Lögberg-Heimskringla - 09.02.1961, Síða 2

Lögberg-Heimskringla - 09.02.1961, Síða 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 9. FEBRÚAR 1961 Úr bréfi fró Seattle Frá Vancouver, B.C. Frá bls. 1. landi fyrir níu árum, eru ný flutt til Squamish, B.C. Þar hefir Mr. Helgason byggt og starfrækir nú „Motel“, sem hann nefnir „Garibaldi Motor Hotel”, og eru þau hjónin eigendur þess. í því eru 23 „units“ með dúkum (carpet) á gólfum veggja á milli, ný- tízku húsgögn og öllum þæg- indum, sem verða leigð með mjög sanngjörnu verði. — Squamish er 40 mílur frá Vancouver og þangað er ágætur vegur og fagurt út- sýni. Þarna er nokkurs konar veiðmanna paradís, og silung- ur og lax í vötnum og ám, og skíðafæri upp í fjöllum fyrir þá, sem vilja. Það væri gam- an fyrir fólk, sem er hér á ferð, að skreppa um leið til Squamish, og væri þá gott að senda línu á undan sér til þeirra Helgasonshjóna, Box 570 — Squamish, B.C. — og veit ég það af eigin reynd, að þau hjón taka vel á móti gest- um sínum. Ströndin, deild Þjóðræknis- félagsins hélt ársfund sinn ný- lega, og voru eftirtaldir menn kosnir í stjórn félasins: For- seti, Snorri Gunnarson; vara- forseti, Nói Bergman; ritari, Harold Eyford; féhirðir, Davíð Eggertson; varaféhirðir, Ósk- ar Howardson; fulltrúi elli- heimilisnefndar, Ben Brynj- ólfsson. Ráðgjört er að halda Þorrablót seint í febrúar. W. A., kvenfélag ísl. lút. kirkjunnar heimsótti Höfn 29. janúar. Mrs. Nygaard forseti felagsins ávarpði heimilis- fólkið, og var henni vel fagn- að. En það var sérstakur fögnuður í hjörtum hinna öldruðu vistmanna, því að presturinn okkar, séra E. S. Brynjólfsson var þarna stadd- ur eftir langa sjúkdómslegu. Bað Mrs. Nygaard hann að koma fram, og söng hann sálm, og flutti svo fallega ræðu og bæn. Mr. og Mrs. Le- land sýndu myndir, „color slides“, og svo sungu allir gömlu ísl. söngvana okkar. Var svo setzt að borðum, og kvenfélagskonur báru fram beztu veitingar. Miss Katrín Brynjólfsson frá Winnipeg hefir verið hér í tvo mánuði í heimsókn til bróður síns, séra E. S. Brynj- ólfssonar og frú Guðrúnar. Hún er nýfarin austur aftur. Mr. og Mrs. B. S. Johnson frá Glenboro, Man. komu í desember og voru um jólin hjá dóttur sinni og tengda- syni, Dr. R. E. og Mrs. Helga- son, Burnaby, B.C. Mr. og Mrs. John Ingimund- son frá Winnipeg, Man. komu til að vera hjá syni sínum og fjölskyldu hans í mánaðar- tíma. Þau búa í Coquitlam, E.C. Ég skrapp til White Rock um daginn, svona rétt til að komast frá Vancouver-þok- unni og inn í White Rock sól- skinið, því það er víst satt og sannað, að sólin skín þar meir og oftar en víða annars staðar í B.C. En svo er nú alltaf sól- skin í huga mér og hjarta, þegar ég er nálægt syni mín- um, konu hans og tveimur sonum þeirra. Þau búa í White Rock, og skemmti ég mér ágætlega sem fyrr. Ég heimsótti um leið þau Dr. S. E. og frú Marju Bjömsson í nýja heimilið þeirra þar og átti með þeim ánægjulega kvöldstund. Skrapp líka til Blaine og Birch Bay, þar sem ég á frændfólk. En það er líka alltaf gott að koma „heim“ — að 1075 W. 12th Ave. G. Jóhannesson Héðan allt gott að frétta, heilsufar fólks yfirleitt bæri- leg. Veðurfar mjög milt, en mikið hefir rignt undanfarn- ar vikur. Snjólaust og frost- laust hefir verið fram að þessu nema upp til fjalla. Hér er allt fagurgrænt á láglend- inu og sums staðar eru blóm farin að skjóta öngum og tré að byrja að laufgast. Þrátt fyrir þessa veðurblíðu feng- um við slæma inflúenzu hér á dögunum og leið okkur bölvanlega í tvær vikur, en erum nú búin að ná nokkurn veginn fullum bata. — Eins og ég minntist á áður í bréfi, minntist Lestrarfélagið Vestri 60 ára afmælis síns 20. jan. síðastl. Ég sendi þér mjög bráðlega umsögn um þá sam- komu, svo að ég minnist hennar ekki frekar hér. Hér er allmikið atvinnu- leysi um þessar mundir, eins og víðast hvar annars staðar í Bandaríkjunum. En yfirleitt bindur almenningur miklar vonir við hið nýja ráðuneyti og okkar unga og glæsilega forseta, sem þegar hefir sýnt og sannað, að hann ætlar ekki að taka neinum vettlingatök- um á þeim vandamálum, sem við honum og hans ráðuneyti blasa. Ég hef verið svo láns- samur að hafa alltaf stöðuga vinnu síðan ég kom, og er það mikils virði. Vinn ég alltaf á kvöldin og allar helg- ar, en á frí á þriðjudögum og miðvikudögum. Ég þurfti að vinna á jólunum og sömuleið- is gamlárskvöld og nýárs- kvöld. Fékk ég tvöfalt kaup fyrir og kom það sér vel. — Vel má vera, að við skreppum til Winnipeg í vor, þegar ég fæ sumarleyfi mitt, ef alW gengur vel. Þú skilar kærri kveðju til vina og kunningja. Sérstak- lega biðjum við að heilsa Valda Beck. Thor Viking 'VmSS&Sf CaxmauA KVNNIB VBIIR RÍTTINDI VflAR LÖGLEGIR INNFLYTJENDUR NJÓTA SÖMU RÉTTINDA OG ALLIR AÐRIR KANADÍSKIR VERKAMENN Allur fjöldinn atvinnuveitenda í Kanada er ráðvandur .Þó hafa sumir, því miður, notað sér í hag vankunnáttu þeirra innflytjenda, sem ekki hafa kynnt sér réttindi sín. Verið á verði gegn sviksamlegri vistráðningu. Sjáið um að þér fáið frídaga með kaupi, sem þér eigið rétt á. Verið viss um að frádráttur frá kaupi yðar fyrir fæði og húsnæði sé ekki of hár. Neitið því að vera notaður sem verkfalls- brjótur. Athugið atvinnuleysistryggingar bók yðar og sjáið hvort í henni séu allir þeir inn- eignarmiðar, sem þér eigið með réttu. Óttizt ekki að ganga í verkalýðssamtök. Þér eigið rétt til þess. Hræðizt ekki hótanir frá at- innurekanda að þér verðið rekinn úr landi. Ef þér hafði einhver réttmæt umkvörtunar- efni varðandi atvinnuskilyrði yðar, leitið ráða til fylkisembættismanna í yðar umhverfi. Ef þér þekkið ekki til þeirra, snúið yður til nálæg- asta innflytjenda embættismanns eða til emb- ættismanna í þjóðernisfélagi, sem þér tilheyrið. Þeir munu gera allt, sem í þeirra valdi stendur yður til aðstoðar.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.