Alþýðublaðið - 02.10.1960, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 02.10.1960, Qupperneq 3
Á AÐALFUNDI félagasam- takanna Vernd sl. þriðjudag var samþykkt tillaga þess efnis, að samtökin beittu sér fyrir bví að sett yrðu á stofn heimili í LeiÖrétting MEINLEG prentvilla slædd- ist inn í grein á baksíðu blaðs- ins í gær, þar sem skýrt var frá staðfestingu miðstjórnar A. S. f. á ofbeldi kommúnista í stjórn Dagsbrúnar. Rétt er málsgreinin þannig; „Samkvæmt upplýsingum miðstjórnarinnar hafa auk þess 64 meðlimir undirritað áskor- unina, sem Dagsbrúnarstjórnin heitir um full félagsréttindi, þar af 51, sem haldið er ólög- lega á aukameðlimaskrá, 6 sem gleymdu að rita heimilisfang við nafn sitt á listunum og 7 sem skulda, en ekki er gefinn kostur á að greiða félagsgjöld sín, til þess að öðlast full rétt- indi“. Reykjavík fyrir þurfandi menn, sem lokið hafa eða bíða dóms. Þetta heimili hefði fyrst og fremst gistiherbergi og mötu- neyti, þar sem einstaklingar gætu fengið aðhlynningu á með an þeir dveljast í Reykjavík. Sömuleiðis yrðu þar vinnu- stofur og samkomustaður fyrir þessa menn. Heimili þetta hefði einnig það hlutverk á hendi, að annast vinnumiðlun fyrir þá, og með hjálp sérfróðra manna að stuðla að því að gera þá að nýtum þjóðfélagsþegnum. Aðalfundur Verndar var haldinn í Tjarnarkaffi 27. sept. sl. Fundarstjóri var kjörinn dr. Gunnlaugur Þórðarson, en fundarritari dr. Matthías Jón- asson próf. Var fundurinn mjög vel sóttur og mikill áhugi ríkj- andi á verkefnunum. Formaður samtakanna, frú Þóra Einars- dóttir, flutti skýrslu stjórnar- innar og rakti um leið að nokkru tildrögin að stoínun samtakanna, Þau voru stofnuð 6. apríl 1959 og í þeim tilgangi að hjálpa og hafa eftirlit með fólki, sem gerzt hefur brotlegt við refsilöggjöf landsins. Síðan drap formaður á helztu viðfangsefni samtakanna á liðnu starfsári. Mjög hafði ver- ið unnið að útbreiðslumálum. Nú eru 130 einstaklingar, 14 félög og 31 fyrirtæki aðilar að 'Vernd og hafa með framlögum sínum styrkt samtökin á ýms- an hátt. Á árinu var ráðinn framkvæmdastjóri Axel Kvar- r.n stud jur. Skrifstofa samtak- anna er í Aðalstræti 18, og hafa fjölmargir leitað þangað. Á aðfangadagskvöld í fyrra gekkst Vernd fyrir jólafagnaði fyrir heimilislausa einstaklinga og notuðu 30 manns sér það. — Samtökin hafa notið aðstoðar ýmissa aðila, fengið viðurkenn- ingu stjórnarvalda og fjárveit- ingu á fjárlögum. Vernd hefur frá upphafi haft samráð við Óskar Clausen rithöfund og unnið að lausn ýmissa mála í samráði við hann. Lögfræðileg- ur ráðunautur samtakanna hef- ur verið ráðinn Guðmundur Yngvi Sigurðsson. Tilkynning Nr. 25/1960. Verðlagsnefnd hefur ákveðið hámarksverð á eftirtöld um unnum kjötvörum svo sem hér segir: Heildsöluverð: Smásöluverð: Vínarpylsur, pr. kg. . kr. 25,25 kr. 31,00 Kindabjúgu, pr. kg.... — 24,40 — 30,00 Kjötfars, pr. kg........— 15,95 — 20,00 Kindakæfa, pr. kg.......— 33,00 — 44,00 Söluskattur er innifalinn í verðinu. Reykjavík 1. október 1960. Verðlagsstj órinn. Stjórn 'Verndar skipa: Þóra Einarsdóttir, formaður; séra Bragi Friðriksson, varaformað- ur; Lára Sigurbjörnsdóttir, rit- ari; Benedikt Bjarklind, dóm- fulltrúi, gjaldkeri; Rannveig1 Þorsteinsdóttir, hrl.; Helgi Vig- fússon, forstjóri; og Baldur Möller, stjórnarráðsfulltrúi, — skipaður af dómsmálaráðuneyt- inu. Varastjórn er þannig skip- uð: Sigríður J. Magnússon, form. KRFÍ, Guðmundur Jó- hannsson, forstjóri, Guðmund- ur Yngvi Sigurðsson, lögfræð- ingur, og Óskar Clausen, rithöf- undur. Endurskoðendur; Dr. Dr. Gunnlaugur Þórðarson og dr. Ásmundut Guðmundsson, biskup. Ketil syngur KETILL Jensson óperu- söngvari heldur söng- skemmtun í Gamla bíói næstkomandi þriðjudag kl. 7,15.Undirleik annast Skúli Halldórsson tónskáld. Á efnisskránni eru innlend og erlend lög, bæði söng- lög og lélt ítölsk lögt. Ketill hefur ekki getað helgað sig söng undan- farin ár sem skyldi vegna atvinnu sinnar. En að ósk og áeggjan vina og kunn- ingja, sem finnst að of hljótt hafi verið um hann að undanförnu, gefst nú bæjarbúum kostur á að hlýða á söng Ketils Jens- sonar. Hefur hann æft af kappi í sumar með aðstoð Skúla Halldórssonar. Ketill kom fyrst fram sem einsöngvari árið 1948 með Karlakór Reykjavík- ur. í ársbyrjun 1949 hélt ■: hann til Ítalíu til söng- náms, kom heim í árslok 1 1951 og hélt sínar fyrstu söngskemmtanir með að- stoð Fritz Weisshappel í ‘ Gamlabíói í febrúar 1952; Fór síðan tvívegis aftur ■ til Ítalíu til frekara söng- ' náms og í febrúar 1955 r hélt hann aftur söng- » skemmtanir í Gamla bíói. Árið 1955 fékk Ketill styrk frá Menntamála- f ráði til söngnáms í Vest- _ ur-Þýzkalandi og dvald- l’ ist þar í 3 mánuði. f Meðan Ketill var við nám á Ítalíu söng hann m,. a. aðaltenorhlutverkið (Egardo) í óp. Lucia dij, Lammermoor eftir Donni- zetti í Rovello Porro, sem *= er bær skammt frá Míl- ano. Hér heima liefur hann sungið í óperettunni Leðurblakan eftir J. Strauss og óp. Cavalleria Rusticana eftir Mascani í Þjóðleikhúsinu og við , f jölda mörg tækifæri bæði í Reykjavík og úti á landi. >' Myndin sýnir þá Ketil og Skúla að æfingu á heim ili tónskáldsins. HMWWWWMMMWWWMMMMWMMMmWMMMWWWW • 'f Sigga Vigga Aöalfundur FUJ í Hafnarfiröi ABALFUNDUR FUJ í Hafnarfirði verðúr haldinn nk. mánudagskv.- kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu við Strandgötu. Á fundin- um fara fram venjuleg; aðalfundarstörf og eru fé -lagar hvattir tii þess að f jölmenna. — 2. okt. 1960 3 Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.