Lögberg-Heimskringla - 13.01.1966, Side 3

Lögberg-Heimskringla - 13.01.1966, Side 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 13. JANÚAR 1966 S FARIÐ VEL MEÐ MAGANN Eftir Richard Carter. — Business and Professional Cards — ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG 2SLENDINGA 1 VESTURHEIMI Forsoli: SÉRA PHHJP M. PÉTURSSON 681 Banning Street, Winnipeg 10, Manitoba Slyrkið félagið með þyi «8 gorast meðlimir. Arsgjald $2.00 — Timaril félagsins frill Sendist til fjármálaritara: MH. GUÐMANN LEVY, 185 Lindsay Street, Winnipeg 9, Monltobo Phone WHiteholl 3-8072 Building Mechanic’s Ltd. Pointing - Decoroting - Construction Renovoting - Reol Estote K. W. (BILL) JOHANNSON Monager 371 McDermot Ave., Winnipeg 2 Minnist BETEL í erfðaskróm yðar A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur líkkistur og annast um útfarir. Allur útbúnaður sá bezti. Stofnað 1894 SPruce 4-7474 G. F. Jonosson, Pres. ond Mon. Dlr. KEYSTONE FISHERIES LIMITED Wholesole Distrlbutore of FRESH AND FROZEN FISH 16 Mortha St. WHIteholl 2-0021 Goodman And Kojima Electric ELECTRICAL CONTRACTORS 770 ELLICE AVE., WINNIPEG 10 774-5549 ARTHUR GOODMAN M. KOJIMA SP 2-5561 LE 3-6433 Evenings ond Holldoyt Canadian Fish Producers Ltd. J, H. PAGE, Manoging Director Wholesale Distrlbutora of Fresh and Frozen Flsh 311 CHAMBERS STREET Office: BUS.: SPruce 5-0411 SPruce 2-3917 SPruce 4-7855 ESTIMATES FREE Fjöldi manna finnst mag- inn í sér erfiður og ofnæmur óróaseggur, fullur af sýrum, og skella gjarna skuldinni á hann svo að segja hvert ein- asta skipti sem eitthvað geng- ur að þeim innvortis. Flestir læknar eru hins vegar þeirr- ar skoðunar að maginn eða réttara sagt magapokinn, sé ákaflega traust, áreiðanlegt og iðjusamt líffæri, að það komi sjaldan fyrir að hann orsaki alvarlegan lasleika, og þá einungis því aðeins að hann verði fyrir mikilli mis- notkun. Annars hafa læknar upp- götvað marga furðulega hluti um magapokann: Starfsemi hans og tilgang- ur, sem margir ólæknislærðir menn telja sig geta gefið á nákvæmar skýringar, er þó í raun réttri lítt ráðinn leynd- ardómur. Magapokinn annast aðeins einn þátt í þeirri gagn- geru meltingarstarfsemi, er mylur fæðuna og blandar þangað til líkaminn getur sogað hana í sig. Þannig sýn- ist hann til dæmis iinna af höndum áberandi minna meltistarf en þarmarnir. 1 magapokanum myndast sýra, svo sterk að hún getur leyst upp húðina í lófum manna. 1 honum er líka efni að finna, er verndar maga- veggina svo vel, að ekkert getur komizt inn í þá, — jafn- vel ekki magasýran. Fólkið er þjáist af magasári, má bersýnilega borða svo til allan mat sér að áhættulausu, ef það aðeins borðar nógu oft. Þó er einkennilegasta upp- götvunin ef til vill sú, að sé magapokinn heill og hraust- ur, lætur hann sér nokkuð svo á sama standa um hvaða fæða er í hann látin, að vissu marki. Hann ræður hiklaust við allt sem a) telja má æti- legt, b) ekki er allt of heitt, kalt eða kriddað, c) ekki er borðað við andlega þvingun eða vanan, sem truflar taugar magans eða vöðva. Andleg spenna getur haft endaskipti á öllu í jafnvel hraustustu magapokum. Við- brögð magans fara eftir því hvers konar áhrifum hann verður fyrir. — Tökum eitt dæmi: — Tveir verkamenn verða fyrir hörðum ákúrum frá yfirboðara sínum. Öðrum þeirra finnst sem eldfjall sé að gjósa í maganum á honum, en hinum eins og magi hans hafi farið fimm sinnum gegn- um þvottavindu. Sá fyrr- nefndi er reiður. Magi hans sýður af baráttuhug, hann verður eldrauður og sýrurn- ar þeytast innan um hann. Hinn maðurinn er fremur hræddur en reiður, magapoki hans liggur kyrr, þróttlaus af ógleði, — í auðmjúkri undir- gefni. Magapokinn er oft að ástæðulausu sakaður um ein- kenni, er stafa^ frá öðrum sjúkdómum í öðrum líffær- um. Sé um hjartasjúkdóm að ræða, geta mistökin valdið hættulegum afleiðingum. — Menn hafa beðið bana fyrir þá sök að verkur í hjarta hef- ur verið álitinn meltingar- þrautir, eða blóðtappi í hjarta tekinn fyrir meiri háttar magakvilla. Sjúk lifur, gall blaðra, kirtill í holi eða nýra geta gefið frá sér hættumerki, sem ekki er á annara færi en lækna að greina frá einkenn- um magasjúkdóms. Sjálfur getur sjúklingurinn hæglega fundið til verkja í maganum, þótt sjúkdómurinn sé annars staðar í líkama hans, vegna þess að þrautirnar hafa verið símaðar til magans eftir taug- unum. Svipuðum erfiðleikum er stundum að mæta við krabbamein, botnlangabólgu, lungnabólgu, mænubólgu, beinberkla og ýmsa aðra sjúk- dóma. Þegar svo ber til getur verið bráðhættulegt að ákveða sjálfur sjúkdóms- greininguna og reyna að haga sér samkvæmt henni. í stað þess að drekka mjólk til þess að „koma ró á magann“ er sjálfsagt að vitja læknis síns. Hversu mikla trú sem mað- ur kann að hafa á þýðingu sálarlífsins og áhrifum á meltinguna, er vitanlega frá- leitt að staðhæfa að allar magatruflanir stafi af and- legum truflunum. Maður get- ur til dæmis orðið hreint fjandalega á sig kominn af því að borða yfir sig. Melting- artruflanir geta líka komið fram við tilraunir líkamans til að losna við eiturefni, veir- ur eða gerla. Alkunnasta dæmið er líklega inflúensan. Uppköst þau og niðurgangur er gjarna fylgir þeirri veiki, koma af ósjálfráðum vöðva- hreyfingum. En þær hreyf- ingar upphefjast ef veggir þarmanna verða fyrir áhrif- um veiranna. Líkaminn reyn- ir þá ósjálfrátt að losna við þetta smitandi innihald maga og garna. Hið sama kemur í ljós ef matareitrun á sér stað. Líkaminn snýst þá öndverður til andspyrnu, oft á kvalafull- an hátt, í því skyni að losa sig við hin hættulegu efni, svo fljótt sem auðið er. Vísindamenn hafa ekki enn þá orðið fullkomlega áskynja um alla þýðingu magapokans. Ýmsir menn hafa komizt mætavel af þótt megnið af magapoka þeirra hafi verið skorið burtu. Og þúsundir manna, einkum krabbameins- sjúklingar, hafa, lifað góðu lífi um langan tíma við hæfileg- an aðbúnað, eftir að allur magapokinn hefur verið numinn brott. Af öllum „maga“ sjúkdóm- um er magasárið hinn kunn- asti og sá er menn óttast mest. Flestir læknar setja nú orðið þessa veiki í samband við andlega vanlíðan. Maga- sárin eru að útliti líkt stækk- uð mynd af sárum þeim, er stundum koma í munnhol manna. Þau eru frá fimm til tuttugu millimetrar að þver- máli, og fylgja þeim oftast sárar þrautir milli brjóstbeins og nafla. Stundum koma sárin í sjálf- an magapokann. En oftast verða þau þó á skeifugörn- inni, rétt utan við mynni magapokans, magaportið. — Talið er að þau orsakist af starfsemi magapokans. Magapoki sjúklings með magasár hefur starfað of ört. Hann hefur framleitt of mik- inn magasafa og dregið sig saman tíðara en heilbrigt er. Þessar samdráttarhreyfingar opna magaportið of ört og við það berst mikið magn af sýr- um út í þarmana. Nú hefur skeifu görnin ekkert slím sem heitið getur, sér til verndar og er því auðvelt fyrir sýr- urnar að éta sig inn í slímhúð hennar og mynda sár. Einkum eru það tvenns konar aðterðir, sem viðhafð- ar eru til þess að lækna maga- sár. Algengasta aðferðin er sú, að dragp. úr ofstarfi maga- pokans með tilteknu mata- ræði og tyfjum sem ónýta sýrurnar. Hin er á þann veg að hindra ofstarfið með upp- skurði, lyffekningu eða ráð- leggingum, en þó er hvorug aðférðin örugg. Áhrifaríkasta aðferðin til þess að varna magasafanum að erta slíinhúð skeifugarnar- innar er sú, að neyta mikillar fæðu sem sýrurnar hefðu nóg að gera að fást við í staðinn. Danskir læknar eru þeirrar skoðunar að bezt sé að gefa magasárssjúklingum græð- andi fæðu. Frá fomu fari hef- ur þeim verið ráðlagt að drekka mikið af mjólk, því hún þynnir og ónýtir sýrurn- ar. 1 seinni tíð hafa ýmsir erlendir læknar hallazt að þeirri skoðun að enn betra sé Framhald á bls. 8. Off. SP 2-9509—SP 2-9500 Res. SP 4-6753 OPPOSITE MATERNITY HOSPITAL Nell’s Flower Shop 700 NOTRK DAME Wedding Bouquets - Cut Flowors Funeral Designs - Corsages Bedding Plonts S. L. Stefonson—JU 6-7229 Mrs. Albert J. Johnson ICELANDIC SPOKEN Mundy’s Barber Shop 1116 Porfage Avenue Bezta og vinsælasta rákara- stofan í Winnipeg JOHN SLOBODIAN, Owner 4 BARBERS EGGERTSON & EGGERTSON Borristers, Solicitors ond Notaries 500 Power Bulldlng Winnipea 1, Mon Phone WH 2-3149 at R.M. of Bifrost Office, Arborg 9:00 a.m. to 11:00 a.m. ot Municipol Office, Riverton 12:00 noon to 3:00 p.m. ot Credit Union Office, Gimli 4:00 p.m. to 6:00 p.m. First ond Third Tuesdays J. M. Ingimundson Reroof, Asphalt Shinglos, Roof repairs, install vents, oluminum windows, doors. J. Ingimundson. SPruce 4-7855 632 Simcoe St., Winnipeg 3, Mon. The Business Clinic Oscar HJSrUifaon Office at 194 Cothedrol Ave. Phone 582-3548 Bookkaeping — Income Tu FRÁ VINI

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.