Lögberg-Heimskringla - 14.03.1963, Blaðsíða 8

Lögberg-Heimskringla - 14.03.1963, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 14. MARZ 1963 Ur borg og byggð íslenzk messa í Únítara- kirkjunni á Banning Street, Winnipeg á sunnudaginn 17. marz, kl. 7 e.h. Séra Philip M. Pétursson predikar. — Allir boðnir velkomnir. ☆ Víða liggja spor íslendinga Mr. og Mrs. Arni G. Eggert- son Q.C. sem nýlega eru kom- in heim úr mánaðardvöl í Hawaii höfðu gaman af að lesa efttirfylgjandi klausu í einu blaði eyjarinnar: Last Sunday on my TV program I interviewed world- traveled former non-sked pilot Bob Oliver (boy, has he been around!) and he opined that the world’s best - looking women are from Iceland. Since, I’ve learned of a verit- able “colony” of Icelandic gals in our islands, and strangely, they all live at the Trade- winds Apts. but until last week didn’t know of each other’s presence there. One’s married, and other two engaged . . . Which leads to this item: Larry Coit, Imua executive veep, abandons his long and (he sez) happy bachelorhood Feb. 22, when he weds his secretary, Inga Berta Kristjansdottir, who’s 33 per cent of Hawaii’s Ice- landic population. ☆ Eric Slefansson þingmaður Selkirk kjördæmis hefir ný- lega tilkynnt að Búnaðardeild Sambandsstjórnarinnar muni láta stækka og girða beitar- lönd til sameiginlegra afnota fyrir gripabændur nálægt Mulvihill, Man. og einnig ná- lægt Narcisse milli Manitoba og Winnipegvatna. ☆ Frú Marja Björnson, er sat þjóðræknisþingið sem fulltrúi deildanna „Ströndin“ og „Aldan“ varð fyrir því óhappi annan þingdaginn, að skrika fótur og mjaðmarbrotna. Hún var á Winnipeg General, Hospital í tíu daga en síðan hefir hún verið hjá systir sinni og mági, Mr. og Mrs. A. G. Eggertson Q.C., að 109 Lamont Blvd., Tuxedo, Winni- peg, Man. Hún biður L.-H. að flytja vinum sínum innilegar þakkir fyrir blómin, kveðjum- ar og heimsóknirnar. Það er fagnaðarefni að hún er nú á góðum batavegi en bréf til hennar sendist samt fyrst um sinn til ofangreinds heimilis. ☆ Betel Home Foundation Mr. R. Bergson, 245 Arling- ton St., Winnipeg, $10.00. — í kærri minningu um Hallur Johnson, Arborg, Manitoba. Meðtekið með þakklæti K. W. Johannson, 910 Palmerston Ave., Winnipeg 10, Man. féhirðir byggingarsjóðsins. Icelandic Canadian Club Nú verður nokkuð um gleði og glaum þegar Icelandic Canadian Club kemur saman í Unitara kirkjunni kl. 8.30 mánudagskvöldið 18. marz. Þar stýra dansi okkar Sænsku frændur, Mr. og Mrs. Thord Spetz og square dance flokkurinn þeirra. Er í ráði að blanda ballið með vinsælum gömlum polka, vals og öðrum eftirlætis dönsum frá fyrri tíð, og auðvitað verður mikið um square dance og quadrille. Blessaðir landar, fjölmennið nú með vinum ykkar, því allir eru velkomnir. Eftir dansinn verður rabbað yfir kaffi og öðru góðgæti. — C.G. ☆ Ritgerð Jónasar Jónssonar fyrrv. alþingismanns og dóms- málaráðherra birtist á fyrstu og annari síðu þessa blaðs og ber hún með sér hve annt hann lætur sér um að auka veg okkar Vestur íslendinga og sæmd. Við eigum honum margt og mikið að þakka bæði fyrr og síðar. Ritgerðin barzt Lögbergi-Heimskringlu um það leyti að þjóðræknisþingið var háð og var hún lesin á þingi og bendingar þær, sem hún hefir að geyma, íhugaðar og ræddar, og væntanlegum framkvæmdum vísað til stjórnarnefndar félagsins. — í einu atriði ritgeðarinnar gætir misminnis hjá höfund- inum. Þótt það sé ekki sak- næmt í sjálfu sér, vil ég þó leiðrétta þetta, en það er um útgáfu Sögu Vestur íslend- inga: Fyrsta bindið var gefið út af Þjóðræknisfélagi V. ís- lendinga 1939, en prentað í Reykjavík. Næstu tvö bindin voru gefin út í nafni Þjóðræknisfélags- ins, en fjórtán manna nefnd Vestur Islendinga bar ábyrgð- ina á útgáfunpi. Þessi tvö bindi II og III voru prentuð hjá Columbia Press Ltd. í Winnipeg, 1943 og 1945. Síð- ustu tvö bindin voru gefin út af Menningarsjóði og prentuð í Reykjavík 1951 og 1953. — Vissulega erum við í mikilli þakkarskuld við Menningar- sjóð og Jónas Jónsson fyrir þann þátt er hann átti í að sú stofnun tók að sér útgáfu síð- ustu tveggja bindanna, annars hefðu þau aldrei séð dagsins ljós. — I.J. ☆ Gjörðabækur ársþinga Hins evangeliska lúterska kirkju- félags íslendinga í Vestur- heimi, hafa að geyma mikil- vægar heimildir varðandi sögu okkar hér í álfu. Mér hefir tekist að safna saman öllum gjörðabókunum utan fjögurra en þær eru um kirkjuþingin, sem haldin voru árin 1958, 1960, 1961 og 1962 — 74. árs- þing, 76. ársþing, 77. ársþing og 78. ársþing kirkjufélagsins. Ég hefi í hyggju að koma þessu safni fyrir þegar það er „complete“ á óhultum stað, þar sem greiður aðgangur er MESSUBOÐ Fyrsta lúlerska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku: kl. 9.45 f. h. 11.00 f. hi Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h. að því fyrir þá, sem leita vilja upplýsinga í því, en sá staður er vitaskuld íslenzka bóka- safnið við Manitobaháskólann, þar sem öll gögn um sögu Vestur íslendinga ættu að geymast. Ég fer vinsamlega fram á að þeir sem kunna að eiga ofan- greindar Gjörðabækur — (Proceedings of the Icelandic Lutheran Synod) láti mér þær í té og aðstoði mig þannig við að ganga frá safninu. — Ingibjörg Jónsson. ☆ Frá Rvík 7. marz. Sama blíðan og þíðan er hér alltaf. En svipaður kuldi og áður í nágranna löndunum, oftast þar all mikið frost, alla leið suður í París og oft lengra suður. — Mokveiði er hér öðruhvoru í þorskanætur (ný veiðitæki). Allt óvenjulega stór þorskur — tekinn allur sprell lifandi úr nótunum. Vigfús. ☆ Civil Defence says: — Do you know what food (and how much) to stock for an emergency. This valuable information can be found in “Eleven Steps to Survival.” Mefro Civil Defence, 1767 Portage Avenue, Winnipeg 12 — TUmer 8-2351 Dánarfregnir Allan Johannesson lézt 27. febrúar 1963 á General Hospital í Winnipeg, 73 ára. Hann var fæddur í Glenboro, en átti heima í Winnipeg mestan hluta ævinnar eða 67 ár, síðustu árin var hann smið- ur og umsjónarmaður fyrir Daykin Apts., 725 Langside Street. Hann lifa kona hans, Ólafía, einn sonur, Konrad Alvin í Minneapolis; fjórar dætur, Mrs. Harry Hutton (Barbara), Toronto, Mrs. A. Fabiano (Dorothy), Chicago, Mrs. D. McLennan (Doris), Quebec og Miss Joan Jo- hannesson, Toronto; fimm barnabörn; tveir bræður, Konrad og Walter í Winnipeg; þrjár systur, Mrs. H. Horn- ford, Elfros, Sask., Mrs. J. Thordarson, Winnipeg og Mrs. L. J. Simmons, Brandon, Man. Útförin fór fram frá Bardal, séra Philip M. Pétursson jarð- söng. ☆ Helgi Thordarson, 87 ára, lézt á Betel 2. marz. Hann flutti til Kanada um aldamót- in og yar bóndi að Arnes, Man. þar til hann flutti til Gimli 1942. Hann lætur eftir sig konu sína, Herdísi; fimm sonu, Thorleif, Svein, Eric, Björg- vin og Paul; þrjár dætur, Mrs. W. T. Hjorleifson (Edna), Mrs. B. Hjorleifson (Jóhanna) báð- ar í Riverton og Mrs. S. Sig- fússon (Anna) í Winnipeg; einn bróður Jón Thordarson að Hnausa, Man.; eina systir, Mrs. Soffía Slim, Winnipeg og 28 barnabörn. Hann var lagð- ur til hvíldar í Gimli grafreit; séra Kolbeinn Simundson jarðsöng. ☆ Mrs. Sigríður Hurdal, lézt að Ashern spítalanum 6. marz 1963, 71 árs, eftir langvarandi sjúkdómsstríð. Útfararathöfn- in fór fram í Silver Bay kirkj- unni og hún jarðsett þar. Hún var ekkja Hjartar Hurdal en hann dó 1950. Eftir lifandi eru fjórar dætur, þrír synir, 14 barnabörn, þrjár systur og fjórir bræður. Mrs. Sigríður J. Gunnlauð’ son, 567 Simcoe St., WinnipeS’ andaðist 7. marz 1963, 68 ára' Hana lifa eiginmaður henn3f Gunnar; einn sonur, Gordon. tvær dætur, Mrs. Ian Mac' Intosh og Mrs. Donald Stevefl' son. Útförin frá Fyrsh1 lútersku kirkju. Dr. Valdimar J. Eylands flutti kveðjumál- ÆTLARÐU AÐ FERÐAST? Hvert sem Þn ferð, spara e» þ é r pening3 og létti af Þer áhyggjum an auka kostnaO- ar. Ég er ura- boðsmaður Icelandic AirlineS og allra aðal flug- og skipa' ferðafélaga; skipulegg ferðit innanlands og erlendis. Eg leiðbeini þér varðandi vega' bréf, visa og hótel, ókeypis, og með 30 ára reynslu get e® ábyrgzt ágæta fyrirgreiðslu. ARTHUR A. ANDERSON ALL-WAYS TRAVEL BUREAU 315 Hargrave St., Winnipeg 2 Office Ph. WH 2-2535 - Rei. GL 2-S**6 ^penhagen Heimsins bezto munntóbak H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS AÐALFUNDUR Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands, verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, föstudaginn 3. maí 1963 og Kefst kl. 1.30 eftir hádegi. 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram- kvæmdum á liðnu starfsári og frá starfstil- högun á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endur- skoðaða rekstursreikninga til 31. des 1962 og efnahagsreikning með athugasemdum endur- skoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt sam- þykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á reglugerð Eftirlauna- sjóðs H.f. Eimskipafélags Islands. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að vera borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa að- göngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrif- stofu félagsins í Reykjavík, dagana 29. apríl — 2. maí næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrif- stofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu kom- in skrifstofu félagsins í hendur til skráningar, ef unnt er, viku fyrir fundinn. Reykjavík, 12. febrúar 1963 STJÓRNIN

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.