Lögberg-Heimskringla - 06.10.1977, Blaðsíða 1
Berg3teinn Jónsson
Box 218
Reykjavík, Ioeland
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 6. OKTOBER 1977
Fagurt galadi fuglinn sá
I*etta eru nokkrir kalkúnanna, sem tóku á móti okkur, þegar við fórum í heimsókn í Ar"t»un fyrir nokkru.
A biaðsíðu 4 í blaðinu í dag er sagt frá þeirri heimsókn.
STÓRKOSTLEG SÖNGFERÐ
TIL ÍSLANDS
1 SUMAR fóru um 40 ungl-
ingar frá Kanada til Islands
til þess að syngja fyrir Is-
lendinga. Unglingamir, sem
kalla sig “Bass Clef Singers
and The Better Half” hafa
sungið saman um nokkurt
Helga Anderson
skeið undir stjórn Helgu
Anderson, og annaðist hún
allan undirbúning fyrir ferð
ina, sem var skipulögð að
mestu leyti af séra Braga
Friðrikssyni.
Ferðaðist hópurinn viða
um Island og hélt f jölmarga
hljómleika, hvarvetna við
mjög góðar undirtektir. —
Undirrituðum gafst á dögun
um tækifæri til þess að
hlusta á kórfélaga syngja
nokkur lög, og undrar ekki,
að kórinn skyldi jafnan fá
góða dóma. Sérstaklega var
falleg meðferð unglinganna
á íslenska þjóðsöngnum,
söngurinn hugljúfur og
tjáning unglinganna af
slíkri innri tilfinningu, að
mjög óvenjulegt er, að
minnsta kosti við slikar að-
stæður, sem þarna voru.
Vert er að gefa því sér-
staklega gaum, að engir kór
félaganna eru af íslenskum
ættum, en áhugi þeirra á
landi og þjóð, eftir söngferð-
ina til Islands, leyndi sér
ekki. Myndir, sem teknar
voru í ferðinni töluðu lika
sínu máli. Víst er og um það
að varla er hægt að hugsa
sér betri landkynningu, bæði
fyrir Kanada og Island. —
Unglingarnir voru landi sínu
til sóma, og þeir eiga sjálf-
sagt eftir að kynna Island
vel meðal ættingja sinna og
vina. Kórfélagarnir, og aðrir
sem að þessari för stóðu,
eiga skilið þakklæti fyrir.
fc
RIO í ÚTVARPI
SUNNUDAGINN 16. október verður útvarpað hjá
CBC útvarpsstöðinni dagskrá, sem gerð var í sumar,
þegar Rio-Folk var hér á ferð. Rætt verður við þá
félaga, og leikið af hljómplötum þeirra. — Dagskráin
nefnist Identities, og hefst klukkan þrjú eftir hádegi.
já.
HÚS STEPHANS G. STEPHANSSONAR
FÆR BÓKAGJÖF FRÁ
ÞJÓÐRÆKNISFILAGINU f REYKJAVÍK
FYRR á þessu ári var samþykkt á fundi Þjóðræknis-
félagsins í Reykjavik, að safna saman öllu þvi, sem
til er í islensku eftir Stephan G. Stephanson, bæði í
bundnu máli og óbundnu, og gefa síðan Minjasafninu,
sem komið hefur verið upp í Markerville.
GísJi Guðmundsson ritari Þjóðræknisfélagsins hafði
verkefni þetta með höndum, og er hann var hér á ferð
í sumar, þá afhenti hann gjöfina fyrir hönd Þjóðræknis
félagsins.
Nánar er frá þessu sagt á blaðsíðu 8 í blaðinu i dag.
------------------------,----------------------iá
NUMER 33
SÉRA BRAGI
KVEÐUR
SÉRA Bragi Friðriksson,
sem þjónað hefur á Mikl-
ey í sumar, er nú farinn
til Minneapolis í Minne-
sota, þar sem hann hygg-
st dvelja við rannsóknir
og nám til næstu áramóta
en' þá mun hann halda
heim til Islands á ný.
Séra Bragi er sem kunn
ugt er formaður Þjóð-
ræknisfélagsins í Reykja-
vík og hann hefur um ára
bil haft mikil afskipti af
samskiptum milli Islands
og Kanada. Hann á sæti í
þriggja manna nefnd, sem
utanríkisráðherra skipaði
sérstaklega til þess að
vinna að auknum sam-
skiptum milli landanna. —
Heimir Hannesson, for-
maður Ferðamálaráðs Is-
lands er formaður nefnd-
arinnar, og þriðji maður-
inn er Ámi Bjarnarson,
bókaútgefcmdi á Akur-
eyri.
Séra Bragi kvaddi sókn
arbörn sín við messu i
kirkjunni á Mikley, sunnu
daginn 25. september, og
í síðustu viku efndi Þjóð-
ræknisfélag Islendinga í
Vesturheimi til samsætis,
þar sem séra Braga voru
þökkuð margvísleg störf. *
Hann skrifar
greinarflokk
Séra Bragi hefur skrifað
greinarflokk fyrir Lög-
berg-Heimskringlu, og
verður fyrsti hluti hans
birtur í blaðinu innan
skamms. Þar segir hann
frá dvöl sinni í eynni í
Framh. á bls. 7