Lögberg-Heimskringla - 25.10.1973, Blaðsíða 3

Lögberg-Heimskringla - 25.10.1973, Blaðsíða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 25. OKT15BER 1973 3 LÍFIÐ ALLT ER MATUR • Business and Professional Cards • ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI Forseti: SKÚLI JÓHANNSSON 587 Minto Streel, Winnipeg, Manitoba R3G 2R2 Styrkið félagiS með því að gerast meðlimir. Ársgjald — Einsiaklingar $3.00 — Hjón $5.00 Sendisl til fjármálaritara MRS. KRISTIN R. JOHNSON 1059 Dominion St., Winnipeg, Manitoba R3E 2P3 Phone: 783-3971 Manneskja fæðist grátandi og huggast ekki fyrr en hún fær að borða, lætur svo ekk- ert til sín heyra fyrr en hún fer aftur að æpa eftir nær- imgu. Fyrstu vikur ævinnar er lífið svo ekki annað en át á milli dúra, og þó mörgu öðru sé að sinna þegar menn fara að eldast, mun því ekki að neita að flest viðfangsefni lífs- ins snúist um mat. Hann er erfiði og yndi lífsins, og senni- lega hefir ekki meiri kröftum og hugviti verið varið til ann- ars en að afla sér matar, né anrnað veitt mönnum meiri fullnægju en það að borða góðan mat eftir ríkjandi tísku siðaðra manna. Því er manneskjan líklega hvergi betur skráð en í mat- reiðstlUbókum. Það ætti að vera gott safn af þeim í hverju einasta eldhúsi, og í eldhús- unum ætti að vera einn ruggu- stóll en ekki fleiri, svo að hús- móðirin sjálf geti sitið í róleg- heitum og stúderað, með kött- inn í kjöltunni, á meðan mat- urinn mailar á eldastónni. En hvað er orðið af eldhús- unum, sem rúmuðu konu, kött og ruggustól? Hvað er orðið af ruggustólunum og köttun- um, sem áttu sér rjóma í skál fyrir aftan eldastóna? Hvað er orðið af lifrapylsunni sem hver kona gat búið til úr höfð- inu á sér, og hvað er orðið af grjónamjólkinni, sem gaf kon- um tíma til að lesa matreiðslu- bækur á meðan hún mallaði á stónni. Þetta er allt komið . . . jæja, út í veður og vind, eða þá þangað sem enginn vill fylgja því. Nú eru eidhúsin orðin að gluggalausum krókum, þar sem staðið er upp á endann á meðan pakki er tekinn ofan af hillu, lesið utan á honum, helt úr honum í pott, hrært í og kallað á fólkið í matinn. Allt gengur þetta fljótara, en það gekk í gamla daga að standa upp úr ruggustólnum, hella kettinum úr kjöltunni og skammta fólkinu grjóna- mjólk með lifrapylsu. Ekki þarf heldur mikið að hafa fyrir þessum frosnu mál- tíðum. Það versta við þær er, að þó fljótlegt sé að þýða úr þeim klaikann og vel'gja þær upp í ofninum, er þó enn fljót- legra að torga þeim. Ekki hef- ir enn tekist að koma með svo stuttan þátt í sjónvarpinu, að ekki sé eitthvað eftir af hon- um þegar þessum máltíðum er lokið. Það er eiginlega ekki um annað að ræða nú á dög- um en að soga í sig næring- una, eins og blóm soga í sig vítamínið, sem iátið er í vatn- ið handa þeim. Hún hefir lagt sig vel fram, þessi aldurhnigna öld okkar, til að flýta fyrir matargerð, og gera borðhald manna nærri því fyrirhafnarlaust. Maður þarf ekki einusinni að tala saman. Sjónvarpið sér um sel- skapinn. Það liggur við að manni gleymist hve margir helguðu al'lt sitt líf matnum í gamla daga. Þá er holt að grúska í gömlum matreiðslu- bókum. Þær fræða mann um liðna tímann. „Kvennafræðarinn, sem fyrst var gefin út á Islandi fyrir hartnær tveim öldum, hefir sitt að segja um heimilishald. Útgáfan frá 1906 segir fyrir um hve oft eigi að skúra eld- húsgólf og veggi. Það stóð heima að eldhúsið, húsfreyjan og atlt heimilisfólkið fékk hreingemingu einusinni í viku. Matreðslubók Mrs. Beet- on, sem gefin var út sama ár á Englandi, ber saman um hve oft konur eigi að fá sér bað. Einu sinni í viku, og það er nóg, segir þar. Það var heldur ekki hlaup- ið að því að baka kökur eftir gamla „Kvennafræðaranum.“ En þar er sagt til um hvemig eigi að fara að höggva stykki af sykur toppnum og merja það í duft með kökukeflinu, áður enn byrjað var að setja saman kökurnar. En haldið þið að það hafi tekið sinn tíma að matreiða dagsskammtinn af fæðu eftir fyrirsögn Mrs. Beeton á Eng- landi. Haniingjan veit hvenær farið var á fætur, en húsmóð- irin hefir verið fyrst allra úr rúminu, það er víst. Morgun- 9katturinn hjá henni var stór síld, grautur með skyri og mjólk, smurt brauð og heitt kaffi. Um miðjan dag átti að bera fram flóaða mjólk, brauð og smjör, sardínur og sæta sultu. Kvöldmaturinn var sauðakjötssteik, steiktar kart- öflur og heitt te. En svo fannst Mrs. Beeton rétt að breita út- af, svo fólk missti ekki lyst á morgunmatnum, og þá ráð- lagði hún kaffi og te, heita og kailda mjólk, steikta síld og 9oðin ným. En ef hún hafði næturgest, átti að færa hon- um matinn í bólið, og þá helzt úrvals fiskmeti, eins og fín- asta sikelfisk og steiktamn kola, hænsnakjöt í h 1 a u p i, kalt reykt svínakjöt, lambsným, „bacon“ og egg, jarðarber og önnur aldini, heitt kaffi eða te. Sjálfsagt hefði hún ekki gert svona ríkmannlega við gesti sína, hefði ekki verið örðugt um að aldamótafólk hafi haft hreysti til að komast úr rúmunum, þó það þyngdi á sér m e ð svonalöguðum morgunmat. Ætli það væri reynandi nú á dögum að prófa hvemig steiktri síld, lamba nýrum og hafragraut með púðursykri og mjólk kemur saman í sömu máltíð snemma morguns. Mig minnir að steikt slátur með púðursykri og grautar úr möl- uðu hveiti hafi átt vel saman í sinni tíð. En svo kemur þetta ekkert þeim við sem verið er að mat- reiða ofan í. Það er umstang- ið við matartiltoúninginn, sem hér á að koma við sögu. Hús- móðirin mátti standa eða sitja yfir matnum á meðan hann var að breytast úr hráefni í borgrétt. Og það gat tekið sinn tíma að bíða þess að eld- urinn í stónni yrði nógu magnaður til að steikja síld og sjóða eða steikja nýra. Svo segja gömul ummæli að í f y r s t u útgáfunni að mat- reiðslubók Mrs. Beeton hafi hún farið fögrum orðum um gæsasteik, og látið þess getið að fyrst þyrfti húsfreyja að elta uppi gæsina, stúta henni og reita, hreinsa vel kollinn, innyflin og lappirnar, sjóða af þeim súpu í hádegismatinn og steikja svo gæsina til kvölds- ins. Þetta er samt ekki full- sönnuð saga, því fyrsta útgáfa bókarinnar er uppseld fyrir löngu, og fræðimönnum láðist að geyma framtíðinni eintak af henni. Satt að segja þurfti krafta í kögglum og andans orku til að matreiða ofan í stóra fjöl- skýldu í gamla daga. Þá þurfti að skipuleggja dagsverkin svo að tími yrði afgangs til að standa yfir pottunum, tímum saman og hræra í. Svo þurfti að slá og hnoða, breiða út, krydda, hræra í á ný, smakka á og standa vakt. Stundum gátu áhyggjumar, stritið og ánægjan af öllu þessu tekið upp allan daginn. Og sá dagur átti ekki annarsstaðar heima en í sólbjörtu eldhúsi með ruggustól og ketti. En svo er það bót 1 máli að konurnar, sem nú á dögum vinna á verkstæðum við að fylla pakka með skyndimat af öllu tagi, fá fárra mínútna frí til að spæna skyndikaffi úr glerkrúsum, hella upp á boll- ana sína og sopa seyðið. Skrýtla Það er best að kalla Island „Iceland“ í skrítlunni, sem Jón sonur Garðars prentara kom með hingað frá Ástra- líu. Börnunum er boðið að senda skrýtlur í bamaþátt er birtist í sjónvarpinu þar. — „Ef móðirin er frá Iceland og faðirinn frá Cuba,“ sagði einn krakkinn, „verður barn- ið þeirra Icecube." íslenzk frímerki og jólamerki í miklu úrvali. Skrifið og leitið upplýsinga hjá S. Björnsson. Box 17, Kópavogi, Iceland Building Mechanics Ltd. Pointing - Decoroting - Construction Renovoting - Reol Estote K. W. (BILL) JOHANNSON Manager 910 Palmerslon Ave., Winnipeg R3G 1J5 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur líkkistur og annast um útfarir. Allur útbúnaður sá bezti StofnaS 1894 774-7474 Goodman and Kojima Electric Electricol Controctors 640 McGee Street, Winnipeg, Manitoba R3E 1W8 Phone: 774-5549 ARTHUR GOODMAN M. KOJIMA Evenings and Holidays 774-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-roof, Aspholt Shingles. Roof Repoirs, Install Vents, Insulation ond Eovestroughing. 774-7855 632 Simcoo St.# Winnipog 3, Mon. Selkirk Funeral Chapel Ltd. Director: GARTH CLARY Licensed Embolmer Serving Solkirk ond Interloke orees Ambulonce Service Coll Selkirk Phone 482-6284 Collect 209 Dufferin Ave., Selkirk, Mon. S. A. Thorarinson Borrister & Sollcitor 708 SOMERSET PLACE 294 PORTAGE AVE. R3C 0B9 Office 942-7051 Residence 489-6488 Skúli Anderson Custom Jeweilerv Eneraver. 207 PARIS BLDG. 259 PORTAGE AVE. Office: 942-5756 Home: 783-6688 Oivinsky, Birnboim & Company Chartered Accountants 228 Nolre Dame Avenue, 300 Lindsay Building, Winnipeg, Manitoba R3B 1P2 Telephone: No. 943-0526-7-8 effective July 3. 197? INNER-CITY ELECTRIC Electricol Controctors Residentiol - Commerciol Industriol Wiring Phone 475-S212 LAWRENCE JOHANNSON WINNIPEG ICELAND - CALIFORNIA C0. Bryon (Brjonn) Whipple Impori and Sale of Icelandic Woolens, Ceramic, Eic. 1090 Sonsome, Son Froncisco CA94111 Wanted for cash: Older lcelandic Stamps ond Envelopes TALUN, KRISTJANSS0N KLEIN & SMITH Borristen h Soliciton 3rd Floor, 232 Portage Avenue, WINNIPEG, MANITOBA R3C 0B1 The Weslern Paint Co. Ltd. 521 HARGRAVE ST. WINNIPEG “THE PAINTERS’ SUPPLY HOUSE” SINCE 1908 943-7395 J. SHIMNOWSKI, President A. H. COTE, Treosurer Minnist BETEL í erfðoskrám yðar Benjaminson Construction Co. Ltd. 1425 Erin Street, Winnipeg 3, Ph: 786-7416 GENERAL CONTRACTORS E. BENJAMINSON, Manager AL THORGEIRSON PHOTOGRAPHY 6 Ascot Boy, Winnipeg, Man. R3R 0X4 PHONE 889-1772 CANDID WEDDINGS, PASSPORT PHOTOS, COMMERCIAL Portraitt of Family Groupt In Your Home Asgeirson Paints & Wallpapers Ltd. 696 Sargent Avenue Winnipeg 3, Manitoba PAINTS Benjamin Moore Sherwin Williams C.I.L. HARDWARE GLASS & GLAZING WOOD & ALUMINUM WALLPAPER Phones: 783-5967 — 783-4322 FREE DELIVERY ASGEIR ASGEIRSSON GEORGE ASGEIRSSON

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.