Alþýðublaðið - 15.12.1960, Blaðsíða 13
Jón Þorsteinsson:
Ljóð.
ísafoldarprcntsmiðja.
Reykjavík 1960.
ÞINGEYINGAR töldu aldrei
Jón á Arnarvatni til stór-
skálda sinna, en beztu vísur
hans reynast sennilega lang-
lífari en sumt af þeim skáld-
skap, sem meira hefur veriS
flíkað í sveitunum austan
Vaðlaheiðar. Jón fæddist 1859.
en lézt 1948 og vantaði þá
rúmt ár í nírætt. Hann var
sveitarskáld, en fjöllesinn og
víðsýnn, sá út í heim og mynd-
aði sér sjálfstæðar skoðanir
um menn og málefni. Hann
kunni dável til verks, var hug-
kvæmur í ljóðagerð sinni og
einstaklega kíminn. Ljóðabók
eftir Jón kom út 1933, og sá
Ólafur heitinn Marteinsson
magister um útgáfu hennar.
N ú hefur ísafoldarprent-
smiðja gefið út ljóð Jóns á
Arnarvatni að nýju, og er það
aukin útgáfa frá þeirri, sem
Ólafur annaðist. Andrés
Björnsson ritar formála að
bókinni í aldarminningu
skáldsins, enda mun hann
hafa safnað til hennar kvæð-
• um og vísum Jóns. Utgáfan
er falleg og vönduð og skáld-
inu verðskuldaður minnis-
varði.
Meginhluti bókarinnar er
tækifærisskáldskapur, og yrk-
isefnin svo fáskrúðug', að Jón
velur löngum orðin af göml-
hika ekki við að fullyrða, aö
beztu kvæði og lausavísur
Jóns á Arnarvatni skipi hon-
um framarlega á bekk is-
lenzkra alþýðuskálda, |
Stökurnar um Gleðiná eru
svona:
Gleði vor er hin rauða rós.ý;.
er rjóðar veikan og bleikan;
það er hún, sem leiðir í ljós
lífið og ódauðleikann.
Og hvort sem ég leggyr; með
logandi vjh-
í laut, eða á hinzta beðinn,
svæfillinn minn og sængin
min;.
sértu mér, blessuð gleðin.
Vissulega er af nógu að
taka, þegar valið skal úr iausa
vísum Jóns á Arnarvatoi. Hér
eru nokkrar:
Allt er mælt á eina vog_____
í því svarta skýi, ;,r
helmingurinn öfgar og
afgangurinn lygi.
Vorið dregur eitthvað út
undan frosnum bakka,
hefur geymt þar grænan kút,
— gef mér nú að smakka.
Líður allt, þó líði ei fljótt, ^
lán og sorgin ríka;
mér var þungbær þessi nótt,
þó er hún búin líka.
Farðu þér hægt mín fagra,
svo fáklædd, ung og glöð;
því hér eru ógrynni af eplum,
en engin fíkjublöð.
Heyr mig Loki, hvításs bani!
Hvar er mistilteinn?
Fá mér blindum fimmtán Dani
fyrir Kamban einn
Þetta mundi góður skáld-
skapur, og á bak við er stór
islenzk mannsmynd Þingev-
ingar hafa orðið montnir af
minna.
Helgi Sæmundsson.
Ósýnileg
vernd
ÚT ER komin hjá 'Víkur-
útgáfunni bók um dulræn
efni, sem heitir „Ósýnileg
vernd“. Höfundur er enskur
byggingamtistari, er gert hef
ur teikningar að miklum
fjölda kirkna, Laurence
Tample að nafni. Þýðinguna
hefur gert frú Halldóra Sig-
urðjónsson. Bókin er 148 blað
síður, prentuð í prentsmiðju
Jóns Helgasonar.
Bókin greinir frá þeirri
skoðun höfundar, að hann
hafi notið ósýnilegrar vernd
ar og handeiðslu í starfi sínu
og einkalífi. Hafi hann feng-
ið bréf frá framliðnum mönn
um göfugum, rituð ósjálfrátt
af miðlum eða skilaboð gegn
um miðla honum flutt munn-
legá. Kveður höfundur sér
hafa verið sögð fyrir mörg
stórmerk atvik, er hann hafi
hent á lífsleiðinni.
Ný Millý
Mollý Mandý
bók
NÝ BÓK um Millý Mollý
Mandý er ’komin út hjá Skugg
sjá. Hún heitir „Millý Mollý
Mandý fær bréf frá íslandi.“
Eru þá komnar út fjórar bæk
ur á íslenzku um hana. Höf-
undur er J. L. Brisley, en
þýðandi er Vilbergur Júlíus-
son skólastjóri. Bókin er
prentuð í Alþýðuprent-
smiðjunni.
Rómverjinn
eftir
Sholem Asch
„RÓMVERJINN“, fyrsti
hluti skáldverlrsins „Nazare-
ans“ eftir Sholem Asch, er
kominn út í íslenzkri þýð-
ingu Magnúsar Jochumsson-
ar hjá Bókaútgáfunni Leiftri
í Reykjavík, Bókin er 248
síður. V
Skáldverkið „Nazareinn“
er í þremur hlutum og fjall-
ar um þjóðhætti og þjóðlíf í
Jerúsalem á dögum Krists.
Fyrsti hlutinn er sagður frá
sjónarhóli Cornelíusar hins
rómverska hundraðshöfð-
ingja, sem stjórnar Jerúsal-
em. Annar hlutinn er sagður
frá sjónarhóli Lærisveinsins,
en þriðji hlutinn er eftir frá
sögn Gyðingsins.
Höfundur skáldritsins,
Sholem Asch, sem látinn er
nýlega, hefur hlotið mikla
frægð fyrir það.
Kvæóasafn
Magnúsar
Asgeirssonar
SÍÐARA bindi af kvæða-
safni Magnúsar Ásgeirsson-
ar er komið út hiá Helgafelli.
Það flytur frumsamin og
þýdd ljóð. Tómas Guðmunds
son skáld sá um útgáfuna.
Bókin er 270 blaðsíður að
stærð, prentuð í Víkings-
prenti.
í þessu bindi kvæðasafns-
ins eru: Þýdd liós V. og VI.
bindi með nokkrum úrfell-
ingum, nokkur kvæði, sem
ekki hafa komizt í bók iyrr
en nú. Meðan sprengjurnar
falla, norsk og sænsk ljóð í
íslenzkum búningi, Rubaiyat
eftir Omar Khayam, Kvæð-
ið um fangann eftir Oscar
Wilde. Kaflar úr Faust, þar
að auki efnisyfirlit og Nokk-
ur n^'ru|ii\garorð um skáld
og mann eftir Tómas Guð-
mundsson.
Þrykkt er mynd skáldsins á
titilspjald og þar er og rit-
hönd hans.
um vana. Þó er eitthvað sér-
stakt við þessa ljóðagerð hans,
og öðru hvoru bregður hann
út af alfaraleið íslenzkra hag-
yrðinga, annaðhvort nf
skemmtilegu tilefni eða per-
sónulegri reynslu, og þá er
Jón á Arnarvatni allt í einu
orðinn skáld, sem leysir vand-
ann prýðilega af hendi. Ég
nefni þessu til staðfestingar
kvæðin „'Hvítur sauður, svart-
ur sauður“, sem á heima í sýn-
isbókum íslenzkra ljóða: Mið-
sumarkvöld 1915, eftirmælin
ógleymanlegu um Þorgils
Gjallanda, og Rindarnir, þeg-
ar skáldinu verður hugsað um
hesta sína fram á dal. Stök-
urnar um Davíð konung og
Úríu og Gleðina geta lika kall-
azt ágæt kvæði, þó að skáldið
komi manni þar naumast eins
á óvart. En lausavísurnar
verða samt áreiðanlega langlíf
astar af þvi, sem Jón á Arnar-
vatni kvað um dagana. Hann
er í hópisnjöllustuvísnaskálda
okkar síðustu áratugina, oft-
ast glaður og reifur, en segir
líka samtíðinni til syndanna,
ef honum býður svo \dð að
horfa, fjölbrögðóttur eins og
kattmjúkur glímumaður. Ég
Sferk, m, örugg ?
f pezta hjálp húsmóburiyiyiar/
Nú geta allir eignast RAFHA ryksugu.
Fæst gegn afborgun.
700,00 kr. útborgun og 6 mánaðarlegar greiðsl-
ur, hver kr. 400,00 eða 300,00 kr. útborgun
og 12 mánaðarlegar greiðslur, hver kr. 250,00.
UTSOLUSTAÐIR:
Vesturver —
Aðalstræti 6.
Raforka —
Vesturgötu 2.
Dráttarvélar h.f. —
Hafnarstræti 23.
Alþýðublaðið — 15. des. 1960