Lögberg-Heimskringla - 30.01.1981, Blaðsíða 5
WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981-5
ramótarceða
íslendingar.
Gleðilegt ár 1981. Megi það færa okkur þá
gæfu og farsæld, sem við leitum öll.
Vel ég því að hér má skýr orð skilja,
skili þjóðir minn ljósan vilja,
tal óbreytilegt veitt af vilja.
Vil ég að kvæðið heiti Lilja.
Þannig kvað Eysteinn munkur Ásgrímsson á
14. öld. Hann kvað það ljóð, sem allir vildu
kveðið hafa, og skildi að vandi er að orða svo
hugsun að hún komist til skila. Orð geta verið
innantóm, en oft eru þau hlaðin merkingu, og
þá eru þau verðmæti, vandmeðfarið að vísu.
Þau geta verið sannleiksperlur, en einnig
sindrandi hjóm, misnotað f þeim tilgangi að
sljóvga dómgreindina.
Orð eru til alls fyrst, stendur einhvers staðar.
Það er ekki nema hálfur sannleikur, því séu
orðin einhvers virði kemur hugsunin á undan.
En í þjóðfélagi nútímans, þar sem glamur,
skarkali og orðaflaumur sýnast oft verða
hljóðri yfirvegun sterkari, er okkur hollt að
hugleiða pistil, sem fyrir allmörgum árum
fannst í kirku í Baltimore í Bandaríkjunum, og
ber yfirskriftina Desiderata, sem útleggst
Leiðarljós:
“Gakktu með stillingu í skarkala heimsins og
mundu þann frið sem í þögninni býr. Láttu þér
eftir megni lynda við alla menn án þess þó að
lúta þeim. Mæltu þinn sannleika skýrt en af
hógværð, ljáðu öðrum eyra, jafnvel heimskum
mönnum og fáfróðum, einnig þeir hafa sína
sögu að segja. Forðastu háværa menn og
ágenga. Þeir eru sálarangur. Farir þú í
mannjöfnuð geturðu orðið bitur og hégóm-
legur, því ávallt verða á vegi þínum þeir, sem
ekki draga úr þér þrótt. Oft er óttinn sprottinn
af lúa og einmannakend. Þegar hollri
sjálfsögun sleppir, þá skaltu hlífa sjálfum þér.
Þú ert barn þessa heims, ekki síður en himin-
tunglin og allt sem lífsanda dregur, og rétt-
borinn ertu til þessarar arfleifðar. Og hvort
sem þú skilur það eða ekki þá. stendur
alheimurinn þér svo opinn sem skyldi. Því
skaltu lifa sáttur við guð, hver sem þér finnst
hann vera, og sáttur við sjálfan þig í erli og
amstri daganna. Því þrátt fyrir brostnar vonir,
strit og undirferli er heimurinn undur-
samlegur. Hafðu gát. Leitaðu gæfunnar".
Og auðvitað er það vonin, sem er leiðarljósið.
Það leiðarljós, sem getið er í upphafi.
Meðan ung skáld yrkja slík ljóð með þessari
þjóð þarf hún ekki að örvænta um sinn hag, og
það eru þessi orð, sem ég vil gera að einkun-
narorðum okkar um þessi áramót: Veistu að
vonin er til . . .
Þegar litið er um öxl virðist svo sem verstu ár
íslenskrar þjóðar hafi verið þegar hún lét
vonleysi ná tökum á sér. Við búum í landi, sem
einatt hefur verið okkur erfitt. Það er oft ekki á
færi okkar að afstýra margskonar vanda, sem
að okkur steðjar. En við getum brugðist við
vandanum. Okkur er gefið vit. Okkur er gefinn
styrkur. Hágsýni er okkur í blóð borin. Allt
þetta og miklu fleira býr í okkur, aðeins ef við
viljum nýta það, en látum vonleysishjal og
úrtölur ekki villa um fyrir okkur.
Glamur og skarkala bar hér áður á góma og
misnotkun orða í áróðursskyni. Við skulum
ekki láta telja okkur trú um það að íslenskt
þjóðfélag sé á vonarvöl. Dægurþras og karp um
keisarans skegg breyta ekki þeirri staðreynd,
að þrátt fyrir úrlausnarefni daglegs lífs, erum
við ekki að syngja okkar síðustu vers. Sannanir
þessa blasa hvarvetna við. Landið okkar og það
afl, sem í okkur sjálfum býr, veitir okkur svo
ríkulegt viðurværi, að áþreifanleg velmegun er
hér miklu meiri en víðast gerist, og svo mikil að
barlómur hlýtur að vera fyrir neðan okkar
virðingu. En velmegun, talin í krónum og
aurum, er annað en velmegun andans.
Það sæmir okkur að vera bjartsýn og trúa á
okkur sjálf. Það er velmegun andans, og til að
öðlast þá velmegun þurfum við þessa von, sem
Veistu að vonin er til...
bæði eru meiri menn og minni en þú sjálfur.
Njóttu bæði afreka þinna og ráðagerða. Varð-
veittu áhuga á starfi þínu, hversu fábrotið sem
þér virðist það vera, það er sönn eign í tímans
rás. Hafðu varann á í viðskiptum því að
veröldin er full af prettum. Láttu það samt ekki
verða til þess að þú kannist ekki við dyggðina
er hún verður á vegi þínum, margir eiga sér
háleita hugsjón og hvarvetna eru hetjur á ferð.
Vertu þér sjálfum trúr. Umfram allt, gerður þér
ekki upp elskusemi. Gerðu ekki lítið úr
kærleikanum. Hann stenst og er lífseigur eins
og gróður jarðar, þrátt fyrir þurrka og hallæri.
Taktu reynslu áranna með glöðu geði og sjáðu
ekki eftir æskunni. Efldu innri styrk svo áföll
verði þér ekki um megn, en láttu hugarfóstur
Veiztu
að vonin er til
hún vex
inni í dimmu gili,
og eigirðu leið
þar um
þá leitaðu
í urðinni
leitðu
á sillunum
og sjáðu
hvar þau sitja
lítil og veikbyggð
vetrarblómin
lítil og veikbyggð
eins og vonin.
svo fallega hefur verið ort um. Megi það verða
kjörorð okkar Islendinga um þessi áramót,
að vonin sem stundum er veikbyggð eins og
vetrarblóm, dafni og verði að sóleyjum sumar-
sins 1981, — vonin um batnandi tíð og góðæri
til sjós og lands og í hugum okkar mannanna.
Með samstöðu og sjálfstæðishugsjón, tillitssemi
og skilningi, hófsemi, sannleiksást og ræktun
lýðræðisins mun okkur vel vegna. Þá munum
við kunna fótum okkar forráð, og þá eigum við
verðmæti að gefa, ekki aðeins okkur sjálfum
heldur einnig öðrum þjóðum.
Gleðilegt ár og megi allt gott sem hugsað er í
heiminum og nefnt sínum réttu nöfnum,
friður, vísindi og manngæska fylgja okkur á
árinu sem fer í hönd og alla tíma.
Proposed Betel Home inWinnipeg
Shown here is the architects con-
cept of the proposed BETEL HOME
Complex which it is hoped will be
built in the City of Winnipeg.
It consists of a two storey Personal
Care Home of 70 rooms and a seven
storey low rental apartment com-
plex of about 70 apartments. The
two buildings will be joined so that
the apartment dwellers may take all
or some of their meals in the dining
room of the Personal Care Home.
The Executive of the Betel Home
Foundation met with the Executive
Committee of the Manitoba Health
Services Commission on 13 Novem-
ber 1980 at which time they pre-
sented a detailed brief and archi-
tects plans. The Commission expres-
sed interest in the concept, but
pointed out that 1981-82 funding
was cómmitted and hence no final
committment could be made at this
time. Since that time, Health Min-
ister L.R. Sherman had advised the
Betel Executive that the Health Ser-
vices Commission has been asked to
review the plans in detail and that
when a new home is built in Win-
nipeg the Betel plan will be given
a thorough and fair evaluation.
Proposed Betel Home in Winnipeg.