Alþýðublaðið - 08.12.1960, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 08.12.1960, Qupperneq 2
'Sttfijöiwc; GIsU J. Ástþórsaon (áb.) og Benedlkt GrSndal. — Fulltrúar rlt- r, Jtjömar: Sigvaldl Hjálœarsson og Indriðl G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: j[ Kíhrgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasín*i: 1 14í)CS. — ASsetur: Alþýðuhiislð. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfls- j . Sat* 8—10. — Áskriftargjald: kx. 45,00 á mánuðl. í lausasélu kr. 3.00 eint. f jjofacdi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjórlr Sverrlr Kjartansson. ATVINNUÁSTANDIÐ í 1 ALÞÝÐUBLAÐIÐ birti í gær niðurstöður af i lauslegri athu'gun, er blaðið gerði á atvinnuá' ] Standinu um þessar mundir. Ræddi blaðið við full- .' trúa nokkurra verkalýðsfélaga um málið, svo og ; við Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar. Niðurstað- j an af þessari athugun var sú, að vinna í verka- j mannavinnu hefur minnkað án þess að til at- j vinnuleysis hafi þar komið. Einnig hefur orðið ; no’kkur samdráttur í byggingariðnaðinum og verk i smiðjuiðnaðinum. Að vísu er þess að gæta, að 1 vinna er ætíð minni í byggingariðnaðinum um 4 þetta leyti árs, en þó er útlit fyrir, að vinna í 1 byggin’gariðnaðinum verði nokkru minni í vetur i en t. d- í fyrravetur. Sagt hefur verið upp fólki í ' nokkrum verksmiðjum í Reýkjavík, en ekki eru j þær uppsagnir þó almennt komnár til fram- ^ kvæmda og fólkið því ekki atvinnulaust. Sumar ; verksmiðjanna munu hafa það í huga að hafa • starfsfólk sitt á lausum samningum og er því ekki J víst, að það fólk verði látið hætta störfum. Aðal- j atriðið er það, að enn er ekki unnt að segja, að f ufn atvinnuleysi sé að ræða, þrátt fyrir samdrátt i þann, er hér hefur verið nefndur. Engum þarf að koma það á óvart, að nokkur • samdráttur verði, þar eð kaupgeta almennings var í orðin meiri en raunveruleg framleiðsla þjóðarinn- j ar og sparnaður stóð undir. Við höfum síðustu ; árin haldið uppi faiskri kaupgetu með skuldasöfn- ! un erlendis og óeðlilegri lánsfjárþenslu innan ! lands. Gengisbreytingunni var ætlað að jafna hall | ann á greiðslujöfnuóinum við útlönd og vaxta- •; hækkuninni var ætlað að skapa jafnvægi á láns- : fjármarkaðnum innan lands. Gjaldeyrisstaðan í hefur þdgar batnað mikið og sparifjársöfnun hef- r ur aukizt jafnframt því sem dregið hefur úr út- l lánum bankanna. Ráðstafanir ríkisstjómarinnar i hafa því tekizt vel hvað þetta hvort tvdggja f. snertir- Ríkisstjórninni var það að sjálfsögðu ljóst strax i og ráðstafanirnar í efnahagsmálunum voru ’gerð- l ar, að gæta yrði þess vel, að samdrátturinn, er leiða mundi af ráðstöfununum, leiddi ekki til at- vinnuleysis. Ætlunin var sú þegar í upphafi, að j vaxtahækkunin yrðj. aðeins tímabundin og því hefur þegar verið lýst yfir, að fljótlega komi til ; framkvæmda einhver vaxtalækkun. Atvinnu- ástandið nú hlýtur aö verða til þess að ríkisstjórn : in flýti þeirri ráðstöfun sinni, þar eð lækkun vaxt j anna mun á ný auka atvinnuna. Alþýðuflokkurinn lagði áherzlu á það á nýaf- ; stöðnu flokksþingi sínu, að tryggja yrði fulla at- vinnu í landinu. Mun flokkurinn leggja höfuðá- herzlu á það í ríkisstjórninni, að því stefnumáli flokksins verði framfylgt. 2 ;8. dcs. 1960 — Alþj-ðuljladið MIKLAR framLvæmdir eru nú á döfinni á Landsspítalalóð- inni, eins og kunnugt er. Gert er ráð fyrir, að 1. október verði tekin í notkun ný sjúkradeild með 26 rúmum. Er þá reiknað með, að tengiálman verði til- búin, en þar munu starfa um 40 nýffr starfsmenn Landsspítal- ans. Alþýðublaðið fékk þessar upplýsingar hjá Georg Lúðvíks i syni, framkvæmdastjóra rikis- , spítalanna, í gær og spurðist ’nánar fyrir um gang fram- Ikvæmdanna. j Eins og fyrr segir mun sjúkva tdeildin í tengiálmunni verða til »búin 1. okt. 1961, ef allt gengur |að óskum. Verður deildin á 3. ^hæð álmunnar og mun rúma e26 sjúkrarúm. Á 1. hæð verða rannsóknarstofur og kennslu- stofur læknadeildar háskólans. Á 2. hæð fá skurðstofur Lands- spítalans stóraukið húsrými. Herbergi námskandídata og gistiherbergi fyrir lækna utan af iandi verða á 4. hæð, svo og skjalageymsla fyrir spítalanh og lesstofa fyrir lækna. Munu alls um 40 nýir starfsmenn Landsspítalans fá aðstöðu í tengiálmunni. Auk tengiálmunnar eru tvær aðalálmur í smíðum á Lands- spítalalóðinni. en meiri áherzia verður lögð á að hraða vestur- álmunni eftir megni. Hún verð ur fjórar aðalhæðir, en í kjali- ara verður æfingastöð lamaðra og fatlaðra. Barnaspítalinn fær tvær hæðir af álmunni, en sjúkrastofur verða á hinum 3 tveim hæðunum. Er þess vænzt að þessi álma verði tilbúin til notkunar eftir tvö ár. Austurálman er skemmra á veg komin, enda verður bygg- ing hennar að -sitja á hakanum meðan unnið er af fullu kappi við tengiálmuna oa vesturálm- una. Fjórar sjúkradeildir verða í austurálmunni. Loks er i’ bí- gerð, að reisa ketilhús, þvotta- hús og eldhús á lóðinni. Nú eru 220 sjúkrarúm í Landsspítalanum, að Fæðingar deildinni meðtalinni, en begar þeim byggingarframkvæmdum; sem hér að framan hefur ver- ið sagt frá, er lokið, bætast vi5 200 sjúkrarúm. Mun þá öll að- staða spítalans að sjálfsögðu batna stórlega, enda hefur hús- næði stofnunarinnar verið mjög af skornum skammti und- anfarin ár. —a. í gærkvöldi bar mikig á ölv- un í miðbænum. Um miðnætti var „kjallarinn“ fullskipaður gestum. Að undanfömu hafa verið fremur fáir, sem gist hafa „kjallarann“ og þykir það tíð- indum sæta að fullskipað sé þar á miðvikudagskvöldi. ÞYRMT AÐFARANÓTT 18. nóvemb- [er sl. brauzt óþekktur maður [inn í fjárhús í Hafnarfirði og hafði kynmök við gimbur, sem þar var. Gimbrin var mjög illa farin eftir vcrknað þcnnan, og stóð á tæpu, að ekki þyrfti að lóga henni. Þegar eigandi fjárhússins kom að þvi að morgni 19. nóv. hafði hurðin verið brotin. og fann hann gimbrina illa út- leikna í stíu sinni. Kallaði hann dýralækni þegar á vettvang, og úrskurðaði dýralæknirinn, að fyrrnefndur atburður hefði átt sér stað. Gimbur þessi var geymd þama í fjárhúsinu ásamt tveim hrútum, sem voru stíaðir frá henni miöp rammbvggileea. Þess má geta, að innbrots- maðurinn hafði ekki fyrix því, að brjóta npp lás þann, sem fyrir dyrunúm var, heldur braut hann alla hurðina. sem var sterkbyggð. Eigandi gimbrarinnar hefur kært atburðinn til lögreglunnai- í Hafnarfirði, en ekkert hefur komið í ljós, sem bent gæti ti-l hver hinn seki er. fHannes á h o r n i n u -jíj' Þalckað fyrir blóm tínd á hausti. Ýr Stritmenn gerast fræðaþulir. -jíý Sjómaður með penna. Frá Suðurnesjum. KLÓTHILDUR! Ég þakka bréfið, sem ég fékk fyrir nokkru — og blómin þakka ég einnig. Það er sama þó að þau hafi ekki lifað nógu lengi hjá þér. Þú tíndir þau á hausti handa mér og ég sé þau eins og þau voru þegar þú tókst þau upp í Borg arfirði. Það er aðalatriði fyrir mig. Já, haustið liefur verið gott eins og sumarið var gott — en góður hugur er öllum djásnum dýrmætari. ALDRAÐUR sjómaður, sem gerst hefur fræðaþulur á gam als aldri kom til mín einn dag inn. Hann hafði mikla bók með ferðis, sem hann bað mig að lesa og það hef ég nú gert. — Magnús Þórarinsson er 81 árs að aldri, Hann byrjaði að róa meðan hann var enn barn að aldri og formaður var hann orð inn 16 ára ■gamall. Síðan stund aði hann sjómennsku um langan aldur. Hann naut aldrei neinnar skólagöngu og grét út af því þeg ar hann var barn — og eftir að hann fór að róa var ekki tími til náms. — EN FRÆÐAÞRÁIN og bók hneigðin er ríkt í íslendingum. Magnús hóf sjálfnám og gerðist fræðaþulur. Öll löngun hans stemmdi að því að kynna sér lifn aðarhætti, viðburði og sögu allr ar byggðar sinnar, Suðurnesja — og í mörg ár hefur hann setið hvern dag í stofum Þjóðskjala safnsins ,rýnt í gömul skjöl og gamlar bækur — og skrifað hjá sér. Þeir'eru þarna nokkrir fleiri ,,ómenntuðu“ alþýðumenn irnir við sömu iðju. FYRIR ATBEINA Magnúsar, frábæran dugnað hans og alúð gaf Félag Suðumesjamanna út bókina, Frá Suðurnesjum, stórr verk, um 400 síður í stóru brotí með margvíslegum sögum og margskonar fróðleik um líf og stríð Suðurnesjamanna á ] iðnumi tma. Útgáfa og samning bókar’ innar er fyrst og fremst verk Magnúsar, en margir fleiri hafa lagt hönd að verki og skriíað i hana flætti1, en sjálfur hefur Magnús skrifað meginhlutann. STARF MANNA, eilis og Magnúsar Þórarinssonar er séi’ kenni hjá okkur íslendingum. Ég hef séð marga aldraða menn í Landsbókasafninu og Þjóð skjalasafninu rýnandi í gamlar' bækur og skjöl og skrifandi. —. Þetta hafa verið toændur og sjó menn, sem hafa unnið hörðum höndum á sjó og landi langa æfi — og nú setzt við skttfti-;-. Ég gleymi aldrei Pétri frá Stökkum. Magnús Þórarinssonj er einn þessara manna. Það geii ur vel verið að fagurkerum þykí stundum eitthvað hafa mátu fara betur, en mál þeirra kýs ég fremur en tilgerð og gljáa þeirra, sem alltaf eru að fægja. Hannes á horninu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.