Alþýðublaðið - 09.11.1960, Page 1
;
VINSTRISTJÓRNIN vildi semja um landhelg
ina og bauð Atlantshafsbandalagsþjóðinjum tíma-
bundin hlunnindi allt inn að 6 mílna mörkum, ef
þær vildu viðurkenna tólf mílna línuna að því
loknu. Frá þessu skýrði Guðmundur í. Guðmunds*
son utanríkisráðherra í umræðum um landhelgis-
málin í Efri deild Alþingis í gær.
Guðmundur skýrði frá þessum tveim tilboðum,
sem ráðherrar Framsóknarflokksins meðal annars
stóðu að:
1) Vinstristjórn sendi 8. maí 1958 tilboð um að ís-
lendingar mundu endurskoða ákvörðun sína um
útgáfu 12 mílna reglugerðarinnar, ef NATOrík
in viðurkenndu 12 mílur gegn heimild til að
veiða í takmarkaðan tíma á ytri 6 mílunum,
enda væri grunnlínum breytt.
2) Vinstristjórnin sendi 22. ágúst sama ár annað
tilboð, þar sem minnt var á hið fyrra tilboð og
áftur bent á það sem samkomulagsgrundvöll.
Framhald á 3. síðu.
WVWMWWWWWWMWMIIHMIWWMWWWIMMWIWWWWW
Fyrsta útgáfa Alþýðublaðsins fór í pressuna
kl. 1,30. Þá var búið að telja rúmlega fimm milljón
atkvæða. Kennedy frambjóðandi Demókrata hafði
þá hlotið 2.603,000 atkvæða, en Nixon 2.420,000. —
Kennedy hafði 52 prósent atkvæða, Nixon 48.
Fyrstu tölur sýndu Nixon hafa forystuna, en
brátt fór Kennedy fram úr honum. — Kl. 1,30 var
Kennedy sigurstranglegri (sjá þriðju síðu).
LEIKSLOK
■ ..i'.W'.wovi..
ÞEIK HAFA FERÐAZT hundruð þúsunda kílómetra, og fullorðnum, en fyrst og fremst talað, talað, talað. —
haldið þúsund ræður, komið ótal sinnum fram í útvarpi Nú hefur verið kosið. Annar fer í Hvíta húsið, hinn snýr
og sjónvarpi, þrengt sér inn á hvert einasta bandarískt sér að áframhaldandi störfum, því eitt eiga þessir ungu
heimili, brosað, hlegið, tekið í hendur, klappað börnum menn sameiginlegt: þeir geta ekki verið iðjulausir.
. . . » »VW » . »V. » .» ..vr>»»»V»«»WlvW»>m»WmWWW