Alþýðublaðið - 20.11.1906, Síða 2

Alþýðublaðið - 20.11.1906, Síða 2
126 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Hver er meining’in? I. Það er ef til vill eðlilegt, að þeir menn beri höfuðið hátt og tali oft þegar aðrir þegja, sem hafa stundað skólanám í fjölda mörg ár, ferðast um útlönd, lesið meira og séð íleira en heimalningarnir ólærðu. — Það œtti að vera fremur gagnlegt en ó- gagnlegt, En — því miður — það er eins og sumir þessara manna hafi þá skoðun, að þegar þeir loks- ins, eftir langa þraut, skjögra út úr skólanum í síðasta sinn, með likil- inn að embættunum — prófskýrtein- ið — í vasanum, þá séu þeir svo auðugir að vizku og yfirburðum, að vilji þeir miðla lýðnum að gnótt sinni, þá þurfi þeir ekki annað en ausa úr grautarpotti sinnar eigin skólasálar, alveg af handahófi, og vaða málæðiselginn heint af augum, því hinir »fáfróðu« hafi ekki annað að gera en hlíða og trúa og fylgja sér eftir. Ætli það sé ekki eitt- hvað þessu líkt sem hann hugsar, maðurinn sem hefir verið að spila »lönguvitleysu« við sjálfan sig í »Lög- réttu«, siðan í fyrra vetur. (Stein- grímur, er hann kallaður, Matthías- son«). Hann hefur ritað hverja grein- ina á fætur annari. Og þó sumar vitleysurnar séu meinlausar hjá hon- um, þá eru þær það ekki allar. Ég ber engan persónulegan kala til mannsins, því ég hefi ekkert af hon- um reynt á þann hátt. En mér þykir óþarfi að líða nokkrum manni til lengdar að fara með ósannindi eða ósanngirni óátalið; þess vegna tek ég nú pennan. Mér dettur ekki i hug að segja það alt vitleysu, sem hann skrifar, hann hefir lært margt og mikið af bók- um og' skólakennurum og' getur haft það rétt eftir, en hann fer líka stund- um út fyrir skólanámið. — Hvernig fer þá? Stgr. hefir farið austur í Asíu og' þykist vist eftir þá för hafa margt að segja, sem íslendingum þyki fróðlegt og gaman að heyra. Þeir eru ekki margir hér á landi, sem hafa farið til Kína, en þó eru menn hér ekki svo ófróðir um Kínverja og háttu þeirra, að þeir verði að trúa öllu, sem um þá er sagt. Við vitum að Kínverjar eru gauðarmenni á móts við Norðurálfuhúa og illa að sér i þeim mentum, sem hafa gagn og gildi fyrir lífið, — geta víst ekki kallast meir en hálfmentaðir, ef gerður er samanburður á þeim og okkur. Þó segir Stgr. um þá, að þeir y>eklci einungis slandi okkur jafn- fœtis, heldur jafnvel jeti framar yfir- teitt, að þvi er snertir líkamlegt og andlegt atgerfh; og' að þeir hali sýnt »framúrskarandi nœmi og dugnað í öllum þeim atvinnugreinum, líkam- legs eða andlegs efnis, sem þeir hafa stundað upp á hvítra manna vísu«. Segir Stgr, þetta til að niðra okkur?

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.