Lögberg-Heimskringla - 06.02.1964, Síða 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 6. FEBRÚAR 1964
Úr borg og byggð
ÍSLENZK MESSA fer fram
næstkomandi sunnudagskvöld
9. þessa mánaðar, klukkan 7,
í Unitara kirkjunni á Sargent
og Banning. — Kaffiveitingar
eftir messu. — Allir vel-
komnir. — Séra Philip M.
Pétursson messar.
☆
Grettir Eggertson og frú
komu heim úr Islendsferðinni
á þriðjudaginn í fyrri viku.
Eftir hátíðahöldin í Reykja-
vík, vegna fimmtíu ára af-
mælis Eimskips fóru þau til
London ásamt boðsgestum
þeirra Hans R. Þórðarsyni og
frú Hönnu konu hans, en
Grettir og Hans eru frændur.
Dvöldu þau öll þar í viku.
☆
Dr. Sveinn E. Björnsson frá
White Rock, B.C. kom til
Winnipeg í fyrri viku á leið
til Arborg, en þar hefir hann
tekið við læknisstörfum við
Arborg Memorial spítalann
fyrir Dr. Ivan Mowczam, sem
verður fjarverandi í tvo mán-
uði við nám. Bréf til Sveins
læknis sendist þangað. Við
báðum um fréttir. „Rigning!“
var svarið, en svo skýrði hann
okkur frá að íslendingar þar
vestra væru að búa sig undir
aðra ferð til Islands í júní, 80
manna hópur í þetta skipti, 12
tíma beint flug yfir pól-
inn, mánaðardvöl á Islandi.
☆
6. lölublað Lögbergs-Heims-
kringlu, fyrir árið 1963 — 14.
febrúar er gengið til þurrðar
og yrðum við þakklát þeim er
gæti látið okkur það í té.
☆
Mrs. Ingibjörg Bjarnason,
87 — 2nd Ave., Gimli, Man.
hefir góðfúslega tekið að sér
að innheimta ársgjöld fyrir
Lögberg - Heimskringlu á
Gimli.
Walfer Johannson og frú frá
Pine Falls komu heim eftir
tveggja mánaða dvöl í Van-
couver hjá dóttur sinni og
tengdasyni, Mr. og Mrs. Davis
og börnum þeirra.
☆
Verne Guðjón Johnson frá
Lundar, Man., námsmaður í
electrical engineering við
Manitobaháskólann hefir hlot-
ið Alcan námsstyrkinn; hann
fékk hann einnig í fyrra.
Þessi styrkur er úr námssjóði
Aluminum Company of Can-
ada og veitir Manitobaháskól-
inn hann árlega.
☆
Donaiions io Beiel
Mrs. S. Turner, London,
Ont., 10 Ibs. sweet biscuits, 5
lbs. chocolates.
A Friend, Vancouver, B.C.,
box of holly.
A Friend, Winnipeg, 2 boxes
oranges.
Mr. og Mrs. V. K. Johnson,
Villa Park, 111., $5.00 — In
memory of Alexander L.
Benson.
S. M. Bachman,
Ste. 12 — 380 Assiniboine Ave.
Winnipeg 1, Man.
Winnipeg Heallh Deparimeni
Says "Please Noie"
Classes for “Expectant
Mothers” sponsored by the
Winnipeg Public Health
Nurses are held each wee£.
For information regarding
these Classes which are free,
please c'all the following
Centres:
Central Office — Winnipeg
Health Departmen, WH6-0105;
South District Nursing Office,
GR 5-4565; West District
Nursing Office, SU 3-7760;
North District Nursing Office,
JU 6-3183; East District Nurs-
ing Office, WH 6-0137.
For information about
evening classes for Expectant
Parents call the Winnipeg
School Board at SP 5-0231.
☆
Gjafir í Skálholtsskólasjóð
Dr. P. H. T. Thorlakson,
Winnipeg $100.00
Mrs. Gudrun Johann-
son, Winnipeg 25.00
Mrs. Lovisa G. Gísla-
son, Morden, Man. 50.00
Mr. Jón Magnússon,
Seattle, Wash. 25.00
Ónefndur 50.00
Kærar þakkir,
Grettir Eggertson,
78 Ash Str., Wpg., Man.
Dánarfreqnir
Lorne Willard Johannson
varð bráðkvaddur að heimili
sínu, 581 Warsaw Ave., Win-
nipeg, 21. janúar 1964, 52 ára.
Hann var rakari að iðn og
vann hjá Ray Baker Barber
shop. Hann lifa kona hans,
Sólborg; fjórir synir, Lome
Leonard, Guðmundur Alfred,
Edwin Glen og Ivan Dale; eitt
sonarbarn; móðir hans, Mrs.
Sigurlaug Johannson og einn
bróðir, Carlyle Ásgrímur Jo-
hannson.
Útför hans var gerð frá
Bardals og jarðsett í Brook-
side grafreit. Rev. Walter G.
Becker þjónaði. Lorne heitinn
var listrænn, lék vel á píanó
og var hinn bezti drengur.
☆
Mrs. Jónína Björg Árnason,
lézt 16. janúar 1964 að heimili
sínu á Loni Beach, Gimli, 82
ára. Hún flutti frá íslandi til
Gimli 1914 og átti heima að
Gimli alla trð síðan. Hún
missti eiginmann sinn Ind-
riða árið 1951. Hún læt-
ur eftir sig einn son, Sig-
urjón á Gimli; þrjár dætur,
Dorothy (Mrs. H. C. Jones),
Helgu (Mrs. D. Demedash) og
Karen (Mrs. P. Werestiuk);
sex barnabörn og sex barna-
barnabörn. Kveðjuathöfn fór
fram í lútersku kirkjunni á
Gimli og jarðsett í Gimli graf-
reit.
☆
Grímur Júníus Magnússon,
68 ára, búandi að Geysir and-
aðist á Arborg spítalanum 27.
janúar 1964. Útförin fór fram
frá Únitara kirkjunni í Ar-
borg og jarðað í Geysir graf-
reitnum. Séra Philip M. Pét-
ursson þjónaði við athafnirn-
ar. Syrgjendur eru, Lára
MESSUBOÐ
Fyrsta lúierska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: /
A ensku: kl. 9.45 f. h
11.00 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
ekkja hans; tveir synir, John
í Winnipeg og Thorsteinn
heima, ein dóttir Thora (Mrs.
Henry Ertle); fjögur systkini,
Sigurður, Ingólfur, Jóhanna
og Ingunn, öll á íslandi. Eitt
barnabarn.
☆
Stefán Stefánsson, lézt 22.
janúar 1964, 86 ára. Hann var
fæddur á íslandi en átti heima
í Winnipeg síðustu 60 árin.
Hann var smiður að iðn og
vann hjá Building Mechanics
Limited í síðastliðin 20 ár.
Útförin gerð frá Bardal,
greftrun í Brookside. Dr.
Valdimar J. Eylands þjónaði
við útförina.
☆
Gunnar Brynjólfsson að
663 Alverstone St., Winnipeg,
áttræður, lézt 11. janúar 1964.
Hann átti heima í Winnipeg
síðastl. 61 ár og var múrari
að iðn. Hann lifa þrjú syst-
kini„ Ólafur, Thorbjörg og
Gertrude. Kveðjuathöfn í
Fyrstu lútersku kirkju og
jarðsettning í Brookside. Dr.
V. J. Eylands flutti kveðju-
orð.
☆
Mrs. Sleinunn Anderson, 83
ára, kona Thorðar Anderson
að 1080 Sherburn St., Winni-
peg, lézt 25. janúar 1964 á
King Edward spítalanum.
Hún var fædd á íslandi, átti
heima í Selkirk í 44 ár, en
síðustu 20 árin áttu þau hjón-
in heima í Winnipeg. Hún tók
mikinn þátt í starfsemi kvenn-
félags og trúboðsfélögum
lúterska safnaðarins í Sel-
kirk. Auk éiginmanns hennar
syrgja hana einn sonur, Nor-
ton í Toronto; tvær dætur
(Vera) Mrs. I. C. Ingimundson,
Port Arthur og (Pearl) Mrs.
A. B. Björnson í Winriipeg;
ein systir, Mrs. J. Gomme í
Sudbury; átta barnabörn og
17 barna-barnabörn. Einn
sonur Willard féll í stríðinu
1943. Dr. V. J. Eylands flutti
kveðjuorð við útförina. Hún
var lögð til hinztu hvíldar í
Selkirk grafreitnum.
Gleymf skáld
í þessu blaði lýkur þessari
fróðlegu ritgerð eftir frú Hall-
dóru B. Björnsson skáldkonu.
Við erum henni innilega þakk-
lát fyrir að láta Lögbergi-
Heimskringlu í té þetta hand-
rit sitt. Vegna þess að rit-
gerðin er löng skiptum við
henni í fjóra kafla, er birtust
í blaðinu 2., 23. og 30. janúar
og svo í þessu blaði. Við höf-
um nokkur eintök af þessum
blöðum aflögu fyrir þá sem
óska þess að eiga þessa ágætu
ritgerð í heild. — I.J.
•
Kafli úr bréfi frá höfundinum.
Frá því ég fyrst heyrði get-
ið um Ingibjörgu frá Katadal
fyrir nokkrum árum, varð hún
mér einkar hugleikin og finnst
mér ekki vansalaust að týna
algerlega svo sérstæðri konu,
eins og hún hefði aldrei verið
til.
Ég hef reynt að rekja slóð
hennar eftir kirkjubókum.
En furðu litlar upplýsingar
hef ég getað fengið um hana
hjá fólki. Það er engu líkara
en ættingjar hennar vilji sem
minnst af henni vita. Þó er
ekki að sjá að hún hafi annað
til saka unnið, en þessa mis-
heppnuðu tilraun að farga sér
og líklgea nokkra sturlun á
geðsmunum um tíma, en það
hvorttveggja var litið verra
auga þá en nú.
Ekki er óhugsandi að enn
sé fólk á lífi vestra, sem man
Ingibjörgu, því ættingja mun
hún eiga þar og líklega af-
komendur. Soffía dóttir henn-
ar giftist vestra.
Ef einhver skyldi nú kunna
þó ekki væri nema eins og
eina stöku eða tvær eftir þetta
— geymd yísa
ágæta skáld, þá væri það þeg-
ið með þökkum.
Halldóra B. Björnsson
Alþingishúsinu,
Reykjavík, Iceland.
Úr bréfi frá Mozari, Sask.
Ég las með sérstakri eftir-
tekt um Ingibjörgu skáld-
konu. — Elínborg Bjarnadótt-
ir og Samson Bjarnarson voru
næstu nágrannar mínir í
Akrabyggð, Norður Dakota,
en Friðrik þekkti ég lítið;
hann var vestur á Fjöllum,
sem kallað var, og fór þaðan
til Wynyard, Sask. Synir
hans, Bjarni og Sigurður
voru nágrannar mínir, allt vel
látið fólk.
Elínborg var eitthvert það
göfugasta og indælasta gam-
almenni, sem ég hef kynnst.
Það báru allir virðingu fyrir
henni. Samson var góður bú-
maður, kom aldrei helzt til
nágranna sinna, var ekki í
neinum félagsskap — bara í
sveitarráði nokkur ár, var
aldrei við messu og lét jarða
sig og sína á landinu fyrir
austan Akra.
„Og svo gerða eg"
Vigfús geysir Jónsson bjó
um allmörg ár á Hervarar-
stöðum á Holtsdal á Síðu.
Hann var ýkinn til muna og
nokkuð sérlegur í tali. Þessa
sögu sagði hann af því, er eitt
sinn bar fyrir hann á Mýr-
dalssandi:
„Eg var á ferð á Mýrdals-
sandi, og mætta eg draugi.
Það var kvendraugur, og réð-
umst eg á hann, og svo fellda
eg hann. Þá sagði draugurinn:
„Neyttu fallsins, karlmaður“.
Og svo gerða eg“.
UMBOÐSMAÐUR LÖGBERGS-HEIMSKRINGLU
á
ÍSLANDI
SINDRI SIGURJÓNSSON póstafgreiðslum.
P.O. Box 757, Reykjavík
Verð Lögbergs-Heimskringlu er kr. 240 á ári.
Subscription Blank
NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD.
303 Kennedy St„ Winnipeg 2.
I enclose $6.00 for 1 year □ $12 for 2 years □ subscrip-
tion to the Icelandic Weekly, Lögber^-Heimskringla
NAME ........
ADDRESS .......................
LAND5 OF THE MIDNIGHT SUN
A modern-doy look ot the Architecture, Industry, Food, Culture of lceland, Sweden, Norway, Finland, Denmark. Lecturers:
NORWAY .... Maj. Aasmund Nilsen
SWEDEN
DENMARK
FINLAND
ICELAND Prof. H. Bessoson
GREENLAND and N.E. AMERICA . Mr. W. Kristjanson
Wednesdays at 8:00 p.m.
Feb. 12th to Morch llth
CENTRAL Y.M.C.A. 301 Vaughan Street Phone WH 2-8157