Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 27.01.1978, Qupperneq 1

Lögberg-Heimskringla - 27.01.1978, Qupperneq 1
92. ARGANGUR WINNIPEG, FOSTUDAGUR 27. JANUAR 1978 NUMER 3 GREINARGERÐ UM KYNNISFERÐ TIL KANADA í JÚNÍ-JÚLÍ 1977 ÞJÓÐHÁTTASÖFNUN í Vesturheimi DAGANA 27. júní til 18. júlí 1977 dvaldist undirritað- ur í Manitobafylki, Kanada, á vegum nefndar utanríkis- ráðuneytisins sem fjallar um aukin samskipti við Vestur- Islendinga, Þjóðræknisfélags Islendinga og Þjóðminja- safns Islands. Tilgangurinn með þessari fremur stuttu för var eink- um að kanna. með úrtaki, hvort ástæða væri til að hefja rækilega þjóðháttasöfn un meðal Vestur-Islendinga, en slíkt fyrirtæki er afar ' tímafrekt, ef það á að vera annað en kák eitt. Á þessum tíma heimsótti ég Winnipeg, Sefeirk, Gimli, Riverton, Mikley og Árborg, hitti fjölda Vestur-lslend- inga að máli og kom á fundi, samkomur og söngæfingar hjá þeim. Allýtarleg samtöl átti ég við um 30 manns á aldrinum 75-95 ára. — Voru þau sumpart tekin á segul- band, en að nokkru punktuð niður. Niðurstaða þessara athug- ana varð aðallega tvennskon ar: 1. Mjög lítið er orðið eftir af fólki, sem man eftir sér frá Islandi. — Þeir hinir fáu hafa hinsvegar einatt margt athyglisvert fram að færa. Minni þeirra er stundum ein- kennilega skýrt, hvað snert- ir tíniabiliö kringum hin miklu umskipti, sem búferla flutningamir voru. Eg nefni sem dæmi Jón Pálsson, 90 ára, sem fór 7 ára gamali vestur frá Reykjum í,Skaga- firði, en geymdi þó með sér skýrar þjóðlífsmyndir úr bernsku. Eg tel það væri ger legt fyrir 1—2 menn að ná mikilvægustu upplýsingum frá þessum tiltölulega fá- menna hópi á nokkrum mán uðum. 2. Hitt er miklu umfangs- meira mál, en virðist ekki síður athyglisvert, hvaða þjóðsiði og trú fólk flutti einkum með sér vestur og hvað var skilið eftir og hvers vegna. Hvað ef þeim siðum og trú lifði áfram og hvað dó út eða breyttist frá kyn- slóð tál kynslóðar, hvar, hve- nær og hversvegna. Eg þóttist geta dregið þá bráðabirgðaályktun af þess- um áþreifingum, að menn hefðu hneigst til að taka með sér þær venjur og þjóðtrú, sem góðar voru og gleðileg- ar, eins og t.d. sumardaginn fyrsta, en skilja hinar ótta- blöndnu eftir heima, svo sem t.d. Grýlu og drauga, eða milda þær a.m.k. Er þetta raunar í samræmi við það, að fólkið fluttist burtu i leit að betra lífi, og þá mátti sýn ast ástæðulaust að flytja með sér meiri bölvun en ó- hjákvæmilegt var. En þessi kenning þyrfti mun nákvæm ari prófunar við. Til könnunar á þessu sviði yrði að nota úrtak frá hverri byggð og hverri kyn- slóð til að rekja þróunina. — Ekki tel ég mig þess umkom inn að áætla, hversu tíma- og mannfrekt slíkt verkefni gæti orðið. Þar þyrftu hag- skýrslufræðingar að vera með í ráðum. Ætlunín var einnig að kanna, hvort ekki mundi reynast unnt að koma upp cinhverskonar þjóðhátta- nefnd þar vestra, sem unnið gæti slíkt söfnunarstarf í samvinnu við þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins. á Islandi. Það sýnist a.m.k. kostnaðar- minna. Um þetta ráðgaðist ég einkum við Harald Bessa- son prófessor við Manitoba- háskóla. Niðurstaða okkar var sú, að tormerki væru á því að vinna slík verk, nema maður kæmi til frá Islandi, þótt e.t.v. mætti finna að- stoðarmenn vestra. 1 fyrsta lagi þarf sá, sem stýrir könnuninni, að þekkja vel til íslenskra þjóðhátta, sögu og annara aðstæðna til að skynja, hvaða samsvaran ir eða andstæður vestra væru öðrum fremur athygli verðar. Liggur þetta vita- skuld í augum uppi. I öðru lagi taldi Harcddur af 20 ára reynslu, að Vestur-1 Framha. á bls. 5 lcelandic tradition imported to Canada BONFIRE IN HEARTLAKE Dr. Thor Jakobsson has im- ported an old Icelandic Tra- dition to Canada, the Dec- ember 31st bonfire. He said in an interview with Lög- berg-Heimskringla that this event turned out to be a suc- cress in the area where he lives, and it had been decid- ed that a bonfire would be arranged at least for the next hundred years. Maybe this appeals to oth- er individuals or organizat- ions in Canada? Why Not? SEE ALSO PAGE 3 ii < > < > < i < > < > < > < * < > < > < > i 95 ÁRA AFMÆLI JAKOBÍNU JOHNSON 26. JANÚAR 1978 voru líðin 95 ár frá þvi hún fædd- ist á Islandi. Hún fluttist vestur um haf með foreldr- um sínum árið 1904, og hefur ekki komið til Islands síðcm. Árið 1883 fæddist Jakobina Kristjana Jónsdóttir að Gestreiðarstöðum á Jökuldalsheiði i Norður-Múla- sýslu. Hún er dóttir hjónanna Jóns Jónssonar Westdal og önnu Kristrúnar Gunnlaugsdóttur. Eftir að þau komu til Kanada árið 1904, þá tóku þau sér land f jórar mílur sunnan við Wynyard, og þar átti Jakobína heima þar til hún giftist Steingrimi John- son. Hann dó árið 1946. Þeim varð þriggja barna auð- ið. Jakobína býr nú á Betel, Selkirk, og þar hittum við hana nokkrum dögum fyrir 95 ára afmælið. Og það verður með sanni sagt, að okkur rak i rogastans, er okkur var sagt, að þessi kona ætti 95 ára afmæli innan fárra daga. Svo er hún ern og frá á fæti að með ólikindum er. Hún talar reiprennandi íslensku, og það höfum við eftir starfsliði Betelheimilisins, að Bina fylgist vel með öllu, sem gerist, sérstaklega ef eitthvað íslenskt er á ferðinni, þá léttist á henni brúnin, — meira en venjulega. Það gladdi okkur, þegar hún sagðist ávallt lesa Lögberg-Heimskringlu, og það höfum við fyrir satt, að hún les blaðið i hverri viku, og hún les allt sem í því er. Það var því ekki amalegt að heyra hana lýsa yfir ánægju sinni með blaðið, — henni finnst Lögberg- Heimskringla gott blað, og stuðningur hennar er vel metinn. Á þessum merku timamótum sendi ég Jakobínu Johnson bestu kveðju blaðsins og mina, og óska henni alls hins besta í framtíðinni. já íslendingafélag í San Diego Á FORSlÐU Lögbergs- Heimskringlu 24. mars í fyrra var meðal annars frétt um það, að stofnað hefði verið Islendingafélag i San Diego. Islandsvinurinn John Long átti frumkvæðið að stofnun félagsins, og í viðtali við hann í Tímanum, sem birtist skömmu eftir að hann hafði verið á Islandi í sumar, stendur meðal annars þetta: „Fólk vilar ekki fyrir sér að leggja á sig langar ferðir til þess að njóta samvista við klúbbfélaga, ég veit um ein íslensk hjón, sem búa í 80 mílna fjarlægð frá San Diego. Þau lásu um félagið í Lögbergi-Heimskringlu, og konan var hreint klökk, þeg ar hún kom til okkar í fyrsta Frarnha. á bls. i

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.