Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 18.08.1960, Qupperneq 2

Lögberg-Heimskringla - 18.08.1960, Qupperneq 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 18. ÁGÚST 1960 SÉRA GUÐMUNDUR P. JOHNSON: Dr. og Mrs. Haraldur Sigmar hyllt Það er nú orðið nokkuð langt síðan ég hefi sent ís- lenzka vikublaðinu „Lögberg- Heimskringla“ frétta p i s 11 a héðan frá ströndinni, enda hafa nú ýmsir aðrir byrjað á því að senda blaðinu fréttir héðan að vestan, og er það bæði gott mikil ánægja að lesa slíkar fréttir, en þar sem ég hefi nú nokkuð efni í smá- pistla, þá datt mér í hug að senda blaðinu svolitla frétta- grein í þetta sinn og kannske meira seinna. Stórveizla Laugardaginn 2. júlí 1960 var þeim merku hjónum, Dr. og Mrs. Haraldur Sigmar, að Kelso, Wash., haldið sérstak- lega tilkomumikið samsæti, sem börn þeirra, tengdabörn og barnabörn stóðu fyrir. í fyrsta lagi, stórmerkileg brúðkaupsveizla í tilefni af 46 ára giftingarafmæli þessara merku hjóna, enda sýndi það hin stórskrautlega brúðar- kaka, sem þar stóð á sérstöku borði og var aðdáanlega fal- lega skreytt, í öðru lagi var þetta veizluhald í tilefni af 75 ára afmæli Dr. Sigmars og í þriðja lagi 49 ára prestsvígslu- afmæli doctorsins. Þessara merku heiðurs - daga var minnzt með stórveizlu, sem haldin var í skrautlegum sal að Hotel Monticello, Lang- view, Washington. Kl. rúmlega sex um kvöldið var setzt að fagurlega dúkuð- um borðum, sem hlaðin voru ljúffengustu vistum af mörg- um dýrindis tegundum, eða sem kallað er fullkomnasti „Turkey Dinner“, öll borðin voru líka yndislega skreytt fögrum blómum af ýmsum tegundum mjög smekklega fyrir komið. Borðum var þannig niður raðað: Háborð þvert yfir hinn skrautlega borðsal, síðan tvö langborð, sem komu sitt frá hvorum enda háborðsins, síð- an annað þverborð, svo öll fjögur borðin mynduðu fer- hyrning, en í miðjum fer- hyrningnum var minna borð, töluvert lægra en hin, það var líka yndislega skreytt blóm- um og veizlumat. Svo þegar öllum þessum prúðbúnu gest- um hafði verið vísað til sæt- is, þá tók maður eftir því, að við litla borðið í ferhyrningn- um sat myndarlegur hópur af ungmennum, þ e 11 a voru barnabörn þeirra Dr. og Mrs. Sigmars, öll ljómandi falleg og verður þeirra minnzt síðar í þessari grein. , Borðhald Fyrir miðju háborðinu sátu heiðurshjónin, Dr. og Mrs. Haraldur Sigmar, og út frá báðum hliðum þeirra nánustu skyldmenni og vinir. Þá reis úr sæti séra Harold S. Sigmar, prestur við St. Paul’s Lutheran Church, Van- couver, Wash., sem og var kjörinn veizlustjóri. Hann kallaði á Pastor Paul A. Hoch, sem er þjónandi prestur við Gloria Del Lutheran kirkjuna í Kelso, þar sem séra Harold var prestur áður en hann fór til íslands fyrir nokkrum ár- um síðan. Pastor Hoch flutti bæði fallega og hugljúfa borð- bæn. Séra H. S. Sigmar bauð alla hjartanlega velkomna og lét í ljós ánægju sína yfir því að svo margir af vinum þeirra Dr. og Mrs. Sigmars hefðu getað komið til að vera með í þessum mannfögnuði, til þess að heiðra foreldra sína. Var þá haldið áfram borð- haldi um stund og skemmtu gestir sér vel með glöðu og vinsamlegu samtali. Þá voru sungnir nokkrir fallegir söngvar undir stjórn séra Eric Sigmar, forseta hins íslenzka lúterska kirkjufélags og var Mrs. H. Eastvold við hljóðfærið og spilaði af snilld eins og henni er lagið. Mrs. Eastvold er systir Mrs. Dr. Sigmars. Þá kvað veizlustjóri sér hljóðs og las nokkur hrað- skeyti og kveðjur frá fjölda fólks, sem ekki gat verið við- statt, en hraðskeyti, bréf og heillaóskir skiptu tugum, og las því veizlustjóri aðeins nöfn þeirra, sem ekki gátu komið, en ekki vannst tími til að lesa öll þau bréf og skeyti, sem Dr. og Mrs. Sig- mar bárust. Öll systkini Mrs. Sigmars voru viðstödd í þessari veizlu að undanteknum Dr. P. H. T. Thorlakson í Winnipeg, Man., sem ekki gat komið, en sendi heiðurshjónunum yndislegt bréf frá þeim hjónum, fullt af hamingjuóskum og mörgum fögrum og fallegum orðum. Þá talaði séra Harold til foreldra sinna og fór mörgum fögrum og yndislegum orð- um um ástríki þeirra og kær- leika til barna sinna og sanna trúmennsku í hinu hágöfuga prestskaparstarfi og mikla fyrirmynd í kristilegu líferni, sem hafi orðið öruggur grund- völlur undir lífsstarfi allra barnanna, og með fleiri ljúf- mannlegum orðum lét séra Harold í Ijósi sitt hjartanleg- asta þakklæti til foreldra sinna fyrir allt gott og yndis- legt frá þeirra hendi. Þá talaði fyrrverandi ræðis- maður fslands í Vancouver og B.C. fylki Kanada, herra Half- dan Thorlaksson, bróðir Mrs. Sigmar, hann talaði fyrir minni systur sinnar með mörgum velvöldum orðum, Mr. H. Thorlaksson er ágæt- ur tölumaður og hefir gott lag á því að koma tilheyrendum sínum í gott skap með ýmsum skemmtilegum gamanyrðum, og var honum endurgoldið skemmtilegt erindi með dynj- andi lófaklappi. Þessu næst söng Dr. H. F. Thorlakson frá Seattle ein- söng bæði á norsku og ensku, „Jeg elsker dig“ eftir Edward Grieg. Dr. Thorlakson söng af frábærri snilld og veizlugest- um til mikillar ánægju. Mun Dr. Thorlakson hafa sungið þennan fallega söng á norsku samkvæmt beiðni systur sinn- ar, Mrs. Dr. Sigmar, sem líka talar norsku, eins og flestir ís- lendingar í Vesturheimi vita, því faðir hennar, séra Stein- grímur Thorlaksson var ís- lenzkur, en móðir hennar norsk. Mun því norska og ís- lenzka hafa verið töluð jöfn- um höndum á þeirra göfuga heimili í gamal daga. Dr. H. F. Thorlakson er maður vel fær í norsku máli og hefir hann alveg nýlega ferðazt um Noreg og fengið góða æfingu í því fagra máli. Þessu næst reis úr sæti sínu við litla borðið, sem ég áður nefndi, fallegur ungur dreng- ur, hann er sonur þeirra hjóna séra H. S. Sigmar og Mrs. Ethel, konu hans, dreng- urinn heitir Wallace Harald og er 13 ára gamall, hann er beinvaxinn, fríður sýnum og mjög prúður og ber sig vel, hann talar skýrt og djarf- mannlega, hugsar vel orð sín og ber þau vel fram, enda náði hann strax athygli allra veizlugesta; mér kom ósjálf- rátt í huga, þarna er enn eitt ljómandi prestsefni. Wallace Harald talaði til afa og ömmu fyrir hönd sinna fjögurra systra, Kristin Mar- grethe 11 ára, Karen Ethel Loanne 9 ára, Thora Stefania 6 ára, og Emily Anne 6 mán- aða gömul. Wallace talaði líka fyrir hönd þriggja barna Margret- ar dóttur Dr. ,og Mrs. Sigmar, nú Mrs. Elvin O. Kristjanson, börnin eru Curtis Elvin Sig- mar 11 ára, Anne Margaret 9 ára, og Tannis Kristine 6 ára. Mr. Elvin O. Kristjanson, maður Margaretar, er bróðir frú Ethel konu séra Harold S. Sigmar. Wallace Harald talaði líka fyrir hönd barna séra Eric og frú Svöfu, þau eru Elynne Svava 5 ára, Eric Halfdan Wil- liam 4 ára, Signy June tveggja ára og sex mánaða. Þetta eru 11 barnabörn Dr. og Mrs. Sig- mars, blessaður hópur, fríður og fallegur. Seinna í veizlunni, þegar 75 ára afmælis Dr. Sigmars var minnzt, þá sungu öll barna- börnin „Happy Birthday To You“ og „Happy Anniversary To You“, síðan sungu allar litlu stúlkurnar og litli Billy „Jesus Loves Me“. In the little „bygd" of Argyle, in October, 1885 Mitt í þessari veizlugleði var sunginn nýr söngur, In the little „bygd“ of Argyle. Fyrst söng frú Margaret Kristjansson, dóttir Dr. Sig- mars, þennan söng sem ein- söng og með sinni vanalegu hrífandi og skæru söngrödd, og gerði hún söngnum hin beztu skil, enda vel spilað undir, því Mrs. Erika East- vold var við píanóið. Síðan söng séra Eric þennan nýja söng með systur sinni og svo allir veizlugestir til samans; varð úr þessu hin mesta hríf- andi gleðistund, enda er lagið fullt af lífi og fjöri. Nú skýrði veizlustjóri frá því að hann vildi gefa bróður sínum, séra Eric, tækifæri til þess að koma fram með það, sem honum lægi á hjarta, og í því sambandi bæði hann séra Eric að tala til heiðurshjón- anna, Dr. og Mrs. Sigmars fyrir hönd allra barna þeirra, sem eru Harold, Eric, George og Margaret. Þá tók séra Eric til máls og skýrði frá því að á síðasta kirkjuþingi, sem var 75. þing Hins íslenzka lúterska kirkju- félags, hafi komið fram á- kvörðun þess efnis að heiðra skyldi alla uppgjafapresta með þakklætisskírteini fyrir trúverðuga þjónustu í hinni evangelisku lútersku kirkju, tilheyrandi United Lutheran Church in America, enda væru þessi skírteini gefin út af hálfu þeirrar stóru kirkju- deildar. Séra Eric skýrði líka frá því að þeir prestar, sem verið hefðu á þinginu og væru nú leystir frá stöðugri prests- þjónustu, hefðu fengið sín skírteini þar á þingi. En í þess- ari veizlu væru nú 3 prest- ar, sem einnig hefðu verið leystir frá föstum prestsstörf- um, og hefði sér verið falið sem forseta Hins íslenzka lút- erska kirkjufélags að afhenda þeim þessi skírteini, þeir væru séra Guðmundur, séra Octo- vius og Dr. Sigmar. Þá kall- aði séra Eric á séra Guðmund og afhenti honum þetta fallega skírteini, með nokkrum mjög hlýjum og vinsamlegum orð- um og lýsti í stuttum dráttum þátttöku séra Guðmundar í kirkjumálum, sérstaklega fyr- ir hönd Hins íslenzka kirkju- fólags, síðan hann kom til Vesturheims árið 1926. Séra Guðmundur þakkaði auðsýnd- an heiður, sem hann hefði hvorki búizt við né verð- skuldað. Síðan ávarpaði séra Guðmundur heiðurshjónin, Dr. og Mrs. Sigmar og minnt- ist góðrar vináttu þeirra ágætu hjóna og barna þeirra í allmörg ár. Hið virðuglega skírteini til séra Guðmundar var fyrir 26 ára trúverðuga prestsþjónustu í þágu hinnar evangelisku-lútersku kirkju. Þessu næst afhenti séra Eric séra Octovius Thorlaksson einnig skírteini með fallegum orðum og skýringum á starfs- ferli hans, bæði sem trúboða í Japan í 25 ár og svo starf hans í Ameríku, samtals 44 ár. Séra Octovius þakkaði fyrir heiðurinn, en sagðist alls ekki vera gamall og langt frá því að sér dytti í hug að leggja árar í bát með að prédika fagnaðarerindið, því hann mundi boða trúna á Jesúm Krist svo lengi er líf hans og kraftar entust, síðan sneri séra Octovius sér að brúð- hjónunum, Dr. og Mrs. Sig- mar, og talaði fyrir minni systur sinnar, Mrs. Sigmar. Séra Octovius hélt skarpa ræðu, auðvitað hældi hann SERVICE COUNTS For prompt and efficient service deliver your grain to the Federal elevator in your community. Go by TRAIN and SAVE! AUGUST 18,19, 20 —return limit 25 days -----BARGAIN FARES------- From WINNIPEG to TORONTO OTTAWA MONTREAL IN COACHES Return Fare 49.40 57.60 62.75 *IN TOURIST SLEEPERS You Save 20.45 21.35 23.20 *Upon payment of Tourisl Berih fares. Watch for Bargain Fares Sept. 8, 9, 10 Similar low fares to certain other destinations in Ontario and Quebec. Consult your Canadian Pacific agent for details. Usual baggage checking privileges. Ca/icu£<m(P<icífic

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.