Lögberg-Heimskringla - 13.10.1977, Síða 5
LOGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 13. OKTOBER 1977
5
Svörlueyjar komu þeir ár-
lega og hafa þar minningar-
hátið sína. öllum heimildum
þer saman um það, an Islend
ingum •'og Tndíánum hafi
komið vel saman og dæmi
eru þess, að Indíánar lærðu
islensku. — Þeir hafa unnið
mikið með og fyrir íslend-
inga og reynst þeim vel, sem
sýndu þeim traust og bi'ugð
ust ekki í viðskiptum við þá.
Fiskimenn höfðu og snemma
viðdvöl i eyjunni.
Árið 1868 dvaldi hér
Henry McKinney við skógar
högg og skoskur maður,
Thomes Hillgrow frá Selkirk
rak hér sögunarmyllu, er
gæt og mikill fiskur skammt
undan landi. Haust.ið 1876
voru flestir sæmilega undir
veturinn búnir. Karlmenn-
irnir höfðu komist upp á lag
ið við dýraveiðar og skógar-
högg og konur lærðu að nota
hveitikjarna i staðinn fyrir
kaffi, sætan jurtasafa i
stað sykurs og blöð ákveð-
inna jurta i staðinn fyiir te.
Ógæfan mikla
skellur ó . .
En þennan vetur skall ó-
gæfan yfir. — Hin alræmda
bólusótt kom upp. Um þriðj-
ungur íbúanna á Mikley tók
fyrstu Islendmgaí íur Komu.
Það var vorið 1876 sem mað
ur að nafni, Magnús Hall-
grímsson, heyrði um sögun-
armyllu Thomasar Hiilgrow
og réði sig i vinnu hjá hon-
um. Magnús festi sér og land
og nefndi í Ingólfsvík. Þetta
sumar komu ýmsir aðrir og
má þar nefna hjónin Mar-
gréti og Helga Tomasson,
sem settust að á Reynistað
og urðu áhrifamikil í byggð-
inni lengi síðan. Svo var og
um fjölskyldu þeirra. Sonur
þeirra hjóna var Kristján —
Hann kvæntist Sigþóru, sem
lifði mann sinn. Þau hjón
voru afar mikilvirk i fram-
faramálum eyjarinnar og
sjálfur minnist ég Sigþóru
með mikiili virðingu og
þökk.
Fyrsta barnið, sem fædd-
ist á Mikley var Guðmundur
Jónsson. Hann fæddist á
Reynistað 2. september árið
1876. Foreldrar hans voru
Jón Bjarnason Guðmunds-
sonar frá Vaði í Skriðdal og
Haildóra Guðrún Guðmunds
dóttir. Guðmundur kvæntist,
Herdisi Jónsdóttur sem fædd
var á Teig í Óslandshlíð.
Frumbyggjar á Mikley
hófust þegar handa um upp-
byggingu sína. Ýmsir bundu
vonii* við sögunarmylluna,
en Thomas Hillgrow reynd-
ist. þungur i skauti, uns hann
kvæntist íslenskri konu. Þá
varð hann löndum allur þægi
iegri. Eyjarskeggjar komust
yfirleitt betur af en aðrir
Ný-íslendingar. Nægur við-
ur var til húsa, beitilönd á-
veikina og þrjátíu dóu af
völdum hennar. Nýja Island
var allt sett i sóttkví og stóð
svo fram til 20. júlí 1877. —
Afleiðingar þessa ástands
urðu hörmulegar, vistir
þrutu og engin viðskipti við
umheiminn voru leyfð. En
baráttan hélt áfram.
Árið 1878 voru ibúar a
Mikley orðnir 204. Aðstæður
höfðu nú batnað á ný, en
sumarið 1879 var mjög vot-
viðrasamt og 5. nóvember
um haustið urðu mikil flóð i
Winnipegvatni og ollu þau
geysilegum skaða á húsum
og löndum.
Þessir atburðir, trúardeil-
ur og annað olli því, að marg
ir fluttu burt úr Nýja Is-
landi. Árið 1881 voru aðeins
um 250 manns eftir í þess-
um byggðum af 1500 er
flest var. Þá voru átta eða
t.íu fjölskyldur eftir í Mikl-
ey. Þetta sama ár varð Nýja
Island hluti af Manitoba-
fylki. Með þeirri ákvörðun
dagaði uppi draumurinn um
hið Nýja Island, sem margir
Jandnemanna báru í brjósti
sér og börðust. fyrir, að gæti
orðið að veruleika. Mann-
flutningum þessum og breyt
ingum fylgdi mikill sársauki
og sveið lengi undan.
En aftur rofaði til . . .
En aftur rofaöi til. íbú-
um fjölgaði og þegar nýja
öldin var tvítug voru um 500
manns í Mikley. Saga eyjar-
innar er um flest sérstæð. —
Fólk bjó að eigin efnum og
þáði lítt. af öðrum. Skógur-
inn var ruddur og stór og
vönduð hús byggð. — Hvert.
býli bar íslenskt. nafn. Skáli
var reistur, kirkja og sam-
komuhús. — 'lbúarnir lögðu
vegi og gerðu sjálfir undir-
stöðurnar í vatninu fyrir raf
magnsstaurana, er stjórnin
taldi það, verk of kostnaðar-
samt. Sími kom til eyjarinn-
ar árið 1922. Það tók þrjá til
fjóra tíma að ferðast til Riv-
erton og níu tíma til Selkirk.
Bílferja tók til starfa i sept.
1953 og þótti að vonum hin
mesta samgöngubót. Nú hef
ur sundið milli eyjar og
lands verið brúað og leiðin
öll auðveld. Samtímis er eyj-
an nú alfriðuð og hefur verið
gjörð að þjóðgarði.
Aðstæður fyrir ferða-
fólk eru góðar. — Skipulögð
hafa verið sumardvalarstæði
baðstrendur, eru ágætar,
hótel er hér fagurt. og stórt,
golfvöllur prýðilegur og
önnur leiksvæði. Á norður-
hluta Mikleyjar höfðu ýmsir
átt sumarhús og dvalið þar
ár eft.ir ár. Nú er það fólk á
brott. Skóli var lagður nið-
ur og við það fluttust marg-
ar fjölskyldur burtu. Þessi
gjörbreyting var ekki með
öllu sársaukalaus, en enginn
má við þróúninni. Á Mikley
búa nú átta íslenskar fjöl-
skyldur og svo eru þar bú-
settir starfsmenn þjóðgarðs-
ins og hótelsins. I sumar hef
ég dvalið meðal þessa fólks
og notið vináttu þess. Leið
mín hefur oft. legið heim til
Islendinganna hér og margt.
hefur verið spjallað. Nokkuð
af þessum kynnum hef ég
reynt að færa í letur.
Framh. í næstu viku.
• PunktAb •
. ... á þossu ári selur eitt ísienskt útflutningsfyrirtæki,
Ifilda h.f. ullarvörur til Norður-Ameríku fyrir um 500
milljónir króna. Það er um 100% aukning frá fyrra ári.
Þá hefur annað íslenskt fyrirtæki, Steinars Júlíussonar,
feldskera, fengið pantanir á 1700 skinnkápum, sem eiga
að fara til Noregs, og einnig selur Steinar á Banda-
ríkjamarkað. I fyrra seldi hann 500 flíkur til Ameríku.
. . . . talið er að verð á fasteignum á Islandj hafi hækk-
að að meðaltali um 20—25% á þessu ári.
.... vísindamenn á fsiandi telja klak þorsksins i ár
aðeins um 50% af því, sem það hefur verið síðustu sjö
árin.
.... kinverjar hafa keypt 8000 tonn af ali hjá íslenska
Álfélaginu, og er söluverðmætið um 1600 milljónir
króna, Þeir senda sjálfir skip eft.ír farminum,
.... kynlegur kvistur er á þaki hússins, sem íslenska
sendiráðið hefur í Moskvu. Það er ekki innangengt i
hann, og starfsfólk sendiráðsins veit ekki hvað þar
kann að vera, en gluggi, sem á lionum er, er ýmist op-
inn eða lokaður. Telja sumir, að þarna hafi verið kom-
ið fyrir hlustunartækjum, og herma fréttir, að fótatak
hafi heyrst ofanað.
.... Jónsbók Magnúsar Stephensens seldist. á bókaupp
boði í Reykjavík fyrir skömmu á eitt hundrað þús-
und krónur, eða um $500, — og er söluskattur inni-
falinn í verðinu.
On your way fo IVorway, Sweden Iceland-so niueh to see and do.
orDcnmark.
Why settle for the usual? Make your
next trip to Scandinavia an exciting,
fun-filled and educational experience
with a visit to Iceland. Stopover tours
of 1 to 3 days from $10 to $30. All fares
include room with bath/shower at First
Class Hotel Loftleidir, sightseeing trips
and 2 meals daily, transfers between
hotel and airport. Exclusive on Icelandic
Airlines for passengers flying from New
York or Chicago to Norway, Sweden or
Denmark. Now this tour is available on
the 22-45 day excursion fare. All rates
effective Oct. 1,1977.
Volcanos, Viking museums, glaciers,
geysers, theater, concerts, art shows,
duty-free shopping, saunas and indoor
hot-spring pool at your hotel,
smorgasbord lunches. It’s the land of
Leif Ericson, settled by Scandinavians
in the year 874 A.D., where people speak
the unchanged Old Norse of more than
1,000 years ago.
No other scheduled airline jets to
Scandinavia at lower fares than we do!
See your travel agent or contact
Icelandic Airlines, 630 Fifth Avenue,
New York, N.Y. 10020. Phone
(212) 757-8585 or call (800) 555-1212 for
the Toll Free Number in your area.
Stopover
in Iceland.
s10 a-day.
Icdandic
LOWESTJET FAKES TO TIIE IIEART OF EIHOPK OFAIV'Y SCHEDELED AIRLINE.