Lögberg-Heimskringla - 13.01.1966, Blaðsíða 1
f
Högkrg - ® eimsferinsla
Stofnað 14. ian.. 1888 Slofnuð 9. sept., 1886
80. ÁRGANGUR j WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 13. JANÚAR 1966 NÚMER~2
Sjötugsafmæli
Kveðja til Kjarvals áttræðs
Tindum frá til fjörusands,
í fögrum skáldasýnum,
þú hefir túlkað tign vors lands
með töframætti þínum.
RICHARD BECK
Edwin Baldwinson látinn
Þann 10. þessa mánaðar
varð Árni G. Eggertsson Q:C.
lögfræðingur í Winnipeg
sjötugur. Árni var fæddur hér
í borg, sonur merkishjónánna
Árna Eggertssonar fasteigna-
sala og Oddnýjar Jónínu
Jakobsdóttur Eggertsson. For-
eldrar Árna eldra voru þau
hjónin Eggert Jónsson bóndi
í Fróðhúsum og að Höll í
þverárhlíð og Sigríður Jóns-
dóttir frá Deildartungu í
Borgarfirði. — Frú Oddný
Eggertsson var dóttir Jakobs
bónda Oddssonar frá Rauf á
Tjörnesi og konu hans Sigur-
bjargar Jónsdóttur.
Þau Árni og Oddný
Eggertsson bjuggu við mikla
rausn hér í Winnipeg, og var
heimili þeirra í íslenzkri þjóð-
braut í fjöldamörg ár. Þau
hjónin voru dugleg og fram-
farasinnuð og héldu sonum
sínum til mennta. Elzti sonur-
inn, Árni Guðni, sem nú er
sjötugur, lagði stund á lög-
fræði og lauk embættisprófi í
þeirri grein við Manitóbahá-
skóla árið 1921 og hlaut mála-
flutningsleyfi í Manitóba
sama ár og ári síðar í Sas-
katchewan. Starfaði hann
síðan sem lögfræðingur í
Wynyard í Saskatchewan frá
1922—1939, en þá stofnaði
hanh með öðrum hina kunnu
lögfræðiskrifstofu Thorvald-
son, Eggertson, Bastin &
Stringer, en sú stofnun hefir
bækistöð sína í miðbænum í
Winnipeg. Getur hver sá, sem
ekur um aðra aðalgötu Winni-
pegborgar séð svo ekki verður
um villzt, að íslendingar
námu hér land, því að í mörg-
um gluggum einnar aðalbygg-
ingarinnar stendur skýrum
stöfum „Thorvaldson Eggert-
son“ etc. og hefir sú áletrun
orðið drjúg kynning fyrir ís-
lendinga, því að nöfnin eru
bæði örugg íslenzk fanga-
mörk. Ekki minnist undirrit-
aður þess, að hafa komið á
fínni skrifstofur en hjá þeim
félögum, og inni í því allra
helgasta sitja þeir Sólmundur
og Árni og rýna í lögbækur
og ýmiss konar gjörninga og
þylja utan bókar heila bálka
úr hinni kanadísku „Grágás“,
og eru þeir báðir svo íslenzkir
í háttum, að þar gætu verið
komnir Þorgeir Ljósvetninga-
goði og Skafti Þóroddsson
eða aðrir þeir fornir lögsögu-
menn, sem þuldu hin íslenzku
lög að Lögbergi á Þingvöllum
um það bil sem fyrstu íslend-
ingar stigu á land í Ameríku
fyrir næstum því þúsund ár-
um, en segja má, að svo lang-
an tíma tæki að þoka lögvís-
inni frá Þingvöllum við Öxará
inn á Portage Avenue í Winni-
peg, þar sem Árni G. Eggert-
son Q.C. hefir nú lengi starfað
í anda sinna frægu og lög-
spöku forfeðra.
Árni Eggertson er virðu-
legur fulltrúi sinnar stétt-
ar, góður borgari síns lands
og rammur íslendingur.
Hefir hann stutt með ráð-
num og dáð íslenzka menn-
ingarviðleitni hérna megin
hafsins, og má í því sambandi
nefna íslendingafélög ýmiss
konar, útgáfufyrirtæki og ís-
lenzkudeild Manitóbaháskóla.
í félögum hérlendra hefir
hann gegnt ábyrgðarstöðum,
en auk þess hefir hann sýnt
landi feðra sinna hina mestu
ræktarsemi. Hann hefir verið
umboðsmaður Eimskipafélags
fslands í Norður Ameríku og
sem kunnugt er átt sæti í
framkvæmdastjórn þess fé-
lags. Hann var því að verðugu
s æ m d u r Stórriddarakrossi
hinnar íslenzku fálkaorðu
árið 1954.
Árni er kvæntur hinni
ágætustu og glæsilegustu
konu, frú Maju Guðjohnsen
Laxdal, dóttur þeirra hjóna,
Gríms Jónssonar Laxdals og
Sveinbjargar Torfadóttur. —
Börn þeirra Eggertson hjón-
anna eru: Árni Marvin, fyrr-
um útfararstjóri í Dauphin,
dr. Sveinn Halldór Octavíus
læknir og frú Ólöf Thelma.
Eru þau börnin hið mesta
myndarfólk, og hafa þau öll
tengzt gömlum og grónum
kanadískum fjölskyldum.
Þau Maja og Árni eru með
afbrigðum gestrisin og vin-
mörg. Vinir þeirra eru í mörg-
um löndum, hér í Kanada og
heima á fslandi. Mæli ég fyrir
munn þeirra allra þegar ég á
sjötugsafmæli húsbóndans
árna þeim hjónum báðum
langra lífdaga, heilsu og ham-
ingju.
Haraldur Bessason.
Edwin Gestur Baldwin-
son lézt í hermannaspítala í
Ottawa 17. desember 1965.
Hann var fæddur í Reykjavík
8. marz 1893. Faðir hans var
Baldwin L. Baldwinson inn-
flytjenda umboðsmaður á
innflutningsárum íslendinga;
síðan varð hann eigandi og
ritstjóri Heimskringlu í mörg
ár og þingmaður Manitoba-
fylkis í þrjú tímabil og síðast
aðstoðar- fylkisritari í Mani-
toba. Hann var ættaður frá
Akureyrixforeldrar hans voru
Baldwin \káld Jónson og
Helga Egilsdóttir.
Kona Baldwins og móðir
Edwins var Helga Sigurðar-
dóttir frá Jaðri í Skagafirði.
Edwin heitinn ólzt upp í
Winnipeg «íg lauk lögfræði-
námi við Manitoba háskól-
ann. Hann gekk í Mechanical
Motor Transport lið Imperial
Tjörn, Vatnsnesi,
V.-Hún., Iceland.
Nú er gamla árið farið í
aldanna skaut og nýja árið
byrjað og hvað það geymir
fyrir hvern og einn og heim-
inn veit enginn.
En hvað þýðir annað en að
horfa á komandi daga með
bjartsýni og von að allt muni
ganga samkvæmt vilja skap-
arans.
Héðan úr þessum litla bletti
heimsins er lítið í fréttum
því fátt skeður á útkjálkanum
við hjara veraldar. En líklega
er það bezt að vera á slíkum
stað nú að heimurinn er kom-
inn einu sinni aftur á „barma“
st5*Waldar. Það er áreiðanlegt
ag jJ^lendingar hafa það gott
ef e^ki aðeins fyrir það að
þeir þurfa ekki að gera út
„standandi" her og lofa öðr-
um að verja þá í friði og
stríði.
Ekkert er hlé á kuldanum
og kom frostið í 17—20 stig
milli jóla og nýárs. Hér á
þessum tíma er lítil sem engin
umferð og hugsa gestirnir að-
eins til heimsókna þegar
sumarsólin er hæst á lofti. En
Óskar Levy frá Ósum • kom
hingað um daginn, eins og
fleiri, á skemmtun sem hald-
in var hérna heima. Óskar er,
eins og mörgum er kunnugt,
bróðir Guðmans í Winnipeg.
Army Service þegar fyrri
heimsstyrjöldin hófst og þjón-
aði í hernum þar til stríðinu
lauk. Hann varð fyrir eitur-
gasi í Somme-orustinni miklu.
Eftir að heim kom stundaði
hann lögmannsstörf í Winni-
peg um alllangt skeið og var
vel látinn af öllum sem til
hans þekktu. Hann tók að sér
störf í Ottawa fyrir mörgum
árum og átti þar heima síðan.
Af sex börnum þeirra Bald-
winsons hjóna er nú aðeins
eitt á lífi, frú Emily H. Páls-
son, ekkja Jónasar Pálssonar,
hins kunna píanóleikara og
kennara. Hún á heima í Van-
couver og flaug strax austur,
er henni barst skeyti um veik-
indi bróður síns og fékk hún
kvatt hann áður en hann
skildi við. Hann var lagður
til hvíldar í Beechwood
Cemetery í Ottawa.
Hann hefur verið varamaður
í Alþingi og tekur sætið sitt
aftur þegar Alþingi kemur
saman 6. febrúar. Óskar til-
heyrir Sjálfstæðisflokknum
sem er nú í stjórn með Al-
þýðuflokknum, sem er svip-
aður og Verkamannaflokkur
Wilsons í Bretlandi. Það var
þá ekki að furða að við Vatns-
nesingar töluðu um Guðman
og frú Margréti, aðra Vatns-
nesinga sem fóru héðan fyrir
mörgum árum.
Það má segja að árið 1965
væri gott ár fyrir þjóðina og
yfir milljón tonn af fiski kom
í land og af því er síldin mest.
Framkvæmdirnar hafa verið
miklar og byggingar í höfuð-
staðnum halda áfram að þjóta
upp. En ekki hefur allt leikið
í lyndi því dýrtíðin og verð-
bólga halda áfram og sökum
þeirra eru verkföll engin nýj-
ung hérlendis. Það var til-
kynnt um daginn að nýja
hótel Loftleiða muni taka til
starfa í maí. Samkvæmt því
sem maður veit hlýtur þetta
hótel að verða með fullkomn-
ustu í Evrópu og jafnvel í
heimi. Starfsfólkið verður á
annað hundrað. Þetta gistihús
var einu sinni í vörzlum setu-
liðsins og er það staðsett á
Keflavíkur flugvelli og hafa
Loftleiðir breytt því og bætt
verulega við það. Irskur dans
og söngflokkur sýnir í kveld
í Þjóðleikhúsinu og heldur
hann svo áfram til U.S.A. og
Canada, þar sem hann mun
koma víða við á þriggjamán-
aðar ferðalagi. Og aðeins í
morgun börðust norður- og
suður-írskir togaramenn á
hafinu úti við íslands strönd
og varð írskt varðskip að
skakka í leikinn. Stríðið varð
út af því að togari frá Norður
írlandi landaði mikla síld í
Dublin fyrir stuttu og virtust
suður írlendingar öfundsjúkir
af því.
Kærar kveðjur frá okkur
öllum á Tjörn.
Roberi Jack.
VAL BJORNSON
IS WRITING HISTORY
Associaied Press
Minnesota State Treasurer
Val Bjornson is writing a
two-volume history of the
state, to be published in 1968.
Bjornson, with whom his-
tory has been a life-long
hobby, noted today that a
five-volume history of the
state was published 30 years
ago by the late Gov. Theo-
dore Christianson.
Bjornson said his history W
will be published by Lewis
Historical Publishing Co., of
New York, which also has an
office in St. Paul.
Minneapolis Star,
Dec. 13, 1965.
Fréttir frá íslandi
Alumínverksmið ja
reist við Straum
Blaðinu barst seint í gær-
kveldi fréttatilkynning frá
Iðnaðarmálaráðuneytinu þess
efnis að samkomulag hafi
náðst um öll meginatriði
byggingar alúmínverksmiðju
fyrir sunnan Hafnarfjörð við
Straum.
Tilkynningin var svohljóð-
andi:
„Dagana 1.—3. þessa mán-
aðar hafa farið fram samn-
ingaviðræður milli fulltrúa
ríkisstjórnarinnar, Sviss Alu-
minium Ltd. og Alþjóðabank-
ans um byggingu alumín-
bræðslu í Straumsvík og er
þetta framhald fyrri viðræðna
þessara aðila.
Eftir þessa fundi er málið
komið á það stig, að sam-
komulag hefur náðst í viðræð-
unum um öll meginatriði
málsins.
Það sem næst liggur fyrir
er að ganga frá samningsupp-
kasti með margháttuðum
fylgiskjölum og munu lög-
fræðingar aðila vinna að því
í þessum mánuði.
' Ráðgert er að halda síðan
fund um málið eftir áramótin
Framhald á bls. 8.
tyréf frá séra Robert Jack