Lögberg-Heimskringla - 01.08.1980, Blaðsíða 10

Lögberg-Heimskringla - 01.08.1980, Blaðsíða 10
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, HÁTÍÐARBLAÐ 1980 IQngbfrg- ^rtmakringla Published every Friday by LOGBERG-HEIMSKRINGLA PUBLISHING Co. Ltd. 1400 Union Tower Building, 191 Lombard Avenue, Winnipeg, Manitoba R3B 0X1 — Telephone 943-9945 EDITOR: ASSISTANT EDITOR: PRESIDENT: SECRETARY: TREASURER: Haraldur Bessason Margrét Björgvinsdóttir T.K. Arnason Emily Benjaminson Gordon A. Gislason Typesetting, Proof reading and printing Gardar Printing Limited Subscription $15.00 per year PAYABLE IN ADVANCE - Second class mailing registration number 1667 — David Bj örnsson n irædur Davíð Björnsson býr enn búi sínu á 763 Banning St. hér í borg. Hann varð níræður þann 7. júlí síðastliðinn og af ýmsum ástæðum viðeigandi að þeirra tímamóta sé minnst á ritstjórnarsíðu íslendingadagsblaðs Lög- bergs-Heimskringlu. Má rétt geta þess að Davíð hefur skrifað mikið, bæði í bundnu máli og óbundnu, fyrir íslensku vikublöðin í Winnipeg og var um skeið rit- stjóri Heimskringlu. Þá er nafn hans nátengt sögu fs- lendingadagsins, en hann var ritari íslendingadags- nefndar í næstum tvo áratugi. Stóð hann meðal ann- arra að baki þeirri ráðstöfun að flytja íslendingadags- hátíðina frá Winnipeg til Gimli. Jónas Þór hefur bent á það á öðrum stað í þessu blaði að snarpar umræður hafi orðið um það hvort heppilegt væri að velja íslendingadeginum stað utan Winnipegborgar. Davíð Björnsson ritaði þá einarðlega grein og leiddi fram svo sterk rök fyrir því að íslend- ingadagurinn hlyti að eiga sína framtíð á Gimli að ekki varð á móti mælt. Eftir nærfellt hálfa öld sem liðin er frá fyrsta íslendingadeginum á Gimli geta menn nú gert það upp við sig hvort Davíð eigi skilið lof eða last fyrir greinarskrifið. Hyggjum við þó að hin glæsta saga hátíðarinnar síðustu 5 áratugina tali sínu máli svo skýrt að Davíð hljóti lofsyrðin ómenguð. Fundargerðir fslendingadagsins færði Davíð með fágætri kostgæfni, enda bæði rit- og stílhagur maður. Á starfstímabili sínu í nefndinni hafði hann forgöngu um að safna bréfum frá vesturíslenskum gullafmælis- börnum. Hefur Jónas Þór gert nánari grein fyrir því safni annars staðar í blaðinu. Davíð Björnsson er Húnvetningur að ætt, fæddur að Litlu-Giljá í Húnavatnssýslu. Hann ólst upp við al- geng sveitastörf, hlaut fyrstu skólamenntun sína í Hnífsdal við ísafjarðardjúp. Síðar hóf hann nám við Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal, brautskráðist það- an sem búfræðingur vorið 1914 og gerðist þá um skeið kennari við Hólaskóla í verklegum námsgreinum. — Síðar hóf hann trésmíðanám í Reykjavík og stundaði þá iðn í nokkur ár. Davíð fluttist til Vesturheims árið 1914. Vann hann þá fyrst við fiskveiðar á Winnipegvatni, en hóf síðan smíðastörf í Winnipeg. Sakir heilsubrests varð hann að leggja smíðarnar á hilluna. Eftir langa dvöl á sjúkrahúsi tók hann við íslenskri bókaverslun hér í borg og miðlaði löndum sínum þannig andlegri fæðu að heiman í 18 ár. Hann gerðist þá atkvæðamaður í flestum íslendingafélögum, skrifaði mikið og orti. Ekki verslaði Davíð einungis með bækur, heldur safnaði m Gullafm ælisbörn Islendingadagsins Á fundi í Islendingadags- nefnd í janúar árið 1933 var ákveðið að heiðra alla þá ís- lendinga í Vesturheimi sem þar höfðu dvalizt 50 ár eða lengur. Nefndin óskaði eftir nákvæmum upplýsingum um fæðingarstað á islandi, flutn inginn vestur um haf, hvar land var numið o.s.frv- Þessi beiðni var endurtekin næstu árin, og brátt streymdu bréf til nefndarinnar hvaðanæva úr Norður Ameríku, og eru þau hir\n mesti fjársjóður. — Gullafmælisbörnin sóttu ís- lendingadaginn á Gimli ef þau sáu sér fært. Islendinga- dagsnefnd lét útbúa borða handa fólkinu og pallur var byggður þar sem þessir land nemar sátu. Eins og bréfið sem við birt um hér sýnir, þá er mikinn fróðleik að finna í bréfum þessum, og vissulega væri at- hugandi að skrifa þau upp og gefa þau út. Það verður þó að biða betri tima, en hugsanlega verða einhver þeirra birt í þessu blaði síð- ar. J.Þ. Gullafmælisbréf 8217-19th Ave- N.E. Seattle, Washington, June 14„ 1939 Mr. Davíð Björnsson, (c/o Heimskringla) 853 Sargent Ave., Winnipeg, Man. Canada. Kæri herra; Samkvæmt grein í Heims- kringlu 7. júní 1939 sem hef- ur að fyrirsögn Gullafmælis- börn íslendingadagsins sendi ég yður eftirfylgjandi upp- lýsingar: Eg er fæddur að Grund á Jökuldai í Norður Múlasýslu á islandi á mánudaginn í ní- undu viku sumars, eftir því sem ég veit bezt 18. júní 1860. Skírður Gunnlögur. — Faðir minn var óðalsbóndi þar, hét Vigfús. Hans faðir hét Pétur Pétursson, óðals- bóndi á Hákonarstöðum á Jökuldal, og Grund arfhluti föður míns úr hinu mikla svo kallaða Hákonarstaðalandi- Faðir minn drukknaði í Jök- ulsá fyrir mitt minni sumar- ið 1862. Hann og Gunnlögur Pétursson, einn af allra fyrstu íslenzku landnemun- um í Minnesota (Lyon County) voru tviburar. Því tók ég upp Peterson nafnið eftir að ég kom til Ameríku. Móðir mín, og kona föður míns, var Halldóra dóttir Jóns Einarssonar óðalsbónda í Snjóholti í Eiðaþinghá, og konu hans Guðnýjar, dóttur séra Sigfúsar Guðmundsson- ar prests að Ási í Fellum, dá inn 1800. Sjá Presta tal og Prófasta á Islandi eftir Svein Níelsson. Föðurætt min ,hin svokall aða Hákonarstaðaætt, rekst til séra Gunnlaugs Sölvason- ar prests að Möðrudal, kall- að á Fjöllum, og var hann þar prestur um 1628. Mitt síðasta heimili á Is- landi var bærinn að Fossi í Vopnafirði. Þaðan fór ég til Ameríku árið 1876. — Kom fyrst til Duluth, Minnesota.- Settist fyrst að i íslenzku ný- lendunni sem þá var þar allareiðu byrjuð, í Lyon og Yellowmedicine Counties. — Var í Granite Falls, Minne- sota frá 1878 til 1883 og stundaði þá alþýðuskólann. Fékk stöðu sem vikadreng- ur við ríkisþingið í St. Paul, Minnesota veturinn 1879. — Var víst fyrsti Islendingur sem komst í þingþjónustu í Ameríku. Háföi $3.00 á dag og sparaði af því $1.20. Tók skólakennarapróf vorið 1880 og kenndi í skóla í Yellow- medicine County og gerði aðra vinnu, mest búðarvinnu í Granite Falls þar tii vorið 1883 að ég fór suður til Dec- orah, Iowa- — Stundaði þar fyrst Business College og út- skrifaðist eftur þrjá mánuði frá Breckenridge Business College. Heimsótti norska prestaskólann þar, the Luth- er College. Varð þess var að þar var ágæt kennsla í tungu málum. Skrapp upp til Gran- ite Falls, Minnesota um sum arið og vann við heyskap og þreskingu um haustið. Spar- aði vel kaup mitt og fór um haustið til baka til Dechorah og skrifaðist sem nemandi við Lutner College. Tók próf og komst upp í þriðja bekk með þeim skilyrðum að ég yrði að skila tveggja ára lat- ínunámi fyrir utan það sem í bekknum var. Þar hitti ég fyrst Daníel Laxdal, er varð lögmaður í Cavalier, N.Dak., en hann var þá í þriðja bekk. Hann hjálpaði mér með lat- ínuna, en ég gat hjálpað hon um í reikningi og sumu öðru sem hann var ekki svo vel undirbúinn í- Stundaði nám í Luther College þangað til ég var kominn upp að hebr- eskunni um jól 1885. Fór þá alfarinn til Garðar, N.Dak., þar sem ég hafði allareiðu ICWAMniH TO GIJROPB ONABIGBIRD &ALOWFARE Stop in Iceland for only $25* a day on your way to Scandinavia'or Great Britain. Now vou can take advantage of Icelandair’s $25* a day stopover tours of Iceland while you’re taking advantage of our low APEX fare from New York toGreat Britain orScandinavia. Iceland is a land of volcanoes, giant waterfalls, Viking museums, glaciers, ^eysers, concerts, art shows, dutv-free shoppingand ho't-spring pools. And it’s all yours för 1 to 3 days for just $25*a day. You’ll get transfers between airport and Reykjavik, room at the first-class Hotel Ixrftlcidir, breakfast daily, one lunch, city sightseeing tour, and for those staying 2 or3 days, a 10 hourcountryside tour. So on your next trip to Norway, Sweden, Denmark or Great Britain, stop over in Iceland for a few days. l'or further information see vour travel agent or contact Icelandair, RO. Box 105, West Hempstead, NY 11552. Phone 212-757-8585 (New York Gity only) or call 800-555-1212 for the toll-free number in your area. ‘I'riccs in cffcct May 1 thru Scpt. 30. 1980 and subjcct tu changc. ICELANDAIR •Still your best value to Europe hann þeim. Kom hann sér upp fágætu safni vestur- íslenskra bóka og handrita, sem hann síðar gaf Lands- bókasafni íslands. Hér eru ekki tök á að gera grein fyrir menningar- störfum Davíðs Björnssonar. Hins vegar eru þeir mjög samaldra hann og íslendingadagurinn og við hæfi að senda báðum hugheilar árnaðaróskir. H.B.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.