Alþýðublaðið - 01.10.1960, Side 3

Alþýðublaðið - 01.10.1960, Side 3
4 hafa fallið í París PARÍS. — Skæruliðar hafa fellt 1124 manns í Par ís og úthverfum síðan upp reisnin brauzt út í Alsír fyrir nærri sex árum. Þetta var tilkynnt frá að- alstöðvum frönsku lögregl- unnar í gær. Á sama tímabili hafa skæru liðarnir sært 1354 manns í þeim 1864 árásum, sem Par- ísarlögreglan hefur fengið til meðferðar. Tuttugu lögreglumenn hafa verið vegnir og 27 særst HINIR STÓRU í KONGÓ Á FUNDI Sýning á vatns litamyndum f DAG verður opnuð sýning vatnslitamynda eftir listmálar- ann Sólveigu Eggerz Pétursdótt ur. Á sýningunni eru 78 vatns- litamyndir sem frúin hefur málað á sl. ári. Flestar mynd- irnar eru frá Reykjavík og ná- grenni Reykjavíkur. Þetta er fyrsta sjálfstæða, op- inbera sýningin, sem frúin hef- ur haldið, &n í fyrra voru sýnd- ar nokkrar myndir eftir hana í Morgunblaðsglugganum. Frú Sólveig var nokkurn ,tíma við liám í Handíða- og myndlista- skólanum í Reykjavík, en íluttist síðan út til London, og var þar í eitt ár á myndlistar- skóla. Sýningin verður opin daglega frá 11 f. h. til 11 e. h. til 9. okt. Elisabetville, 30. sept. (NTB-Reuter). í dag gaf Tsjombe út yfir- Iýsingu þess efnis, að hann hefði ekki í hyggju að taka á móti væntanlegri sendinefnd, sem Mobutu hefur í hyggju að scnda til Katanga. Einnig hefur Tsjombe sent Kasavubu skeyti, þar sem hann setur fram skilyrði sín fyrir þátttöku í ráðstefnu ráðamanna landsins um framtíð Kongo. — Tsjombe krefst þess í fyrsta lagi, að ráðstefnan verði hald- in í hlutlausu landi, að fjöldi þátttakenda verði takmarkað- ur, þar sem mikill fjöldi full- trúa kunni að eyðileggja ráð- stefnuna, og í þriðja lagi, að hann fái fyrir fram að vita um þær tillögur stjórnar Kongó, sem hún hyggst leggja fram á ráðstefnunni. HVER haldið þið bara að sé þarna og ætli að fara að fá sér bíltúr um Nevv York í litla fallega bíln- um landsins síns? Þó að þið reynduð í allan dag, gætuð þið ekki getið upp á því. Það er hann Kadar, hvorki meira né minna, sem gat sér svo góðan orðstí í Ungverjalandi hér um árið, þegar fasistarnir nörruðu verkamenn til að gera uppreisn gegn vel- gjörðarmönnum sínum kommúnistum og hefði sennilegast komizt upp með það, ef Rússar hefðu ekki 'sent dálítið af skrið- drekum, sem skutu dálítið á verkamennina í nafni frelsisins. Síðan hefur Kadar verið forsætisráð- herra í Ungverjalandi, og var meir að segja svo heppinn um daginn að fá far á allsherjarþingið í New York með sama rúss- neska skipinu og Krúst- jov.Hvað eru allirlögreglu þjónarnir að gera? spyrj- ið þið. Jú, þeir eiga að passa, að ungverskir að- dáendur Kadars í Amer íku kæfi hann ekki í koss- um. A BÆJARSTJORNAR- FUNDI á Akranesi í gær lá frammi áskorun frá borgara- fundi um að setja skyldi Daní- el Ágústínusson, fyrrv. bæjar stjóra, aftur inn í embættið eða að öðrum kosti skyldi efnt til nýrra bæjarstjórnarkosninga. Meirihluti bæjarstjórnar bar þá fram frávísunartillögu við þessa áskoru'fl og var frávísun- artillagan samþykkt með 6 iat- kv„ gegn 2. Einn bæjarfulltrúa sat hjá. Bæjarfógeti bar, að hann he’fði í vörzlum sínum 20 und- irskriftarlista, sem undirskrif- aðir væru af 1030 manna, þar sem skorað væri á bæjarstjórn að setja Daníel Ágústínusson aftur inn í embætti bæjar- stjóra eða að öðrum kosti yrði efnt til nýrra bæjarsfjórnar- kosninga. Þess var ekkf getið, hvort listar þessir væru undir skrifaðir af kosningabærum mönnum. Framsögumaður kommún- 1 ista á bæjarstjórnarfundinum í gær sagðist hafa þessi skjöl í tösku sinni og dró upp, — en vildi ekki leyfa bæjarfull- trúum að líta á þau. Um mál þetta urðu litlar umræður, en fram borin frávís unartillaga svohljóðandi: ,,Með því að vitað er, að á borgarafundi þeim, sem hald- inn var á Akranesi hinn 27. ágúst sl„ var því eindregið haldið fram af frummælendum og öðrum, sem að fundinum stóðu, að gerðir meirihluta bæjarstjórnar um að segja bæjarstjóra upp starfi, hafi ekki við lög að styðjast. Það er ennfremur vitað, að þær undirskriftir, sem vitnað er í, eru að verulegu leytj byggðar á sömu rökum Nú er hins MHwwvmMMmMmmm vegar upplýst, eftir að dómur hefur fallið í máli þessu, að uppsögn bæjarstjóra var í alla staði lögleg, enda hefur hann fallizt á það sjálfur með því að áfrýja ekki dóminum. r Nýjar kosningar eru því aðeins löglegar, að meirihluti bæjarstjórnar komi sér ekki saman um kjör bæjarstjóra. Slíkur ágreiningur er ekki íyr ir hendi að svo komnu máli. Að framansögðum ástæði^m sér bæjarstjórn siff ekki geta órðið við áskorun þeirri, sfem hér liggur fyrir og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“ Tillaga þessi var samþykkt með 6 atkv. gegn 2. Einn bæj- I arfulltrúi sat hjá við atkvæða- , greiðsluna. Var þá lokið umræðum um þetta mál. S'ettur bæjarstjóri á Ak;ra- nesi, Hálfdán Sveinsson, bar svo fram tillögu um að bæjtar- stjórn auglýsti bæjarstjóra- stöðuna á Akranesi lausa til umsóknar, með umsóknarfresti til 1. nóv. 1960. Tillaga þessi var samþykkt. 4 tlma í Norður- sjó - og lifði BREMEN — Ungkona velktist í fjórtán stundir í Norðursjó með andvana barn sitt í fanginu og lík mannsins síns bundið við björgunarbeltið. Björgunarskip fann Maríu Meiners síðdegis síðastliðinn mánudag. Hún var lifandi, en rænulaus. Hún er 21 árs. Hún hafði verið með flutn- ingaskipinu Adelheid, sem strandaði og sökk eftir mið- nætti' aðfaranótt mánuda.gs. Maðurinn hennar var skip- stjóri á skipinu. Móðir hennar, sextug kona, var meðal þeirra, sem fórust með því Framkvæmdir á Akranesi Á BÆJARSTJÓRNAR- FUNDI sem haldinn var á Akranesi í gær, var samþykkt að fela bæjarráði að athuga alla möguleika á að steypa slit- lag á Kirkjubraut frá Skulda- torgi að Merkjagerði. Gatna- umbót þessi skyldi fram fára þegar í haust. Einnig var á sama fundi samþykkt, að hefja starfsemi tveggja deilda heilsuverndar- stöðva á Akranesi; mæðra- óeildar og berklavarnardeildar. Déildirnar munu verða til húsa í sjúkrahúsi Akraness. Allt floti • alls staðar * LYONG. — Vínupp- skeþan á Bcaujolíais- svæðinu í Frakklandi varð svo mikil í ár, aS vatnsgeymar þorpanna hafa sums staðar verið teknir undir vín! Lögreglan kvað hafa á þeim vakandi auga. WWWMWMWWWWWWWW Alþýðublaðið 1. okt. 1960 3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.