Alþýðublaðið - 20.11.1906, Page 3

Alþýðublaðið - 20.11.1906, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 127 Eða segir hann það til þess að gera ferðasögu sína sögulegri, svo hún verði fremur lesin af því þar standi marg't það, sem enginn gat átt von á að heyra? Hver er meiningin? Hann segir ennfremur að vinnu- lýðnum i Ameríku sé illa við Kín- verja, sem þangað flytjast, »a/ því hann treystir sér ekki til að vinna fyrir jafnlágt vinnukaup og missir því alla atvinnua. Þetta eru mikil tíðindi ef sönn væru. En það eru þau ekki. Iíín- verjar gera sig' að vísu ánægða með helmingi, eða meir en helmingi lægra kaup en hvítir menn. En það verða þeir að gera, þeir fengju ekki vinnu ella, af því þeir eru helmingi eða meir en helmingi ónýtari til strit- vinnu en hinir, og af því þeir hugsa 'ekki um annað í lífinu en strita og éta. Greindur maður og athugull, sem verið hefir í siglingum mörg ár, víða um höf, hefir sagt mér hvernig Kínverjar reynast á sjónum: Ef Kínverjar eru ráðnir á skip, verður að ætla 2 af þeim fyrir hvern 1 hvít- an mann, og þykir þó ver skipað. Svipað kvað það vera við afferm- ingu eða aðra stritvinnu í landi. Sparneytnir eru Kínverjar og nægjusamir, það ei’ áreiðanlega satt. En að »25 aurar fallnœgi daglegum þörfum stórrar Jjölskylduv., hvort heldur er í Ameríku eða á Englandi, dettur víst engurn í hug að trúa, nema Stgr. Matthíassyni. »Eg dáðist að þessum gulu grjót- pálum, þegar jeg bar þá saman við hinn heimtufreka verkmannalýð hjá Vesturþjóðunum. — Voru þeir ekki í rauninni miklu ágœtari en þeir ?« segir Stgr. enn fremur. Ef þeir eru eins duglegir og ánægjusamir og hann segir, þá eru þeir auðvitað aðdáan- leg vinnudýr. En er það þá mein- ingin lijá Stgr. að verkamennirnir eigi að vera »vinnudýr?« Eða eru það ekld sannkölluð vinnudýr, sem »vinna frá fyrstu morgunskímu fram á dimma nótt í sveita síns andlitis og eru ánœgðir með hrísgrjón í stað brauðs, til að fylla soltinn maga, og máske 25 aura dagkaup ?« Geta þeir menn hugsað um nokkuð annað eða æðra en munn og maga? Um verkalýð Yesturþjóðanna segir Stgr.: »Peir vilja helzt ekld vinna lengur en S kl.stundir til þess að geta sofið aðrar 8, en slœpst hinar 8 sem eftir eru« o. s. frv. Heimsku- legar og illgirnislegar hefir víst eng- inn maður, íslenzkur, ritað í garð verkalýðsins, en þetta. Það viður- kenna þó allir menlaðir menn, að heill og hagur þjóðanna byggist á mentun og lífskjörum verkalýðsins; en það hvorttveggja getur því aðeins verið í góðu lagi, að verkmennirnir fái tíma til að menta sig og manna og gott kaup fyrir þann tíma, sem þeir eru að vinnu. Það er stór furða að Stgr. skuli láta annað eins og þetta sjást eftir

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.