Lögberg-Heimskringla - 06.02.1964, Blaðsíða 6

Lögberg-Heimskringla - 06.02.1964, Blaðsíða 6
6 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 6. FEBRÚAR 1964 GUÐRÚN FRÁ LUNDI: Tengdadottirin Skáldsaga Á prestssetrinu Stað Þorgeir Þorgeirsson hét hann, ungi sunnlendingurinn, sem réðst að prestssetrinu Stað í Fellssveit í kaupavinnu og fluttist þangað einn góðan veðurdag rétt í sláttarbyrjun. Hann var fyllilega meðalmað- ur á hæð, vel vaxinn, með snör, grá augu og hávær var hann í tali. Karlmönnunum þótti hann nokkuð mikill á lofti, en stúlkurnar töluðu um það sín á milli, að hann væri bráðlaglegur, sá sunn- lenzki. Þær gæfu honum á- reiðanlega hýrt auga, ungu stúlkurnar í sveitinni. Það fyrsta, sem ókunnugur maður veitir athygli, er heim- ilisfólkið, sem hann á að búa saman við í náinni framtíð. Og hver gat sagt um, hvað lengi sú samvera yrði? Sjálfsagt til sláttarloka. Húsbændurnir voru ung prestshjón og áttu tvö falleg börn. Presturinn var prúður og myndarlegur. Frúin stór og röskleg, alveg eins og sveita- konur eiga að vera. Þá voru tveir vinnumenn, Halldór og Guðvarður, ungir og kátir — einkanlega Varði, sem var tæplega tvítugur. Þeir sváfu allir fram á lofti yfir bæjar- dyrunum og voru orðnir gagn- kunnugir eftir tvo sólar- hringa. Þá voru þrjár stúlkur, sem gengu að heyvinnunni, en unglingsstúlka 'um ferm- ingu var í bænum með hús- móðurinni. Ein þeirra hét Jóhanna, há brengla, farin að reskjast. Önnur var feit dyrgja, hálfeinfeldnisleg, en síbrosandi. Sú þriðja var ung, bjarthærð og lagleg. Til henn- ar leituðu augu Þorgeirs oftast. Honum fannst hann aldrei hafa séð eins laglega stúlku og var hann þó ekki ó- vanur að sjá kvenfólk í ver- stöðunum á Suðurlandi. En þessi bar af þeim öllum. Hún hét Margrét, alltaf kölluð Magga. Hann hugsaði sér að gefa henni ekki of mikinn gaum, því að hann hafði ein- sett sér að vera utan við allt kvennaflangs. Slíkt gat dregið dilk á eftir sér — það var hann búinn að sjá. Þeir fóru ekki ósjaldan svoleiðis út úr því, félagar hans, sem höfðu þann sið að gefa sig helzt til mikið að kvensunum, að þær léttu pyngjuna þeirra anzi mikið — og svo hurfu þær og létu ekkert til sín heyra, nema ef þær kenndu þeim krakka, sem þeir urðu nauð- ugir að gefa með í nokkur ár, án þess að sjá þá nokkurn tíma eða vita með vissu, hvort þeir væru feður þeirra. Svo- leiðis hafði að minnsta kosti farið fyrir bróður hans. Hann ætlaði sér ekki að brenna sig á því soði, en anzi var hún lagleg þessi Magga og blíðleg í augunum. Sú hefði verið eftirsótt í verstöðum sunnan- lands. Hefði líklega ekki þurft að borga fyrir sig inn á böllin þar. Og nú átti hún að verða þjónusta hans. Hann varð að gæta sín. Það var stór þrá, sem hann bar í brjósti. Hún var sú, að verða stórefnabóndi, helzt í sveit, og láta fjöldann líta upp til sín. Næst var að athuga um- hverfið. Sveitin var víðlend og sól- rík, með lágum fjallahring í suðri — heiði í austri. Sam- felld grasbreiða, sem tvær ár skáru sundur. önnur kom úr suðaustri og hét Hvarfdalsá. Eftir þeim dal lá vegur suður í næstu sýslu, en hann var ill- ur yfirferðar, nema að sumr- inu til. Hin áin kom úr suð- vestri og nefndist Botnsá. Úti í miðri sveitinni runnu þær saman í eitt stórt vatnsfall, sem hét Busla. Staður og fleiri bæir stóðu í tungunni milli ánna. 1 norðri lá stórt, dökkt fell langt inn í sveitina og minnti helzt á risavaxið dýr, sem er að rísa á fætur og setja upp kryppuna. Þetta fannst Þorgeiri leiðinlegt náttúru- lýti, sem helzt þyrfti að hverfa úr þessari fallegu sveit. Hann talaði um það við samverka- fólkið eitt kvöldið, þegar það gekk heim af engjunum. „Kannske við ættum að skreppa út eftir snöggvast og moka því burtu?“ sagði Varði flissandi. „Og, ætli það stæði ekki fyrir ykkur, þó að þið séuð miklir á lofti“, nöldraði Jó- hanna. „Þú vildir kannske hjálpa okkur ofurlítið til, svo að við hefðum það af fyrir fótaferð- artímann“, sagði Varði. „Þú ert ekkert annað en montið og mikilmennskan", hnussaði í Jóhönnu. Varði var viljugur að segja Þorgeiri örnefni, sem sjáan- leg voru, og hann var orðinn vel kunnugur sveitinni eftir fáa daga. Fyrstu vikuna var heyjað á engjunum, sem næstar voru túninu, og gengið heim til að borða, en kaffið var borið út á engjarnar. Magga kom oft með hádegiskaffið. Hún var í bænum fram undir hádegi og fór heim á undan hinum stúlk- unum á kvöldin. Hún hafði víst mjaltirnar, þóttist Þor- geir vita. Hann heyrði oft hnífilyrði til Jóhönnu um það, hvað hún hefði það betra en þær, sem mættu standa við hrífuna allan guðslangan dag- inn. Einn daginn sá Þorgeir, að einhver fatahrúga var í stól sunnan undir bænum. Þetta var víst einhver manneskja — sjálfsagt einhver niðursetn- ingur. Ekki athugáði hann það þó neitt, því að þeir áttu ekki leið þar um. Spurði bara pilt- ana, hvaða vesalingur þetta væri þarna í stólnum. Honum var sagt, að það væri tengda- faðir prestsins. „Er hann veikur?“ spurði Þorgeir. „Já, hann er aumingi“, svaraði Halldór. Þorgeir spurði ekki fleiri spurninga, hugsaði aðeins um hvað það væri ótrúlegt, að þessi stóra, sællega kona ætti farlama föður. Hann hryllti við heilsuleysi eins og marga unga og hrausta menn, og reyndi að halda fast í þá von, að hann fengi sjálfur að lifa löngu, heilbrigðu lífi. Hann sá þetta hrúgald í stólnum dag eftir dag á sama stað, þegar gott var veður, en alltaf vár það horfið, þegar komið var heim af engjunum, og hann óskaði þess, að hann þyrfti aldrei að sjá það nema í fjarlægð. Sjálfsagt var þetta blindur aumingi eða kannske það, sem var hryllilegast af öllu, holdsveikur. Honum virtist heimilisfólkið lítið vilja um hann tala og aldrei sá hann neinn hjá honum nema litlu börnin og prestinn ein- staka sinnum. Svona var að vera gamall — þá sneiddu allir hjá manni. Reyndar var engin ástæða til að vinnufólk- ið skipti sér af honum. Það hafði aðeins tíma til að borða og svo var farið aftur til vinn- unnar. Samt fór hann að veita því eftirtekt, að Magga kom oft sunnan fyrir bæinn, þegar gengið var út um miðjan dag- inn, með bollapör í hendinni, sem hún fór með inn og kom svo hlaupandi á eftir fólkinu til að verða ekki seinni en aðrir að verki, því að þá mátti búast við ónotum hjá Jó- hönnu. Hún var víst geð- vonzkugrey, kerling sú. „Mér þykir þú hlaupa mik- ið, Magga litla“, sagði Þorgeir einn daginn, þegar Magga náði samverkafólkinu spreng- móð niðri í slægjunni. Varði svaraði fyrir hana: „Hún þarf alltaf að bregða sér suður fyrir bæinn, þegar aðrir leggja sig um miðjan daginn, til að kljá framan í kærastann. Það er hann, sem situr í stólnum. Sýnist þér hann ekki þó nokkuð mann- borlegur svona tilsýndar? Hún hefur nú ekki annað betra, tetrið það arna. Þér mun sýnast hann blómlegur, þegar þú sérð hann nærri þér“. Magga blóðroðnaði og svar- aði í sama tón: „Hann hefur sjálfsagt verið heldur mynd- arlegri en þú, meðan hann var heill heilsu. Vonandi lítur þig heldur enginn kvenmaður hýru auga, aðra eins óart“. Jóhanna glotti meinfýsin að stríðnishlátri Varða. Hún var víst fegin að heyra kastað ó- notum til Möggu. Þorgeiri fannst hann þurfa að leggja henni svolítið liðsyrði, hún var svo góð og falleg. „Það þykir mér ótrúlegt, að Möggu skorti kærasta“, sagði hann hlæjandi. „Kannske verður þú sá næsti, sem gengur eftir henni með grasið í skónum“, sagði Jóhanna um leið og hún gekk í burtu. „Með grasið í skónum — ekki nema það þó“, sagði Þor- geir. Það var ekki laust við, að það færi að síga í hann, því að hann var bráðlyndur. „Það stendur bærilega í bólið henn- ar, þessarar pjásu“, bætti hann við. „Hún er orðin önuglynd, kerlingargreyið. Það hefur enginn maður litið við henni alla hennar löngu pipartíð“, sagði Varði. „Mig undrar það nú svo ekki“, sagði Þorgeir. „Hver skyldi svo sem líta við svona beinagrind?“ Þegar farið var að slá túnið, sá Þorgeir gamla manninn næstum á hverjum degi, því að veðrið var lyngt og sólríkt. Magga var sífellt að fara með kaffi til hans, meðan það sat og hvíldi sig í kaffihléinu. Presturinn bar hann sjálfur út og inn. „Þetta kalla ég virðingar- vert“, sagði Þorgeir. „Svona skal ég koma fram við hann tengdaföður minn, ef hann verður örvasa“. „Það er gott fyrir hann að eiga von á því, hver sem hann verður“, sagði Varði. „En ef Magga verður konan þín, sem mér sýnist hún helzt ætla sér, er hún búin að fá æfingu í því, þar sem hún ber Hall gamla út og inn, þegar presturinn er ekki heima“. „Því gerið þið það ekki, karlmennirnir, heldur en láta hana gera það?“ sagði Þor- geir. „Ég þyrði ekki að snerta á honum, þó að mér væri borg- að fyrir það, óttaðist að þessi beingrind dytti sundur í höndunum á mér“, sagði Varði. „Hann er túróttur, karlinn, og vill ekki láta aðra en þau snerta á sér“, sagði Halldór. „Magga kom með þeim að austan mest il þess að hjúkra honum, vesalingnum. Hann er geðveikur og talar ekki nema við einstaka fólk“. Þorgeir hugsaði sér að sneiða hjá honum. Hann hafði frá fyrstu ,sýn grunað, að eitt- hvað óviðkunnanlegt væri við þennan aumingja. Annan sunnudaginn, sem Þorgeir var á þessu nýja heim- ili, hugsaði hann sér að leggja á Rauð sinn og sjá sig eitthvað um í sveitinni. Varði bauðst til að fara með honum. Karl- mennirnir höfðu tekið úr sér vikuþreytuna með því að liggja í rúminu fram undir hádegi. Presturinn hafði riðið á annexíuna þennan morgun. Líklega hafði frúin farið líka, því að Magga lét matinn á borðið. Jóhanna nöldraði um mismuninn, sem væri á ævi karlmannanna og kvennanna. Þó tækju þeir mikið hærra kaup, en svæfu þó mörgum klukkutímum lengur á sunnu- dögum. Varði var til með að nöldra við hana, en Þorgeir flýtti sér út til að losna við að hlusta á þau. Úti var glaða- sólskin. Hann horfði hrifinn yfir þessa blómlegu sveit og mælti upphátt um leið og hann ranglaði suður fyrir bæ- inn: „Hér vil ég una ævi minn- ar daga alla, sem guð mér sendir---------“. Hann hrökk við og þagnaði. Hann var kominn fast að stól gamla mannsins. Honum hafði hann alveg gleymt þessa stundina. Þarna sat hann innan í sæng- um og koddum, holdlaus beinagrind, en hvorki holds- veikur eða heyrnarlaus, því að hann spurði: „Varst þú eitthvað að segja, piltur minn?“ Þorgeir hafði verið að hugsa um að snúa heim aftur, en nú var það of seint. Hann herti því upp hugann og svaraði: „Já, ójá. Góðan daginn! Ég var svona hrifinn af sveitinni, að ég tók mér í munn orð skáldsins: Hér vil ég una ævi minnar daga“. „Svo þér þykir hún falleg, sveitin mín“, sagði hann. „Hún er það líka“. „Er þetta þín sveit?“ spurði Þorgeir og var nú að mestu leyti laus við þann óhug, sem vanalega grípur æskumann- inn, þegar hann sér eymd ell- innar. „Já, hér er ég fæddur og uppalinn. Hér naut ég ást- ríkis góðra foreldra og vina. Og hingað er ég kominn aftur til að fá að hvíla í skauti henn- ar og þrái það eitt, að það verði sem fyrst“, sagði sjúkl- ingurinn. „Já, hún er falleg þessi sveit“, hélt Þorgeir áfram, „ef þetta Ijóta, dökka fell væri ekki þarna í norðri. Mér finnst það eins og stórt nef á fallegu andliti“. Eitthvað, sem líktist brosi, myndaðist á vörum gamla mannsins. „Þetta er ekki svo slæm samlíking hjá þér, en manni getur fallið stórt nef vel í geð, jafnvel þótt það fallegt, ef það er á andliti, sem maður elskar. Eins er með fellið. Mér þykir vænt um það, því undir því er bærinn minn. Þar sleit ég barnsskónum — og þar eru beztu bújarðir sveitarinnar, þó að þér finn- ist það kannske ótrúlegt". „Ójá, frekar finnst mér það ótrúlegt. Hér er allt vafið grasi, en þar sýnist mér muni vera meira grjót en gras“, sagði Þorgeir. „Reyndar verð ég að játa, að ég hef ekki gott vit á sveitabúskap, en þó langar mig mikið til að verða stór-bóndi í sveit — eiga stærðar sauðahjörð og feikna stóra hrossahópa. Um kýrnar gef ég lítið. Ég er orðinn leið- ur á sjónurn".

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.