Lögberg-Heimskringla - 18.08.1960, Page 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 18. ÁGÚST 1960
Úr borg og byggð
Miss Hilda Bjarnason, dótt-
ir Mr. og Mrs. I. Bjarnason,
Gimli, Man., flaug ásamt Vin-
stúlku sinni, Miss Howard, til
Evrópu 3. júlí. Þær munu
ferðast um England, Frakk-
land, Þýzkaland, Holland og
skandinavisku löndin, og Miss
Bjarnason mun dvelja í viku á
íslandi. Þær koma heim í
byrjun skólaársins, en þær
eru báðar kennarar við Gimli-
skólann.
☆
Mr. og Mrs. Thorsteinn
Pálsson frá Steveston, B.C.
komu þann 7. þ. m. til Winni-
peg. Þau hafa nú dvalið viku
á æskustöðvum sínum í Mikl-
ey í heimsókn hjá skyldfólki
sínu og vinum þar og eru um
þessar mundir í Winnipeg.
Þau leggja af stað heimleiðis
í næstu viku.
☆
John David Thordarson.
B.Sc. in Agriculture, er fyrr-
um átti heima í Árborg og
Westbourne, hefir nýlega
hlotið Minneota Mining and
Manufacturing námsstyrk, er
nemur $500 til þess að stunda
nám við business administra-
tion deild Western Ontario
háskólans.
☆
Takið eftir
Séra Bragi Friðriksson sýn-
ir myndir af skógræktinni á
íslandi ásamt öðru og flytur
erindi í Sambandskirkjunni á
Banning St. miðvikudags-
kvöldið 17. ágúst, kl. 8.30. —
Inngangur 50 cent.
Af því að við hjónin erum,
á förum héðan þætti okkur
vænt um að sem flestir yrðu
á samkomunni, svo að við
fengjum þar tækifæri til að
kveðja okkar gömlu og góðu
kunningja hér.
Marja Björnson
☆
Auglýsing
Óskað er eftir miðaldra, ís-
lenzkum kvenmanni, sem ekki
á heimili sjálf, til að halda
hús fyrir sjóndapran mann í
Iitlum bæ. Ritstjóri gefur
frekari upplýsingar og vísar á.
☆
Þakkarorð
Dr. og Mrs. Haraldur Sig-
mar í Kelso, Wash. flytja inni-
legt þakklæti öllum vinum
sínum, er sendu þeim árnað-
aróskaskeyti, spjöld og kveðj-
ur í tilefni af hjónabandsaf-
mæli þeirra og 75 ára afntæli
Dr. Haraldar, sem var minnzt
með veizluhaldi 2. júlí.
☆
Mr. og Mrs. Bjarni Thorla-
cius frá Saskatchewan dvelja
um þessar mundir hjá Dr. og
Mrs. S. E. Björnson, en Mrs.
Thorlacius er systir Mrs.
Björnson.
☆
Meðal langt aðkominna
gesta á Islendingadeginum á
Gimli voru Dr. Árni Helgason
frá Chicago, Mr. J. E. Peterson
frá Cavalier og A. M. Ás-
grímsson frá Hensel, N. Dak.
Veitið athygli
auglýsingunni um myndirnar,
sem séra Bragi Friðriksson
sýnir í Fyrstu lútersku kirkju
á fimmtudags- og föstudags-
kvöld, einnig frá kl. 4 til 6
eftir hádegi á föstudaginn.
Það eru litprentanir af ís-
lenzkum málverkum og kvik-
myndir frá Islandi.
☆
s Sérstaka athygli viljum við
draga að hinni fróðlegu rit-
gerð eftir frú Jakobínu Stef-
anson ,sem hefst í þessu blaði
— Hvar er hvíti þjóðflokkur-
inn upprunninn? Hefir hún
lagt í það mikið verk að afla
sér heimilda um efni þessarar
merkilegu ritgerðar.
☆
Gjafir lil Slafhlots
Gjafir í byggingarsjóð elli-
heimilisins Stafholts yfir júlí-
mánuð 1960:
Mrs. Stephanie Oddstad, í
minningu um Mr. E. Boyd
Stewart, $10.00.
Mr. Robert Levien, $275.00.
Mr. Chris Sigurdson og Mr.
og Mrs. Paul Halldórsson, í
minningu um John S. John-
son, $10.00.
Ónefnd vinkona Stafholts,
$100.00.
Mrs. Edith (Ragnheiður)
Patterson, Calgary, $500.00.
Þessum gefendum vottar
stjórnarnefnd Stafholts sitt
hjartans þakklæti. Stafholt er
líka gestrisið heimili, sem
fagnar heimsóknum vina
sinna, og óskar að sem flestir
komi. Þeir eru aufúsugestir
vistmanna ipg nefndinni þyk-
ir gott að þeir sjái með eigin
augum ávextina af örlæti
þeirra.
I umboði nefndarinnar,
A. E. Kristjánsson
Dónarfregnir
Mrs. Vigdís Bjarnason að
732 Clandeboye Avenue, Sel-
kirk, Man. andaðist að heim-
ili sínu miðvikudaginn 27.
júlí, 92 ára að aldri. Hún var
fædd að Garði nálægt Útskál-
um á íslandi, dóttir Eiríks
Auðunssonar og konu hans,
Margrétar Magnúsdóttur. Vig-
dís heitin var skírð og fermd
í kirkjunni á Útskálum og í
Útskálagrafreitnum hvíla for-
eldrar hennar og systkini,
Auðunn, Magnús og Kristín.
— Hún var ein af stofnendum
lúterska safnaðarins í Selkirk
og kvenfélags kirkjunnar.
Eiginmann sinn, Þórð, missti
hún árið 1944; hana lifa fjórir
synir; Paul, Carl, Barney og
Ragnar; ein dóttir, Mrs. Harry
J. (Louise) Larson; ellefu
barnabörn og ellefu barna-
barnabörn. Útförin fór fram
frá lútersku kirkjunni í Sel-
kirk; hin látna var lögð til
hvíldar í lúterska grafreitnum
í Mapleton, Man. Rev. E. A.
Day jarðsöng.
☆
Herberl Christopherson að
Baldur, Manitoba, andaðist
MESSUBOÐ
Fyrsla lúierska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir.
sextugur að aldri 3. ágúst.
Hann átti heimili alla sína
ævi í Baldur-byggð og stund-
aði þar viðgerðir á bílum og
rak bílastöð. Hann lætur eftir
sig konu sína, Emily; fjórar
dætur, Mrs. .T. Johnson, Dor-
othy, Patsy og Connie; þrjá
bræður, Sigurð, Joe og John,
og eina systur, Mrs. Chris
Helgason Útförin var gerð frá
lútersku kirkjunni að Baldur.
☆
Jónas Ingi Johnson, 55 ára
að aldri, frá Arnes, Man., lézt
á St. Boniface spítalanum 27.
júlí. Hann var í þjónustu Ca-
nadian Pacific Railway. Fjór-
ir bræður lifa hann, Kjartan,
John, Helgi og Ben; enn frem-
ur ein systir, Mrs. Ernest
(Margaret) Stratton. Útförin
var gerð frá lútersku kirkj-
unni að Arnesi; séra J. Lar-
son jarðsöng.
☆
Mrs. Ragnhildur Johnson
(Thorkelsson), 87 ára, búsett
að 391 Lipton St., Winnipeg,
andaðist 29. júlí á Princess
Elizabeth spítalanum. Hún
fluttist til Kanada um alda-
mótin og átti lengi heima að
Arnes, Man. Einar, eiginmað-
ur hennar, dó 1930. Hana lifa
tveir synir, Magnús og Guð-
jón; þrjár dætur, Mrs. F. Peat-
field, Mrs. C. Matheson og
Miss Hilda Egilsdóttir; 23
barnabörn og 26 barna-barna-
börn. Útförin var gerð frá
lútersku kirkjunni að Arnes,
Man. Séra Kolbeinn Simund-
son jarðsöng.
☆
Guðmundur Eyford, 86 ára
að aldri, andaðist að Betel
þriðjudaginn 9. ágúst. Hann
flutíist til Kanada fyrir 57 ár-
um og átti heima í Winnipeg
í 47 ár og var smiður að iðn.
Hann var greindur maður og
fróður, skrifaði alloft fyrir
vestur - íslenzku vikublöðin.
Hann lætur eftir sig tvær
dætur, Mrs. Forest Gangwer
og Herdísi Guðmunds, sauma-
konu í Reykjavík. Útförin var
gerð frá Bardals útfararstof-
unni; séra Philip M. Péturs-
son flutti kveðjumálin.
☆
Mrs. Margréi Bárðarson,
fyrrum búsett að Geysir, Man.
andaðist að Golden, B.C. 8.
ágúst. Hún var 81 árs að aldri.
Útför hennar var gerð frá lút-
ersku kirkjunni að Geysir og
hún lögð til hvíldar í graf-
reitnum þar laugardaginn 13.*
ágúst.
☆
Edward J. Olson andaðist
á sjúkrahúsi í Bellingham
sunnudaginn 15. maí 1960, 79
ára að aldri eftir stutta legu.
Einn sonur, Orlen E. Olson,
lifir föður sinn. Orlen er
kvæntur íslenzkri stúlku,
Mabel, dóttur Mrs. Jónínu
Benson frá N.D., en hefir búið
allmörg ár í Bellingham.
Mr. Edward J. Olson var
mesti myndarmaður, dugleg-
ur starfsmaður og gjörvilegur
að vallarsýn. Hann var jarð-
sunginn föstudaginn 20. maí,
kl. 1.00 e. h. frá útfararstofu
Louis F. & Bill L. Jones,
Bellingham, og lagður til
hinztu hvíldar í Burlington
grafreit sunnan Bellingham.
Allmargir vinir og vandamenn
fylgdu honum til grafar. Séra
Guðmundur P. Johnson jarð-
söng.
☆
Hannibal Ágúst Thordarson
andaðist á sjúkrahúsi í Seattle
fimmtudaginn 9. júní 1960
eftir nokkurn lasleika, 76 ára
og 9 mánaða gamall. Hann lifa
tveir synir og ein dóttir, þau
eru William D. og Loran A.
og Evelyn Kristjanson, öll bú-
sett í Seattle. Einnig lifa
Hannibal tveir bræður, Sig-
urður í Seattle og Lárus að
Akra, N.D.; ein systir, Mrs.
Ólína Erickson að Gardar,
N.D. og ellefu barnabörn.
Hannibal hafði dvalið 8 ár
í Seattle hjá börnum sínum.
Hann var ágætis maður og
vel látinn af öllum, sem hann
þekktu.
Kveðjuathöfn fór fram frá
útfararstofu Wiggen & Sons,
Se^ttle, laugardaginn 11. júní,
kl. 2.30 e. h. að viðstöddum
mörgum vinum og vanda-
mönnum. Séra Guðmundur
P. Johnson flutti kveðjumál,
síðan var líkið flutt til N. Dak.
og jarðsett þar.
Mrs. María Stephenson, 87
ára, lézt á Betel, Gimli, Man.
laugardaginn 13. ágúst. Hún
fluttist til Kanada fyrir 57 ár-
um. Hana lifa dóttir hennar,
Mrs. David Somers og tvö
barnabörn. Útför hennar var
gerð frá Bardals og jarðsett í
Brookside grafreit. Séra Kol-
beinn Sæmundson jarðsöng.
☆
Miss Ella Hall að Ste. 6
Elsinore Apts., Winnipeg, and-
aðist á almenna spítalanum 8.
ágúst. Útför hennar fór fram
frá Sambandskirkjunni í Win-
nipeg. Séra Philip M. Péturs-
son jarðsöng. Hennar verður
nánar minnzt síðar.
H E R E N O W I
Toast Master
MIGHTY FINE BREAD!
At Your Grocers
J. S. FORREST, J. WALTON,
Manager Soles Mgr.
Phone SUnset 3-7144
EXHIBITION
The Icelandic National League is sponsoring
an exhibition of reproductions of
ICELANDIC PAINTINCS
AT
FIRST LUTHERAN CHURCH
Victor and Sargenl
Thursday August 18 at 8 p.m.
Friday August 19 at 8 p.m.
Pictures can also be seen Friday August 19
from 4-G p.m. in aflernoon.
Rev. BRAGI FRIDRIKSSON from Iceland will give commen
tary. New films from Iceland will be shown
each evening at 9 p.m.
Admission 75 cents
Séra B. Theodore /* ^
Sigurdsson lótinn Jtyoy
Á þriðjudaginn 2. ágúst
lézt á sjúkrahúsi í Bismark,
North Dakota, séra Björn
Theodore Sigurdsson, 53 ára
að aldri. Hann var fæddur í
Seattle, sonur hinna merku
hjóna, séra Jónasar og frú
Stefaníu Sigurdsson, sem nú
eru bæði látin. Séra Theodore
hlaut menntun sína í Sas-
katchewan, Seattle og North-
Western Seminary í Minne-
apolis og var prestvígður
1934. Það ár varð hann eftir-
maður föður síns sem prestur
Selkirksafnaðar. Síðar þjón-
aði hann lúterskum söfnuðum
að Lundar og Mountain. Hann
dvaldist um skeið á Islandi og
kvæntist þar eftirlifandi konu
sinni, Jóhönnu Sigurjónsdótt-
ur. Auk hennar lætur hann
eftir sig einn son, Hannes;
eina systur, Mrs. Hannes (Elín)
Kjartansson, og bróður, Jón
lækni Sigurdsson.
Útförin var gerð frá lút-
ersku kirkjunni íslenzku í
Selkirk; forseti Kirkjufélags-
ins, séra Eric Sigmar, flutti
kveðjumál. — Séra Theodore
var gáfumaður, vel að sér í
íslenzkum bókmenntum og
mælskur með afbrigðum.
Hann hvílir við hlið foreldra
sinna í grafreitnum í Selkirk.