Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 27.07.1961, Qupperneq 6

Lögberg-Heimskringla - 27.07.1961, Qupperneq 6
6 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 27. JÚLÍ 1961 GUÐRÚN FRA LUNDI: Römm er sú taug Framhald skáldsögunnar Þar sem brimaldan brotnar „Með Ingibjörgu gömlu?“ Maríanna barðist við hlátur- inn, sem ætlaði alveg að yfir- buga hana. „Hún vill helzt ekkert eiga við það lengur. Það er nú svo sem engin furða, þó að konur á sjötugsaldri séu farnar að letjast, þegar þær, sem enn þá eru fyrir innan fimmtugt, nenna ekki að sjóða mat ofan í mann sinn og börn,“ sagði Hallur og kvað fast að orð- unum. Maranna stóð upp og hvarf inn í svefnherbergið. Helga fór að þvo ílátin af borðinu, meðan hún spurði frétta að norðan. Loks spurði hún, hvort hann vantaði ekki kven- fólk í vor, ef hann ætlaði sér að fara að búa á allri jörðinni. Hann játaði að svo væri og spurði, hvort hún væri kann- ske fáanleg til að koma norð- ur. „Það er áreiðanlegt að ég er til í það,“ sagði Helga og brosti ánægjulega. „Það er nú svona, þó að maður fái þetta háa kaup hérna, þá er afgang- urinn svo sáralítill, þegar bú- ið er að borga húsaleiguna, fæðið og ýmislegt annað. Hve- nær ferðu aftur norður?“ spurði hún. „Strax í fyrramálið,“ sagði Hallur. „Ætlarðu þá ekki að stanza lengur hjá konunni þinni, þá einu sinni þú kem.ur,“ sagði Helga brosleit. „Mér finnst það nógu langt,“ sagði hann. „Mér fannst það viðkunnanlegra að segja systrunum, að ég hefði litið inn til hennar. En mér kemur hún svo sem ekkert við lengur, fyrst hún vill ekki koma norður og vera hjá mér og dætrum sínum. Það er anzi hart að verða að borga húsa- leigu fyrir konuna hér, en hafa nóg húsnæði fyrir norð- an.“ „Hún getur nú ekki hugsað til þess að búa lengur í kof- unum þar. Hún er orðin svo fín,“ sagði Helga háðslega. Svo sagði hún Halli eins og í systurlegum trúnaði frá andatrúarhyskinu í hinum enda hússins. Þess vegna svæfi hún inni í svefnherberg- inu hjá konu hans. Hann sagði henni í staðinn frá því, að Tómas hefði skrif- að sér valdsmannlegt bréf, þar sem hann hefði átalið sig fyrir að láta móður hans vinna fyr- ir sér að öllu leyti. Og hann sagðist eiga eftir að svara því. Lengra varð ekki trúnaðar- samtal þeirra, því að Maríanna kom fram, tekin til augnanna. Annað hvort hafði hún fengið eitt af þessum óviðráðanlegu hlátursköstum eða grátið. Hún horfði forviða á Helgu, sem enn sat í sömu skorðum og áður og var ekki farin að hreyfa við diskunum á borð- inu. Um hvað skyldu þau eig- inlega hafa verið að ræða. „En ég verð nú að fá ákveð- ið svar, annað hvort núna eða fljótlega,“ sagði Hallur. „Já, ég skal láta þig fá á- kveðið svar eins fljótt og ég get,“ sagði Helga. „Hvað eruð þið eiginlega að bræða?“ spurði Maríanna. Hallur varð fyrir svörum. „Ég er ekki búinn að gleyma því, hvað hún Helga var dug- leg í dúninum, en nú þarf ég á góðri stúlku að halda, og hún er ekki frá því að koma norður til mín.“ „Það gerirðu ekki, Helga mín. Þú ferð ekki að yfirgefa mig,“ sagði Maríanna biðj- andi. \ „AuðvitáÓ kemur þú líka, manneskja,“ sagði Helga. „Og svo setjumst við aftur að í Látravík. Það verður áreiðan- lega gaman. Nú þarftu ekki að óttast tvíbýlið lengur.“ . „Ég fer ekki norður fyrr en byrjað verður að byggja íbúð- arhúsið,“ sagði Maríanna og brosti fallega. „Það er nú eitt af því, sem mér dettur alls ekki í hug að gera, að fara að byggja fcpp, og hef heldur ekkert fé til þess,“ sagði Hallur. „En hvernig heldurðu að færi um stólana mína í torf- kofunum þínum?“ sagði Maríanna. „Þeir koma sjálfsagt aldr- ei þangað," sagði Hallur yfir sig reiður. „Næst þegar ég kem til Reykjavíkur verður það til þess að skilja við þig. Ég þoli þetta ekki lengur. Þú færð hálfa jörðina. Annað á ég ekki til. Það sem búið seld- ist fyrir, er uppétið þessi þrjú ár, sem við höfum verið hér í Reykjavík. Ég skal gjalda fimm hundruð krónur eftir hálflenduna. J>að er dýr leiga, en af því verður þú að lifa. Meira færðu ekki frá mér.“ „1 guðanna bænum stilltu þig maður,“ sagði Maríanna. „Ég get nú ekki meint að þetta sé alvara þín, að fara að skilja við mig og láta þér detta í hug, að ég geti lifað á einum fimm hundruð krónum yfir árið.“ „Þá gætirðu sagt með sanni að ég léti þig ekki hafa nokkra peninga, en það hefir þú sagt Tómasi. Hann skrifaði mér merkilegt bréf og átaldi mig fyrir það, hvernig mér færist við þig. Það fæ ég fyrir að borga húsaleiguna fyrir þig hérna mánaðarlega," rausaði hann og rauk fram í forstof- una, klæddi sig í frakkann og lét á sig hattinn. Síðan stökk hann út í náttmyrkrið án þess að kveðja. „Það er þó ómögulegt að hann sé farinn?" sagði Marí- anna. „Þú gerir hann vitlausan með þessum bölvuðum þráa í þér,“ sagði Helga. Maríanna vakti til klukkan tólf og vonaðist eftir manni sínum. En hann kom ekki. Þá háttaði hún, en lét þó húsið vera ólæst. ÓVÆNT HJÁLP Helga vakti húsmóðuj: sína næsta morgun, þó . að hún þættist vita að hún myndi hafa sofið heldur lítið um nóttina, enda sagðist Marí- anna ekkert fara á sauma- verkstæðið í dag. Þegar Helga kom heim úr vinnunni, var Maranna ekki heima og það sem meria var, hún hafði skil- ið rúmið sitt óumbúið og mat- arílátin á eldhúsborðinu. Slíkt var óvanalegt hjá henni. Hvað hafði svo sem komið fyrir? Hún fór að taka til í húsinu, annað gat hún ekki gert. Nokkru seinna kom Maríanna. „Hvað hefir svo sem komið yfir þig, manneskja," sagði Helga í sínum kalda ásökun- artón. „Þú hleypur frá heim- ilinu eins og upprifnu hrafns- hreiðri. Hvað hefir þú eigin- lega verið að gera?“ Maríanna hló óstyrkum titr- andi hlátri. „Ég varð nú líklega að fylgja mínum elskulega eig- inmanni,“ Sagði hún og augu hennar fylltust tárum. „Heim til Tómasar varð ég að fylgj- ast með honum, til þess að hann gæti rekið það ofan í Tómas þetta með húsaleiguna, sem hann hafði skrifað norð- ur. Ég hélt að þeir ætluðu saman. En svo varð þó ekki. Tómas minn sló auðvitað und- an. Hann hefir svo sem erft geðprýðina mína, blessunin. Stella var farin að hágráta af hræðslu. Hvað skyldi hafa orðið úr henni að sitja í mínu sæti öll þessi ár. En það verð ég þó að segja, að Hallur er orðinn svo mikill skapvargur, að ég þekki hann ekki fyrir sama mann og áður. Svo ætl- ar hann að gera mér það til ills, að hafa þig norður til sín. Þú varst þá ekki lengi að bíta á hjá honum, og svo á ég að svamla hér ein innan um and- ana og draugana. Sjálfsagt endar það með því að ég verð að fara til Tómasar, og ég er þó ekkert upp með mér af því.“ „Hvað er betra fyrir þig að elda ofan í þau og þjóna þeim, en fara norður, þar sem þú hefir nógar stúlkur til að hjálpa þér. Dadda fer víst ekki til útiverkanna fyrst hún hef- ir krakkann til að annast. Blessuð vertu svo ekki með þetta ráðaleysisvandur fram og aftur. Einungis til þess að gera ykkur bæði hálf geð- veik,“ sagði Helga. Nokkru seinna kom bréf frá Döddu. Hún var ósköp sæl yf- ir litla syninum sínum og sagðist vona að amma kæmi norður í vor til að hjálpa sér við bæjarverkin. Hún hugs- aði sér að flytja í baðstofuna þeirra Sifu og Gunnars, þeg- ar þau væru farin. Hún væri yngst af baðstofunum og hlýj- ust. Þá yrði einmanalegt fyr- ir pabba að vera einan í hús- inu sínu og auðvitað að sama skapi fyrir hana, þegar Helga flytti norður. Svo var drif- hvítur hárlokkur innan í bréf- inu. Hann var af litla dóttur- syninum. „Ósköp hlýtur barnið að vera indælt,“ sagði Maríanna og sýndi Helgu bréfið, svo að hún gæti lesið það. „Það verður vel rúmt í bæn- um, þegar Gunnar og fjöl- skylda er flutt. Ég skal svei mér fá eina kompuna og sofa í henni í sumar,“ sagði Helga. „Það þarf ekki að borga húsa- leigu í blessaðri sveitinni.“ „Já, en heldurðu að þér bregði nokkuð við að skúra gólfin, herra minn góður.“ „Ég varð að skúra kompuna og-stigann, þar sem ég leigði síðast, og ekki voru dúklögð gólfin hjá sjómannagreyjun- um suður með sjónum. Nei, mér bregður ekki svo mikið við,“ sagði Helga. „Ég er far- in að hlakka til að koma norð- ur.“ „Bara að ég gæti sagt það sama,“ andvarpaði Maríanna. Svo bætti hún við: „Ég held að það geti skeð, að ég neyð- ist til að fara norður, ef það reynist rétt, sem mér hefir verið sagt að karlinn ætli að segja mér upp húsnæðinu. Dóttir hans ætlar að fara að gifta sig og hún á víst að fa þessa íbúð.“ ROSE THEATRE SARGENT ot ARLINGTON CHANGE OF PROGRAM EVERY FOUR DAYS Foto-Nite Every Tuesday and Wednesday SPECIAL CHILDREN'S MATINEE Every Saturday —AIR CONDITIONED— REYKJAVIK Fram og aflur frá New York ★ STÓRFELLDUR c , : SPARNAÐUR í í/llK * FJÖLSKYLDU- ^ v FARGJÖLDUM * Velrarfargjöld. Ferðist eflir 15. ágúst og komið eflir 15. oklóber. UPPLYSINGAR HJA ÖLLUM FERÐASKRIFSTOFUM eða SKRIFIÐ EFTIR HINUM NYJA XI BÆKLINGI OKKAR. ICELANDIC AIRLINES •íSt 610 Fifth Ave., New York 20, N.Y. PL 7-8585 NEW YORK—CHICAGO—SAN FRANCISCO Kennara vantar Manitoba mun þarfnast margra nýrra kennara á hverju ári eins lengi og börnum á skólaaldri fjölgar eins og nú og að öðrum ástæðum óbreyttum. Kennarastaðan hefir að bjóða: • Kostnaðarlágt nám • Námsstyrkir og lán veitt þeim, er þess þurfa • Alls konar kennarastöður hingað og þangað um fylkið • Hæstu grundvallarlaun, sem nokkurn tíma hafa verið boðin fullnuma kennurum • Ágæt tækifæri til að komast hærra í starfinu • Tækifæri til að láta gott af sér leiða Námsfólki í XII. bekk og öðrum, sem hafa í hyggju barnaskólakennslu, er boðið að senda umsóknir um inngöngu fyrir 1961-62 tímabilið í Teachers College, sem hefst 11. september 1961. Umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar fást hjá School Inspectors, High School Principals, The Director of Teacher Training, Department of Éducation, 52 Legislative Building, Winnipeg 1, eða Principal, Teachers College, Tuxedo, Manitoba. Þeir, sem hafa lokið háskólaprófi og hafa áhuga fyrir kennslu í miðskólum, sendi umsóknir sínar til The Dean, Faculty of Education. University of Manitoba, Fort Garry, Manitoba, eða The Director, Faculty of Education, Brandon College, Brandon, Manitoba. Um frekari upplýsingar, gerið svo vel og skrifið Mr. H. P. Moffat, Director of Teacher Training, Room 52, Legislatvie Building, Telephone Number, WHitehall 6-7370. MANITOBA DEPARTMENT OF EDUCATION , AUTHORIZED BV HON. STEWART E. MclEAN, Miniif*r of Educotion, Provinc* of Monitobo.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.