Lögberg-Heimskringla - 13.01.1966, Síða 6

Lögberg-Heimskringla - 13.01.1966, Síða 6
6 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 13. JANÚAR 1966 GUÐRÚN FRA LUNDI: ! Tengdadóttirin Skáldsaga | 1 ' ■ =s=» Seinna um kvöldið, þegar verið var að drekka kaffi, braut Sigurfljóð upp á nýju umtalsefni: „Ekkert skil ég í því, að annar eins búmaður og hann faðir þinn skuli halda svona margt vinnufólk — tvær vinnukonur, vinnumann og þig. Það þarf svei mér eitt- hvað til að gjalda því“. „Það ganga alltaf þrjár stúlkur að útivinnunni“, sagði Hjálmar. „Við höfðum kaupa- konu í vor og sumar“. „Þetta er svoddan skepnu- fjöldi hjá ykkur, að það veitir sjálfsagt ekki af“, sagði gamli bóndinn. „Það segir Gísli á Sviðningi, að þið skiptið aldrei um hjú. Þau hreyfi sig ekki frá Hraunhömrum fyrr en þau séu flutt burtu dauð“, sagði Sigurfljóð. „Það er eitthvað satt í því, sem hann segir. Vinnumaður- inn og vinnukona, sem dó í fyrravetur, voru búin að vera þar síðan í tíð afa míns“. Sigurfljóð skellihló. „Þau hljóta að hafa verið komin til ára sinna, þykist ég vita, og líklega lítið lið að þeim til vinnu“. „Hann var ungur maður, þegar pabbi tók við búinu, og er því vel vinnufær ennþá. Fer alltaf til sjós á haustin, og ég býst við, að hann vinni þar ekkert síður en þeir, sem yngri eru“, svaraði Hjálmar. „Ég þarf að læra af ykkur, hvernig á að verða vinnu- fólkssæl“, sagði Sigurfljóð. „Hér er þetta bölvað los á vinnulýðnum. Pabbi er í vandræðum með að ná í karl- mann sumar og vetur. Við erum nú orðnar þrjár stúlk- urnar, svo að hann þarf ekki að basla við að höndla kven- fólkið, en hann getur ekki hirt einn yfir veturinn. En nú er Andrés að komast upp — þá fer þeirri plágunni að létta af okkur“. „Hvenær svo sem heldurðu að sá drengur verði til ein hvers gagns“, sagði bóndi kuldalega, „sísofandi nótt og nýtan dag‘, bætti hann við. „Svo er dóttir Gísla hjá ykkur“, hélt Sigurfljóð áfram. „Og það sem meira er, hann er ánægður yfir því, hvernig henni líði“. „Hún er unglingur, mesta dugnaðarstelpa“, sagði Hjálm- ar. „Svo er strákangi hjá okk- ur, sem Gísli á líka. Hann er þægur og duglegur eftir aldri“. „Einmitt það, en við höfum oftar en einu sinni beðið Gísla um ungling, en það er ekki mögulegt að fá hann til þess“, sagði Hermann bóndi. Næsta morgun, þegar Hjálmar vaknaði, voru stokk- freðnir gluggar. Honum þótti ekkert að því og hallaði sér út af aftur. Varla færi hann að herfa frosið flagið með þróttlitlu, hægfara vinnu- félögunum, sem hann var orð- inn uppgefinn á fyrir löngu. Rétt á sömu stundu kom Sig- urfljóð inn með morgunkaffið og bauð góðan daginn. „Nú er þó heldur skipt um veður — komið svona mikið frost“, sagði hún og settist á sama stólinn og hún hafði set- ið á morguninp áður. „Von- andi verður það ekki lengi. Ég get ekki hugsað til þess að flagið verði ekki drifið af fyr- ir veturinn“. ' „Veturinn er nú kominn fyrir þó nokkru“, sagði Hjálm- ar, „og líklega verðurðu að láta í minni pokann fyrir hon- um í þetta skipti". „Þá verð ég ekki róleg. Mér finnst nefnilega ómögulegt að geta ekki komið því í fram- kvæmd, sem ég hef ætlað mér“, sagði hún og svipur hennar varð ýrður. „Svei mér ef það er ekki til skammar að ætla þér að drekka kaffið í þessum bölvuðum kulda — kjánaskapur að láta ekki stelpuna leggja í ofninn fyrst“. „Ósköp heldurðu að ég sé vesæll, ef ég gæti ekki drukk- ið kaffið, þó að glugginn sé hélaður“, sagði Hjálmar. „En hitt verða margir að þola, að fá því ekki framgengt, sem þeir ætla sér“, bætti hann við. „Er því kannske þannig far- ið með þig? Eitthvað, sem ykkur feðgunum ber á milli, þykist ég vita. Segðu mér hvað það er. Ég er forvitin, en ekki lausmálg“, sagi hún. „Mig hefur frá því fyrst, er ég var að lesa íslendinga- sögurnar, langað til að sjá mig um í heiminum — helzt að fara til Noregs, en það er ekki við það komandi hjá pabba“, sagði Hjálmar. „Ég vissi, að það var eitt- hvað, sem þér gengur á móti. Hvað segir mamma þín um það?“ sagði Sigurfljóð. „Hún náttúrlega kysi helzt að hafa mig heima. Annars vill hún greiða friðsamlega úr hverri snurðu, sem hleypur á þráðinn milli okkar föður míns. Helzt að allt sé látið vera eins og pabbi vill“. Hún sat brosleit og hugs- andi, meðan hann drakk úr bollanum. Svo varpaði hún fram svo stórkostlegu skota- boði, að hún dreyrroðnaði við að koma því út fyrir varirnar: „Á ég að tala við pabba þinn fyrir þína hönd? Ég er nærri viss um, að ég get haft áhrif á hann“. Hann hristi höfuðið: „Nei, þakka þér samt fyrir. Það er langbezt að það sé einvígi milli okkar. Ég ætti ekki að þurfa liðsauka frekar en hann“. Hún tók bakkann og fór fram, en hann fór að klæða sig. Hann þýddi gluggann til að gá til veðurs. Útlitið var kuldalegt. Snjóhvítir skýja- klakkar þeyttust um vestur- loftið og hríðarél gengu yfir fjallgarðinn í norðri. Og þarna var aumingja litla telpan að rogast með tvær öskufötur niður túnið, ber- hent og skýlulaus. Ósköp var ömurlegt að eiga enga mömmu. Sjálfsagt væri engin móðir svo hirðulaus að láta barnið sitt vera úti svona fá- klætt. Reyndar vissi hann það ekki. Hann hafði séð svo ótrú- lega litla rönd af heiminum — þekkti enga móður, nema sína blíðlyndu, umhyggju- sömu mömmu og Höllu, móð- ur Kötu litlu. Hún hefði sjálf- sagt verið góð við dóttur sína, ef þess hefði þurft með, en Gunnhildur hafði hugsað um hana eins og hún væri henn- ar barn. — Þarna setti litla stúlkan niður föturnar og stakk höndunum í handar- krikana til að fá yl í þær. í sama bili geystist sú fyrirferð- armikla húsmóðir út á hlað og kallaði svo hátt, að hvert mannsbarn á heimilinu hefði vaknað, ef svefntími hefði verið: „Ella, Ella! Þu verður að fara með öskuna alla leið ofan í ræsið — þángað, sem þú fórst um daginn. Flýttu þér nú, skinnið mitt, það er bara kalt“. Seinustu orðin sagði hún við SiguHljóð, sem birtist þarna allt í einu í ermalausum, ljósleitum sirs- kjól, berhöfðuð með aðra hár- fléttuna upprakta og greidda. Hárið breiddist eins og rauð bylgja um axlir hennar og bak og niður fyrir mitti. Hann hafði oft dáðst að hárinu á mömmu sinni, hrafnsvörtu og miklu, en af þessu hári gat hann ekki orðið hrifinn. Lík- lega stafaði það af því, að Vigga gamla hafði haft svo mikla andúð á öllum, sem rauðhærðir voru. Hún sagði, að þeim manneskjum væri ekki treystandi. Hún þóttist geta séð það á baksvipnum á fólki, hvort fyrir því lægi lán eða ólán, auðlegð eða fátækt. Hún hefði sjálfsagt sagt, að Sigurfljóð hefði fátæklegan baksvip. Svo. sagði hún um axlalítið og grannholda fólk. Meiri hjátrúin það! Þó hafði hann haft gaman af því að hlusta á rausið í henni. Hann færði sig frá gluggan- um og hélt áfram að klæða sig, og hugsaði til þess með ánægju, að næstu nótt svæfi hann heima. Hann hlakkaði til að sameinast þögninni og til- breytingaleysinu aftur. Sigurfljóð stóð í bæjardyr- unum, þegar hann kom fram. „Ertu nú staðráðinn í að yfir- gefa mig í dag?“ spurði hún og hló glettnislega. „Hvað er um annað að gera? Nú er komið grimmdar- frost“, svaraði hann. „Ætlarðu ekki Hvarfdalinn? Það er svo mikið styttra en að fara aðra hvora hina leið- ina?“ „Ekki einu sinni þó að ég fylgdi þér?“ „Nei, þrátt fyrir þó að þú færir með mér, en slíkt held ég mér þætti hálfvesalmann- legt, að láta kvenmann fylgja mér“, sagði hann. „Það er þó betra en að vill- ast“, sagði hún. „Það kemur ekki til þess. Ég legg strax af stað, svo að ég hafi dagsbirtuna norður í skarðið. Úr því rata ég“. „En þú ferð þó ekki fyrr en þú hefur borðað“. „Jú, nú fer ég strax“, sagði hann og tók beizlin, sem alltaf höfðu hangið í dyrunum, og fór að sækja hestana. Hún beið hans í bæjardyr- unum, en hafði klætt sig í peysu. „Er þér alvara að fara matarlaus?“ spurði hún. „Ég hef enga lyst á mat, ný- búinn að renna niður kaff- inu“, svaraði hann og fór að leggja hnakkinn á Jarp. „Faðir þinn á fallega hesta. Ég sé að þú átt það líka“, sagði hún. „Já, hann er hestamaður og fer vel með þá“. „En móðir þín?“ „Alveg gagnstætt — hún vildi helzt komast hjá að fara á hestbak“, sagði Hjálmar. „Hvað er það, sem hugur hennar hneigist til — aðeins búsýslunnar?“ Það er ekki ólánsmaður, sem enginn hefir ilt af. Wliy wait for s|irin«| ? Onawr! The wise ones take advantage of winter. Skilled men are more readily available in the wintertime—ready to do your repairs and * renovations when you want thðm. Materials are in generous supply too, and your renovation budget will often go further in winter, thanks to off-season discounts and extended payment plans. You'can borrow up to $4,000 with up to ten years to repay, at low interest rates, with a government- sponsored NHA Home Improvement Loan from your bank. If you're the owner of a small business, then you may take advantage of special Small Business toans available at your bank. And farmers can qualify for up to $15,000 with ten years to repay with a Farm Improvement Loan. So you see, there are a whole lot of very good reasons why you should have thaf work done around your home or place of business during the winter. Do it now! Everybody benefits.when winter work is increased For advice and assisfance call ýour Nationa! Employment Oífice. DIN-166D

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.