Alþýðublaðið - 20.11.1906, Page 5

Alþýðublaðið - 20.11.1906, Page 5
ALÞÝÐU BLAÐIÐ 129 ur til vinnuhjúastéttarinnar, en bænda, því staða þeirra sumra er ekki glæsileg og þarf sannarlega um- bóta með. Þeir hafa yfirboðara sem binda þá á þann klafa, sem þeim er erfitt að smeygja fram af sér, úr því liann er einu sinni kominn um háls þeirra. En svo er að sjá sem þeir séu ánægðir með þetta gand- reiðarbeizli um hálsinn, og vilji með ánægju starfa að því, gera þá gilda og þriflega, sem halda í tauminn, þó þeir séu ekki sjálfir annað en skinin beinin. Alþýðan er orðin svo undur leiðitöm, eftir margra alda og ára tamning að hún heflr ekld þrek í sér til að rykkja í taum- ana og reyna að slíta sig af kúgur- unum, Eg vil ekki gera mér þá hugmynd að alþýða þessa lands sé dauð úr öllum æðurn og ólífgandi, heldur að hún sofi þeim svefni sem hæg't sé að vekja hana af. Það er óhugsandi að afkomendur hinna fornu frjálsu og tápmildu landnáms- mannu séu svo fast sofandi að þeir rumski ekki, ef reynt ertil að vekja þá. Vakna þú íslenzka alþýða! Vakna og rís á fætur og starfa að frelsi þínu. Gakk undir merki það, sem gefur þér von um betri kjör og lát ekki þrælsóttann stýra fótum þínum á framtíðarbrautinni. Lát ekki að eins fáa menn berjast fyrir málefni þína, heldur fylg þeim dyggilega í orði og verki, Sjá hinn fyrsta bjarma af morg- unroða frjálsra hugmynda gægjast inn um glugga þína og tvístra því myrkri, sem fláráðir yfirlioðarar hafa helzt til lengi breitt yfir þína liðnu lífsbraut. Þá vonast ég til að þurfa ekki að velta lengur fyrir mér spurn- ingunni: Er alþýðan dauð úr öll- um æðum, eða sefur hún? Víðförull. Bælmr. Benedikt Gröndnl, átl- rœður, 1826—1906. Kosln- aðarm. Sig. Kristjánsson. Verð 1 kr. Þegar Benedikt Gröndal skáld varð áttræður, 0. október i haust voru honum sýnd ýms virðingar- og vináttumerki, og var það að verð- leikum, því meðal listamanna og mentamanna þjóðarinnar, þeirra sem komnir eru á efra aldur er Benedikt efalaust merkastur og' ágætastur. Benedikt er einstaklega alþýðleg- ur maður og lýðhollur, enda má fullyrða að alþýðu manna er hug- hlýrra til hans en flestra — ef ekki allra — annara mentamanna okkar. Þó lítið væri með hann látið af al- þýðumönnum í haust, stafar það af samtakaleysi þeirra, (eins og fleira) en als ekki af viljaleysi. Þeir hafa margir óskað við það tækifæri, að þeir

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.