Lögberg-Heimskringla - 17.05.1962, Blaðsíða 4

Lögberg-Heimskringla - 17.05.1962, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 17. MAÍ 1962 ■raa~ Lögberg-Heimskringla Published every Thursday by NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. Printed by WALLINGFORD PRESS LTD. 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Man. Edilor: INGIBJÖRG JÓNSSON EDITORIAL BOARD Winnipeg: Dr. P. H. T. Thorlakson, chairman, Próf. Haraldur Bessason, vice-chairman, Mrs. Ingibjörg Jónsson, sec’y, Dr. Valdimar J. Eylands, Miss Caroline Gunnarsson, Prof. Thor- valdur Johnson, Prof. Tryggvi J. Oleson, Rev. Philip M. Péturs- son. Vancouver: Dr. S. E. Bjömsson. Monireal: Próf. Áskell Löve. Minneapolis: Mr. Valdimar Björnson. Grand Forks: Dr. Richard Beck. Reykjavík: Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri. Akureyri: Steindór Steindórsson yfirkennari. Subscription $6.00 per year—payable in advance. TELEPHONE WH. 3-9931 Authorized as second class mail by the Post OflBce Department, Ottawa, and for payment of postage in cash. Próf. HARALDUR BESSASON: Ræða flutt vestan fjalls í öndverðum maímánuði 1962 Mér er sagt, að Árni heitinn Pálsson prófessor hafi kom- izt svo að orði um héruð hér vestan fjalls, að þau væru „Island með viðbót“. Líklega hefir gamli maðurinn ekki talið það nauðsynlegt að skýra orð sín nánar, því að slíkt var ekki vani hans. Mun hann hafa látið áheyrendur um það að geta sér til um, í hverju viðbótin væri fólgin. Líkast ti'l hefir þó prófessor Árni átt við Klettafjöllin, sem vafalítið eru hærri en Íslandsfjöll og skógana, sem þekja þau og eru skóga mestir. Þá er og ekki að gleyma Kyrrahafinu, sem er mun heitara og sváslegra en suðurhluti Ishafs eða norður- hluti Atlantshafs. Einnig má nefna blómgróður, ávexti, skipa- stól, fólksfjölda og margt fleira. Það tæki langan tíma að skilgreina þetta, enda er það ekki ætlun mín. Mér þykir þó tilhlýðilegt að minnast þess með fáeinum orðum, að Ameríka hefir orðið íslandi að ýmsu leyti merkilegur við- auki. Næstum hvert skólabarn í Norður-Ameríku mun hafa heyrt nafn Leifs heppna nefnt eða rekizt á það í bókum. Fræðimenn telja hann og fyrsta evrópíska landkönnuðinn, er steig fæti á land hér í Norður-Ameríku. Fram til þessa hafa nokkrar sögur íslenzkar verið taldar merkustu og áreið- anlegustu heimildirnar um landafundi Leifs, iþótt margur Ameríkumaðurinn kunni að hafa skoðað þær sem skemmti- legar þjóðsögur. Nú á síðustu tímum hafa fornleifafundir á Nýfundnalandi mjög stutt hinar rituðu heimildir. Er því ekki annað sýnna en að vantrúaðir hljóti brátt fullkomna lækningu efasemda sinna. Samband milli Islands og Norður-Ameríku hófst með landafundum Leifs, eða ef menn vilja vera enn nákvæmari með Grænlandsfundi Eiríks föður hans, en Grænland fylgir Ameríku, eins og allir vita, að minnsta kosti í landfræðileg- um skilningi. Þetta samband (ef Grænlandsnýlendan er und- anskilin) rofnaði þó skömmu eftir að til þess hafði verið stofnað, þar sem landafundirnir leiddu ekki til varanlegs landnáms. Engu að síður höfðu landafundir íslendinga mikla þýðingu og mun meiri en margur kann að gera sér grein fyrir. Þeir juku ekki svo litlu við sjóndeildarhring sagn- fræðinga, sem snemma rita um þessi efni. í öðru lagi verður naumast dregið í efa, að siglingar Islendinga vestur hafi varðað veginn fyrir Kristófer Kólumbus. Að minnsta kosti draga þeir, sem gerst þekkja til, slíkt ei í efa. Læt ég nægja að vitna um þetta til verka dr. Vilhjálms Stefánssonar, sem hefir flestum meiri lærdóm óg þekkingu til að bera um allt það er lýtur að landafundum. Hinir fyrstu Ameríkufarar frá íslandi hafa sjáfsagt orðið að játa, að Ameríka væri meira en „eitt plógsland, þat er fjórtán öxn drægi upp dag og nótt“ og flyttu til íslands, svo að vitanað sé að nokkru til Snorra Eddu. „Viðbótin“ var einkum fólgin í víðtækari þekkingu, stærri sjóndeildarhring, að minnsta kosti fyrst í stað. , Það er alkunna, að Ameríkumenn eru kirkjuræknir mjög og fórna miklu fyrir kirkjur sínar. Þeir hafa og reynt töluvert að efla kristniboð víða um heim. Mér þætti því eðli- legt, að Norður-Ameríkumenn minntust þess jafnan, að Is- lendingar efndu fyrstir manna til kirkjugerðar í Ameríku. Á ég hér við Þjóðhildarkirkju á Grænlandi, sem fornleifa- fræðingar munu nú loksins hafa fundið. Þetta er athyglis- verð staðreynd, en þótt trúlegt sé, að Islendingum á Græn- lndi hafi seint miðað í því að flytja frumbyggjum landsins fagnaðarboðskapinn, enda mun íslenzk frumkristni á Græn- landi hafa dáið út með þjóðarbrotinu þar. Flest bendir nú til þess, að Islendingar hafi fyrst staldrað við í Kanada, er þeir komu vestur um haf. Kanadísk-íslenzk saga á því skamman veg ófarin að þúsund ára afmæli. Saga þessi er einkar slitrótt, eins og geta má nærri og eyðurnar miklar. Engu að síður má segja það með nokkrum sanni, að það hafi tekið Islendinga næst- um tíu aldir að komast frá Ný- fundnalandi vestur á Kyrra- hafsströnd. Þannig var það með öndvegissúlur landnáms- manna, að þær fundust ekki alltaf um leið og þær rak að landi. Meginhluti þeirra Islend- inga, sem vestur komu fyrir síðustu aldamót, tók sér ból- festu inni í miðju Kanada, í Winnipeg og nágrenni. Inn- flytjendurnir voru að sjálf- sögðu rammíslenzkir og hlutu að lifa í höfuðatriðum eftir sínum rammíslenzku lögum, þangað til yfir lauk. Þeir héldu Próf. Haraldur Bessason áfram að tala sitt eigið móður- mál, eftir að vestur kom, þeir ortu og skrifuðu á íslenzku og hugsuðu all'ar sínar hugsanir á því máli. Stundum gætti dá- lítils kala, að því er tók til frænda og skyldmenna austan hafs, sá kali var gagnkvæm- ur. Þeir, sem heima sátu, og vesturfararnir töldu, hvorir um sig, að sitt hlutskipti væri betra en hins. Gefa gömul blaðaskrif allglögga mynd af iþessu. Nú er þetta gleymt og grafið og aðeins varðVeitt á blöðum. Metingurinn átti sér skiljanlegar rætur, og má vel vera, að hann hafi verið nauð- synlegur. Það er gott, að menn uni því hlutskipti, sem þeir hafa sjálfir kosið sér. Og ekki sakar það mjög, þó að hver og einn telji sólskinið um- hverfis t sjálfan sig dálítið bjartara en á öðrum stöðum. Leiðin frá Islandi til Amer- íku var löng og leiðin frá Ný- fundnalandi vestur á Kyrra- hafsströnd enn þá lengri. Margur í ykkar hópi hefir svipaða sögu að segja og þeir Norðmenn, sem í öndverðu komu til Islands frá víkinga- nylendum á Bretlandseyjum. Margir ykkar á' meðal eiga rætur að rekja til íslenzku ný- lendanna í Manitoba og Norð- ur-Dakota. Þykist ég og oft hafa greint dálítinn meting, sem auðvitað er ofur skiljan- legur, milli gömlu nýlendanna og þeirra nýju, sem stofnað var til í veðurblíðunni hér vestur við Kyrrahafið, þar sem hlýjan andvara leggur inn yf- ir landið jafnt sumar sem vet- ur og þar sem blómin springa I I út jafnvel í byrjun jólaföstu. Með landnámi Islendinga í Vesturheimi voru hin fornu landamæri Islands stórlega færð út, og má líta á það mál frá næstum óteljandi hliðum. Blaða- og bókaútgáfa íslend- inga hér vestra er næstum jafngömul landnámi þeirra í Kanada. Framfari, sem hóf göngu sína fyrstur íslenzkra blaða í Manitoba, er merki- legt plagg í sögu þess fylkis. Heimskringla og Lögberg voru um ákeið stærstu blöð, sem gefin voru út á íslenzkri tungu. Ef kastað væri tölu á allar þær bækur áslenzkar, sem gefnar hafa verið út í Kanada, yrði sú tala með hreinum ólíkindum. Ekki er það samt magnið, sem mestu máli skiptir, heldur sá hlutinn, sem gildi hefir. Treystist ég ekki til að fara út í efnisgrein- ingu eða gæðamat. Mig langar aðeins til að benda á það, sem raunar flestir vita, að vestur- íslenzk skáld og rithöfundar hafa á vissan hátt aukið Kan- ada og Arperíku við ísland eða íslenzkar bókmenntir. Ef ein- hver í hópi hinna yngri skálda á íslandi væri spurður um það, hvern af hinum eldri skáldjöfrum íslenzkum hann mæti mest, gæti ég bezt trúað því, að margir myndu nefna Stephan G. Stephanson, enda hafa og hin yngri skáld mjög lofað hann í ljóðum sínum. Það er og trúlegt, að hann verði lífseigari en margir þeir, sem ortu honum samtímis. Stephan ej ekki einungis sér- stæður heimspekingur, heldur er hann síungur og í kvæðum hans eru menn einatt að finna eitthvað nýstárlegt. Orðfærið er rammíslenzkt, en myndirn- ar, sem hann dregur oft og ei'natt upp í ljóðum sinum, eiga samt rætur utan íslands á þeim stöðvum, sem eru víðs fjarri hugarheimum heima- alningsins. Hann flutti drjúga spildu af Kanada heim til Is- lands, þar á meðal Klettafjöll- in, sléttur Norður-Ameríku, vorleysingar í vestri og margt annað, sem of langt yrði upp að telja. Guttormur J. Guttormsson flutti Nýja ísland inn í ís- lenzkar bókmenntir, þegar hann orti kvæðabálk sinn „Jón Austfirðing“. „Sandy Bar“, sem er eyðistaður á bökkum Winnipegvatns, er eins konar „Gimli“ í íslenzkri Ijóðlist seinni tíma. Káinn gaf Islend- ingum Norður-Dakota og vest- ur-íslenzku, það hefir Gutt- ormur líka gert. Þegar ég var strákhnokki norður í Skaga- firði á íslandi, dvaldist ég oft á slóðum Jóhanns M. Bjarna- sonar og kynntist þannig Nýja íslandi, Rauðárdalnum, Elgs- heiðum og fleiri stöðum vest- ur í Kanada. Hér var ekki um þýðingar að ræða, heldur verk, sem oft áttu rætur í erlendum jarð- vegi, en voru engu að síður fædd á íslenzku og gerð handa að því fólki, sem á fþá tungu móðurmáli. Þjóðfélagsfræðingar kunna að vera ósamdóma um þa ’ hvort æskilegt sé, að men*1 skrifi erlendis á útlendu 1° 1- Slíkir dómar hafa þó litla þý ingu. Þetta hefir tekizt me ágætum. Útlend mold og er lend tunga fallast víða í faðma í vestur-íslenzkum bókmenn um. Ég trúi ekki öðru en a Klettafjöllunum þyki v£en um Stephan G. Stephanson, o viss er ég um það, að esP1 trjáaraðirnar í Nýja lslaI^ gleyma ekki Guttormi J. Gut ormssyni. Vart get ég og hugs að mér byggðirnar umhve lS Mountain í Norður-Dakota an Káins eða Káinn án þeirra. Héruðin hér vestan lía^ eru vissulega „ísland með V1 bót“. Rétt mun og, að Kanad og Norður-Ameríka hafi °r ið íslandi merkileg viðb°g Einnig má víkja orðum til 0 segja, að ísland sé g® 11 Ameríkuauki. Þyrfti þá he z að rekja öll afrek íslending^ vestan hafs. Ég treysti me^ ekki við svo yfirgripsmi 1 efni nú að sinni, enda ha margir freistað að rekja P sögu. íslendingar hafa frá fyrS^ tíð verið svo fámennir, að to ^ fræði heiimsins á naumaS^ nokkur tákn til, sem gefið Se til kynna slíka fæð. I tölfrse 1 legum eða stærðfræðileíph\ skilningi eru íslendingar P naumast til og hafa aldrei ve ið það. Engu að síður er Is' land merkilegt land að tþvl e tekur til sögu Norður-Evrópd Fræðimenn hafa og stun u nefnt það Grikkland norður , ins, þó að stærðarmunur sögulegum skilningi se mikill. Án íslands eða, ^ lenzkra handarverka v Norðurlönd sögulaus að ka ’ og fornbókmenntir ættu P engar. Auðvitað hafa þessir hluh^ þó mesta þýðingu fyrir lsien. inga sjálfa, því að á þeim ha þeir lifað eða í nánu sa bandi við þá og þeir eru he z fetenzku Þrck i í”13 bir“ ,58 Gretti Ásmundarsyni < Hallgrími Péturssyni. Og P er trú Islendinga á það beZ^ í sinni eigin menningu> hefir veitt þeim merkiie® Mfsfyllingu á öllum stundu ^ og það sjálfstraust, sem naU^ synlegt er hverjum þeim> s uppréttur vill standa í 1JÍ1 Ég veit til sanns, að ísie° ' ingum á íslandi er mjófí^ mun að efla þá hluti, sein ^ menningai~verðmæta je J Ég skal ekki rekja fram a^_ sögu landsins síðustu ar^,kaf ina. Hún er flestum yk* kunn. En þó vil ég nefna s ^ bætt menntunarskilyrði) inn áhuga á listum og ^ gróskuminni bókmenntn" áður, þó að mörgum samt1 ^ manninum kunni að V1 þeim hlutum ábótavant. Framh. á his> all' ÍS' skýringin a hvort heldur

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.