Lögberg-Heimskringla - 06.02.1975, Síða 1
Jan. 74
Eorsstoinn Jonsson,
Bojc 218
jí t.Y KJA v I [C, I c o 1 and
89. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 6. FEBRÚAR 1975
NÚMER 5
FORSÆTISRÁÐHERRAHJÓNIN f OTTAWA
Forsætisráðherra lslands, Geir Hallgrímsson, kom viS í Ottawa eftir aS hann sat ársþing ÞJóS-
ræknisfélagsins í Winnipeg í janúarlok. Hann ræddi við P. E. Trudeau, forsælisráðherra Kan-
ada um málefni varðandi báðar bjóðirnar. Myndin að ofan var tekin þegar forsælisráðherra Kan
ada og frú sýndu gestunum þinghúsið í Ottawa. Mrs Trudeau er lengst til vinslri, Hon. P. E.
Trudeau til hægri, en á miðri myndinni forsætisráðherrahjón lslands, herra Geir Hallgrímsson
og frú Erna Finnsdóttir. Copyright Photo — The Canadian Press
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGIÐ VEITIR $1000 TIL ALDARAFMÆLIS
HÁTÍÐA
Á ársþingi Þjóðræknisfé-
lags íslendinga í Vestur-
heiimi 24. — 25. janúar sl. var
samþykbt að veita $1000.00
upp í kostnað við hátíðir sem
haldnar verða naestkomandi
sumar og haust vegna aldar-
afmælis varanlegs landnáms
íslending í Vesturheimi.
Af þeirri upphæð fær Is-
lendingadagsnetfnd $500 til
aðstoðar við kostnaðinn af
íslendinga hátíðinni á Gimli
í ágúst, sem vex með ári
hverju og nú mun verða
vandað til meira en nokkru
sinni fyrr og llíka verða fjöl-
sóttari en sögur fara af, því
nú er von um að 1200 eða
fleiri gestir frá íslandi bæt-
ist í hópinn.
Aðra $500.00 veitir félagið
nefnd, sem skipuleggur
fundi og 'hátíðar viðhafnir í
byrjun októbermánaðar og
nefnist Conference Planning
Committee, en dr- P. H. T.
Thorlakson, C. C., M. D., er
formaður hennar.
Dr. Thorlakson fór nokkr-
um orðum um starf nefndar-
innar og ráðstatfanir viðvíkj-
andi fundum og skemmtim-
um, sem fara fram 3. 4. og 5.
október . Ekki er enn full-
gengið frá dagsskrá en þekkt
ir fræðimenn hafa nú þegar
samþykkt að flytja fyrir-
lestra á fundunum og ræða
norræn menningarmál. Er
því von um að almenningur
hafi áhuga á að sækja firnd-
ina.
Peter G. Foote prófessor og
forseti Norrænu deildar Uni-
versity College í London é
Englandi verður á dagskrá,
einnig Einar Haugen prófes-
sor í Norrænum tungumál-
um við Harvard háskólann,
dr. Arne Brekke prófessor í
Norrænum málurn við North
Dakota háskóla í Grand
Forks, N. D., Haraldur Bessa
son formaður Islenskudeild-
ar Manitobaháskóla, dr. Al-
bert Kristjansson formaður
félagsfræðideildar 'Manitoba-
háskóla, dr. John Matthias-
son prófessor í manntfræði
við Manitóbaháskóla og
Ralph Cohen fréttafulltrúi
fyrir Scandinavian Airlines.
Framh. á bls. 3
ÍSLENSKAR BARNABÆKUR GEFNAR
MINNESOTAHÁSKÓLA
Fyrir milligöngu íslenska
kvenfélagsins “Hekla Club”
í MinneapoliS og St. Paul,
hefur 285 íslenskum bama-
bókum verið bætt í hið stóif
merkilega safna bámabóka
Minnesotaháskólans í Minne
apolis- — Skýrir Valdimar
Bjömson, fyrrum ríkisgjald-
keri Minnesota ríkis, ítarlega
frá bókagjöfinni og aðdrag-
anda hennar í fréttagrein,
sem birtist á ensku síðu
blaðsins. — Koma þar í ljós
dásamlegar undirtektir bóka
útgefenda á íslandi og ann-
arra aðila, sem gáfu bækum-
ar og kostuðu flutninginn
vestur.
1 hinu svonefnda Kerlan
safni Minnesotaháskólans
em 28,000 barnabækur á
mörgum tungumálum, auk
1000 handrita og frummynda
fyrir 2000 bækur. Safnið ber
nafn læknis nokkurs, sem
hafði það í hjáverkum að
safna barnabókum allstaðar
að í heiminum, og arfleiddi
svo háskólann að safninu að
sér látnum.
Á síðastliðnu ári komst ein
félagskonan ,í Hekla Club,
Mrs. Leola Josefson, að því
að í safninu væri aðeins ein
bók á íslensku. Hún bar upp
þetta vandamál á fundi, en í
félaginu er kona, sem bjó
lengi í Minneota, Minn„ og
heitir Mrs. Hazel Huffman.
Dóttir hennar er gift Sigur-
byrni Þorbjörnssyni, toll-
stjóra íslands og býr í
Reykjavík. í heimsókn til
þeirra hjónanna, átti Mrs-
Huffman tal um bókamálið
við t.engdason sinn. — Hann
Framh. á bls. 3
FRED EYOLFSON STJÓRNAR
FLUGVELLINUM f WINNIPEG
FRED EYOLFSON
Flughöfnin í Winnipeg er
iðandi borg innan borgarinn
ar. Þar hafna flugvélar víðs-
vegar að, þar fær ferðafólk
úr öllum heimslöndum af-
greiðslu og fyrirgr., þar er
mörgu að sinna, enda heitir
hún réttu nafni Winnipeg
Intemational Airport. Flug-
völlurinn nær yfir 4,200 ekr-
ur með öllu, sem honum fylg
ir, og um hann lögðu leið
sína 1,800,00 ferðalangar síð-
astliðið ár — 20 til 25 prós-
enta fjölgun frá árinu 1973-
í rekstri þessa flókna og
fyrirferðamikla kerfis hefur
Vestur-íslendingurinn Fred
Eyjólfsson völdin, ábyrgðina
og áhyggjumar því hann var
skipaður framkvæmdarstjóri
17. janúar sl. en hafði þó
sinnt mörgum þeim störfum
sem fylgja stöðunni frá því
nokkru fyrir áramót.
Framhald á bls. 8.
ERINDREKAR
DEILDA
Erindrekar deilda á Árs-
þing Þjóðræknistfélags ís-
lendinga í Vesturheimi 24.
janúar 1975 voru:
Frón deild í Winnipeg, —
Olla Stefanson og Garðar
Garðarsson; Lundar deild,
Lundar, Man., Jóhann Sig-
urdson og Leo Danielson; —
Gimli deild, Gimli, Manitoba
Stefan Stefcinson, J.B. Thord
arson, Guðmundur Peturson,
Thordur Bjamason; Esjan,
Árborg, Man., Stefan Stefan-
son, Helgi Palsson; — Island,
Morden Man-, Thomas Thom
asson; Brúin, Selkirk, Krist-
ín Stefansson, Emily Hendry
Leitfur Eiríksson Club, Calg-
ary, Björgvin Sigurdson; —
Norðurljœ deild, Edmonton,
Lucille Oddson; — Báran,
Mountain, N.D. Freeman
Melsted, Joseph Anderson;
Þjóðræknistfélagið á Akur-
eyri, Davíð Bjömsson, í
Winnipeg.