Lögberg-Heimskringla - 12.04.1973, Síða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 12. APRÍL 1973
3
Richard George Vickerson
lézt 5. marz 1973, í Grimsby,
Ont., 74 ára að altlri.
Hann ólst upp í Winnipeg,
og þjónaði í Kanada hemum
í fyrri heimsstyrj öldi nni. Eft-
ir stríðslok var hann starfs-
maður Royal Bank of Canada
um árabil, en tók síðan stöðu
á borgarskrifstofunum í Win-
nipeg og þjónaði þar unz hann
9agði sig frá starfi árið 1963,
og flutti til Grimsby með
konu sinni.
Auk eiginkonunnar, Gladys
Jean, syrgja George þrjár
systur, Soffía (Mrs. Albert
Wathne), Valgerður (Mrs.
Harry Steel, og Miss Thordis
Vigfusson allar í Vancouver,
B.C.; þrjár systradætur, Mrs.
Ethöl Post í Vancouver, Mrs.
Gordon Donaldson í Concord,
Mass., og Miss Ruth Steel í
Cambridge, Mass., einnig þrír
náfrændur, Vigfús Pálsson í
Vancouver, Dr. Richard Beck
í Victoria, B.C., og J. Th. Beck
í Winnipeg.
Hinn látni var jarðsettur í
Wawota, Sask.
t
Hinn 16. janúar s. 1. andað-
ist í Los Angeles Gunnar
Matihíasson, sonur þjóð-
skáldsins alkunna, séra Matt-
híasar Jochumssonar og konu
hans, Þóru frá Skógum.
Hann var fæddur á Odda í
Eyjafirði. Þar ólst hann upp
til 16 ára aldurs. Víkingseðlið
og ævintýraþráin var Gunn-
ari í blóð borin. Hann vildi
kanna nýjar leiðir og kynnast
af eigin raun hinum stóra
heimi. Þess vegna kvaddi
hann aðeins sextán ára gam-
all land sitt og þjóð og hélt
vestur um haf. Gunnar vann
fyrst eftir að hann kom vest-
ur um haf á bóndabýli í Ar-
gyle, Kanada. Þar kynntist
hann sinni ágætu konu Guð-
nýju. Voru þau gefin saman í
hjónaband árið 1905 og fluttu
þá til Seattle. í heimskrepp-
unni illræmdu árið 1930 tap-
aði Gunnar, eins ög margir
fleiri, öllum sínum eignum og
flutti þá til Los Angeles ásamt
fjölskyldu sinni, og þar átti
hann heima þar til yfir lauk.
Gunnar lætur eftir sig konu
sína, Guðnýju, þrjár dætur,
Elínu, búsetta í Seattle, Helen
og Þóru, til heimilis í Los
Angeles, og einn son, Árna,
sem búsettur er í Los Angeles,
ennfremur hóp barnabarna og
annarra ættingja. Þessa mæta
manns verður nánar minnst
síðar.
t
Emel Johnson lézt 7. marz
1973, á sjúkrahúsinu í Glen-
boro, Man. Auk eftirlifandi
eiginkoriu, Sigrúnar V. John-
son, lifa Emel einn bróðir,
Peter Johnson í Sel'kirk og ein
systir, Mrs. Freda Boyd í Van-
couver. Hann var jarðsunginn
frá Brú lútersku kirkjunni í
Cypress River, Man.
Dánarfregnir
•t.
i
Mrs. Thorunn Guðlaug Lin-
dal lézt snögglega 15. marz
1973, á heimili dóttur sinnar
að Vidir, Man. Hún var 83 ára
að aldri.
Hún var fædd að Garðar,
North Dkota, en fluttist með
foreldrurri sínum í byggðina
við Morden, Man., árið 1898.
Árið 1906 giftist hún Jacob
Johnson. Þau festu sér heim-
ilisréttar jörð við Sylvan,
Man., árið 1913 og stunduðu
þar landbúnað. Mann sinn
missti Thorunn árið 1942, og
tveim sonum varð hún að sjá
á bak, Jóhanni árið 1968 og
Jonathan 1972.
Hana lifir ein dóttir, Lóa
. (Mrs. Roy Thompson) að Vid-
' ir og þrír synir, Joseph og
Siggi að Sylvan Lake og Oli
í Árborg, Man.; fimm systur,
Mrs. Guðný Thomasson og
Mrs. Kristjana Nicklin í Moz-
art, Sask.; Mrs. Freda Lindal,
Mrs. Jona Johnson og Mrs.
Lena Isaacson í Morden.
Barnábörnin eru 14, barna-
barnabörnin fjögur.
Kveðjumál flutti séra Ro-
bert Byhre í samkomuhúsinu
að Vidir, en hin látna var
jarðsett í grafreitnum í Syl-
van.
t
Krisiján Sigurður Halldórs-
son lézt 20. marz, 1973 á Mis-
ericordia sjúkrahúsinu í Win-
nipeg, eftir langvarandi van-
heilsu.
Hann var fæddur að Vidir,
Man., var starfsmaður C.N.R.
járnbrautarfélagsins í 21 ár
og búsettur í Winnipeg, en lét
af starfi árið 1972.
Auk eftirlifandi eiginkonu
Lóu, lætur hann eftir sig tvo
syni, Krstján Cardinal í Ed-
monton og Gísla Thorberg í
Winnipeg; tvær dætur, Yv-
onne (Mrs. A. Paizen) í Winni-
peg og Betty (Mrs. M. Thom)
í Winnipeg. Barnabömin eru
sex, og fjórar systur lifa hann,
Mrs. J. Ásgeirsson í Victoria,
B.C., Mrs. A. G. Bardal í Win-
nipeg, Mrs. M. Eastman í Tor-
onto og Mrs. E. Hammil í Flin
Flon, Man. Einnig lifir hann
einn bróðir, Thorbergur í
Winnipeg. Ein systir, Mrs.
Guðfinnu Rutherford er látin.
Séra J. V. Arvidson flutti
kveðjumál í útfararstofu Bár-
dals, en hinn látni var borinn
til grafar í Brookside graf-
reitnum í Winnipeg af Cardy
Halldórsson, Thor Halldórs-
son, Mike Thom, Alex Paizen,
Kevin Jonasson og Doug
Saunders.
t
Ámundur R a f n Goodman
lézt 20. marz 1973, á sjúkra-
húsinu í Pine Falls, Man., 49
ára að aldri.
Hann var fæddur í Mozart,
Sask., starfaði við C.N.R. járn-
brautina í meira en 30 ár og
þ j ó n a ð i erlendis í Kanada
hernum í seinni heimsstyrj-
• Business and Professional Cards •
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI
Forseti: SKOLI JÓHANNSSON
587 Minto Street, Winnipeg, Manitoba R3G 2R2
StyrkiS félagið með því að gerast meðlimir.
Ársgjald — Einstaklingar $3.00 — Hjón $5.00
Sendist til fjármálarilara
MRS. KRISTIN R. JOHNSON
1059 Dominion St., Winnipeg, Manitoba R3E 2P3
Phone: 783-3971
öldinni. Hann lætur eftir sig
einn son, Roger.
Fjórar systur lifa hann,
Mrs. John Fortney að Inwood,
Man., Mrs. Hugh Carey í Ter-
race, B.C., Mrs. Albert Bollen-
bach í Winnipeg og Mrs. Cliff
Neilson í Vancouver; tveir
bræður, Eythor í Narcisse,
Man., og Alvin í Teulon, Man.
Kveðjumál flutti séra J. V.
Arvidson í útfararstofu Bár-
dáls, en hinn látni var jarð-
settur að Lundar, Man.
Harold Oddleifson lézt 20.
marz 1973, í Dryden, Ont., 44
ára að aldri.
Hann fæddist í Árborg,
Man., og hlaut menntun sína
þar, en fluttist til Dryden fyr-
ir 15 árum og starfaði við
Dryden Paper Company upp
frá því.
Hann lætur eftir sig móður
sína, Mrs. Minnie Oddleifson
í Árborg, tvær systur, Mrs.
Walter Melnyk og Mrs. Dóri
Sigvaldason í Winnipeg, tvær
systradætur og fjóra systra-
syni. Faðir hans lézt árið 1968.
f
Solvin S. (Wayne) Johnson,
sonur Mr. og Mrs. Björn John-
son í Riverton, Man., lézt 21.
marz 1973, á Misericordia
sjúkrahúsinu í Winnipeg, 22
ára að aldri.
Wayne var fæddur og upp-
alinn í Riverton, en hafði ver-
ið starfandi hjá Calvert of
Canada á Gimli, Man., undan-
farin rúmlega þrjú ár. Auk
foreldranna s y r g j a hann
Cindy systir hans, bróðir hans
og mágkona, Emil og Karen
í Winnipeg.
Hann var jarðsunginn af
séra R. Kirkwood frá River-
ton-Hnausa lútersku kirkj-
unni og greftraður í grafreit
byggðarinnar.
t
Guðni Backman lézt snögg-
lega 26. marz 1973, á Winni-
peg General Hospital í Winni-
peg, 81 árs að aldri.
Hann var fæddur að Otto,
Man., ólst upp í Lundarbyggð-
inni og stundaði þar landbún-
að þartil hann flutti til War-
ren, Man., árið 1963.
Auk eftirlifandi eiginkonu,
syrgja hinn látna sex synir,
Harold að Lundar, Hjörtur,
Kristján, Winston og Earl í
Winnipeg, Charles í Arvida,
Quebec; þrjár dætur, Clara
(Mrs. W. Foster) á Lundar,
Mrs. Elinor Byron á Lundar
og Dorothy (Mrs. D. K. Hunt-
er) í Virden, Man. Bamabörn-
in eru 18, barna-bamabörnin
9. Hann var jarðsunginn frá
lútersku kirkjunni á Lundar
af séra H. K. Reitze, og jarð-
settur í grafreitnum á Lund-
ar.
Building Mechanics Ltd.
Pointing • Dccoroting - Construction
Rcnovating - Reol Estate
K. W. (BILL) JOHANNSON
Manager
910 Palmerslon Ave.,
Winnipeg R3G 1J5
ICELAND ■ CflLIFORNIA C0.
Bryan (Brjann) Whipple
Import and Sale of Icelandic
Woolens, Ceramic, Etc.
1090 Sonsome, Son Francisco CA94111
Wanted for cash: Older
lcelondic Stamps and Envelopes