Lögberg-Heimskringla - 06.02.1964, Blaðsíða 4

Lögberg-Heimskringla - 06.02.1964, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 6. FEBRÚAR 1964 Lögberg-Heimskringla Published every Thursday by NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. Printed by WALLINGFORD PRESS LTD. 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Man. Edilor: INGIBJÖRG JÓNSSON EDITORIAL BOARD Winnipeg: Dr. P. H. T. Thorlakson, chairman, Haraldur Bessa- son, Rev. Valdimar J. Eylands, Caroline Gunnarsson, Jóhann G. Jóhannson, Thorvaldur Johnson, Jakob F. Kristjánsson, Rev. Philip M. Pétursson. Vancouver: Dr. S. E. Björnsson. Monireal: Áskell Löve. Minneapolis: Valdimar Björnsson. Grand Forks: Richard Beck. Reykjavík: Birgir Thorlacius. Akureyri: Steindór Steindórsson. London: Dr. Karl Strand. Subscripiion $6.00 per year—payable in advance. TELEPHONE WH. 3-9931 Authorired a* second class moil by the Post Office Deportment, Ottawa, and for payment of Postoge in cash. Eimskip og Vestur-íslendingar Svo sem skýrt var frá hér í blaðinu 16. janúar var hálfrar aldar afmælis hins mikla þjóðþrifafyrirtækis, Eim- skipafélags Islands minnst með hátíðahöldum 17. janúar. Okkur hafa nú borist í hendur þrjú dagblöð Reykjavíkur dagsett þann dag og minnast þau í frásögnum sínum einkar hlýlega á þátttöku Vestur-íslendinga í stofnun Eimskipafé- lagsins og leyfum við okkur að birta þá kafla: Tíminn 17. janúar: „ . . . Ekki aðeins hér á landi varð þátttaka svo almenn í stofnun félagsins heldur einnig meðal Islendinga í Vest- urheimi, sem lögðu fram um 200 þúsund krónur í hlutafé mest í smáhlutum eins og hér heima. Fjárlög þeirra til stuðnings félagshugmyndinni voru ekki fremur en í heima- landinu látin af hendi vegna arðsvonar eða gróðahugmynd- ar. Aðstoð þeirra við stofnun félagsins var runnin af rótum þess vinaþels, sem þeir báru í brjósti til ættjarðar sinnar“ . . . ,;þáttur Vestur-íslendinga í Eimskipafélaginu er meðal ánægjulegustu bræðrabanda, sem tengt hefur þjóðararmana saman yfir hafið“. Gestir frá íslandi á ársþingi Þjóðræknisfélagsins „ . . . ekki má gleyma framlagi Vestur-íslendinga. Fram- lag þeirra varð félaginu í upphafi ómetanlegur styrkur. . . . Vestan hafs var kosin sérstök nefnd til að vinna að hluta- söfnun fyrir Eimskipafélagið. Og eins og fyrr segir söfnuðust hjá Vestur-íslendingum um 200 þús. kr. Stórtækastir voru Árni Eggertson með 15,000 kr.; Jón Tr. Bergman, Ásmundur P. Jóhannsson og Joseph Johnson með 10,000 kr. hver. Vest- ur-íslenzku blöðin studdu málið drengilega og stendur öll þjóðin í mikilli þakkarskuld við þá mörgu mætu Vestur- Islendinga sem sýndu gamla landinu sínu slíkan höfðings- skap. Því vafalaust hefði byrjunin hjá félaginu orðið erfið- ari, ef þeirra hefði ekki notið við“. Vestur-íslendingar brugðust einnig vel við og söfnuðu há- um fjárupphæðum til styrktar félagsstofnuninni. Um þann þátt segir m. a. svo í afmælisritinu: „Þátttaka Vestur-íslendinga í stofnún Eimskipafélagsins er fegursti og stærsti vottur um þjóðrækni þeirra og hug- arþel til gamla landsins, sem enn hefur sýndur verið. Lang- flestir þeirra, sem lögðu fram fé til fyrirtækisins í fyrstu, bjuggust ekki við því að hljóta neinn arð af fé sínu. Heill og velferð ættjarðarinnar réði eingöngu gerðum þeirra. Hið sama má einnig segja um íslendinga heima. En sá var þó munurinn, að þeir áttu að njóta skipanna, fá hagkvæmari flutninga og betri samgöngur. En Vestur-íslendingar áttu engar slíkar hagsbætur í vændum. Dáð þeirra og tryggð verðskuldar því það, að henni sé lengi á lofti haldið kyn- slóðinni til verðugs sóma“. Við metum vel þessi drengilegu ummæli frænda okkar á Islandi. Alþýðublaðið 17. janúar 1964: Morgunblaðð, 17. janúar 1964: Viðlal við Grettir Eggertson Hingað til lands er kominn Grettir Eggertsson hinn góð- kunni Vestur-íslendingur. Hann er annar fulltrúa Is- lendinga vestan hafs í stjórn Eimskipafélagsins. Er hann nú hingað kominn í boði fé- lagsins í tilefni 50 ára afmæl- isins. Við hittum Grettir að máli ösrskamma stund og fór- ust honum m. a. orð á þessa leið um Eimskipafélagið og þátt Vestur-Islendinga í því: — Þátttaka okkar Vestur- íslendinga í stofnun Eim- skipafélags íslands, eða rétt- ara sagt feðra okkar, sem nú erum á miðjum aldri, var fyrst og fremst þjóðræknis- mál. Það var í upphafi vitað að við myndum hafa lítinn beinan hag af rekstri félags- ins. Við myndum hvorki flytja með því vörur, né ferðast með Okkur er það mikið ánægju- efni að Eimskipafélag Islands hefir þegið boð Þjóðræknis- félagsins og sendir fulltrúa á ársþingið sem hefst í Winni- peg á mánudaginn 17. febr. en fulltrúinn er forseti Eim- skiþafélagsins og formaður stjórnarnefndar þess, Einar Baldvin Guðmundsson hæsta- réttarlögmaður og kemur kona hans, frú Kristín Ing- varsdóttir með honum. Þau verða kærkomnir gestir. Það setur ávalt meiri svip á þingið þegar við fáum að njóta nær- veru góðra gesta frá landi forfeðra okkar — fáum að heyra þá og sjá. Okkur gefst og tækifæri til samfagna frændum okkar á Islandi með hálfrar aldar afmæli Eim- skips um leið og við höldum hátíðlegt fjörutíu og fimm ára afmæli Þjóðræknisfélagsins. Æviágrip: Einar Baldvin Guðmunds- son er fæddur 28. desember 1903 á Hofsósi í Skagafjarðar- sýslu. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Einars- son, bóndi að Hraunum í Fljótum, síðar verzlunar- stjóri á Siglufirði, og kona hans, Jóhanna. Faðir Guð- mundur Einarssonar var Ein- ar Baldvin Guðmundsson, bóndi og alþingismaður frá Hraunum í Fljótum, en faðir Jóhönnu var Stefán Einars- son, bóndi að Krossanesi í Skagafirði. Kristín Ingvarsdóllir er fædd í Reykjavík 10. febr. 1908. Foreldrar hennar voru Ingvar Pálsson, kaupmaður í Reykjavík, og kona hans, Jóhanna Jósafatsdóttir. Ing- var var sonur Páls Andrésson- ar, formanns á Eyrarbakka, sem var sonar-sonur Magnús- ar Andréssonar alþingis- manns, Syðra-Langholti. Jó- hanna var dóttir Jósafats Jónatanssonar, alþingismanns og bónda að Holtastöðum í Langadal. Einar Baldvin Guðmunds- pon lauk stúdentsprófi í Reykjavík í júní 1923 með I. skipunum að nokkru ráði. Við áttum hinsvegar erfðaskuld að gjalda okkar gamla landi. Við gátum spurt hvers vegna svo margir Vestur-íslending- ar höfðu komist vel áfram til vegs og virðingar vestan hafs. Menningararfur, greind og þróttur hafði fylgt okkur vestur um haf. — Fyrir þennan arf vildu þeir, sem þátt tóku í stofnun Eimskipafélagsins fyrir vest- an haf, greiða með stuðningi við bræðurna sem sátu heima í gamla landinu. Við vonum að sambandið milli íslendinga vestan hafs og austan megi sem lengst haldast. Mgbl. 17. jan. einkunn, cand. juris frá Há- skóla Islands 11. febr. 1928 með I. eink. Formaður Stúd- entaráðs 1926—1927. Stundaði framhaldsnám erlendis að af- loknu lagaprófi, en var síðan um hríð starfsmaður lög- reglustjórans i Reykjavík. 1 marz 1929 réðist hann sem fulltrúi til Guðmundar Ólafs- sonar og Péturs Magnússonar, hæstaréttarlögmanna. Varð hæstaréttarlögmaður 22. des- ember 1934 og hefir frá 1. ágúst 1935 rekið málflutnings- skrifstofu í Reykjavík, fyrst í félagi við Pétur Magnússon og Guðlaug Þorláksson, en síðar ásamt Guðlaugi og Guð- mundi Péturssyni. Einar kenndi sjórótt við Stýrimannaskólann í Reykja- vík frá 1929—1947. Hann var skipaður dómari í félagsdómi 18. maí 1945. Var formaður Lögmannafélags Islands frá 28. júlí 1946 — 27. júní 1947. Hann hefir verið meðdómandi í merkjadómi Reykjavíkur frá 1961 og síðan. Hefir setið í landskjörstjórn frá 9. des- ember 1953. Hann var kosinn í stjórn Eimskipafélagsins 1950 og hefir verið stjórnar- formaður félagsins frá árinu 1954. Ritstörf: Ágrip af íslenzk- um Sjórétti. Þau Einar og Kristín gengu í hjónaband 1. nóvember 1929 og hafa búið í Reykjavík síð- an, nú að Víðimel 27. Börn þeirra eru: Axel Einarsson, héraðs- dómslögmaður og fulltrúi á skrifstofu föður síns, kvæntur Unni óskarsdóttur. Jóhanna Jórunn, gift Ólafi B. Thors, héraðsdórtislög- manni og deildarstjóra hjá Almennum Tryggingum h.f. í Reykjavík. Kristín Klara, 11 ára, er dvelur í heimahúsum. * * * Einar B. Guðmundsson átti nýlega sextúgs afmæli og birtist þá afmælisgrein um hann í Morgunblaðinu og leyfum við okkur að birta stutta kafla úr henni: „Sem lögmaður reyndist hann alltaf heilráður maður og góðgjarn, er leysa vildi hvern vanda að réttum lögum og eftir beztu samvizku. Sannarlega hefur hann staðið vel á verði fyrir skjólstæðinga sína, en rétt þeirra hefur hann sótt og varið hreinum vopnum og af mikilli vopn- fimi. Hann hefur gengið að starfi sínu sem iþrótt, eins og hann gerði forðum í leik“. „Margur man að hann var einn bezti knattspyrnumaður þessarar borgar og á Víking- ur honum margt að þakka, bæði innan vallar og utan. Knattspyrna var þó ekki hin eina íþrótt hans, því að hann var — og er — ágætur sund- maður. Sundið hefur hann stundað fram á þennan dag. Hvern morgun rís hann árla og byrjar daginn með góðum spretti í Sundlaugunum. Síð- an gengur hann til starfsins, hress og ötull. Verkið gengur vel undan, enda er unnið af æðrulausri festu en engum bægslagangi". „Ýmsum heiðursmönnum verður það á að gerast vinnu- þrælar og einangrast þá í fjötrum stritsins. Öðrum tekst að gera vinnuna að íþrótt og tómstundir að leik og hvíld. Ég held að enginn, sem þekk- ir Einar B., mundi hika við að skipa honum í hinn síðara flokkinn. Meðal tómstunda- starfs Einars má fyrst og fremst nefna að hann spilar „bridge“ af mikilli list og var lengi í fremstu röð hérlendra manna á því sviði. Hann er einnig ágætur gestgjafi og gestur, léttur í tali, víða vel heima, glettinn og þó við- mótsþýður“. Ýmislegt Það var vissulgea tími til þess kominn að einhver máls- metandi setti fram það sem dr. Watson Kirkconnell sagði meðal annars í síðasta hefti Icelandic Canadian — það, nefnilega að vestur íslenzkir hagyrðingar brugguðu „minni“, kveðjur til framlið- inna, brúðkaupskvæði, ávörp til vorsins, vonarinnar, o. s. frv., í bundnu máli um skör fram, ad nauseam. Það yrði yrði ekki tlllítil syrpa væri slík kvæði sett á prent, allflest ekki þess verð að eyða á þau bleksvertu, sem vestur-íslend- ingar hafa rutt úr sér frá því fyrsta. Jafnvel Stephan G. fór ekki varhluta af þessari sök, svo bóngóður sem hann var, að setja saman slíkt made io order poetry. Af öll- um þeim aragrúa sem sá sem þetta ritar minnist að hafa heyrt og lesið er aðeins eitt slíkt kvæði sem festist í minni: „Önnur lönd . . .“, eftir Einar Hjörleifsson. — Nóg komið af svo góðu, og skal dr. Kirkconnell hafa þökk fyrir að hafa vakið máls á þessu. * * * Á elleftu öldinni e.k. var maður uppi í Persíu, að nafni Omar Khayyam, tjaldskeri að iðn, framanaf, en síðar hátt- settur embættismaður. Vel að sér, á mælikvarða þeirra daga, var hann skáld gott sem hugs- aði bæði djúpt og mikið, mest um trúmál og heimspeki. Hann skildi eftir sig syrpu af vísum sem hann gaf nafnið Rubaiyat, umfram 100 vísur að tölu. A nítjándu öldinni fann Irskur málfræðingur að nafni Edward Fritzgerald þetta kvæði og snéri á ensku. Um nokkur ár var lítið tillit tek- ið til þess, þar til að Tenny- son lávarður „uppgötvaði" bæði kvæðið og Frizgerald, og gerði hvorttveggja rétt og Framhald á bls. 5.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.