Lögberg-Heimskringla - 23.10.1975, Síða 7

Lögberg-Heimskringla - 23.10.1975, Síða 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. OKTÓBER 1975 ÍSLENDINGUR VIÐ STÝRIÐ Á MANITOBA CENTENNIAL CENTRE Ritsöfn um skáldkonur og ljósmæður gefín út á ný Framih. af bl$ 1 50 bætast í liðið þegar hljóm leikar, ballet og aðrir skemmtikraftar koma þar fram á sviði. Síðastliðið ár skemmtu þar 300 hópar en 425.000 manns sóttu samkom urnar. Hljómburður í húsinu er hinn ágætasti og frægur ínnan lands og utan, segir Bob Goodman. Umhverfið er sérlega fagurt segir hann, allt ferskt og í sífelldri sköp un alltaf ný viðfangsefni að glíma við. Sjálfur kom Bob fram á skemmtiskrá í höllinni með konu sinni Beryl, síðastliðið sumar. — I>að var í vikunni sem nefnist “Folklorama Week,” og er þegar orðin þjóðkunn, því þá fer fram nokkurskonar þjóðlistahátíð í Winnipeg, er hin mörgu þjóðabrot, sem sameinast í borginni, sýna þjóðdansa og söng, koma fram í þjóðbún- ingum og bera fram rétti, er haffa verið arfgengir í föður- löndum þeirra mann fram af manni. Bob og Beryl taka þátt í sýningum Norður- landamanna, en Bob var hreyknastur af því að Þjóð- dansaflokkurinn frá Reykja- vík skaraði svo fram úr að hbnum var boðið að halda auka sýningu í lok vikunnar. Ekki vegna þess að hann var aðkominn úr öðru heims- landi, segir Bob, heldur vegna þess að hann bar af öllum öðrum skemmtikröft- um, sem þar komu fram. — Beryl, sem er af breskum ættum og bar ættamafnið Pattison áður en hún giftist, hafði jafn mikla ánægju og maður hennar af því að hjón úr Reykjavíkur dansflokkn- um dvöldu á heimili þeirra á meðan Iþau stóðu við í Winni peg. Mikil aðsókn er að minja- safninu og sólkerfismynda- húsinu (Planetarium) alla daga ársins, og tala skóla- bama, sem heimsóttu þessa staði á síðastliðnu ári, fóru fram úr 50.000. Þau komu úr öllum hlutum Winnipegborg ar, og mörg með hópferðar- bílum víðsvegar að í fylkinu. En minjasafnið er svo víð- femt og verksvið þess svo umfangsmikið að því verður ekki lýst í fáum orðum. Þjóð menntir hinna ýmsu þjóða- brota eru höfð þar í háveg- um og tilsögn veitt í hann- yrðum og öðrum arfgengum þjóðlistum. Það er gaman að labba um í Manitoba Museum of Man and Nature með Bob Good- man, fara um borð í “Non- such”, skip Hudson’s Bay fé- lagsins frá sautjándu öld, anda að sér hressandi lykt af tjöru og köðlum. Skipið er eftirlíking í fullri stærð og nákvæmlega eins og gamla “Nonsuch”, seglin veðurbar- in og viðir þess eyddir af öldugangi og sjómönnum, sem tróðu dekkin. Minjasafnið er réttnefnt “Museum of Man and Nat- ure.” Það rekur sögu slétt- unnar frá grárri fomöld, þeg ar óspilt náttúra ríkti þar Cenlennial Concert Hall einráð, og fram á okkar dag að mannkynið gerði innrás í landið, villijurtir og skógar urðu að vikja fyrir ræktuð- um ökrum, bæjum og borg- um. — í minjasafninu er að finna lifandi sögu Manitöba- fylkis, og það er í sífelldri sköpun Hér hafa vísindin og hugmyndarík list lagt hönd að verki, og hér mætti una heila viku í algleymingi, koma svo aftur hvað eftir annað og verða aldrei full- saddur. Bob Goodman er bókhald- ari (accountant) að mennt og hefur starfað í þjónustu Manitobafylkis í 17 ár, fyrst í heilsuvemdardeild stjórnar innar (Health Services), en síðar sem framkvæmdar stjóri f ráðherranefnd, sem hefur forráð um meðferð fjármála. Hann hóf starf við Centennial Centre haustið 1973 og tók við sem fram- kvæmdarstjóri eða forráðs- maður í apríl 1974. Hann segist hafa glatað ís- lenskunni að miklu leyti, en þó hafi hún verið honum töm áður en hann lærði ensku, því faðir hans og afar og ömmur í báðar ættir, fæddust á íslandi. Hann er sonur Bamey og Elísabetar Hrefnu Goodman Elísabet lést árið 1943. Hún var fædd í Winnipeg, dóttir Hjálmars og Sigríðar Thorsteinsson, er fluttust vestur um haf alda- mótaárið og bjuggu um hríð að Gimli. En Bamey var ár- um saman hárskeri í Winni- peg. Bamey flutti vestur um haf með foreldrum sínum Jóni og Sigríði Guðmunds- son árið 1900, þá fimm ára að aldri. Þau settust fyrst að í New Jersev í Bandaríkjun- um en fluttu ári síðar að Lundar í Manitoba og stund- uðu bar landbúnað. Þau hjónin. Robert og Bervl Goodman eru virkir meðlimir St. Steohen’s lút- erska > safnaðarins í Winni- neg. svngia saman og setia á svið gamanleikrit á skemmti samkomum í kirkjunni. Ro- HÖRPUtJTGAFAN á Akranesi hefur sent frá sér ritsafnið „Skáldkonur fyrri alda“ I—II, eftir Guðrúnu P. Helgadóttur skólastjóra. Bækur þessar hafa verið ófáanlegar, en Kvöldvöku- útgáfan gaf þær út áður. Höfund- ur skýrir frá hlutdeild íslensku bert hefur áhuga á íþróttum. snilar golf og “curling” í tómstundum. og átti þátt í að stofna “Mount Royal Christion Sports.” konunnar í sköpunarsögu fs- lenskra bókmennta fyrstu aldirn- ar. Sagt er frá: Þórunni á Grund, Steinunni á Keldum, Þórhiló'' skáldkonu, Jóreiði í Miðjumdal Steinunni f Höfn, Látra-Björgu Maddömunni á Prestsbakka Ljósavatnssystrum, Vatnsenda Rósu. Margt nýstárlegt er' dregið hér fram, sem varpar nýju ljósi yfir ævi kvenna. Höfundur lifir sig inn í hugsunarhátt formæðra sinna, leitast við að skilja vanda- mál þeirra og finna þeim stað í samtfð þeirra. Bækurnar eru skrifaðar af alúð og nærfærni. Hörpuútgéfan hefur einnig sent frá sér ritsafnið Islenskar ljósmæður I—III., sem hefur ver- ið ófáanlegt, en þær bækur komu áður út hjá Kvöldvökuútgáfunni. Séra Sveinn Víkingur bjó til prentunar. I þessu ritsafni er sagt frá um það bil 100 ljósmæðrum sem starfað hafa víðs vegar um landið. Brugðið er upp myndum af starfi, erfiðleikum og fórnfýsi ljósmæðranna og lesendur leiddir inn á gömlu sveitaheimilin, eins og þau foru fyrir og eftir sfðustu aldamót. Hér segir frá margs kon- ar hetjudáðum Ijósmæðranna sjálfra, ævikjörum fslenzkrar al- þýðu og viðburðarfkum ferðalög- um á sjó og landi. Ritið er samtals tæpar 800 blaðsfður. Siglufirði — 11. október. HKR er 20 $tiga hiti f dag, og það þykir tfðindum sæta þegar komið er fram undir miðjan október. Ekki sér þó til sólar held- ur blæs á okkur heitur vindur úr suðvestri. I allri veðurbliðunni berast líka þær gleðifréttir að 18 sekúndu- lítrar fáist úr nýju borholunni í Skútudal, svo að fyrirsjáanlegt er að hitaveitan «kkar mun fá nóg vatn. ' —M.J. NÝJUNG! Lægstu Þotufargjöld beinaleið til Islands frá Chicago Loftleiðir (Icelandic Airlines) gefa nú völ á áætl- unar þotuflugum til Islands frá New York EÐA CHI- CAGO! Allt fyrir lægri þotufargjöld, en nokkur önnur áætlunar flugþjónusta hefir upp á að bjóða til íslands og Luxembourg, í miðpunkti Evrópu. Einnig reglubundin áætlunar þotuflugþjónusta frá New York eða Chicago, með ísland í leiðinni, til Oslo, Kaupmamnahafnar, Stockholms, Glasgow og London. Þú getur staðið við og litast um á íslandi, á leiðinni til annarra Evrópu landa, án þess að borga auka far- gjald. Leitaðu fullra upplýsinga og ferðabæklinga hjá ferða agentum, eða hafðu sambamd við: KEIAMBIC LOFIWBIR 630 ntth Ave., New York, N.Y. 10020; Phone (212) 757-8585 87 S. Wabash Ave.. Chica«o. III. 60603; Phone (312) 372-4797

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.