Lögberg-Heimskringla - 13.01.1966, Blaðsíða 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 13. JANÚAR 1966
5
Frá Los Angeles
Jólalré í Los Angeles
Sunnudaginn annan í jólum
fór fram hin árlega jólasam-
koma Sauma Klubs íslenzkra
Kvenna í Los Angeles í
„Hawthorne Memorial
Centre“. Fögrum sal með
snjóhvítu jólatré í miðju með
óteljandi rauðum kúlum en í
kringum það staflar af fínum
jólapökkum. Hinar ungu kon-
ur báru fram hinar bestu veit-
ingar og heimabakaðar kökur
og brauð, mjólk og ísrjóma að
ógleymdu kaffinu. Um 80
börn voru þar björt og blíð á
svip og siðuð vel. Hoppuðu
þau og skoppuðu um hinn
glæsta sal en úti var sól og
sumar.
Eftirtekt sérstaka vöktu
hjón frá Akureyri, Hólmar og
Sigrún Finnbogason með 4
gullfagrar dætur sínar og
bera nöfnin íris Hildigunnur,
Rut, Halla Björk og Jóna
Brynja, allar með glóbjart
hár og blá augu og sannarlega
prýðir fólk þetta hópinn.
Þá voru þar 2 ungir menn
frá Akureyri Nils Gíslason og
Smári Sigurdsson, eru þeir
við nám. Er gott að sjá hve
vel íslendingar halda hópinn
sem að er dreyfður á milli
fjalla og fjöru.
Sveinn Þórðarson hinn
ötuli forseti íslendinga félags-
ins stjórnaði samkomunni og
frú hans Sigríður stóð fyrir
veitingunum. Olavia Einars-
dóttir Dodge stóð fyrir al-
mennum söng og dóttir henn-
ar Doris spilaði 4 jólasöngva
á fíólín sitt af mikilli leikni.
Auk þess voru íslenzkar plöt-
ur spilaðar af og til allan dag-
inn. Þá kom hinn vinsæli
Santa Claus fram (Eugene
Dodge), með gjafir og góð-
gæti handa börnunum. Sam-
koman fór prýðilega vel fram
og öllum til sóma sem að þar
átti hönd í bagga.
* * *
Jólin 1965
Kæra vinkona.
Satt að segja finst mér of
Nú eru áramót nýliðin. í
því sambandi er ekki úr vegi
að geta þess, að til tiltölulega
skamms tíma, og frá aldaöðli,
hefur tímatalið verið í óreiðu
og háð mismunum og breyt-
ingum, ekki aðeins frá einni
öld til annarar, en einnig stað
úr stað. Áður en breyting
tímatalsins var almennt við-
tekin, þ. e., fyrir Kristsburð,
skeði þetta og hitt á þessu eða
þessu ári hins ríkjandi kon-
ungsdæmis, en þetta var auð-
vitað ekki það sama í einu
landi og öðru. En allsnemma,
og víða, mun árshringurinn,
þ. .e., tólf tunglsfyllingar,
verið viðurkenndur og skipt í
mánuði, sem hverjum var
gefið heiti. Vikan var stað-
fest þegar það var viðurkennt
að verkamaðurinn þurfti eins
dags hvíld í hverjum sjö, ef
langt síðan að ég hefi sent
þér almennar fréttir, svo að
mér datt í hug að senda frétt-
ir héðan. íslendinga félagið
hefur ákveðið að stofna til
Þorrablóts í febrúar. Verður
það án efa auglýst síðar!
Síðast liðið haust voru hér
á ferð Jón og Fríða Sigurds-
son hinn íslenzki ræðismaður
í Vancouver. Átti góðan dag
með þeim á heimili Dr. og
Mrs. Glassmann í Hollywood.
Mrs. Glassmann sem að átti
íslenzka móður er alin upp í
Brandon, Manitoba eins og að
Sigurdsons hjónin eru, svo
þarna var margt rifjað upp
frá fyrri dögum Manitoba og
Islendinganna þar.
Þá var hér á ferð frá ís-
landi Doris Taylor, sem að
verið hefir á íslandi í rúmt
ár sem skrifstofu-stúlka hjá
stóru bíla-sölu fyrirtæki. Lét
hún vel af veru sinni þar,
nema að íslenzkan væri mjög
erfið viðureignar. Ferðast hún
um allar stærri borgir Ame-
iríku eins síns liðs. Ágætis
stúlka og sómi ættlands síns.
Jón Sibertsen siglingafræð-
ingur, sem að í mörg ár hefur
verið í siglingum til austur-
landa hefur nú fengið fasta
stöðu sem stýrimaður á skipi
sem að siglir stöðugt á milli
Japan og San Francisco fyrir
sjóher Bandaríkjanna. Guð-
mundur er sonur Jóns Sívert-
sen fyrrum skólastjóra verzl-
unnarskóla Islands og Hildar
Helgadóttur Zöega. Frú Hild-
ur hefur dvalið í New York
annað kastið árum saman, nú
alflutt til íslands.
Þá eru hér tvær ungar
stúlkur frá Vestmannaeyjum
á vegum A.F.S., Brynhildur
Friðriksdóttir Jessonar, og
Ásdís Þórðardóttir, er hún í
Chula Vista suður á landa-l
mærum U.S. og Mexico. Hin
er í La Canada hér uppi í
fjöllum. Báðar una þær hér
vel hag sínum.
hann átti að njóta sín bezt.
En hvort þessi dagur var fyrst
hvíldar- eða helgidagur er
ekki vitað; og hvort hann var
fyrsti eða síðasti dagur vik-
unnar skiptir litlu máli, nema
meðal ýmsra kirkjudeilda.
Hinn nýji timi (Anno
Domini) er, meðal kristinna
þjóða, talinn frá fæðingu
Jesu, hvenær sem það var,
en var ekki tekinn til notkun-
ar um langt skeið eftir kross-
festinguna. Eins og nú er
viðurkennt, var lítið til hans
tekið meðan hann lifði. Sjálf-
ur ritaði hann ekki neitt, né
lærisveinar hans, samverka-
menn og samtíðar sagnaritar-
ar. Þetta er skiljanlegt, ef tek-
ið er til greina að fjöldi um-
ferðarprédikara voru uppi í
grendinni skömmu fyrir fæð-
ingu Jesu, sem sögðust vera
eingetnir (virgin-born) og
frömdu kraftaverk. Gyðingar
yfirleitt tóku hann ekki að
sér, þar sem „konungdómur“
hans var ekki með þeim hætti
sem þeir vonuðust eftir af
hinum fyrirheitna Messías.
* * *
Fyrir nokkru tók ég til að
grúska í því, hvenær og
hvernig tímaskiptin voru við-
tekin, og hvaða tímatal var
almennt notað í millitíðinni.
Alfræðibækur og aðrar, sem
ég hefi aðgang að, virðast
hafa lítið um þetta að segja.
Ég beindi því spurningu
þessa efnis til Anglican
Theological College, deild af
University of B.C., en einn
kennarinn þar er „Archivist
for the Ecclesiastical Province
of B.C. and the Yukon“, og
því sjálfsagt vel að sér í þeim
efnum. Svar hans fylgir:
“ANNO DOMINI. — ‘In the
year of the Lord.’ The cur-
rent system of dating by
‘A.D.’, based on the supposed
year of the Birth of Christ,
was devised by Dionysius
Exiguus (died 550). It is now
commonly held that the actu-
Skáldin jeru jafnframt sjá-
endur í lífi þjóðanna, horfa
lengra fram en allur almenn-
ingur, líta, í draumum sínum,
úr djúpi stíjga betri og fegurð-
arríkari framtíð þjóðar sinn-
ar og annarra. Ekki þarf lengi
að blaða í kvæðum íslenzkra
skálda, beggja megin hafsins,
til þess að sannfærast um það,
að þessu er þannig farið. Þeim
orðum til staðfestingar, skal
hér einungis vitnað til draum-
sjóna tveggja skálda vorra
varðandi eitt velferðarmál
ættþjóðar vorrar, ræktun
skóga í landi þar.
Jónasi Hallgrímssyni mælt-
ist spámannlega, sem oftar, er
hann segir í einu frægasta
kvæði sínu:
Fagur er dalur
og fyllist skógi
og frjálsir menn
þegar aldir renna.
Hannes Hafstein sló á sama
streng, er hann komst svo að
orði í „Aldamótaljóðum“ sín-
um:
Sú kemur tíð,
er sárin foldar gróa,
sveitirnar fyllast,
akrar hylja móa,
brauð veitir sonum
móðurmoldin frjóa,
menningin vex
í lundi nýrra skóga.
Báðir voru þeir að vísu á
undan sínum tíma, og hug-
sjónin fagra og stórbrotna
sem þeir halda á lofti í þess-
um fleygu ljóðlínum, á enn
langt í land til þess að rætast
að fullu. Góðu heilli, hafa þó
margir tekið upp merki hinna
þjóðhollu og langsýnu skálda
á sviði skógræktar innar
heima á ættjörðinni, með
al Birth was several years
earlier, between 7 and 4 B.C.,
since it is established that
Herod the Great died (cf. Mt.
2. 19) in the latter year. Some
authorities, however, have
preferred the date A.D. 6, the
date given to the great taxing
under quirinius. (Lk. 2. lf.)“
Þetta er í samræmi við það
sem Oxford Dictionary of the
Christian Church (pp 57-58)
hefur að segja um þetta. —
Moslemar — (sjöunda-hver
manneskja í heiminum er
Múhammeðstrúar) telja að
nýji tíminn (new era) hafi
byrjað árið 622 e. k. Margir
aðrir trúflokkar hafa hver
sitt tímatal. Meðal Kristinna
var tímatalið mjög í óreiðu
allt fram á daga Shakespeares,
síðla á 16. öldinni, en þá kom
páfinn Gregory XIII til sög-
unnar og lét staðfesta
almanakið (The Gregorian
Calendar), sem notað er síðan,
en með nokkrum breytingum.
En með hvaða hætti var
tímatalið fyrstu f i m m
hundruð árin eftir Krists-
burð? Fáfróður spyr.
þeim góða árangri, að merki-
lega mikið hefir áunnizt. Um
það getur hver sá borið, sem
kynnst hefir af eigin reynd
skógræktarstarfseminni á
ýmsum stöðum á landinu,
eins og höfundur þessa grein-
arkorns hefir fengið tækifæri
til að gera í heimferðum sín-
um til ættlandsins á undan-
förnum árum. Það fer einnig
að vonum, að skógræktarmál-
ið er eitt af hjartfólgnustu
nytjamálum ættþjóðarinnar,
og nýtur að sama skapi víð-
tæks stuðnings almennings.
Það er því bæði ágæt og
framsýn þjóðrækni af hálfu
vor Vestur-lslendinga að
halda áfram að leggja þessu
þarfa máli allt það lið, sem
vér megum, enda er það eitt
af þeim málum, sem Þjóð-
ræknisfélag íslendinga í Vest-
urheimi hefir árum saman
haft á starfsskrá sinni og
styrkt það með nokkrum fjár-
framlögum, auk þess, sem
ýmsar deildir þess og ein-
staklingar, innan félagsins og
utan, hafa stutt það góða
mál fjárhagslega.
Nú sem áður, er starfandi
af hálfu félagsins milliþinga-
nefnd í skógræktarmálinu,
undir forystu Mrs. Marju
Björnsson, sem látið hefir sér
um langt skeið sérstaklega
umhugað um framhaldandi
stuðning vor íslendinga vest-
an hafs við þetta mál, og notið
þar ágætrar aðstoðar manns
síns, dr. Sveins E. Björnsson-
ar, og ýmissa annarra vel-
unnara málsins. Sá, sem þetta
ritar, á einnig sæti í um-
ræddri milliþinganefnd, og er
þessi áskorun rituð í hennar
nafni. Þar sem hann, ásamt
konu sinni, var gestur á árs-
fundi Skógræktarfélags ís-
lands seint í fyrra sumar, get-
ur hann einnig borið því
vitni, hve stuðningur íslend-
inga vestan hafs við þetta mál
er mikils metinn af forystu-
mönnum þess heima á ís-
landi, bæði það, sem íslend-
ingar hérlendis leggja af
mörkum til málsins fjárhags-
lega, ög þá ekki síður hinn
siðferðislegi stuðningur þeirra
við málið. Frá því sjónar-
miði er það hreint ekki lítils
virði fyrir forgöngumenn og
aðra velunnara málsins heima
á ættjörðinni að vera sér
þess meðvitandi, að íslending-
ar, sem í fjarlægð búa hér
úti í Vesturheimi, láta sig
skipta þetta hugstæða mál
heimaþjóðarinnar. Það gefur
öllum þeim þarlendis, sem
unna því máli og vinna,
nokkurn byr undir vængi í
viðleitni þeirra.
Eins og ég tók fram í
skýrslu minni á þjóðræknis-
þinginu í fyrra vetur, og stað-
festi með myndum, sem
Hákon Bjarnason skógrækt-
arstjóri og Margrét kona mín
höfðu tekið, þá vex skógar-
reitur Vestur-lslendinga á
Þingvöllum nú óðum úr grási,
og er orðinn mjög sómasam-
legur ásýndum. Ætti það að
vera oss ærin ástæða til þess
að halda áfram að styðja
skógræktina á ættjörðinni.
Vil ég því enn á ný eindregið
hvetja bæði deildir þjóðrækn-
isfélagsins og félagsfólk þess,
sem og aðra velunnendur
málsins vestur hér, til þess
að halda áfram að vera eða
gerast meðlimir í Skógrækt-
arfélagi íslands. Ársgjald
deilda er $10.00, en einstakl-
inga $2.00. Skilst mér, að Mrs.
Björnsson verði á komandi
þjóðræknisþingi, og tekur hún
þá fúslega á móti félagsgjöld-
um gamalla og nýrra meðlima
í Skógræktarfélaginu. Kjósi
menn það heldur, geta menn
vitanlega sent henni framlög
sín bréflega.
Sæmir oss íslendingum í
Vesturheimi það vel að eiga
nokkurn hlut að því, að láta
rætast í verki fagrar framtíð-
arsýnir þeirra öndvegisskálda
vorra, sem vitnað var til í
málsbyrjun.
Og þar sem þetta er ritað á
sjálfan nýársdaginn, óska ég
öllum löndum mínum hér í
álfu, já, íslendingum hvar-
vetna, fagnaðar- og bless-
unaríks árs.
RICHARD BECK.
GOING TO ICELAND?
Or perhaps you wish to visit
other countries or places here,
in Europe or elswhere? Where-
ever you wish to travel, by
plane, ship or train, let the
Triple-A-Service with 40 years
travel experience make the
arrangements. Passports and
other travel documents secured
without extra cost.
Write. call or telephone to-
day witnout any obligations to:
ARTHUR A. ANDERSON
TRAVEL SERVICE
133 Claremont Ave.,
Winnipeg 6, Man.
TeLs GLobe 2-5446
Bestu kveðjur,
Skuli G. Bjarnason.
Ýmislegt
— L. F.
Höldum áfram að styðja
skógræktarmálið!