Lögberg-Heimskringla - 09.02.1961, Blaðsíða 6

Lögberg-Heimskringla - 09.02.1961, Blaðsíða 6
6 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 9. FEBRÚAR 1961 GUÐRÚN FRA LUNDI: Römm er sú taug Framhald skáldsögunnar Þar sem brimaldan broinar „Jæja, það er bezt að vera ekki að tala um það, fyrst hún vildi endilega fara norður. Ef henni hefir þótt erfitt þar, langar hana ekki eins mikið þangað næsta ^vor," sagði Maríanna. Svo opnaði hún stofuna og kveikti, svo að Hallur gæti séð húsbúnaðinn. „Sjáðu nú bara, vinur, hvað hér er orðið laglegt hjá mér. Heldurðu að það sé nokkur munur eða á húsakynnunum, sem ég hef kúldrast í öll þau ár, sem ég hef fylgzt með þér. Nú er ég komin á mína réttu hillu í lífinu. Mig vantar að- eins stóran og fallegan skáp hérna, en hann fæ ég seinna. Er ég nú ekki dugleg að vera búin að veita mér þetta allt saman, án þinnar hjálpar?" sagði hún og vænti þess að hann segði þó svolítið hlýlega, að víst hefði hún verið það. „Ekki get ég nú dáðst að því, þó að þú hefðir einhver ráð með að koma þessu inn í stofuna, þegar búið var að fiytja það heim að dyrunum til þín, og þaðan af síður dáist ég að því, þó að þú gætir talið út peningana fyrir það, sem ég var búinn að fá þér. Hefð- irðu unnið fyrir þeim sjálf, var sjálfsagt að veita þér hrós fyrir dugnaðinn," sagði hann háðslega. Það leit út fyrir, að hann væri vel kunnugur því, sem hér hafði gerzt, þó að hann hefði verið fjarverandi. „Svo er nú svefnherbergið hérna,“ sagði hún hálfþreytu- lega og opnaði dyrnar og kveikti. Þau eru nú heldur fátækleg svefnherbergishús- gögnin. Aðeins litlu borðin, sem við áttum fyrir norðan. Systurnar sváfu á tvíbreiða dívaninum þarna, meðan Mál- fríður var heima, en nú verð- um við að hafa hann. Þá vant- ar aðra þeirra eitthvað til að sofa á. Þær flytja svo í her- bergi, sem er uppi á lofti.“ „Á þessi bálkur að heita hjónarúm?" hnusaði í Halli. „Ég get hugsað að ég reyndi fljótlega að fá mér almenni- legt rúm, sem hægt er að snúa sér við í. Þér hefði ekki þótt mikið til þes koma út á Nesi að sofa á svona dívangarmi.“ „Þetta kemst í vana, góði minn. Mér hefir náttúrlega aldrei fallið eins vel við það eins og að sofa í rúmi, en samt er ég farin að venjast því.“ Svo ætlaði hún að fara að segja honum frá því, hvaðan hún hefði fengið stólana og borðið og með hvað góðu verði, en hann greip fram í fyrir henni. „Þú þarft ekki að segja mér það. Ég veit það allt. Málfríð- ur sagði mér, hvernig það hefði gengið, meðan hún var hjá þér.“ „Ójá, hún hefir sagt frá frumbýlingsraunum mínum og erfiðleikum, aumingja stelpan mín. Ég var nú að hugsa um að skrifa þér eitt- hvað um það, þó að þú værir ekki að hafa fyrir því að senda mér línu. Það er nú meiri staurinn, sem hann er, þessi eiginmaður minn!“ sagði hún með hálf glettnislegu brosi. Helzt gæti það mildað hann. Það þekkti hún af gamalli reynslu. En svipur hans var jafn úfinn og tvíræður og áður. „Ég hafði víst ekkert að skrifa,“ sagði hann gremju- lega. „Fyrst þú gazt ekki enzt til þess að standa við hlið mína til síðasta dags, hefði ég ekk- ert átt að hirða um þig meir, en samt er ég nú hingað kom- inn, sárnauðugur, eins og þér er sjálfsagt fyllilega ljóst, og býst ekki við mikilli ánægju í framtíðinni." „Vertu bara rólegur, góði minn, og svolítið glaðlegur á svipinn núna, þegar öllum áhyggjum er aflétt," sagði hún. „Það er ólíklegt að þeim sé öllum aflétt. Ég gæti betur trúað að þær yrðu heldur meiri, þegar hingað er kom- ið,“ sagði hann. Hefirðu getað i>orgað húsaleiguna?11 „Já, það hef ég getað,“ sagði hún, „en það er líka farið að ganga nokkuð á vasapening- ana.“ „Það er líklega nokkuð erf- itt að greiða skilvíslega húsa- leigu hér í Reykjavík," sagði hann. „Það lagast nú, þegar þú getur keypt hús,“ sagði hún broshýr. „Já, þegar það. En ég er nú ekkert að hugsa um að kaupa mér hús hérna,“ sagði hann. Dadda kom inn í eldhúsið og kallaði inn fyrir til mömmu sinnar: „Nú er Fríða komin heim og hana langar til að ég sofi hjá sér í nótt. Heldurðu að þér leiðist, mamma?“ „Nei, áreiðanlega ekki,“ kallaði Maríanna. „Það er kominn næturgestur til mín. Komdu inn fyrir og heilsaðu honum, góða.“ „Nei, er það pabbi,“ sagði Dadda og heilsaði föður sín- um brosandi. „Það eru farnar að styttast á þér flétturnar, Dadda mín,“ sagði Hallur. „Það var svo sem auðvitað, að þú þyrftir að hanga aftan í öðrum stelpum og taka það eftir þeim að láta klippa þig.“ „Það þótti öllum svo ómögu- legt, að hún væri með þetta mikla hár, en ég sá mikið eftir því,“ sagði Maríanna. Þá komu þau inn, Tómas og Stella. „Komdu blessaður, pabbi, og velkominn til okkar,“ var heilsan hjá Tómasi. Hallur þ a k k a ð i honum fyrir. „Hvernig heldurðu að þér líki hérna í höfuðstaðnum?“ sagði Tómas. „Líklega heldur leiðinlega, býst ég við. Það er ólíkt um- hverfið hérna eða þar sem ég hef alið aldur minn,“ svaraði Hallur dræmt. „Þú hefir gert það gott á síldinni, eða er það ekki?“ spurði Tómas. „Stórþénað, býst ég við.“ „Já, það var gott sumar- kaup, sem ég hafði.“ „Ég þakka þér líka um- stangið við kindurnar mínar,“ sagði Tómas. „Ætlar Gunnar að fóðra þær fyrir mig í vet- ur?“ spurði hann svo. „Já, hann tekur af mér fimmtán ær á fóður. Ærnar þínar eru taldar þar með,“ sagði Hallur. „Og svo fær Sóti að 'ganga þar í vetur. Ólíklegt að hann þurfi að koma í hús, sumarstaðinn hesturinn." „Ég gæti nú bezt trúað að það hafi notað hann í sumar í Látravík,“ sagði Tómas kuldalega. „Að minnsta kosti ætlaði Málfríður að þeytast á honum í smalamennskuna. Það sagði hún mömmu, þegar hún talaði við hana í símann.“ „Hestinn hefði hún sjálf- sagt lítið munað um það, þó að hún hefði setið á honum. En það gerði hún ekki vegna þess að hún réði ekkert við hann,“ sagði Hallur. „Mér finnst þú hafa látið aumingja mömmu helzt til af- skiptalausa í sumar. Ekki skrifað henni eina línu,“ sagði Tómas með talsverðum mynd- ugleik. „Og svo þegar þú kem- ur loksins, heyrist mér þú alltaf vera að jagast við hana. Það finnst mér hreint ekki sanngjarnt. Þú verður að taka það með í reikninginn, hvað hún var búin að vera lengi á alrangri hillu þarna fyrir norðan. Nú er hún fyrst í þeirri stöðu, sem við hana á, svo fíngerða konu sem hún er. En í slorinu og draslinu í Látravík átti hún aldrei heima.“ „Það var víst ekki hægt að sjá að hún væri mjög óánægð. Annars hefði hún varla verið þar öll þessi ár,“ sagði Hallur. Hann var orðinn ískyggilega dökkur í andliti. Maríanna reyndi að gefa Tómasi aðvar- andi augnaráð, en hann gaf því engan gaum. „Aleinar léztu þær koma hingað suður í vor og vera hér heimilislausar í næstum þrjár vikur,“ hélt hinn lærði sonur áfram. Maríanna dáðist af mælsku hans. Hallur ræskti sig erfiðlega. Maríanna vissi hvað það þýddi. Hann var að reiðast fyrir alvöru. HÚN VAR NÆGILEG FYRIR GANGSTÉTT Fuglarnir máttu vel hrista hausana yfir fyrstu tilraun- um mannsins að hefja sig til flugs. En framfarir mannsins í fluglist hafa verið undraverð- ar og nú eru fuglarnir orðnir langt á eftir. Hér í Kanada, þar sem fjar- lægðirnar eru miklar, reiðum við okkur mjög á flugvellina. Og öruggur flugflutningur er undir því kominn, að hinn rétti orkugjafi sé til reiðu, hvar og hvenær sem hans er þörf. Imperial Oil hefir til taks flugvélabenzín og þotu- eldsneyti alls staðar í Kan- ada—á afskekktum geymslu- stöðvum lengst norður á ís- hafinu eða á hinum fjölsóttu alþjóðaflugvöllum. ÍSSO) IMPERIAL OIL LIMITED ...for80yearsCanada's!eadingsupplierofenergy Electricity, probably more than any other source of energy has been responsible for the high standard of living enjoyed by millions of Cana- dians today. The nation is more productive healthier, wealthier, and more secure—thanks in large part to the number of tasks performed by electricity. Electricity stands ready to do even more in the way of improving the world in which we live. Its capabilities are boundless—they need only to be called upon to serve. So take advantage of this tireless servant and make electricity work for you. Úh W* NATIONAL ELECTRICITY WEEK, FEB. 5-11

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.