Alþýðublaðið - 20.11.1906, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 20.11.1906, Qupperneq 1
alÞyðublaðið 16. Blað. Reykjavík, 20. Nóvember 1906. 1. Árg. Til haísiiis Þú liaf sem við ströndina hljómar og haniast og svarrar við bjarg. Þú andvarpar, drynur og ómar, sem afl þitt sé lagt undir farg. Beljandi boðar sér steypa. með brimsogum hátt upp á láð; eins og þú ætlir að gleypa alt sem þú til getur náð. Flötur þinn fagurblár titrar er fallstraumar ryðja sér göng. Brjóst þitt af brimlöðri glitrar í brotsjóa ginandi þröng, Um veldis þíns víðáttu-leiðir er voðalegt alt að sjá. Samt ert það þú er mig seyðir sífelt að vera þér hjá. Því hljómur þinn hjarta mitt friðar og hamför þín styrkir minn þrótt. Yfirborð þitt þegar iðar, auga mitt hvílir þar rótt Oft hef ég undrandi hjá þér unað þinn mikilleik við, er ljósglampar iéku. sér á þér og liðu’ um þitt stormtrylta svið. Eg sat hjá þér sumars á kvöldum er sólin að faðmi þér laut, er huldirðu’ í hvítfextum öldum himinsins dýrasta skraut. Ég leit þig er lástu í dvala, með lognhylja stafandi ró. er litum brá sæflötin svala þá síðasti kvöldgeislinn dó. Ég kem til þín kraftþrungni geimur og kætist við hjarta þíns óð. Ég flý til þín hrikaleiks-heimur, þú hressir og örfar mitt blóð. Ég elska þig glitstraumageimur; þitt glampandi lognöldu-rið er anda míns hyllingaheimur og hugarins draummyndasvið. Svbj. Björnsson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.