrildi stjórnarkappanna
og ofstækisóp bindindismanna.
fykir honum það ekki náttúrlegt
að þetta séu alt áhugamál? Það
eru mestu tilfinninga málin, sem
heimurinn á og þýðingarmestu.
Sá sem hefir heilnæmar trúar-
skoðanir^ Jifir undir heilbrigðu
stjórnarfyrirkomulagi og er laus við
bölvun ofdryjckjunnar, hann hefir
mikið — mjög mikið, þótt hann
kunni að vanta eitthvað annað.
Pér prestár, sem eigið að gæta
sálna margra. manna, hverju ætlið
þér að svara hinu megin grafar-
innar þegar þér mætið þaf sálum,
sem glatast hafa af yðar völdum
fyrir drykkjuskap, annaðhvoit af
því að þér kenduð þeim a&. dj-ekka
eða vanræktuð að vara þá við því?
Ef þér trúið nokkru af því sem
þér prédikið, þá íhugið þetta vand-
lega og hugsið yður hveiju þið
ætlið að svara. Finst yður það
ekki þess vert að hugsa um það?
Altaf er hœgt að hætta.
—o—
Stórskornu þernunni ráðgjafans
á þingi er æði þungt fyrir bi'jóst-
inu, hóstar hrollslega og spýtir
mórauðu, ef einhver talar hlýlega
til stjórnarfaisins, sem nú er héy
á landi. Hennar styj-kur er allúr
í því, að kalla það óþolandi og
öllum illum nöfnum, því hún er
hrædd um, að þiútt fyrir alt skjall
hennar skíni ekki margir kostir á
Valtýsfrumvarpinu og á annað er
ekki að reiða sig, en að bera það
sarnan við orðin óþolandi stjórn.
Það kemur ekki svo mikið undir
því, hvort nokkuð er hæft í þeim
eða ekki, ef þau erú nógu hátt
sungin. En yrðu menn svo skyn-
samir að sjá sönnun fyrir því, að
það stjórnarfar, sem mí er, sé iniklu
betra en Valtýssan, þá er þeman
sokkin í fen, sem engum skilar
aftur.
En nú er sönnun fyrir því, skýr
og óræk, að stjórnarfarið, sem nú
er, er miklu betra en Valtýsfrum-
varpið, það sannar stjórnin sjálf
svo að ekki má móti mæla.
Frá því ,um siðabót var Dana-
stjórn ávalt að þrýsta feðrum vor-
um neðar og neðar, og um síð-
ustu aídamót vórum vér sem rétt-
laus nýlenda. Síðan frelsisbarátta
vor hófst, hefir hvert fótmál kost-
að mikla og langvinna baráttu.
Að þessi samá stjórn skyldi nú
hafa a.llar árar úti, til þess að
troða upp á oss betra en því, sem
er, stríðir móti sögu, reynzlu og
manneðli; að stjói-nin beiti aalri
þeirrí íþróttar-Iævísi, áfergi og
bra.gðaráðum, sem hún nú beitir,
til að auka frelsi vort, það mun
aldrei heyrast nema í froðu spiltra
manna.
Það er fæstra manna siður að
troða upp á aðra nauðuga því, sem
þeim er fyrir beztu. Stjórnin er
óræk sönnun fyrir því, ásamt fleiri
sterkum líkum og sönnunum, að
í Valtýsfrumvarpinu liggur aftur-
för og voði. Þetta er hveijum
manni auðsætt, ég tala. nú ekki
um hina vitrari, ef vitið er ekki
kafið í illgresi og ólyfjam
Gullöld þessa ríkis hélt ég vera,
er ráðgjafinn á þingi reið Sleipni
hinum unga um loft og lög, en
nú heyri ég að himnabréfin hafa
jafnmikinn kraft. í þeim stendur,
að Valtýsfrumvarpið sé nauðsyn-
legt til að fá enda á stjói-narbar-
áttunni. Einkennilegir kennarar
og einkenixilegir lærisveinar! Hve-
nær hafið þér þekt mann, sem
ekki gat hætt að vinna þegar hann
vildi, nema flækja væri bundin um
hendur hans, eða mann sem ekki
gat hætt að tala þegar hann vildi
nema steini væri stungið upp í
hann? Vita landsmenn þá ekki
enn, að deir ráða þingkosriingum
og geta ráðið miklu um meðferð
á málum.
En svo stendur i himnabréfun-
um sú athugasemd, að þjóðin sé
ekki sammála í stjórnarbaráttunni
og þá sé aldrei nema rétt að minni
hlutinn ráði einú sinni, þér séuð
útvalinn lýður til að hafa vit fyr-
ir landinu, lýður friðarins og dauð-
ans, lýður kyrðarinnar, svo ern-
irnir hafi sem bezt næði á hræun-
um. Annars er sjálfgerður silinn
með stjórnarbaráttuna, meðan þjóð
kjörnir menn í efri deild fylgja
•hinum konugkjörnu en ekki neðri
deild og er ekki víst að komið
yrði lögum á það fyrri en einhverj-
ir yrðu farnir að krauma undan
Valtýsfrumvarpi, ef það gengifram.
J. B.
íslenzk bóksala.
Nokkur orð til íslenzkra bókaútge.f-
enda, séretaklega til binna íslenzk-
amerikönsku.
— 0—:
Fyrir tveimur eða þremur mán-
uðum var. ég stöðugt að lesa hér
í blöðum og tímaritum ritdóma
um „Aldamót“ fyrir 18í)8. Ritið
hafði auðsjáanlega verið sent víða
hér um land til ritstjóra og máske
einstakra annara manna, því að
það báru ritdómarnir þó með sér, !
að höfundar þeirra höfðu lesið |
bókina. — ...-
Nú veit hver maður það, að
ekkert getur betur valdð löngun hjá
bókavinum til bókakaupa en skyn-
samlega ritaðir ritdómar.
Slík áhrif hafði einnig lesturinn
um „Aldamót" á mig: mig lang-
aði til að eiga bókina, og því fór
ég til bóksala og bað um að fá
hana keypta.
-- Ó nei. Ekki var það hægt.
„Ekkert hefir verið sent hingað
til útsölu," sagði bóksalinn.
Ég spurði; „En til hvers eru
þá blaðamennirnir að rita langa
ritdóma ,fyrir fólkið', þegar ekki
er hægt að ná í bækurnar?"
— „Já. Þær koma náttúiíega
seinna. Svo hefir það líka verið
oft fyr. Þær koma seinna."
— Já, „seinna“, þegar maður
er búinn að gleyma ritdómunum,
þá koma bækurnar — og þá fá þær
eðlilega að hvíla sig frarnvegis —
hjá bóksölunum að mestu leyti.
Meðan kvörtun er um það, að
ísl. bækur gangi svo illa- út, þá
finst mér að ástæða sé til þess að
láta eftirfarandi beiðni í Ijósi opin-
berlega.
Þér, bókaútgefendur! Þegar þér
sendið nýjar bækur til ritstjóra og
blaðamanna til umgetningar, gleym-
ið þá ekki að senda nokkur ein-
tök til bóksölumannanna til Út-
sölli. Kanske það að nokkru leyti
gæti bætt úr hinni litlu bókasölu.
Rvík 1. júní 1899.
Virðingarfylst.
David Osilund.
DAGBÓK REYKJAVÍKUR.
—o—
Föstudagur 26. mai.
Logn og hlýindi fram yfir miðj-
an dag; hvesti þá á sunnan og
gerði stórviðri um kveldið.
Dauðadrukkinn maðnr lá lengi
fyrir hunda og manna fótum á
einni fjölförnustu götunni hér; það
var útlendingur. Hvenær skyldi
útlendum þjóðum verða óhætt að
senda hingað menn sína, án þess
véi- legðum fyrir þá tálsnörur, sem
gætu leitt þá til bana, og gera það
oft ?
Laugardagur 27.
Hávaðarok á. sunnan og regn
öðrubvoru; lygndi lítið eitt um
kveldið.
Sagt að Björn Jónsson hafi lesið
mörgúm sinnum yfir grein þá, er
birtist í „Dagskrá" þann dag með
fyrirsögninni ,.StjórnsleikjubIöðin“.
Hvort það hefir verið til að gera
við hana athugasemdir, vita menn
ekki. En sigið hafði brúnin á
karli.
Tveir menn mættust inni á veit-
ingahúsi og fleygðu því á milli sín,
að nýlega hefði einn Vajtýsliðinn
verið sendur austur á fjörðu, lík-
lega/ á kostnað stjórnarinnar; sé
það satt, vita menn í hvaða er-
indum hann hefir farið.
Suunudagur 28.
Lygnt allan daginn, sólskin og
hiti. ________
Sáluhjálþárherinn hélt samkomu
niðri á . Póstbryggju fyrir fjölda
manns. Þar voru mættir nokkrir
útlendir menn úr Hernum og var
talað á íslenzku, dönsku og ensku.
Margt var þar vel sagt og sumt
þannig að Reykjayíkurbúar liefðu
mátt hlusta á það með sorg og
alvöru en þeir hlógu.
Mánadagur 29.
Sunnan, nokkuð hvass.
Kom hér upp i sand eitt af botn-
vörpuskipum Vfdalíns; hafði það
fiskað í landhelgi og skipstjórinn
er R;:smusen heitir, settur frá.
Skipin heita öll íslenzkum nöfn-
um, er enda öll á „nes“ og fara
eftir stafrofsröð, t. d. Akranes,
Borganíes o. s. frv.
Drykkjuskupur og slark sagt að
só á skipum bæði Jóns og Mr.
Wards.
Þriftjldagnr 30.
Logn frá morgni til kvelds; bjart
veðúr og sólskin.
Söngpróf haldið í lærða skólan-
um. Þar var saman komið roargt
manna að lilusta á sönginn og sjá
nemendurna. Ýms fögur hvæði
voru sungin, flest íslenzk; mörg
þeirra voru eftir Steingrím. Hann
var þar inni og heyrði þau Ijóð
sungin, er hvervetna hljóma á öll-
um íslenzkum samkomum, í hverju
húsi og hverju hreysi, hvort sem
það er í höfuðstað landsins eða
vestur á Hornströndum. Allir hafa
heyrt eitthvað eftir Steingrím, allir
kunna eitthvað eftir hann og allir
elska það. En hann hefir orðið
að eyða tímanum til þess að troða
grísku og latínu í hvern tossann á
fætur öðrum. Það hlýtur að vera
þreytandi fyrir Steingrim; þar er
hann ekki á sinm hyllu. •
Mlðvilaidagur 31.
Sunnanstanstormur allan daginn.
Leikfimispróf í lærðaskólanum.
Kom gufuskipið Ceres og með
þvi fjöldi farþega. Þar á meðal
frá / kureyri Friðbjörn Steinsson
bóksali, og Jón Stefánsson Dbrm.,
eru þeir báðir kosnir fulltrúar og
sendir frá Good-Templurum til þess
að mæta hér á þingi Reglunnar,
sem byrjar 6. júní.
Af Sauðárkróki kom séra Arni
Björnsson, einnig til þess að roæta
á þinginu, af ísafirði Stefán Run-
ólfsson ritstjóri og Jón Laxdal;
réra Kristinn Daníelsson frá Sönd-
um, Jón Þórarinsson skólastj. að
austan og Jón Vídalín frá Höfn,
líklega vtil þess að halda hér tveggja
mánaða veizlu í Vinaminni í sum-
ar. — Það er þingsumar.
Fimtldagur 1.
Sama veður og daginn áður.
Mai-gir fulltrúar á fundi í stúk-
unni Einingin viðsvegar utan af
landi, með kveðjur og heillaóskir til
Reykjavíkur stúknanna. Litur út
fyrir að Stórstúkuþingið verði mjög
fjölment og vel sótt.
Kristján Þorgrímsson er suður
með sjó eitthvað að hugga fátækl-
ingana þar; eða að minsta kosti er
það haft eftir honum að hann
kalli það „maniiúðarferðir."
Gjöreyðendur þykjast vinna. í
nafni kærleikans og mannúðarinn-
ar þegar þeir drepa menn og eyði-
leggja lönd og þjóðir, datt mér í
hug. _______
t Stcfán Yaldasoib er haldið
var að hefði strokið, dó 19. maí
á Gelti i Súgandafirði. Ilaíði kom-
ist á fiskiskip og nefnt. sig Jón
Jónsson. Hann skrifaði konu sinni
og sóknarpresti, daginn sem hann
andaðist.
Sauðakjöt
s a 11 a ð,
ágætlega gott fæst í verzlun
W. Fisclicrs.