Lögberg-Heimskringla - 29.08.1963, Síða 1
Högberg - ^eimsfcrtngla
Stofnað 14. jan., 1888
Stofnuð 9. sept., 1886
77. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 29. ÁGÚST 1963
NÚMER 32
Rögnvaldur Sigurjónsson
heldur opinbera hljómleika í Winnipeg á vcgum
Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi
Bréf fró Rev. Robert Jack
Það má telja til eigi alllítilla
tíðinda að í seinni hluta sept-
ernber næst komandi heldur
Rögnvaldur Sigurjónsson opin-
bera píanótónleika í “The
PLAYHOUSE THEATRE” í
Winnipeg á vegum Þjóðræknis-
félags íslendinga í Vesturheimi.
Naumast verður í efa dregið,
að Rögnvaldur Sigurjónsson
Rögnvaldur Sigurjónsson
hafi hlotið meiri viðurkenningu
sem píanóleikari en nokkur
annar landi llans, þeirra sem al-
izt hafa upp á íslandi. Hann er
ekki einungis þekktur maður
meðal hljómlistárunnenda á Is-
landi, heldur í skandinavísku
löndunum öllum, Þýzkalandi,
Austurríki, Rússlandi og Banda-
ríkjunum.
1 blaðadómi, sem eg hefi hér
fyrir framan mig, og ritaður var
af rússneskum tónlistargagrýn-
anda veturinn 1958 um tónleika
Rögnvalds í Rússlandi, er hann
talinn hafa sýnt mikla snilli i
því að draga fram höfuðlínur
viðfangsefna sinna. "Hljómlist-
arskyn hans er með ólíkindum”,
segir blaðið.
Það er athygli vert, hversu
góða dóma þessi íslenzki lista-
maður hlaut í Rússlandsför
sinni fyrr greint ár, því að Rúss-
ar hafa löngum átt innan sinna
vébanda mestu slaghörpuleikara
heims og hafa því verið kröfu-
harðir í þessum efnum.
Haustið 1959 fór Rögnvaldur
tónleikaför um Þýzkaland og
hlaut hvarvettna beztu viðtök-
ur. Blöðin í Bensberg, Vestur-
Þýzkalandi vitnuðu til tónleika
hans sem sérstaks afreks.
Þremur árum áður hafði hann
haldið hljómleika víðsvegar í
Noregi og Danmörku og hlotið
ágæta dóma.
Eins og við er að búast hefir
Rögnvaldur Sigurjónsson haldið
fjölda opinberra hljómleika í
Reykjavík, ýmist einn síns liðs
eða með hljómsveit. Hann er
fyrir löngu kominn í hóp fær-
ustu hljómlistarmanna síns föð-
urlands. Hér við höndina hefi
eg um tuttugu umsagnir og
dóma um frammistöðu hans úr
öllum dagblöðum Reykjavíkur.
Þessi dagblöð, sem annars eru
oft sundurleit í dómum sínum
Dagarnir 27. og 28 júlí síðast-
liðnir voru gleði dagar á heim-
ili Mr. og Mrs. H. J. Helgason,
D’arcy, Sask., er þau hjónin
héldu hátíðlegt 50 árá giftingar-
afmæli sitt. öll börn þeirra, ein
dóttir og átta synir, ásamt fjöl-
skyldum sínum, komu “heim”,
til að halda gull brúðkaup með
foreldrum sínum, ogeru þau sem
hér fylgir: Gladys, Mrs. Murrav
Oleson, North Bay, Ont.; Fred.
D’arcy, Sask.; Flt. Lt. J. Harold
Helgason, R.C.A.F., Comox, B.
C.; Dr Robert, Burnaby, B. C.;
William, Elrose, Sask.; Bernard,
Ottawa, Ont.; Dr. Norman, Cav-
alier, N. Dak.; Dr. Erick (dent-
ist), Winnipeg, Man.; Brian,
Fargo, N. Dak.. Bræðurnir eru
allir giftir og barnabörnin eru
21.
Á Iaugardagin 27. byrjaði há-
tiðahaldið með veizlu í sam-
komusal Unitecl Church, Brock.
Borð voru blómum skreytt, og
ljós loguðu á giltum kertum, og
á miðju háborðinu stóð brúð-
arkaka. Flt. Lt. Harald Hclga-
son var veizlustjóri. Bróðir hans
Dr. Robert, ávarpaði foreldra
sína fyrir hönd systkinana, þakk-
aði þeim allan kærleik og ástúð
sem þau heiðu notið í ríkum
mæli. Erick Helgason, Win-
nipeg, var þarna staddur við
hlið bróðir síns, eins og hann
hafði verið fyrir 50 árum, og
flutti hann fallegt ávarp til gull-
brúðurinnar, en bóndi hennar
þakkaði ræðuna. Sú sem þetta
ritar mælti fyrir eigin hönd og
bræður sinna, með þakklæti og
blessunar óskum til elzta bróð-
ursins og konu hans. Mrs. Ber-
nice Goldie flutti kveðju fyrir
hönd ættfólks Mrs. Helgason.
Mrs. Jakóbína Johnson, Seattle,
sendi yndislega fallegt kvteði,
sem G. J. las upp—en Jakóbína
og Helgi voru skóla systkin og
vinir sem unglinar í Argyle-
bygð. Barnabörnin sungu “Put
on your old Gray Bonnet”, og
fleiri fluttu kveðjur og lásu
skeyti. Þá voru heiðursgestun-
um afhentar gjafir, þar á meðal
1963 "ilodge” bíll, frá börnum
þeirra.
Seinna um kvöldið var svo
öllum viðstöddum boðið á dans-
skemtun, sem haldin var í Brock
Community Hall, en hljómsveit
spilaði fyrir dansinum, og
um stjórnmál og annað það, sem
varðar almenningsheill, eru á
einu máli um hæfni Rögnvalds
Sigurjónssonar sem píanóleikara
og ‘lofa hann mjög.
Rögnvaldur Sigurjónsson er
fæddur á Eskifirði á Islandi ár-
ið 1918, sonur hjónanna Sigur-
Framhald á bls. 4.
skemti fólk sér ágætlega fram að
mið nætti.
Næsta dag, 28. júlí, var opið
hús á heimili Helgason's hjón-
anna, og mun um 200 manns
hafa heimsótt þau þann dag til
að óska þeim til hamingju—en
tengdadæturnar báru fram kaffi
veitingar af mikilli rausn.
Helgi J. Helgason er sonur
Jónasar og Sigríðar Helgason
(nú bæði látinn) sem voru frum-
býlingar í Argyle-ibygð. Helgi
tók heimilisréttarland 8 mílur
n.v. af D’arcy, Sask, árið 1910,
of hefur búið þar síðan. Þau
hjónin Helgi og Annie, hafa ver-
ið framúrskarandi gestrisinn og
dugleg og ber hin myndarlega
fjölskylda þeirra bezt vitni um
það. Þau hafa tekið drjúgan
þ tt í öllu félagslífi bygðarinn-
ar, þá sérstaklega í kirkjunni og
skólamálum. Þau hafa öllum
viljað hjálpa sem þess þörfnuð-
ust, og allstaðar komið fram til
góðs. Þó að þau séu nú hætt að
búa, jtá verða þau kyr hér á
gamla heimilinu sínu, fyrst um
sinn. Megi þau njóta æfi kvölds-
ins í ró og friði, umkringd ást-
ríkum börnum, barnaþörnum
og góðum vinum—og taka sér
svo af og til skemtilega keyrzlu-
túr í nýja bílnum sínum.
Guðlaug Johannesson,
stödd að D’arcy, Sask.
☆
To Mr. & Mrs. H. J. Helgason,
D’arcy, Sask.
1913-1963
What joy to gather
at )our hearth,
So warm with love expressedl
Your dreams and hopes
through youthful years,
Inspire each welcome guest.
What though the years have left
their mark.
And touched your locks with
snow?
The tributes of this “Golden
Day”,
Are life’s deep after-glow.
)
God bless thé heritage you leave
Of faith in stars that guide.
God bless the memory of your
home,
God bless your even-tide.
Jacobína Johnson
Frá Tjörn, Vatnsnesi,
V. Hún., 18. ág. 1963
Hér á Vatnesinu hefur verið
óþurrkasumar og þessvegna
gengið mjög erfiðlega með hey-
skap, t.d. í þrjátíu og þrjá daga
kom ekki þurr dagur og var það
annað hvort rigningu eða þoku
af hafinu að kenna.
Annars er allt gott að frétta
héðan og sem betur fer hefur
það gengið betur annarsstaðar á
landi að fá sól og sumar. Vegna
óveðurs á þessum slóðum var
lítið um bílaumferð í sumar og
þ.a.l. lítið um gesti. Móðir mín
sem er 80 ára kom frá Skotlandi
um miðjan júlí og hefur hún
verið hérna síðan en henni lýst
ekki á veðrið, sem von er. Á ár-
unum var hún í Vancouver f
heimsókn hjá systir sinni og hef-
ir hún sagt mér söguna um það
Til starfa hjó Alþjóða
kjarnorkustofnuninni
Drl Björn Sigurbjörnsson, sem
undanfarin ár hefur starfað
sem sérfræðingur Atvinnudeild-
ar Háskólans í jurtakynbótum,
mun takast á hendur nýtt starf
til tveggja ára hjá Alþjóða
kjarnorkumáálstofnuninni í Vín
í október n.k.
1 stuttu samtali við Mbl. í gær
sagði dr. Björn, að á vegum
AlJjjóða kjarnorkumálastofnun-
Björn Sigurbjönsson
arinnar störfuðu ýmsar undir-
deildir og myndi hann vinna fyr-
ir eina slíka, er hefur með
höndum leiðbeiningarstarf um
notkun geisla virkra efna í land
búnaði þróunar landanna.
Hefur dr. Björn kynnt sér hag
nýtingu kjarnorkunnar á þessu
sviði í Bandaríkjunum og m.a.
gert tilraunir hér heima með
geislað korn.
1 Vín mun Björn vinna ásamt
öðrum að undirbúningi þeirra
verkefna, sem fengizt verður við
í þróunarlöndunum og sækja
ráðstefnur fyrir sérfræðinga,
koma til með að vinna að þeim.
Dr. Björn mun eftir sem áður
hafa umsjón með kornræktartil-
stöður þeirra. —Mbl,
þegar hún fór til messu í ís-
lenzka kirkju þar í borg. Hún
auðvitað þekkti engann en ein-
hvern veginn fyrir messu rakst
hún á séra Eirík og kynnti sig
með því að sýna honum mynd
af mér sem hún geymdi í tösku
sinni. Þetta er hennar fimmta
heimsókn til Islands.
Síldveiðar á Norðurlandi hafa
gengið allsæmilega og húma-
veiðar á Suðurlandi með af-
brigðum vel.
Ferðafólkið hefur verið margt
í sumar en aðallega í kringum
höfuðstaðinn.
Eg var að fá um daginn ágætt
bréf frá vini mínum, Skúla
Bjarnasyni í Los Angeles. Alltaf
er hann jafn tryggur að svara
mínum bréfum. Að undanförnu
hafa blaðamenn verið í verk-
falli óg þessvegna hafa blöðin
ekki borist til kaupenda. Blöðin
á þessu landi eru nú mikið lesin
og sjálfsagt hafa þau nokkur
áhrif á skoðanir manna eins og
tímarit.
Islendingar lesa enn töluvert
mikið af bókum, þrátt fyrir
breytingar tímans og hraðann í
daglegu lífi.
Nú sé eg það að sólin er að
brjótast í gegnum Jmkubeltið
fyrir ofan Steingrímsfjörð hinu
megin við Húnaflóa. Það er
falleg sjón og er flóinn spegil-
sléttur fyrir neðan þokubakkan.
Eg sé út um gluggan minn
nokkra svani á flugi, sennilega
í matarleit meðfram fjörunni.
Mikið af alskonar fugla ungum
sem nú eru komnir út í lífið
upp á sínar eigin spýtur sofa i
gamla bænum úr torfi skamt
frá. Þessi bær er um 100 ára
gamall og var einu sinni prests-
setrið hér á Tjörn. Það var reisi-
legt hús á síntim tíma en nú er
það illa farið og notað aðeins
sem geymsla.
Sjaldan sé eg eingöngu Kan-
adískan póst. I dag kom þrennt
til mín frá Kanada. The Iceland-
ic Canadian, ágætt bréf frá
Magnússi Elíassyni í Winnipeg
og blaðið Commonwealth. Eg
var sannarlega hryggur að frétta
um andlát Scottie Bryce, fyrv.
M.P. í Sclkirk, sem eg þekkti
vel og hitti heima hjá honum í
maí. Eg kynntist Scottie Bryce
fyrst árið 1953 í Arborg og eftir
það lágu leiðir okkar oft saman.
Eg kom heim til hans í Selkirk
oftar en einu sinni og man eg
það að bæði eg og fjöldskyldan
mín horfðum á mjög fallegar
skuggamyndir sem hann og
kona hans höfðu tekið í heim-
sókn til Haiwai. Scottie Bryce
var drengur góður. Á hverju ári
þegar eg heimsæki móður mína
í Skotlandi fer eg um fæðingar-
Framhald á bla. 5.
Gullbrúðkaup í Darcy, Sask.