Lögberg-Heimskringla - 01.10.1970, Blaðsíða 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 1. OKTOBER 1970
7
Fréttir frá fslandi
Framhald af bls. 3.
Nýja hótelálman er reist
við suðurenda núverandi hót-
els félagsins og liggur sam-
síða skrifstofubyggingu þess,
þannig að heildarbyggingin
myndar nú skeifu um bíla-
stæðin.
Kristj án Guðlaugsson,
stjórnarformaður Lofltleiða,
skýrði frá því á fundi með
fréttamönnum í gær að mikið
vantaði upp á, að félagið gæti
nú annað eftirspurn ferða-
manna eftir hótelrými auk
þess sem eldhús og vélakost-
ur þess hótels, sem nú er, geta
þjónað mun stærra hóteli.
Vegna þessa var ráðizt í
stækkun hótelsins, sem nú er
vel á veg komin.
40% AUKNING
í UTANFERÐUM
ÍSLENDINGA
Um 15000 Islendingar hafa
komið heim til íslands það
sem af er árinu úr ferðalög-
um erlendis og er það um
40% aukning í utanlandsferð-
um íslendinga miðað við síð-
asta ár. 53 þúsund útlendingar
hafa ferðazt um landið það
sem er af árinu og er það um
að ræða 25% aukningu frá
síðasta ári.
NÚ STENDUR yfir undir-
búningur að stórfelldri virkj-
unarframkvæmdum á íslandi
en áður eru dæmi um. I vet-
ur verða lögð fyrir Alþingi
heimildarfrumvörp um stór-
virkjanir í Sigöldu og Hraun-
eyjafossum og um smærri
virkjanir við Lagafoss og í
Svartá. Ennfremur er unnið
að athugunum á stórvirkjun-
um á Austurlandi en í Jök-
ulsá á Fljótsdalshéraði er
mögulegtn að byggja 300 MW
virkjun. Þá standa yfir athug-
anir á byggingu álvers á
Norðurlandi og hugsanlegri
Dettisfossvirkjun í því sam-
bandi. Ennfremur er nú í
undirbúningi ný áætlun um
að ljúka raflýsingu dreifbýls-
ins.
KENNSLUBÓK
í ÍSLENZKU
Kennslubók í íslenzku
handa framhaldsskólum eftir
Skúla Benediktsson kennara
er nýkomin út. Útgefandi er
Kvöldvökuútgáfan á Akur-
eyri, en prentun bókarinnar
hefur Borgarprent í Reykja-
vík annazt. í formála segir
höfundur á þessa leið m.a.:
„Efni þessarar bókar hef ég
miðað við þær kröfur, sem
eðlilegt telst, að gerðar séu
í framhaldsskólum, einkum
þeim er búa nemendur undir
landspróf, miðskóla og gagn-
fræðapróf. Þó hef ég einnig
haft hliðsjón af námsefni í
framhaldsdeildum gagnfræða-
skóla og fyrstu bekkjum
menntaskóla.“
„Bók þessi er fyrst og
fremst samin sem kennslu-
bók. Þá vetur, sem ég hef
kennt málfræði og setninga-
fræði, hef ég notað setninga-
fræði Björns Guðfipnssonar,
en sótt þó efni í setningafræði
Halldórs Halldórssonar, eink-
um það er varðar hin ná-
kvæmari skilgreiningaratriði.
Við samningu þessarar bókar
hef ég því stuðzt við þá
reynslu, er ég hef fengið við
að kenna bækur þeirra Hall-
dórs og Björns.“
„Þau skil, sem einatt eru
gerð milli málfræði og setn-
ingafræði, eru bæði röng og
villandi. Ég hef leitazt við að
tengja þessa tvo þætti móður-
málskennslunnar, enda verða
þeir ekki a ð s k i 1 d i r við
kennslu, svo að nokkurt verk-
lag megi heita.“
„Þótt ég fari lítt nýjar leið-
ir, leitast ég þó við, meir en
gert hefur verið að benda
nemendum á gildi málfræði-
námsins, en fræðsla um lög-
mál tungunnar verður ekki
skilin frá bókmenntakennslu.
Einnig fer ég að nokkru nýj-
ar leiðir um val verkefna.
Mörgum æfingaköflum fylgir
lausavísa. Er það gert til þess
að glæða áhuga nemenda á ís-
lenzku ljóðformi. Reynsla mín
er sú, að nemendurnir hafi nú
engu minni áhuga á og án-
ægju af braglist en áður var,
— aðeins ef athygli er vakin
á henni.“
630> )l
Announcing
a price
increase on
speeding
tickets.
(wíththe hopes
that peoplewon’t
want as many)
To protect the good drivers from the bad drivers
we re raising the price ot speeding and careless
driving fines. With speeding tines. the faster yoo
go, the more it'll cost.
speed over limit fine per mile per hour over limit
1 to 10 m.p.h. 53
11 to 19 m.p.h. TZ
20 and over m.p.h T5
Which means if you do 40 m.p h. In a 30 m p.h.
zone, you pay $30. If you do 45 m.p.h. you pay
$60. If you do 50 it'tl cost $100. But that's not all.
If it's your first speeding offense, your license can
be taken away for three months. If you're a repeater,
it can be taken away for a year.
Now about careless driving. The minimum fine
used to be $10.
Now $50 is the minimum and $200 is the maximum. In
addition, your license could be suspended for a year and
you could go to jail for up to three months.
For a long time, careless drivers and speeders havc been cost-
ing a lot of money and lives.
it's going to start costing them money.
Quite a bit of it.
To protect the good drivers from the bad drivers.
THE GOVERNMENT OF MflNITOBA
DEPARTMENT OF TRANSPORTATION
MOTOR VEHICLES BRANCH
Good roads.Good drívers.
Wé’re working on both.
Það gildir einu hver á bílinn, hann verður
tekinn af þér ef akstursleyfi þitt hefir verið af-
numið. Ef þú átt hann, verður hann í löghaldi í
3 mánuði. Ef einhver annar á bílinn verður hann
í löghaldi í tvær vikur nema ef eigandinn getur
sannað að hann hafi ekki vitað að leyfi þitt var
afnumið.
Keyrðu ekki bíl án leyfis. Athugaðu leyfi fólks
áður en þú lánar því bíl þinn; annars áttu á hættu
að tapa bíl þínum. Við verðum að taka hættulega
keyrslumenn af vegunum, jafnvel þótt við verðum
að leggja löghald á bíla.
THE GOVEfíNMENT OF MANITOBA
DEPAfíTMENT OF TfíANSPOfíTATIQN
MOTOfí VEHICLES BfíANCH
Góðir vegir. Góðir bílstjórar.
Það er okkar takmark.