Alþýðublaðið - 01.10.1960, Síða 16

Alþýðublaðið - 01.10.1960, Síða 16
kominn HINN heimsfrægi, ungi skáksnillingur og stór- meistari Bobby Fischer kom til Beykjavíkur í gær. Upphaflega hafði verið áætlað að hann kaemi hingað nokkru fyrr og tæki þátt í Gilfer- mótinu. Einhver misskiln- ingur hefur því átt sér stað, því Fischer hélt að hann kæmi hingað gagn- til að taka þátt í því móti. Blaðamönnum var boð- ið tii fundar með Fischer skömmu eftir að hann kom. Reyndist þetta undra-,,barn“, vera við- kunnanlegur piltur, hár og grannur. Hann virðist vera mjög utan við sig, og ekki laust við að hann væri dálítið feiminn. Fischer getur verið hér til 14.—15. okt., en þá verður hann að fara til Leipzig. Þar tekur hann þátt í olympíuskákmót- inu, og teflir á fyrsta borði. Eftir mótið í Leip- zig mun hann ferðast eitt hvað um Evrópu, en halda að því búnu heim. Þegar Fischer frétti eftir komuna hingað, að Gilfer-mótinu væri að Ijúka, varð hann fyrir miklum vonbrigðum. En nú hefur Taflfélag Reykja víkur ákveðið að efna til sérstaks. móts í tilefni af komu hans, og er ráðgert iðsjórn ASI staðfestir of- beldi komma mánudag. Ætlunin er að aðeins 6 menn taki þátt í þessu móti. Ekki hefur að fullu ver ið gengið frá því, hverjir taki þátt í mótinu, en mikl ar líkur eru til að það verði þeir, Friðrik Ólafs- son, Ingi R. Jóhannsson, Freysteinn Þorbergsson, Arinbjörn Guðmundsson og svo auðvitað Fischer. í athugun er hvort skák- Norðurlanda S'vein Johannessen, geti einnig tekið þátt í mótinu. Ekki er að efa að mót þetta yrði skákunnendum heilt ævintýri. Bobby Fischer var ekki nema 6 ára, þegar systir hans kenndi honum fyrst mannganginn. Síðan eru liðin 11 ár, og hefur Fischer á þessum stut.ta tíma haslað sér völl, sem einn bezti skákmaður ver aldar. — ár — MIÐSTJORN Alþýðusam- bandsins hefur nú lokið af- greiðslu á kæru Jóns Hjálm- arssonar o. fl. út !af kosninga- 'ofbeldi komu((únista í Dags- brún í sambandi við kosningu fulltrúa á Alþýðusambands- þing. Miðstjórnin telur sig hafa komizt [að þeirri niður- stöðu, að á áskorunarlistunum sé 431 fullgildur félagsmaður °g þ?A jjafnvel eftir thinum furðulegu reglum Dagsbrúnar- stjórnarinnar. Við stjórnarkjör í vetur taldi Dagsbrúnarstjórn 2469 fulílallda (ftjlagsmenn. Fimmit- ungur þess eru 494 og þá vant ar 63 fullgilda meðlimi' upp á áskoranirnar til þess að mið- stjórn Alþýðusambandsins væri skylt að fyrirskipa alls- her j aratkvæðagreiðslu. Samkvæmt upþlýsingum miðstjórnarinnar hafa auk þess 64 meðlimir undirritað á- skorunina, sem Dagsbrúnar- stjórnin neitar um full félags- réttindi, þar af 51, sem haid- ið er ólöglega á meðlimaskrá, 6 sem gleymdu að rita heim- ilisfang við_ nafn sitt á list- unum og 7 sem skulda, en ekki Kaffisala Berklavarnar í Hafnarfirði FÉLAGIÐ Berklavörn í Hafnarfirði hefur kaffisölu suisnudaginn 2. okt. í Sjálf- síæðishúsinu í Hafnarfirði til ágóða fydr starfsemi félagsins. Deild þessi hefur starfað í Hafnarfirði um nokkurra ára skeið. Hefur hún haldið uppi spilakvöldum og annarri starf- sem.i. til skemmtunar félags- n'>önnum. Einnig hefur deildin á hverju ári haldið bazar og haft kaffisölu. Þær konur, sem vildu gefa kökur til kaffisölunnar n. k. | sunnudag, eru beðnar að koma | þeim r Sjálfstæðishúsið í dag, I kugardag milli Idulikan 5—7. I Viðskiptum lýkur með frírri ökuferð VENJAN er að menn aki bílum til reynslu, eða láti aka sér, þegar þeir ætla að kaupa þá. Þykir þetta engum tíðind- um sæta, og leggur seljand- inn slíka fyrirhöfn á sig ljúf lega, jafnvel þótt slíkur reynsluakstur taki nokkra stund. Óvenjulegra ei', að farið sé í langferðir með Væntanljg- an kaupanda, þótt það hafi komið fyrir. Alþýðublaðið kom á eina af meiriháttar bílasölum bæj arins í gæivog voru þá menn !að hafa það að gamanmáli, að dæmi væru þess að farið hafi verið með væntanlegan kaupanda vestur í Dalasýslu, þar sem hann sagðist hafa peninga. Þegar þangað kom reyndist kaupandinn laðeins hafa verið að næla sér í fría skemmtiferð. Að minnsta kosti varð ekkert úr kaupum. Þá hafði það gerzt á þess- arj bílasölu og líklega fleir- um, að menn koma og láta aka sér heim undir því yfir- skyni, að þeir séu að lathuga um kaup á þíl, Um einn mann er vitað, sem átti heima fyrir innan bæ að hanu kom alltaf um fimm- Ieyíið á ákveðuia þílasölu hér í bænum, settist inn í næsta bíl, sagðist hafa hug á að kaupa hann, og bað eigand- ann !að aka með sig, til að hann gæti kynnst bílnum. — Alltaf var ekið sömu leið, inn fyrir bæ, dag eftir dag, út því klukkan var fimm. Þegar þessi stundvísi kaupandi var kominn heim til sín, þakkaði hann fyrir og sagðist mundi athuga málið,. Loksins þótti þetta eigi einleikið og fór svo að hann fékk ekki !að pi'ófa bíla lengur með þessum hætti. Þá hefur komið fyrir, að Frh. á 14. síðu. er gefinn kostur á að greiða félagsgjöld sín, til þess að öðl ast full réttindi. Rannsókn Alþýðusambandg ins leiðir sem sagt í ljós, að 495 meðlimir í félaginu hafa ritað undir áskorun um alls- herjar-atkvæðagreiðslu í Dags brún. Þessi tala áskorenda væri nægileg til þess að skylt væri að viðhafa allsherj^rat- kvæðagreiðslu, ef Dagsbrúnar stjórnin beitti ekki' andstæð- inga sína í félaginu bolabrögð um, eins og rannsókn mið- stjórnar Alþýðusambandsins hefur nú leitt í ljós. Auk þessa rituðu nöfn. sín á áskorunarlistana 56 menn, sem eru verkamenn en finnast Framhald á 14. síðu< B-Iisti í ASB KOSNIÍÍG fulltrúa A. S. B. á Alþýðusambands þing fer fram í dag og á morgun, að viðhafðri alls her j aratkvæðágreíðs’f i. Kosið er í Skipholti 19 III. hæð (sama hús Röðull er). B-listi andstæðinga kommúnista skipa: Aðal- heiður Benediktsdóttir og Hulda Sigurjónsdóttir. Til vara; Berglind Braga- dóttir og Kristín Matthías dóttir. f dag er kosið kl. 3,30-— 11,30 síðdegis og á morg- un kl. 2—10 síðdegis. X B-LISTINN! Osló, 30. sept. (NTB). Leitin að norska hvalveiði- bátnum heldur áfi'am, en síð- ustu fréttir herma, að hún hafi engan árangur borið. Báts- ins er leitað af eftirlitsskipinu, „Garm“ og bandarískum flug- vélum. Tilkynnt var í gær- kveldi, að flugmenn hefðu séð brak, sem þó er talið ólíklegt að sé úr Rodny.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.