Alþýðublaðið - 23.10.1960, Side 11
Guðm. Þórarinsson
Frjálsíþróttarabb
OFT hefur verið talað um
æfingakerfi Zatopeks, enda
ekki undarlegt, jafn frægur
hlaupari og hánn var um
margra ára skeið. Við skul-
um því að þessu sinni líta
aðeins á það, hvernig hann
æfði í grundvallaratriðum.
Aðferð hans byggðiist á
hinni gamalþekktu aðferð
að hlaupa lengri vegalengd
en keppnisvegalengdin er
og að leggja í þessa vega-
lengd mismunandi langa
spretti með mismunandi
hraða.
Lítum nú á tvö mis-
munandi tímabil. 1. Hann
æfði undir 10 þús. m. .hlaup
og hyrjaði með því að ganga
200 m. hlaupa 100 m í
spretti — ganga 200 metra
(frekar hratt) — hlaupa 100
metra x spretti o.s.frv. eða
\\ þar til hann hafði hlaupið
^ jafnmarga 100 metra spretti
5 og vegalengdin var sem
hann æfði undir, þ.e.a.s. 100
spietti, og var tírni hvers
100 m %—1 sekúndu und-
ir meðaltímanum í hlaup-
inu. Hlypi hann 10 þús. m
á 30:00,0 mín. þá er meðal-
hraðinn á 100 m í hlaupinu
18,0 sek. og því hljóp Za-
topek hvern 100 m sprett á
17,0 til 17,5 sek. En með
göngunni á milli fór hann
30 þús. m á æfingunni.
Til að meta úthaldið var
gönguvegalengdin stytt
smátt og smátt og að lokum
var farið yfir í jogg og þá
joggað fyrst 200 m á milli
en það síðar stytt smátt og
smátt, þar til hann gat dag
einn hlatxpið 100 100 m
spi'etti án joggs á milli.
Sxðar var skipt á 100 m
vegalengdum í 5 x 200 m
og síðar 25 x 400 m sprett
um.
2. Hann var að æfa sig fyrir
5000 m. hlaup og hljóp þá
15—20 400 m hlaup og tím
inn á hverjum 400 m var
' betri en meðaltíminn á 400
m í 5000 m hlaupinu.
Hann hljóp í maí 5000 m
á 14:20,0 mín. en þá er með
altími 100 m 17,2 sek., 200
m 34,4 sek. og 400 m 68,8
sek. Zatopek hljóp 400 m á
67,0 sek. en síðan joggaði
hann næstu 400 m á um 2
mínútum mjög létt og æf-
ingin tók í heild um klukku
stund.
Uthaldið eykst og tíminn
á milli 400 m hlaupanna er
styttur smátt og smátt, þ.
e.a.s. 400 m joggið tekur nú
IV2 mín. í stað 2ja og æf-
ingin styttist um 10 sek.
Zatopek setti sínar æfing
ar því í kerfi ákveðinna
vegalengda og ákveðins
tíma á vegalengdina og
milli þeirra og hann æfði
alltaf á braut.
Þessi aðferð er upprunnin
í Ameríku og Englandi, þar
sem hún þróaðist nokkuð og
er því alrangt að eigna Za-
topek hana, en hins vegar
skipulagði hann þetta mjög
nákvæmlega og stimplaði
hana militarisma.
Sumir vilja halda því
fram, að þessir 400 m sprett
ir séu góð spretthlauparaæf-
ing. En þó eru flestir sam-
mála um að svo sé ekki. Sé
ætlunin að æfa upp hraðann
þá þarf að hlaupa 100—200
m spretti á talsvert betri
tíma en sekúndu undir með
altíma í keppnisvegalengd-
inni.
Hann hleypur eins hratt
og hann getur og svo aftur
og aftur á meðan hann get-
ur hlaupið sprettina, t. d.
200 metrana á 5 sek. betri
tíma en meðaltímanum. A
milli sprettanna eru jogg-
aðið 200 metrar rólega.
Svo eru aðrar aðferðir
með 100 m sprettum eða 50
m sprettum og til og með
20 m spretti.
Erlendar íþrótta-
fréttir í stuttu máli
Fjórir heimsfrægir ástralskir |
sundmenn og konur hafa ákveð |
ið að hætta allri keppni. Fyrst S
skal frægan telja John Devitt
Olympíumeistara í 100 m
skriðsundi bæði í Melbourne1
1956 og í Róm. Hann á og
heimsmet í 100 m og 110 vds
skriðsundi. — Goffrey Ship-
ton, einnig þekktur skrið-
sundsmaður. — Alva Colquhon
hún var í sveit Ástralíu í 4x100
m skriðsundi kvenna á Olvm-
píuleikunum í Róm. Gergayn-
ia Beckett, baksundkona.
Það kemur mjög á óvart, að
Shipton skuli hafa ákveðið að
hætta, því að hann er ungur
og líklegur til enn meiri af-
reka og Ástralíumenn voru
farnir að gera sér vonir um
að hann myndi verja heiður
þeirra í sundinu í Tokíó 1954.
En Shipton segir, að hann hafi
ekki efni á því að æfa, það
fari of mikill tími, sem hann
myndi annars nota til að vinna.
rHann segf.st x'.taurb'lánkuL'
eftir Rómarförina. Colquhon
hættir af sömu ástæðum og
Shipton.
Jesse Owens segir; Arrnin
Hary er sá, sem beztu viðbragði
nær af öllum spretthlaupur-
um. En hinn gamli sprett-
hlaupari segir, að veikleiki
Harys sé lélegur endasprett-
ur.
Handknattleikur:
5 meistaraflokks
leikir / kvöld
1
Holmenkoll-
en mótiö
HOLMENKOLLENmótið verð-
Ur haldið í tveim hlutum í vet-
ur. Dagana 25. og 26. febrúar
verður keppt í stórsvigi og svigi
í Nordefjell og Rödkleiva. Sið-
an fer fram keppni í skíðagöngu
— stöklci og norrænni tvíkepjxni
10. til 12. marz
Handknattleiksmótið heldur
áfram í kvöld kl. 8,15 og þá
keppa í meistaraflokki kvenna:
'Víkingur — Þróttur og Ár-
mann — Valur. Þessir leikir
eiga báðir að geta orðið spenn
andi.
í karlaflokki leika: ÍR — Ár-
mann, Valur — Víkingur og
KR •—- Þróttur. Einnig leikir
geta orðið skemmtilegir, þó að
gera verði ráð fyrir að þau lið
sem fyrr eru nefnd sigri.
sigrinum
Þessir þrír kappar voruj
aðalmenn landsleiks Svía og;
Belgíumanna í vikunni, er
Svíar unnu 2—0. Lengst til!
vinstri er Yngve Brocki,;
sem skoraði annað markið.!
Brodd leikur með franskaj j
atvinnumannaliðnu Tou--'
louse og hefur staðið sig!
mjög vel í leikjum með því;
undanfarið. í miðið erj;
markvörður sænska liðsins,!
Bengt Nyholm, en hann héltj
marki sínu hreinu. liii
hægri er svo Rune Börje-1
sen, sem einnig skoraði!
mark.
Jón Þ.
1,89 m.
ÍR-ingar héldu innanfélags-
mót í hástökki með og án at-
rennu í ÍR-húsinu sl. fösti*'
dagskvöld.
Jón Þ. Ólafsson, hinn ungjl
og efnilegi stökkvari sigraði í
báðum greinu. Hann stökk
1,89 m með atrennu og var
mjög nálægt því að stökkva
næstu hæð —• 1,94. Annar
varð Valbjörn Þorláksson,
1,73 m.
í hástökki án atrennu stekkJ
Jón 1,58 m. Vlalbjörn 9Önm>
hæð, þriðji var _ Karl Hólm,,
*
Alþýðublaðið — 23. okt. 1960