Lögberg-Heimskringla - 13.03.1981, Side 4

Lögberg-Heimskringla - 13.03.1981, Side 4
4-WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 13. MARS 1981 Ritstj órnargr ein Varnarsigur Annars staðar í blaðinu er minnst á nýútkomna grein um Guttorm J. Guttormsson. Greinarhöfundur, sem er Sveinn Skorri Höskuldsson, styður þar með dæmum að þótt Guttormur fæddist og lifði langa ævi í miklum landfræðilegum fjarska við bókmenntahræringar á Islandi, tókst honum að skapa verk með nýju sniði á móðurmáli sínu. í grein sinni bendir Sveinn Skorri þó öðrum þræði á þann þrönga stakk sem einangrun frá ættjörðinni óhjákvæmilega sníður smáu þjóðar- broti vestur á sléttum Norður Ameríku. Auk þeirrar einangrunar sem pró- fessorinn nefnir má benda á yfirþyrmandi þrýsting sem ríkjandi menning kjörlandsins skapar. Þessi tvö andstæðu, en þó engu að síður samvirku öfl, þekkja allir sem ekki voru hluti engilsaxnesks þjóðfélags þegar þeir fyrst stigu á land eða sáu dagsins ljós í Norður Ameríku. Þjóðbrotamenning Norður Ameríku verður þó ekki afgreidd með jafn einföldum hætti og nú var gefið til kynna. Rás tímans hefur Guðjón Guðjón Árnason stórbóndi á Espihóli við Gimli varð níræður þann 25. febrúar síðastliðinn. Nokkru áður höfðu þau hjónin Guð- jón og Petra haldið upp á sextíu og átta ára brúðkaupsafmæli. Guðjón er af kunnu fólki kominn og börn hans, barnabörn og barna- barnabörn hafa getið sér góðan orðstír. Þegar sá hópur er saman kominn, má Guðjón hafa sig allan við að telja. Mikill mannfagnaður er að Guð- jóni hvar sem hann fer. Ekki verður honum fótaskotur á móðurmálinu, heldur er gullaldaríslenska allra tíma honum svo tungutöm að manni gæti helst dottið í hug að hann væri stokkinn út úr klassískri Islendinga- sögu eða hefði lært tungu hinna fornu goða. Guðjón Árnason er með stærri mönnum og svo tignarlegur á velli að manni dettur helst í hug að hann mishraða strauma og ryður ekki ávallt farveg sinn í einni svipan. "Ekki eru allir Jómsvíkingar dauðir", heyrðist mælt í vestur- íslenskri byggð eigi alls fyrir löngu, og hefur þó róðurinn verið þungur. Lögmál lífsins í henni Ameríku er svo fastmótað að þeim sem reynt hefur að hrófla eitthvað við því kann að virðast sú viðleitni lítið ann- að og meira en stundargletta við örlögin. Slíkar stundarglettur eru þó meiri athygli verðar en margur virðist fus að veita þeim. I stuttu máli má skilgreina þær sem menn- ingarlegt og þó fyrst og fremst mál- farslegt viðnám sem fólk gjarna veitir þegar það skynjar sína eigin varnarstöðu. í þessu sambandi er ekki úr vegi að stíga eitt viðbótar- skref með því að beina athyglinni að því að hæfileikar og mannkostir birtast oft miklu skýrar í kænlegri vörn heldur en linnulausri sókn. Sóknin treystir á mannafla. Vörnin á allt undir hyggjuviti hins fáliðaða. Fornar hetjur gátu sér hvað mestan orðstír í gjörtaparðri varnar- stöðu. Hugvitsamlegt viðnám gegn Guðjón Árnason sé í ætt við fjallatinda umhverfis Eyjafjörð, en forfeður hans áttu heima í skjóli við þá tinda. Ekki er Guðjón þekktur að því að grípa á lofti dægurflugur múg- mennskunnar. Hann fer sínar eigin ofurefli var þeirra stundargletta, og einmitt þetta geymum við miklu trúlegar í minni heldur en sigurvæn- legar árásir. Ofangreind samlíking er síður en svo fjarstæðukennd þegar ræða skal vesturíslenskar bókmenntir. Verk Guttorms J. Guttormssonar eru, eins og Sveinn Skorri bendir rétti- lega á, dæmi um það að landfræði- leg einangrun fagnar ekki ávallt skjótum sigri, heldur getur viðnámið gegn henni aukið mönnum þrótt. Með svipuðum hætti má sækja þrótt í lífvænlegustu strauma ríkjandi tungu og menn- ingar kjörlandsins, þ.e.a.s með því Upplýsinga leitað Blaðinu væri þökk í upplýsingum um Jón Sigurðsson sem endur fyrir löngu fluttist vestur um haf frá Bjarnastöðum í Vesturdal i Skagafirði. götur og er gjörsamlega óragur við að hreyfa andmælum ef honum gest miður að andblæ líðandi stundar. Fyrir nokkrum árum þegar Islend- ingar áttu í vök að verjast vegna ágangs erlendra þjóða á fiskimiðum undan íslandsströnd, gerði einhver þá tillögu að senda Guðjón til íslands á víkingaskipi og skyldi hann hafa syni sína alla sem áhöfn í þeirri för og stugga við herskipum. Sú ferð var ekki farin, en ekki er að draga það í efa að enginn myndi sóma sér betur í stafni rennilegs langskips en Guðjón Árnason. Sigl- ing hans gegnum lífið er nú orðin lengri en flestra annarra. Við væntum að hún megi enn lengjast. Guðjóni sjálfum og öllu hans samferðafólki til gleði og ánægju. H.B. Around Dr. and Mrs. Gestur Kristjansson have just returned from a very en-. joyable winter holiday in Florida. While there, they visited the Tampa Bay area, Bradenton, Sarasota and the beginning of the Strawberry Fes- tival in Plant City. Plant City is the sister city to Portage la Prairie, Man- itoba. It is known as the Strawberry capital of the world. There are over 2,000 acres in strawberry cultiva- tion in Florida, with Plant City producing 80% of the state's annual harvest. Norma and Gestur enjoy að beina þeim í farveg sköpunar. Herbragðið er með öðrum orðum í því fólgið að snúa vörn í sókn. Varnarsigra, ef svo má að orði komast, vinna þeir einir sem hafa vit og vilja til að skilja þær aðstæður sem örlögin hafa búið þeim, og hefur sá skilningur verið höfuð- forsenda þess að Vestur-íslending- um tækist að skapa varnaleg verð- mæti á móðurmáli sínu. Hér koma þeir mjög við sögu Stephan G., Gutt- ormur og Jóhann Magnús Bjarna- son, svo að dæmi séu talin. Þessir. íslensku fulltrúar héldu vöku sinni á þeim vígstöðvum sem áður var reynt að skilgreina í þessum pistli. Afrek þeirra voru að nokkru leyti fólgin í því að brjóta þessar aðstæður svo vandlega til mergjar á nýrri og óíslenskri slóð að þær gætu orðið órjúfanlegur hluti verka þeirra. Nú eigum við þá Stephan G., Guttorm J. og Jóhann Magnús aðeins í bókum, og svo kann í fljótu bragði að virðast að rödd þeirra hafi færst í nokkurn fjarska. Sú rödd er þó ekki þögnuð. Síðastliðið ár vöktu þrír höfundar af íslenskri ætt mikla athygli fyrir bókmenntaframlög sín um Kanada þvert og endilangt. Ætternið eitt skiptir þó ekki máli, heldur hitt að höfundarnir þrír byggðu á sama grunni og þeir Stelphan G., Guttormur J. og Jóhann Magnús. Tóntegundin var að vísu ögn frábrugðin og tungan önnur en forðum. Engu að síður gætir hér á mjög ótvíræðan hátt endurnýjunar þess arfs sem við ekki vildum týna. Nýju skáldin kunna skil á sínum vígstöðvum. Þótt liðsafnaður þeirra sé enn í hófi, er líklegt að víglínur allar verði nú dregnar umhverfis stærri spildu en verið hefur um sinn. Spyrji einhver hvort íslenskur bókmenntaarfur hér vestra hafi ekki fyrir löngu orðið einangrun og ofurefli að bráð, má vitna óbeint til orða vesturíslensks skálds, sem eitt sinn uppgötvaði þá staðreynd eftir svaðilför og hrakninga að lífið myndi sterkara en dauðinn. H.B. their golf and the Florida winter sunshine made that most enjoyable. They played several golf courses in the Tampa Bay area, namely; Airco, Rocky Point, Nine Eagles, Airport and Diamond Hill. They are both 'A' golfers, Gesturs' handicap being 11 and Norma's an 18. Last sum- mer, Gestur won the low net trophy in the Manitoba Seniors, placing in the top ten and Norma won the Manitoba Amateur Senior B trophy and the Manitoba Doctors Wives Tournament. Lögberg - Heimskringla Published every Friday by LÖGBERG- HEIMSKRINGLA INCORPORATED 1400 Union Tower Building, 191 Lombard Avenue, Winnipeg, Manitoba R3B 0X1 — Telephone 943-9945 EDITOR: Haraldur Bessason ASSISTANT EDITOR: Margrét Björgvinsdóttir ADVERTISING AND SUBSCRIPTIONS: Stan Belobaba REPRESENTATIVE IN ICELAND: Magnús Sigurjónsson Umboðsmaður Plaðsins á íslandi Skólagerði 69 Kópauogi Simi 40455 Posthólf 135 Reykjavík Typesetting, Proofreading and Printing — Typart Ltd. Subscription $15.00 per year — PAYABLE IN ADVANCE $20.00 in Iceland — Second class mailing registration number 1667 — Arnason níræður and About

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.