Lögberg-Heimskringla - 05.01.1961, Page 1

Lögberg-Heimskringla - 05.01.1961, Page 1
lANiJSBÍJi'ÁSÁr-IÍ 291530 ÍSLAHGS ftetmékrtnsla SlofnaS 14. )an., 1888 Siofnuð 9. sepl.. 1886 75. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 5. JANÚAR 1961 NÚMER 1 MINNINGARORÐ: Vaíenfrínus Valgardsson F. 16. apríl 1896 D. 5. janúar 1960 Vestur-íslenzkur ambassador í dag er rétt ár liðið síðan Valentínus Valgardsson and- aðist; hann dó í svefni snemma morguns 5. janúar 1960 að heimili sínu í Moose Jaw, Sas- katchewan. 1 þrjátíu og fimm ár hafði hann verið kennari við Moose Jaw Central Col- legiate, aðalskóla þessarar sléttuborgar. Á þessu tíma- bili höfðu þúsundir ungmenna úr bænum og nærliggjandi sveitum notið kennslu hans og hollra áhrifa hins göfuga hugarfars hans. Hann hafði tekið mikinn þátt í féla^smál- Valeníínus Valgardsson, B.A., M.A. um og var meðal annars í bæjarráði um skeið og hafði hann í hvívetna notið álits og tiltrausts. Það var því ekki að undra þótt marga setti hljóða, þegar fregnin um hið óvænta fráfall hans varð heyr- um kunn og voru fánar dregn- ir í hálfa stöng í bænum. Daginn eftir áttu blöðin við- töl við ýmsa leiðandi menn í Moose Jaw, og eru hér birt- ir kaflar úr tveimur; O. B. Fysh borgarstjóri — „Ég var með Mr. Valgardsson í bæjar- ráðinu; hann var ágætis borg- ari. Hann vildi jafnan komast að því rétta og sanna; spurn- ingar hans hittu í mark og til- lögur hans voru uppbyggj- andi; hann sannarlega bar velferð borgarbúa fyrir brjósti. Moose Jaw verður fá- tækari við að missa hann.“ A. E. Peacock, superihten- dent of city schools: „Hann var ágætismaður á allan hátt og framúrskarandi kennari. Mr. Valgardsson var maður, sem átti háar hugsjónir. Hann myndaði sér sterkar skoðanir og hafði hugrekki til að fylgja þeim eftir. Skarð það, er hann lætur eftir sig í kennaralið- inu, verður vart hægt að fylla, því að okkar áliti var hann einn af allra fremstu kennurum fylkisins í stærð- fræði og vísindum." Valentínus Valgardsson var fæddur í Winnipeg 16. apríl 1896. Foreldrar hans voru hin góðkunnu hjón Ketill Val- gardsson, ættaður úr Eyrar- sveit í Snæfellsnessýslu og Soffía Sveinbjarnardóttir frá Laxárdal í Dalasýslu. Þau bjuggu í Winnipeg fram til ársins 1903, en fluttust þá til Gimli, og þar gekk Valentínus á barnaskóla. Haustið 1912 fluttist hann til Winnipeg, vann í banka um hríð, en inn- ritaðist haustið 1913 í undir- búningsdeildina í Wesley Col- lege og lauk námi í henni 1915. Enn hélt hann áfram tvö ár við Wesley og síðan við Manitoba háskólann í eitt ár og lagði þá aðallega stund á stærðfræði. Við prófið um vorið 1918 hlaut hann ágætis- einkunn og $100.00 náms- verðlaun. En nú syrti í lofti; um haustið 1918 fékk hann að- kenningu að beintæringu; var skorinn upp um veturinn og nokkur hluti af hinum sýktu hryggjarbeinum skorinn burt. Lá hann lengi rúmfastur og virtist sem námsferli hans myndi nú lokið, en kjarkur hans og viljaþrek var óbilandi. Hann komst á fætur og gekk fyrst við hækjur og síðan við staf, og þótt hann yrði að halda uppskurðarsárinu opnu um skeið, hóf hann námið við háskólann á ný haustið 1920. Það virtist sem þessi eldraun gæfi honum aukinn sálarþrótt og skerpti hugsunina; um haustið lauk hann Bachelor of Arts prófi með ágætiseinkunn og hlaut gullmedalíu háskól- ans í stærðfræði. — Hann læknaðist af sjúkdómnum, en menjar hans bar hann til dauðadags. Valentínus lét hér ekki staðar numið. Hann hafði ekki fremur en aðrir íslenzkir námsmenn í þá daga mikil efni til framhaldsnáms, en vegna frábærra lærdómshæfi- leika fékk hann kennslu næstu tvö árin við Manitoba háskól- ann tvær stundir á dag og samtímis því stundaði hann nám við Normalskólann. Það mætti ætla, að hann hefði þá haft fáar tómstundir af- gangs, en einhvern veginn vannst honum tími til að halda áfram stærðfræðinámi sínu og á þessu tveggja ára Frh. bls. 2. Á framsíðu jólablaðs Lög- bergs-Heimskringlu var skýrt frá því, að Mr. Sigvaldason hefði verið skipaður ambassa- dor Kanada til Indónesíu, fyrsti maður af íslenzkum ættum, sem Kanadastjórn hef- ir skipað í sendiherraembætti. Blaðinu hefir síðan borizt mynd af sendiherranum ásamt ýtarlegri upplýsingum. Hann var fæddur að Bald- ur, Manitoba 9. febrúar 1904 Jón Pélur Sigvaldason og voru foreldrar hans Einar og Kristín Sigvaldason, bæði látin. Hann hlaut menntun sína við Manitoba - háskóla, Bachelor of Arts gráðu 1933 og Bachelor of Education 1939; stundaði kennslu í all- mörg ár; var skóla inspector um skeið og síðan aðalfram- kvæmdarstjóri menntamála- deildar fylkisins 1940-1942. Mr. Sigvaldason innritaðist í kanadíska flugherinn 1942, og var hann Squadron Leader, þegar hann var leystur úr herþjónustu í marz 1946. Gekk hann þá í þjónustu utanríkis- málaráðuneytis Kanada og var skipaður Assistant Secre- tary við Canada House í Lon- don í ágúst það ár; þjónaði hann þar í sex ár, en síðan í Ottawa og Pakistan. Síðan i október 1958 hefir hann ver- ið formaður Inspection Serv- ice utanríkismálaráðuneytis- ins. Nýtur hann mikils álits og trausts innan ráðuneytisins svo sem starfsferill og emb- ættisskipun hans ber vott um. Ambassador Sigvaldason er tvíkvæntur og heitir seinni kona hans Olga Ada. Hann á tvö börn af fyrra hjónabandi, son, John William, er heima á í Winnipeg, og dóttur, Joyce Darlene, er stundar nám í hjúkrunarfræði við Winnipeg General Hospital. Sonur hans, George Einar, er með foreldr- um sínum í Ottawa. Sigvaldason bræðurnir eru fjórir; Thórhallur og Aðal- steinn stunda búskap í Bald- ur, en Ingólfur er smiður í Dauphin, Man. Hinn nýi ambassador er ís- lenzkur í anda; hann hefir lengi verið áskrifandi blaðs- ins og segir hann í bréfi til ritstjórans: „Þótt ég hafi Hinn 4. desember s. 1. héldu þau heiðurshjónin Gísli og Guðrún Björnson í Glenboro upp á 60 ára hjúskaparafmæli sitt. Þau gengu í hjónaband aldamótaárið, 1900, og voru gefin saman í Grundarkirkju í Argyle byggðinni af séra Jóni Clemens. Þau hjónin komu bæði upphaflega frá ís- landi ásamt foreldrum sínum, og eru þau af góðum ættum af Norðurlandi, Gísli sonur Björns Björnssonar frá Sæ- unnarstöðum og konu hans, Guðnýjar Einarsdóttur. Frú Guðrún kom frá Eyjafirði, dóttir hjónanna Sigtryggs Stefánssonar og Guðrúnar Jónsdóttur. Þau hjónin Gísli og Guðrún stunduðu búskap við Cypress River frá því að þau giftust og fram til ársins ,1944, en þá fluttust þau nær Glenboro og voru við búskap fram til árs- ins 1952, að þau brugðu búi fullkomlega og fluttust inn í bæinn til að eyða þar elliár- um sínum. Eins og áður segir héldu þau hjónin upp á þetta merk- isafmæli sitt þann 4. des. Ættingjar þeirra og vinir í byggðinni og víðar að héldu þeim þá veglegt samsæti í Glenboro. Voru þar saman komnir meira en 155 manns. B. S. Johnson talaði til brúð- hjónanna fyrir hönd vina þeirra og afhenti þeim fagran blómvönd og álitlega fjárupp- hæð frá byggðarfólki í tilefni dagsins. Margar fleiri og fal- legar gjafir bárust þeim frá vinum og ættingjum, ásamt fjölda skeyta og hamingju- óska, til dæmis bárust þeim heillaóskir frá hennar hátign, drottningunni, forsæstisráð- herra Kanada, forsætisráð- herra Manitoba, forseta ís- lenzka kirkjufélagsins og ís- lenzka ræðismanninum í Win- nipeg. Þau Gísli og Guðrún eiga þrjár dætur, Hansínu, sem dvelur heima, Mrs. Oscar Jo- sephson, Cannington, Ont., Mrs. H. Lewis, Vancouver, B.C., einnig þrjá syni, Har- old, Fred og Munda, allir í Glenboro, einnig 14 barnabörn og 10 barna-barnabörn. lengi verið fjarverandi frá Kanada, hefi ég ánægju af að lesa, skrifa og tala íslenzku, hvenær sem mér gefst tæki- færi til þess.“ Megi gifta fylgja starfi þessa mæta Vestur-íslendings i hinni ábyrgðarmiklu stöðu hans. Þau hjónin hafa ætíð verið þekkt fyrir gestrisni sína og góðvilja. Þau hafa alla tíð til- heyrt lútersku kirkjunni og verið góðir starfssamir safn- aðarmeðlimir. Þau hafa einn- ig tekið þátt í öllu því, sem mátti verða byggðarlagi þeirra til góðs og framfara. Vinir þeirra og nágrannar sýndu þeim það einnig ótvírætt á þessum ánægjudegi, að þeir hafa metið að verðleikum ör- læti þeirra og hjálpsemi öll þessi ár. J. B. Þjóðminjavörður íslands Kristján Eldjárn Dr. Kristján Eldjárn er fæddur að Tjörn í Svarfaðar- dal 6. deserpber 1916, sonur hjónanna Sigrúnar Sigur- hiartardóttur og Þórarins Eldjárns hreppstjóra. Hann lauk stúdentsprófi við Menntaskólann á Akureyri árið 1936. Stundaði síðan nám við háskólann í Kaupmanna- höfn 1936-1939 og við Háskóla Islands 1941-1944 og lauk þaðan meistaraprófi í íslenzk- um fræðum. Dvaldist um skeið við fornleifarannsóknir á Grænlandi. Árið 1957 varði hann doktorsritgerð við Há- skóla íslands, og nefnist hún „Kuml og haugfé úr heiðnum sið á íslandi". Eftir hann liggja þegar mörg rit og rit- gerðir. (Sjá ritstjórnarsíðu.) Sexf-íu ára hjúskaparafmæli

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.