Lögberg-Heimskringla - 14.03.1963, Side 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 14. MARZ 1963
5
Leskaflar í íslenzku
handa byrjendum
Prof. Haraldur Bessason
Prof. Richard Beck, Ph.D.
XXXV
In continuation of the last lesson the strong verbs fara
(go, travel etc.) and fá (be allowed, be able to, get, take,
give) will be conjugated in indicative as follows: the present and past tense
Pres.
Sing. Plur.
ég fer við förum
þú ferð þið farið
hann (hún, það) fer þeir (þær, þau) fara
Pasi
ég fór við fórum
þú fórst þið fóruð
hann (hún, það) fór þeir (þær, þau) fóru
Pres.
ég fæ við fáum
þú færð þið fáið
hann (hún, það) fær þeir (þær, þau) fá
Pasi
ég fékk við fengum
þú fékkst þið fenguð
hann (hún, það) fékk þeir (þær, þau) fengu
Translate into English:
Ef ég fæ kvef, fer ég til læknis og læt hann skoða mig.
Við förum stundum í kirkju þangað sjaldan eða aldrei. á sunnudögum, en þið farið
Jón fór norður að Gimli og fékk sér nýjan fisk. Við fór-
um með honum og fengum okkur fáein gullaugu. Þið fenguð
skyr og rjóma til kvöldverðar.
Ferð þú stundum í leikhús? Nei, en granni minn fer
þangað oft. Við fáum að fara út að vatni á sumrin. Ég fór
þangað í hverri viku í fyrra sumar, þú fórst þangað einu
sinni, en Jón fór aldrei. Þú færð bréf frá Sigurði annað
veifið, og hann fær fréttir frá þér. Þú fékkst skilaboðin frá
mér í gær, en Jón fékk þau ekki fyrr en í morgun. Þeir fóru
heim einni klukkustund áður en þið fóruð. Þið fáið að heyra
frá okkur bráðlega.
Vocabulary:
aldrei, never
á sumrin, during the summer
á sunnudögum, on Sundays
annað veifið, once in a while
bráðlega, soon
einu sinni, once
fáein, adj. plur., a few, acc.
plur. neuter of fáeinir
fisk, masc., fish, acc. sing of
fiskur
kvef, neuter, cold, acc. sing. of
kvef; fá kvef. catch cold
kvöldverðar, masc., supper,
gen. sing of kvöldverður
læknis, masc., doctor, gen.
sing. of læknir
læt, let, lst per. sing. pres.
ind. of láta
nýjan, adj. new, fresh, acc.
sing of nýr
rjóma, masc., cream, acc. sing.
of rjómi
sjaldan, seldom
fréttir, fem., news, acc. plur.
of frétt
granni, masc., neighbor
gullaugu, neuter, Lake Wpg.
Goldeye, acc. plur of
gullauga
í fyrra sumar, last summer
kirkju, femv church, acc. sing.
of kirkja
klukkustund, fem., hour, dat.
sing. of klukkuslund
skilaboðin, neuter, message,
the nom. plur. isskilaboð
skoða, inspect, look at, look
upon, consider
skyr, neuter, Icelandic curds,
acc. sing. of skyr
stundum, some times
vatni, neuter, lake; dat. sing.
of vatn
viku, fem., week, dat sing. of
vika
Aðalræða
Frá bls. 4.
yfir Norður-Atlantshafið, þó
að núverandi tveir helztu for-
vígismenn Loftleiða, þeir
Alfreð Elíasson og Kristinn
Olsen, hefðu aldrei hafið sinn
flugferil hér í Winnipeg, en
skemmtileg tilviljun er það
þó, að það skyldi einmitt hafa
verið hér í byggð og hópi ykk-
ar Vestur-íslendinga, einmitt
hér í hinni íslenzku höfuð-
borg vestra, að þeir lögðu
grundvöllinn að þeirri starf-
semi, sem nú er orðin heims-
kunn, og ég get glatt ykkur,
vini þeirra, með því, að félag-
ið, sem þeir stjórna, var í
fyrra annar hæsti skattgreið-
andi á Islandi, og ég er illa
svikinn, ef það verður ekki sá
hæsti í ár, að í þjónustu þess
starfa nú beinlínis 425 manns,
auk allra þeirra, sem á einn
eða annan hátt fá lífsfram-
færslu af starfsemi Loftleiða,
að íslendingar eru allir stoltir
af framsókn félagsins, og
standa óskiptir að baki því,
þegar á reynir í stríði þess
fyrir tilvist sinni við hinar
voldugu samsteypur s t ó r u
keppinautanna og þær ríkis-
stjórnir, sem renna undir þær
sínum styrku stoðum.
Forystumenn Loftleiða eru
vel minnugir þeirrar þakkar-
skuldar, sem þeir eiga hér að
gjalda, og áður en ég fór að
heiman, var mér falið að færa
ykkur boð um litla viður-
kenning þeirra á henni, viður-
kenning, sem ef til vill mætti
verða til þess að stuðla í
nokkru að vaxandi kynnum
okkar í milli, Austur- og
Vestur-Islendinga. Það var á-
kveðið, að bjóða nú, helzt ein-
hvern tíma rétt fyrir 17. júní,
heim tveim Vestur-íslend-
ingum með flugvélum Loft-
leiða frá New York, og svo
ráð fyrir gert, að þeir dveldust
fyrstu vikuna heima á kostnað
félagsins. Þetta boð var það,
sem mér var falið að færa
ykkur, til minningar og þakk-
ar um gömul og góð ár þeirra
félaga tveggja, Alfreðs og
Kristins, hér vestur í Winni-
peg-
Okkur fannst sjálfum — og
fcngum það staðfest við beztra
manna yfirsýn hér vestra, að
ef til vill myndi þetta koma
að mestum notum með því að
biðja stjórn Þjóðræknisfélags-
ins að reyna að stilla svo til að
þetta heimboð geti á einn eða
annan hátt orðið Lögberg-
Heimskringlu til styrktar. Við
vitum að þetta blað er nú einn
helzti tengiliðurinn milli ís-
lendinga hér vestra, og myndi,
að öllum öðrum ólöstuðum, í
því mest eftirsjá, ef hans nyti
ekki lengur við, en fyrir því
teljum við nauðsyn að leggja
með þessu móti okkar lið,
honum til styrktar. Ég hef enn
ekki heimild til þess. að bjóða
þetta nema vegna tveggja
gesta á sumri komanda, en ég
hef þá trú, að ef þetta tekst
vel, ef það reynist blaðinu til
eflingar, og að því tilskildu,
að starfsemi Loftleiða verði
ekki með minni myndarbrag
hér eftir en hingað til, að þá
geti framhald orðið á þessum
tveim orlofsferðum, en um
það tölum við betur síðar. Nú
takið þið til við að reyna að
finna sem fyrst væntanlega
gesti okkar tvo til þjóðhátíðar
í Reykjavík 17. júní á sumri
komandi — og svo sjáum við
síðar, hvað setur.
Þegar talað er um hagnýtt
samstarf, er oftast átt við það
eitt, sem varðar hið efnalega,
og um það hef ég nú nefnt
tvö dæmi af mörgum, þar sem
skipti hafa orðið á fjármunum
eða verklegri menningu milli
Austur- og Vestur Islendinga
og þar sem við Austmenn
höfum verið fremur þiggjend-
endur en veitendur, en þá er
ótalið allt hitt, sem ef til vill
skiptir þó enn meiru, þau
andlegu samskipti í skáld-
mennt, trúmálum, sögum og
sögnum, sem orðið hafa, báð-
um til mikillar blessunar, eft-
ir að íslenzk byggð reis hér í
Vesturheimi. Ég held, að bæði
íslenzku þjóðabrotin eigi þar
með þökkum margs að minn-
ast. Sársauki brottflutning-
anna er löngu horfinn, og þar
með grundvöllur sumra þeirra
deilumála, er á sínum tíma
vörpuðu nokkrum skugga á
sambúðina. Nú er það alveg
ljóst, að hér í álfu munu af-
komendur íslenzku landnem-
anna halda áfram að búa, og
að frá íslandi munum við
ekki flytjast framar. Það er
héðan af alveg óhugsandi, að
skipti okkar í framtíðinni geti
orðið önnur en góð, en það
eiga þau líka að vera, og engin
nema góð. Við skulum fara í
orlofsferðir til frænda okkar
og vina, vestan hafsins og
austan, styrkja gömul ætta- og
menningarbönd, efla íslenzka
tungu, varðveita sameiginlega
þann arf, sem forfeðumir
skiluðu okkur úr þrengingum
hinna myrku alda íslandssög-
unnar, minnugir þess, að hér
Minningar Ijóð
séra Eiríkur S. Brynjólfsson
(Lag: Drottinn vakir,
Drottinn vakir).
Ástkær vinur, ykkur horfinn,
er nú héðan jörðu frá.
Hann, sem gekk í göfugleika,
Guðs síns björtu vegum á.
Störf sín vann hann kristni og
kirkju,
kærleikans á sigurbraut.
Og í gegnum öll þau kynni,
ást og sanna virðing hlaut.
Vina kær, af heilu hjarta,
heita samúð flyt ég þér.
Þig og börntn bið ég Drottinn,
blessa og styrkja ávalt hér.
Hvar sem æfileiðin liggur,
ljósið skín frá elsku Hans,
breiði ykkar brautir yfir,
bjarta geisla kærleikans.
Lifir minning ljúf og fögur,
ljómar gegnum sorgar tár.
Aftur verða endurfundir,
eftir tímans reynslu ár.
Það er vissa þeim, sem trúa,
þekkja Drottins miklu náð.
Yfir ykkur ætíð vaki,
elska Guðs, í lengd og bráð.
Jóna Jónsdóltir,
Hafnarfirði.
eru „dropar tveir, en sami
sjór“, að
„Ekki er það hnjúkarnir,
holtin
og hraunin, sem framast vér
þráum.
Það er ekki ísland hið ytra,
sem einkum í huga vér sjáum,
heldur hið andlega ísland
sem elskum vér, tignum og
dáum“.
Til þess að varðveita þetta
ísland okkur til handa lifðu
og dóu feður okkar og for-
mæður í þúsund ár úti á ís-
landi. Við skulum skila því
framtíðinni, börnum okkar og
barnabörnum, hvort sem við
búum austan Atlantshafs eða
vestan. Þá lifum við og deyj-
um sátt við okkur sjálf.
Matreiðið uppáhalds (iskrétt
yðar eftir þessari bók
Yfir 50 myndir. "Canadian Fish
Cookbook" skýrir frá ágætum
matreiðsluaðferðum fyrir hinar
mörgu tegundir fisks í Kanada.
Uppskriftirnar eru fyrir ljúf-
fenga, lystuga og ódýra rétti.
Skrifið eftir eintaki í dag. Sendið
dollars seðil ásamt nafni yðar og
heimilisfangi til: The Queen’s
Printer, Ottawa.
DEPARTMENT OF FISHERIES
OTTAWA, CANADA
Hon. J. Angus MacLean, M.P., Minisier